Ísrael
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 44 ›
Fólk flýr Beirút undan mannskæðum árásum Ísraela Hundrað eru sagðir fallnir og hundruð særðir í hörðum árásum Ísraelshers á Líbanon. Ísraelsher hefur sagt íbúum í Suður-Líbanon að forða sér búi þeir nærri athafnasvæðum Hezbollah-samtakanna. Fólksflótti er skollinn á frá höfuðborginni Beirút. Erlent 23.9.2024 11:42
Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Ísraelsher hefur hvatt íbúa í þorpum í suðurhluta Líbanon, sem kunna að búa nærri byggingum eða svæðum þar sem Hezbollah er með hernaðarinnviði, til að forða sér. Erlent 23.9.2024 07:12
Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, segir meðlimi ríkisstjórnar sinnar staðráðna að gera íbúum Norður-Ísrael kleift að snúa aftur til síns heima. Að leiðtogar Hezbollah muni fljótt átta sig á stöðunni, eftir árásir sem þeir hefðu ekki getað ímyndað sér fyrir nokkrum dögum. Erlent 22.9.2024 15:02
Skiptast á eldflaugum í massavís Ísraelski herinn og Hezbollah hafa skotið fjölda eldflauga þvers og kruss yfir landamæri Ísrael og Líbanon í nótt og í gær. Árásirnar hafa líklega aldrei verið jafn umfangsmiklar í hvora áttina frá því Hezbollah hóf árásir á Ísrael í október í fyrra, eftir að Ísraelar hófu hernað sinn á Gasaströndinni. Erlent 22.9.2024 07:37
Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Líbönsk yfirvöld segja þrjú börn og sjö konur hafa verið meðal þeirra 37 sem féllu í ísraelskri loftárás á Beirútborg sem dró einn æðsta leiðtoga Hezbollah til bana í gær. Erlent 21.9.2024 23:24
Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Ísraelsher rannsakar nú hóp hermanna sem náðust á myndbandi kasta líkum Palestínumanna fram af húsþaki eftir rassíu á Vesturbakkanum. Meðferðin á líkunum stríðir gegn alþjóðalögum. Erlent 20.9.2024 21:08
Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Talsmaður Ísraelshers segir að þó nokkrir af háttsettum leiðtogum Hezbollah-samtakanna hafi verið felldir í loftárás í Beirút í dag. Helsta skotmark árásarinnar var Ibrahim Aqil, einn af æðstu leiðtogum samtakanna sem sagður var hafa leitt hernaðararm Hezbollah eftir að fyrrverandi leiðtogi þessa arms var ráðinn af dögum í júlí. Erlent 20.9.2024 16:52
Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Ísraelar gerðu í dag loftárás á fjölbýlishús í úthverfi Beirút en árásin er sögð beinast gegn háttsettum leiðtoga Hezbollah-samtakanna. Nokkrar sprengjur eru sagðar hafa lent á húsinu, sem varð fyrir miklum skemmdum. Erlent 20.9.2024 13:49
Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Herþotur Ísraelshers gerðu árásir á fjölda skotmarka í suðurhluta Líbanon í gærkvöldi, aðeins klukkustundum eftir að Hassan Nasrallah, leiðtogi Hezbollah, hét hefndum fyrir sprengingar símboða og talstöðva liðsmanna samtakanna. Erlent 20.9.2024 06:37
Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Ísraelar hafa selt meðlimum Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna símboða sem þeir framleiddu sjálfir gegnum skúffufélög frá árinu 2022. Þegar leiðtogi samtakanna fordæmdi notkun snjallsíma fyrr á þessu ári var framleiðslan aukin til muna og þúsundir símboða voru seldir til Líbanon. Erlent 19.9.2024 15:03
Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Forvarsmenn ísraelska hersins hafa tilkynnt nýjar árásir gegn Hezbollah-samtökunum í suðurhluta Líbanon. Formaður herforingjaráðs Ísraels segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun fyrir herinn í norðurhluta Ísrael. Erlent 19.9.2024 14:03
20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Að minnsta kosti 20 létust og 450 særðust þegar talstöðvar liðsmanna Hezbollah sprungu í borgum Líbanon í gær, degi eftir að tólf létust og 2.800 særðust þegar sama gerðist með símboða. Erlent 19.9.2024 06:34
Talstöðvar springa einnig í Beirút Degi eftir að fjölmargir símboðar í notkun meðal meðlima Hezbollah-samtakanna í Líbanon og Sýrlandi sprungu, gerðist það sama með talstöðvar þeirra. Sprengingar hafa átt sér stað víðsvegar um Beirút og annarsstaðar í Líbanon. Erlent 18.9.2024 14:37
Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Forsvarsmenn taívanska fyrirtækisins Gold Apollo, eins stærsta framleiðanda símboða heims, segjast ekki hafa framleitt tækin sem sprungu í Líbanon og Sýrlandi í gær. Þess í stað hafi tækin verið framleidd af ungversku fyrirtæki sem kallast BAC Consulting Kft. eftir að samningur var gerður milli fyrirtækjanna. Erlent 18.9.2024 11:22
169 börn sem fæddust eftir 7. október á lista yfir látnu Heilbrigðisráðuneyti Gasa hefur gefið út skjal þar sem borin eru kennsl á 34.344 einstaklinga sem hafa látist í árásum Ísraelsmanna. Um er að ræða 80 prósent þeirra sem sagðir eru hafa fallið frá því að átök brutust út í kjölfar árása Hamas á byggðir í Ísrael 7. október síðastliðinn. Erlent 18.9.2024 06:29
Settu sprengjur í símboðana Ísraelsmenn standa að baki árás á Hezbollah sem framin var í dag, þegar um 2.800 manns slöðuðust eftir að símboðar sprungu í Líbanon, Íran og Sýrlandi. Símboðarnir voru gerðir í Taívan en átt var við þá áður en þeir voru fluttir til Líbanon. Erlent 17.9.2024 23:26
Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi Þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram þingsályktun með stuðningi þingmanna Pírata og Samfylkingar um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir alþjóðlegum viðskiptaþvingunum gagnvart Ísrael. Engin stjórnarmál voru á dagskrá Alþingis í dag. Innlent 17.9.2024 20:25
Tæplega þrjú þúsund slasaðir eftir að símboðar sprungu Rúmlega 2.800 manns eru sagðir hafa særst og átta látið lífið, þegar fjölmargir símboðar sprungu samtímis í Líbanon og Sýrlandi. Margir hinna særðu eru meðlimir hinna líbönsku Hezbollah-samtaka en samtökin eiga að hafa verið að nota símaboðana. Símboðarnir eru sagðir hafa gefið frá sér hljóð og sprungið skömmu síðar. Erlent 17.9.2024 14:38
Herforingi kallar eftir innrás í Líbanon Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, segir tímann á þrotum þegar kemur að því að koma í veg fyrir átök milli Ísrael og Hezbollah í sunnanverðu Líbanon. Ori Gordin, yfirmaður herafla Ísrael í norðri, hefur kallað eftir því að fá grænt ljós á innrás í Líbanon. Erlent 16.9.2024 16:06
Lofar að svara árásum Húta af hörku Flugskeyti sem skotið var frá Jemen til Ísrael virkjuðu í morgun loftvarnaflautur á alþjóðlega flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael. Flugskeytunum var skotið í loft upp af Hútum, uppreisnarmönnum í Jemen sem studdir eru af írönskum yfirvöldum. Forsætisráðherra Ísrael segir að árásunum verði svarað. Erlent 15.9.2024 12:18
Fjöldi fyrirtækja á skiltum mótmælenda Svokölluð sniðganga var gengin í Reykjavík og á Akureyri í dag. Um er að ræða viðburð á vegum félagsins Ísland-Palestína með þann tilgang að hvetja til sniðgöngu á vörum frá Ísrael til stuðnings Palestínu. Innlent 14.9.2024 22:06
Ísraelar gerðu áhlaup á leynilega vopnaverksmiðju í Sýrlandi Samhliða umfangsmiklum loftárásum Ísraela á fjölda skotmarka í Sýrlandi síðastliðinn sunnudag gerðu ísraelskir sérsveitarmenn áhlaup á eldflaugaverksmiðju Hezbollah. Verksmiðjan er sögð hafa verið reist af Írönum við landamæri Sýrlands og Líbanon. Erlent 13.9.2024 11:21
Sex starfsmenn UNRWA sagðir hafa verið drepnir í árás Ísraelshers Átján eru sagðir hafa látist í árás Ísraelshers á skóla í Gasa, þar af sex starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Erlent 12.9.2024 06:55
Krefjast þess að Ísraelsher bæti ráð sitt eftir dráp á Bandaríkjamanni Utanríkis- og varnarmálaráðherrar Bandaríkjanna kröfðust þess að Ísraelsher breytti starfsháttum sínum á Vesturbakkanum eftir að hermenn skutu bandaríska konu til bana á mótmælum þar í síðustu viku. Ísraelsmenn segja að um óhapp hafi verið að ræða. Erlent 11.9.2024 08:45
Sýrlendingar reiðir yfir árásum Ísraela Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmiklar árásir á fjölda skotmarka í Sýrlandi. Minnst fjórtán eru sagðir liggja í valnum en árásirnar eru sagðar hafa beinst að mörgum hernaðarlegum skotmörkum í landinu. Ráðamenn í Sýrlandi segja þó að óbreyttir borgarar hafi fallið í árásunum. Erlent 9.9.2024 11:34
Fjórir sagðir látnir eftir árásir Ísraela á Sýrland Minnst fjórir eru sagðir hafa látist í eldflaugaárásum Ísraelshers á bæinn Masyaf í vesturhluta Sýrlands í kvöld. Ekki liggur fyrir hvort hinir látnu séu hermenn Erlent 8.9.2024 23:20
Skaut þrjá til bana á landamærunum Þrír voru skotnir til bana á landamærum Jórdaníu og Vesturbakkans í dag. Ísraelski herinn segir hina látnu hafa verið ísraelska, almenna borgara. Þeir voru allir karlmenn á sextugsaldri. Erlent 8.9.2024 13:51
Krefjast rannsóknar eftir að ung kona var skotin í höfuðið Sameinuðu þjóðirnar krefjast þess að andlát bandarískrar konu sem skotin var til bana á Vesturbakkanum verði rannsakað ofan í kjölinn. Ísraelskir hermenn eru sagðir hafa skotið hana í höfuðið þar sem hún var stödd við friðsöm mótmæli. Erlent 7.9.2024 22:57
Skutu bandarískan aðgerðasinna til bana á Vesturbakkanum Ísraelskir hermenn skutu unga bandaríska konu til bana á mótmælum gegn landtökubyggðum gyðinga á Vesturbakkanum í dag. Herinn yfirgaf borgina Jenín og flóttamannabúðir þar í dag eftir blóðuga hernaðaraðgerð sem hafði staðið í níu daga. Erlent 6.9.2024 19:45
Enn ein „lokatilraun“: Samkomulag sagt stranda á tveimur atriðum Yfirvöld í Egyptalandi og Katar vinna nú að breytingum á tillögum um vopnahlé á Gasa og eiga í samráði við Bandaríkjamenn. Enn er talað um „lokatilraun“ til að brúa bilið milli Ísrael og Hamas. Erlent 5.9.2024 07:56