
Kjaramál

Forðast þurfi með öllum ráðum að lenda í vonda vítahringnum
Formaður Framsóknarflokksins segir að það ófremdarástand sem skapaðist í efnahagsmálum á níunda áratugnum, með víxlverkun launahækkana og verðlags, megi aldrei endurtaka sig. Allir sem eitthvað geti gert verði að leggjast á eitt til að tryggja að svo verði ekki.

Sólveig Anna greiðir atkvæði með miðlunartillögunni: „Verð eflaust grilluð á teini mjög hratt og rösklega“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hyggst greiða atkvæði með nýrri miðlunartillögu Ástráðar Haraldssonar, setts sáttasemjara. Hún segist búast við því að verða „grilluð á teini mjög hratt og rösklega“ vegna þess, en telur ekkert annað hafa verið í stöðunni.

Flugmálastarfsmenn og SA náðu saman
Nýr kjarasamnignur Félags flugmálastarfsmanna ríkisins og Samtaka atvinnulífsins hefur verið undirritaður. Samningar hafa verið lausir síðan í nóvember í fyrra.

Atkvæðagreiðsla um miðlunartillögu hefst í hádeginu
Atkvæðagreiðsla um miðlunartillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, sem kynnt var á miðvikudaginn, hefst í hádeginu í dag. Henni lýkur svo næstkomandi miðvikudag, 8. mars klukkan tíu fyrir hádegi.

Fráleitt að veitingamenn séu ekki með í ráðum um eigin örlög
Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í veitingarekstri segir ljóst að áhrifin á greinina verði töluverð ef að miðlunartillaga ríkissáttasemjara á að gilda um þau líka. Þau hafa ítrekað kallað eftir öðruvísi samning sem tekur mið af rekstrarumhverfi greinarinnar og vilja sæti við borðið, annað sé fráleitt. Viðræður þeirra við Eflingu hafi ekki borið árangur og þeim vísað til ríkissáttasemjara.

Ekki útséð með áhrif verkfalla á hótelin
Þrátt fyrir að starfsemi hótela sem verkföll Eflingar hafa beinst að sé nú komin á skrið gætir áhrifa þeirra enn. Framkvæmdastjóri Berjaya-hótela segir mest um vert að geta opnað fyrir bókanir að nýju, en lokað var fyrir þær þegar ljóst varð að stefndi í verkfall.

Kemur í ljós eftir viku hvort hnúturinn raknar
Ef miðlunartillaga setts ríkissáttasemjara verður samþykkt heggur hún á hnút hörðustu kjaradeilu í landinu á síðari árum. Tillagan gerir ráð fyrir sömu launahækkunum og aðrir hafa fengið en þernur á hótelum og bílstjórar olíufélaganna og Samskipa fá að auki hækkun um launaflokk og áhættuþóknun.

Rétt ákvörðun að greiða atkvæði um tillöguna
Formaður Eflingar vill ekki segja hvort hann mæli með því að félagar greiði atkvæði með miðlunartillögu sáttasemjara en það sé rétt ákvörðun að halda atkvæðagreiðslu. Yfirvofandi verkbann og kjarabætur fyrir þernur og bílstjóra voru á meðal ástæðna þess að samninganefnd Eflingar gat sætt sig við að láta greiða atkvæði um tillöguna.

Ósáttur við fulla afturvirkni
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) segist ætla að hvetja félagsmenn til þess að greiða atkvæði með miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Hann væntir þess að forysta Eflingar geri slíkt hið sama en er ósáttur með að afturvirknin sé inni í tillögunni.

Öllum verkföllum og verkbanni frestað
Öllum verkföllum og verkbanni verður frestað þar til niðurstaða atkvæðagreiðslu um nýja miðlunartillögu ríkissáttasemjara liggur fyrir.

Bein útsending: Ástráður kynnti nýja miðlunartillögu
Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins boðaði til fréttamannafundar klukkan tíu í morgun þar sem hann kynnti nýja miðlunartillögu í deilunni.

Fyrirtæki og launþegar gæti hófsemi til að ná niður verðbólgu
Fjármálaráðherra hefur miklar áhyggjur af hárri verðbólgu en varar við vítahring launahækkanna sem leiti aftur út í verðlag. Forsætisráðherra biðlar til fyrirtækja að gæta hófsemi í arðgreiðslum og álagningu. Húsnæðiskostnaður heimilanna hækkar gríðarlega vegna samspils stýrivaxtahækkana og verðbólgu.

Loforð stjórnvalda og atvinnulífsins hafi verið svikin
Hagsmunasamtök heimilanna blása til fundar í Iðnó í kvöld. Formaður samtakanna segir heimilin þurfa að sýna að þau ætli ekki að fóðra bankana. Formaður VR verður á fundinum en hann segir stjórnvöld og atvinnulífið hafa svikið loforð um að standa með fólkinu í landinu.

Gæti ráðist á næsta sólarhring hvort ný miðlunartillaga verði lögð fram
Tími setts ríkissáttasemjara til að leggja fram nýja miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins fer að renna út vegna yfirvofandi verkbanns á mánudag. Hann er líka í þrengri stöðu en embættið var til að leggja fram slíka tillögu þar sem hann þarf að vera þess fullviss að báðir deiluaðilar muni samþykkja að tillaga hans fari í atkvæðagreiðslu.

Neyðast til að fresta þingveislu vegna verkfallsins
Halda átti þingveislu á Grand hótel næstkomandi föstudag. Vegna yfirstandandi verkfalls hótelstarfsfólks í Eflingu var tekin sú ákvörðun að fresta veislunni.

Ástráður ávítar Stefán Ólafsson fyrir trúnaðarbrot
Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari gagnrýnir Stefán Ólafsson samninganefndarmann Eflingar harðlega fyrir trúnaðarbrot í tengslum við kjaraviðræður félagsins við Samtök atvinnulífsins. Hann segir opinber ummæli Stefáns geta sett viðræðurnar „út af teinunum."

Segir fimm klukkustunda fund hafa strandað á þúsundkalli
Stefán Ólafsson, sérfræðingur í vinnumarkaðs- og lífskjararannsóknum hjá Eflingu, er hugsi eftir að viðræður Eflingar og Samtaka atvinnulífsins um lausn í kjaradeilu sigldi í strand. Á honum er að skilja að samningaviðræður hafi strandað á eitt þúsund króna launahækkun til félagsmanna Eflingar.

Rennur hratt úr tímaglasi sáttasemjara
Reikna má með að settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins reyni að leggja fram miðlunartillögu á allra næstu dögum. Ýmsar ytri aðstæður hjálpa til við að flækja málin og tíminn vinnur ekki með lausn deilunnar.

Hárið hans Halldórs og skapið hennar Sólveigar
Sprengjuástandið sem ríkir á íslenskum vinnumarkaði hefur verið einfaldað í umræðunni. Stundum alveg niður í skap Sólveigar Önnu og hár Halldórs Benjamíns. Spennustigið stafar þó auðvitað ekki af því hvernig þessar tvær aðalpersónur viðræðnanna ná saman heldur af því að fólk hér á landi býr ekki við jöfn tækifæri.

Fjórir tímar dugðu ekki og óvíst hvenær næsti fundur er
Fundi Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA) í Karphúsinu í gærkvöldi lauk rétt eftir miðnætti. Engin niðurstaða náðist, engin miðlunartillaga er í sjónmáli og óvíst er hvenær næsti fundur fer fram. Ríkissáttasemjari leggst nú undir feld að nýju.

Vaktin: Fundi slitið og ríkissáttasemjari lagstur undir feld
Efling og Samtök atvinnulífsins (SA) funda í Karphúsinu ásamt settum ríkissáttasemjara í kvöld. Fylgst verður með þróun mála í vaktinni.

598
Þegar við undirrituðum skammtímasamning í desember síðastliðinn tóku einhverjir eftir að ég gaf ekki kost á mér í myndatöku með viðsemjendum okkar eftir undirritun samninga. Svo vel tóku sumir eftir að þeim þykir þetta athæfi mitt teljast til verstu synda í formannstíð minni.

Boðar deiluaðila á fund: Verkbanni frestað um fjóra daga
Settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hefur boðað samninganefndir á fund sinn í Karphúsinu í kvöld. Efni fundarins er möguleg ný miðlunartillaga en verkbanni SA hefur verið frestað um fjóra daga.

Að dýpka gjána
Efling stendur nú í kjarabaráttu og ég óska þeim góðs gengis og vona að félagsmenn Eflingar nái skikkanlegum kjarabótum með sínum sjálfstæða samningarétti.

Ræðum orsökina en ekki afleiðinguna
Umræðan sem heltekur þjóðina í dag eru kjaraviðræður Eflingar. Ólíklegt er að kaffistofa finnist þar sem verkföll og verkbönn hafa ekki verið rædd. Fólk flykkjast í fylkingar með og á móti aðferðafræði og baráttu Eflingar. Baráttu til árs. Barátta sem mun endurtaka sig aftur og aftur með skömmu millibili.

Sakar SA um gerræði og boðar aðgerðir gegn verkbanni
Formaður Eflingar sakar Samtök atvinnulífsins um gerræðislegar hótanir með verkbanni á félagsmenn þess. Efling ætlar að boða til aðgerða til að mótmæla verkbanninu þegar það tekur gildi á fimmtudag.

Ógnarstjórn
Samtök atvinnulífsins hafa lagt ótímabundið verkbann á Eflingu. Í því felst hótun um að félagsmenn Eflingar á almenna vinnumarkaðinum verða sviptir launum sínum frá og með fimmtudeginum í næstu viku, 2. mars.

Evrópusambandið fýsilegur kostur í litlu hagkerfi
Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir að innganga Íslands í Evrópusambandið gæti reynst vel. Hann gerir þó fyrirvara við mál sitt; ferlið sé flókið og nýr gjaldmiðill sé engin töfralausn. Aukið samstarf við nágrannaríkin gæti þó verið af hinu góða.

Veitingamönnum beri engin lagaleg skylda til að fylgja verkbanni
Forseti ASÍ gerir ráð fyrir að niðurstaða vegna boðunar verkbanns SA, sem þau telja ólögmæta, liggi fyrir í Félagsdómi áður en verkbannið á að hefjast á fimmtudag. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í veitingarekstri segir veitingamenn ekki þurfa að hlýða boðuðu verkbanni. Þeim beri ekki lagaleg skylda til þess þar sem samtökin telja sig ekki hluta af kjaradeilunni. Samtökin hafa vísað viðræðum við Eflingu um eigin samninga til ríkissáttasemjara.

„Það þarf að bregðast hratt við“
Forseti ASÍ segir stefnu sambandsins gegn Samtökum atvinnulífsins vegna boðaðs verkbanns varða verkalýðshreyfinguna í heild en þau höfða málið fyrir hönd Eflingar. Hann býst við niðurstöðu fyrir fimmtudag, þegar verkbannið á að hefjast. Málið verður þingfest síðdegis á morgun og mun dómurinn skera úr um hvort boðunin hafi verið með lögmætum hætti. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er ósammála ASÍ og segir að þau muni taka til varna.