Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Hong Myung-Bo hefur átt mjög erfiða daga síðan að suðurkóreska landsliðið datt úr leik á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Nú hefur fráfarandi þjálfari suðurkóreska landsliðsins fengið líflátshótanir. Fótbolti 30.6.2026 15:00
Forseti Suður-Kóreu húðskammar „vanhæfan“ landsliðsþjálfara Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, var afar ósáttur við að karlalandsliði þjóðarinnar í fótbolta hafi mistekist að komast upp úr riðlakeppninni á HM. Hann kennir landsliðsþjálfaranum um ófarirnar og vill að íþróttamálaráðuneyti Suður-Kóreu láti rannsaka frammistöðu landsliðsins á HM. Fótbolti 28.6.2026 15:05
Æfðu árás á Suður-Kóreu Skammdrægrum skotflaugum og stórskotaliðsflaugum og öðrum vopnum var skotið á loft frá Norður-Kóreu í morgun. Forsvarsmenn herafla Suður-Kóreu segja að eldflauginni, og öðrum ótilgreindum vopnum, hafi verið skotið á haf út en Norður-Kóreumenn hafa ekki tjáð sig um æfingarnar. Ráðamenn í Rússlandi og Kína lýstu á dögunum yfir andstöðu gegn refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum sem beitt hefur verið gegn einræðisríkinu. Erlent 26.5.2026 10:04
Atvinnulaus aumingi trompar dauðakölt Fjölskyldufaðir sem missir vinnuna hjá pappírsfyrirtæki eftir áratuga starfsferil grípur til blóðugra örþrifaráða. Ungur drengur lendir í félagsskap satanísks gengis sem ráfar um uppvakningahrjáð England. Mennirnir tveir glíma við ólíka djöfla en lenda báðir í kröppum dansi. Gagnrýni 23. janúar 2026 07:01
Fyrrverandi forseti dæmdur í fimm ára fangelsi Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir misnotkun valds, hindrun framgangs réttvísinnar og fyrir skjalafals í tengslum við misheppnaða tilraun hans til að setja á herlög í landinu árið 2024. Um er að ræða fyrstu dómsuppkvaðninguna yfir forsetanum fyrrverandi, en hann gæti átt yfir höfði sér enn frekari refsingu, jafnvel dauðarefsingu, þar sem enn á eftir að kveða upp úrskurði í þremur málum til viðbótar sem tengjast embættisfærslum forsetans. Erlent 16. janúar 2026 08:00
Lögðu lengi á ráðin um herlög Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, ætlaði að nota herlög til að losa sig við pólitíska andstæðinga sína og taka sér aukin völd í landinu. Hann og bandamenn hans í hernum reyndu einnig að auka spennuna milli Suður- og Norður-Kóreu til að réttlæta beitingu herlaga og undirbjuggu áætlun sína í meira en ár. Erlent 16. desember 2025 13:26
Dæmd í fjögurra ára fangelsi Kona sem kúgaði fé af suður-kóreska fótboltamanninn Heung Min Son hefur verið dæmd í fjögurra ára fangelsi. Fótbolti 8. desember 2025 11:32
Lingard yfirgefur Suður-Kóreu Fyrrum leikmaður Man. Utd og enska landsliðsins, Jesse Lingard, er í leit að næsta ævintýri eftir að hafa gert starfslokasamning í Suður-Kóreu. Fótbolti 5. desember 2025 15:48
Hólmbert skoraði í Suður-Kóreu og stjórnaði sigursöngvum eftir leik Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Gwangju FC í suðurkóresku deildinni í dag. Fótbolti 2. nóvember 2025 13:20
TikTok besta leitarvélin í ferðinni til Suður-Kóreu „Tískan í Seoul var svo sturluð, ég rankaði oft við mér stara á fólk því þau voru öll svo sjúklega töff,“ segir hin 26 ára gamla athafnakona Sofia Elsie Nielsen sem var að koma heim úr ógleymanlegri vinnuferð til Suður-Kóreu. Hún segir Seoul orðna sína eftirlætis borg og fékk endalausar hugmyndir að skemmtilegum hlutum til að gera í gegnum TikTok. Ferðalög 24. september 2025 07:01
Til í viðræður en mun aldrei láta kjarnorkuvopnin af hendi Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segist opinn fyrir nýjum viðræðum við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Með þeim skilyrðum að Bandaríkjamenn hætti að krefjast þess að Kim láti kjarnorkuvopn sín af hendi. Það segist hann aldrei ætla að gera. Erlent 22. september 2025 12:18
Bandaríkjamenn handtóku yfir þrjú hundruð Suður-Kóreumenn Yfir þrjú hundruð ríkisborgarar Suður-Kóreu voru handteknir í Bandaríkjunum fyrir helgi fyrir að starfa þar ólöglega í rafmagnsbílaverksmiðju. Suðurkóresk yfirvöld hyggjast flytja alla ríkisborgarana aftur til síns heima í leiguflugi. Erlent 7. september 2025 09:57
„Selir“ skutu óvopnaða borgara í leyniaðgerð í Norður-Kóreu Bandarískir sérsveitarmenn skutu óvopnaða Norður-Kóreumenn til bana í misheppnaðri leyniaðgerð í upphafi árs 2019. Þar voru þeir til að koma fyrir hlerunarbúnaði sem vonast var til að gæti verið notaður til að hlera samskipti Kims Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, þegar Bandaríkjamenn voru í viðræðum við hann um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins. Erlent 5. september 2025 11:56
Bretar, Kanadamenn, Suður-Kóreubúar og Þjóðverji meðal látinna í Lissabon Þriggja ára drengur er meðal þeirra sem komst lífs af úr toglestarslysinu sem varð í Lissabon í gær. Þjóðarsorg var lýst yfir í landinu í kjölfar slyssins en toglestin fór af sporinu og skall utan í byggingu. Að minnsta kosti átján slösuðust og sextán eru látin. Þau látnu eru frá Portúgal, Bretlandi, Suður-Kóreu, Sviss, Kanada, Þýskalandi og Úkraínu. Erlent 5. september 2025 10:50
Vinsælast á Netflix og Spotify: Kóreskir djöflaveiðarar tröllríða öllu Þó foreldrar ungra barna viti það kannski fullvel er meðalmaðurinn sennilega ómeðvitaður um að langvinsælasta mynd ársins til þessa fjallar um kóreska stúlknasveit sem berst við illa djöfla. Ekki nóg með það heldur er tónlist sveitarinnar sú vinsælasta um heim allan. Lífið 28. ágúst 2025 19:00
Lögfesta bann gegn símanotkun í skólum Þingmenn í Suður-Kóreu hafa samþykkt að banna notkun farsíma og annarra snjalltækja í skólum landsins. Þá er stefnt að því að skólar kenni börnum og unglingum ábyrga snjalltækjanotkun. Erlent 27. ágúst 2025 07:59
Annar leikarinn sem styttir sér aldur eftir ölvunarakstur Suður-kóreski leikarinn Song Young-kyu fannst látinn í bíl sínum eftir sjálfsvíg á mánudag. Song er annar leikarinn í Suður-Kóreu sem hefur stytt sér aldur á árinu eftir að hafa lent í fjölmiðlafári vegna ölvunaraksturs. Erlent 4. ágúst 2025 11:45
Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Þegar Hrefna Marcher Helgadóttir lagði af stað einsömul til Balí sumarið 2018, vissi hún ekki að ferðalagið ætti eftir að snúa lífi hennar á hvolf. Þar hitti hún Eric Poole, bandarískan hermann sem hún eyddi einum sólarhring með, og síðan var ekki aftur snúið. Lífið 2. ágúst 2025 08:03
Ætla að breyta heræfingum eftir skammir frá systur Kims Kim Yo Jong, hin áhrifamikla systir Kims Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur hafnað tilraunum nýs forseta Suður-Kóreu til að hefja viðræður ríkjanna á milli. Hún segir að þó ný ríkisstjórn hafi tekið við í suðri marki það litlar breytingar vegna fjandskapar í garð Norður-Kóreu og bandalags Suður-Kóreu og Bandaríkjanna. Erlent 28. júlí 2025 11:39
Andstæðingi forsetans brottrekna spáð sigri í forsetakosningum Útgönguspár benda til þess að Lee Jae-myung verði næsti forseti Suður-Kóreu. Boðað var til kosninganna eftir að Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti var kærður fyrir embættisglöp fyrir að hafa lýst yfir neyðarherlögum. Yoon sakaði stjórnarandstöðuna sem er í meirihluta á suður-kóreska þinginu um að ganga erinda Norður-Kóreu. Erlent 3. júní 2025 15:34
Skyndikosningar framundan í Suður-Kóreu Nýr forseti í Suður-Kóreu verður kjörinn á morgun eftir að fyrrum forseti var vikið úr embætti fyrir að setja á herlög í landinu. Frambjóðandi Lýðræðisflokksins er talinn sigursælastur. Erlent 2. júní 2025 21:14
Segja 4.700 Kimdáta hafa fallið eða særst Leyniþjónusta Suður-Kóreu áætlar að um sex hundruð hermenn frá Norður-Kóreu hafi fallið í átökum við Úkraínumenn. Rúmlega fjögur þúsund eru sagðir hafa særst en heilt yfir er talið að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafi sent um fimmtán þúsund dáta til Rússlands. Erlent 30. apríl 2025 13:48
Hlutabréfaverð í Asíu hækkar Hlutabréfaverð í Asíu hækkaði víðast hvar við opnun í nótt og er búist við því að það sama gerist í Evrópu nú á áttunda tímanum. Viðskipti erlent 14. apríl 2025 06:56
Kauphallir rétta úr kútnum Markaðir í Asíu og Evrópu hafa brugðust vel við þeirri óvæntu ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta að bíða með ofurtollahækkanir sínar á öll lönd nema Kína og voru hækkanir í flestum kauphöllum álfunnar eftir miklar lækkanir síðustu daga. Viðskipti erlent 10. apríl 2025 06:35