Danmörk
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 41 ›
Handtekinn grunaður um morð á barnshafandi konu 24 ára afganskur ríkisborgari var í dag handtekinn í Danmörku grunaður um að hafa orðið barnshafandi konu að bana. Maðurinn verður úrskurðaður í gæsluvarðhald á morgun. Erlent 7.11.2022 10:27
Þrjár ISIS-konur ákærðar í Danmörku Yfirvöld í Danmörku hafa ákært þrjár konur fyrir að ganga til liðs við Íslamska ríkið. Konurnar fóru til Sýrlands á árum áður og giftust þar vígamönnum hryðjuverkasamtakanna. Eftir fall Kalífadæmisins voru konurnar og fjórtán börn þeirra í Roj-búðum í norðausturhluta Sýrlands. Erlent 4.11.2022 14:40
Barnshafandi kona stungin til bana í Danmörku Barnhafandi kona var stungin til bana í Holbæk á Sjálandi í Danmörku í gærkvöldi. Lögregla á Sjálandi segir að konan hafi verið 37 ára og margsinnis stungin með hníf. Fram kemur að barn konunnar sé enn á lífi. Erlent 4.11.2022 07:43
Segir af sér sem formaður Radikale Venstre Sofie Carsten Nielsen hefur sagt af sér sem formaður miðjuflokksins Radikale Venstre. Erlent 2.11.2022 14:43
Talningingaklúðrið hafði ekki áhrif á skiptingu þingsæta Skipting þingsæta breytist ekki eftir endurtalningu í kjördæminu Frederikshavn í Danmörku þar sem klúður varð í talningu atkvæða í dönsku þingkosningum í gær. Erlent 2.11.2022 13:12
Talningaklúður í Danmörku: Mörg hundruð atkvæða færast frá rauðu blokkinni til bláu Röng niðurstaða var kynnt í kjördæminu Frederikshavn í Danmörku eftir að ljóst varð að talningamenn í Sæby höfðu ruglast á bunkum og talið atkvæði Danmerkurdemókrata sem atkvæði Einingarlistans. Erlent 2.11.2022 10:03
Mette gengur á fund drottningar klukkan tíu Mette Frederiksen, formaður danskra Jafnaðarmanna og forsætisráðherra, mun ganga á fund Margrétar Þórhildar Danadrottningar klukkan tíu að íslenskum tíma. Þar munu þær ræða niðurstöður þingkosninganna sem fram fóru í Danmörku í gær. Erlent 2.11.2022 07:51
Mette með pálmann í höndunum eftir sviptingar á ögurstundu Mette Frederiksen og Jafnaðarmannaflokkur hennar styrktu stöðu sína í þingkosningunum í Danmörku í kvöld. Afar mjótt var á munum og leit í fyrstu út fyrir að Moderaterne yrðu í lykilstöðu við myndun ríkisstjórnar. Nú er ljóst að Frederiksen getur myndað meirihlutastjórn með vinstri flokkum. Erlent 2.11.2022 01:36
Lars Løkke í lykilstöðu Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, er í lykilstöðu við myndun nýrrar ríkisstjórnar í Danmörku. Jafnaðarmannaflokkurinn er enn langstærstur en hvorki vinstri- né hægriblokk munu takast að mynda ríkisstjórn án Moderaterne. Erlent 1.11.2022 23:30
Mette nær ekki að mynda meirihluta án Moderaterne Mette Fredriksen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, heldur ekki meirihluta samkvæmt fyrstu útgönguspám. Erfitt verður að mynda ríkisstjórn án Moderaterne, samkvæmt nýjustu tölum. Erlent 1.11.2022 19:08
Drottning veitir Mette sennilega umboð til myndunar nýrrar stjórnar Formaður Norræna félagsins telur líklegt að Margrét önnur Danadrottning muni veita Mette Frederiksen forsætisráðherra fyrstri umboð til myndun nýrrar stjórnarað loknum þingkosningum í Danmörku í dag. Enda hafi leiðtogi nýs miðjuflokks opnað á samstarf við vinstriflokkana. Erlent 1.11.2022 13:28
Kosið í Danmörku: Løkke líklegur til að verða í lykilstöðu Danir ganga að kjörborðinu í dag til að kjósa sér nýtt þing. Spennan er mikil og benda kannanir til að forsætisráðherrann fyrrverandi, Lars Løkke Rasmussen, muni verða í lykilstöðu þegar búið er að telja upp úr kjörkössunum. Erlent 1.11.2022 08:22
Færeyingar kjósa nýja þingmenn sína á danska þinginu Þingkosningar fara fram í Danmörku á morgun. Færeyingar munu þó kjósa um sína tvo fulltrúa á danska þinginu þegar í dag. Stjórnvöld í Færeyjum óskuðu eftir að kjósa sína fulltrúa á danska þinginu á öðrum degi en 1. nóvember þar sem um sé að ræða dag þar sem Færeyingar minnast látinna sjómanna. Erlent 31.10.2022 08:34
Schmeichel senuþjófur í HM-lagi Dana Danir eru byrjaðir að gíra sig upp fyrir heimsmeistaramótið í Katar enda tefla þeir fram spennandi liði á mótinu og ætla sér enn lengra en í Rússlandi fyrir fjórum árum. Nýtt HM-lag þeirra var gefið út í dag. Fótbolti 26.10.2022 09:29
Nýir flokkar hrista hressilega upp í danska stjórnmálalandslaginu Það stefnir í spennandi þingkosningar í Danmörku eftir rúma viku og benda kannanir til að tveir nýir flokkar muni hrista hressilega upp í hinu pólitíska landslagi. Erlent 24.10.2022 14:01
Ilse Jacobsen er látin Danski fatahönnuðurinn Ilse Rohde Jacobsen, sem meðal annars þekkt er fyrir hönnun á regnkápum, stigvélum, kjólum og öðrum fatnaði, er látin 62 ára að aldri. Viðskipti erlent 24.10.2022 10:10
Brim fjárfestir í Polar Seafood í Danmörku fyrir 12 milljarða Íslenska sjávarútvegsfyrirtækið Brim hf. hefur gengið frá samkomulagi um kaup á hlutabréfum í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S fyrir 625 milljónum danskra króna, um 12 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 21.10.2022 13:01
Fimmtíu metra kafli Nord Stream 1-leiðslunnar eyðilagður Nýjar neðansjávarmyndir úr Eystrasalti benda til að um fimmtíu metra kafli gasleiðslunnar Nord Stream 1 í Eystrasalti sé eyðilagður. Erlent 18.10.2022 08:08
Katastrófa í dönskum byggingariðnaði Fram undan er svartur vetur í dönskum byggingariðnaði og líklega í stórum hluta Evrópu. Rafmagns og hitunar kostnaður ríkur upp sem og matur og því hefur dregið verulega úr kaupgetu Hr og Fru Hansen eins og Daninn kallar hinn almenna einstaklings kúnna. 10% verðbólga er staðreynd í Evrópu og Danir að upplifa mestu verðbólgu í 40 ár. Sambærilega mæld verðbólga er um 5% á Íslandi. Skoðun 13.10.2022 08:30
66°Norður opnar í ILLUM 66°Norður hefur opnað verslun í nýju, flottu svæði tileinkað útivistarfatnaði á þriðju hæð ILLUM í Kaupmannahöfn. Tíska og hönnun 12.10.2022 16:03
Fjarvinna og fyrirtækjarekstur: „Okkur langaði til að lifa lífinu öðruvísi en í hasarnum heima“ „Við vorum að horfa á þáttinn Hvar er best að búa? með Lóu Pind, um hjónin sem fluttu til Danmerkur og fóru að reka hótel í Lálandi þegar Torfi lítur allt í einu á mig og spyr: En hvað með Danmörk?“ segir Lóa Dís Finnsdóttir, grafískur hönnuður búsett í Maribo með eiginmanninum Torfa Agnarsyni auglýsingaljósmyndara. Atvinnulíf 11.10.2022 07:01
Frederiksen boðar til þingkosninga 1. nóvember Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur boðað til þingkosninga í landinu þann 1. nóvember næstkomandi. Frá þessu greindi forsætisráðherrann á blaðamannafundi klukkan 11 í morgun. Erlent 5.10.2022 10:35
Hljóta Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á sviði smellefnafræði Efnafræðingarnir Carolyn R. Bertozzi frá Bandaríkjunum, Morten Meldal frá Danmörku and K. Barry Sharpless frá Bandaríkjunum hljóta Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Þeir fá verðlaunin fyrir rannsóknir sínar á sviði smellefnafræði. Erlent 5.10.2022 09:52
Boðaði ekki til þingkosninga Danska þingið var sett í morgun eftir sumarhlé en fyrirfram bjuggust margir við að forsætisráðherrann Mette Frederiksen myndi nýta tækifærið í stefnuræðu sinni og boða til þingkosninga. Ekkert varð þó úr því. Erlent 4.10.2022 12:32
Harmar viðbrögð sonarins og fjölskyldu hans Margrét Þórhildur Danadrottning segist harma viðbrögð sonar síns, Jóakim prins, við ákvörðun hennar að svipta börn hans konungslegum titlum. Það hafi þó verið löngu kominn tími til að endurskoða hverjir beri titlana og þær skyldur sem þeim fylgja. Hún bindur vonir við að fjölskyldan fái frið til að vinna úr sínum málum. Erlent 3.10.2022 16:56
Ulrik Wilbek að missa heyrnina Ulrik Wilbek, fyrrverandi landsliðsþjálfari Danmerkur í handbolta og borgarstjóri í Viborg, þjáist af heyrnarkvilla. Handbolti 3.10.2022 12:01
Segja gas hætt að leka úr Nord Stream leiðslunum Rússneska orkufyrirtækið Gazprom segir að þrýstingur í Nord Stream leiðslunum í Eystrasaltinu sé kominn í jafnvægi eftir að leki kom upp í síðustu viku. Verið sé að vinna í að takmarka skaðleg áhrif á umhverfið en gas sé hætt að leka úr leiðslunum. Erlent 3.10.2022 11:01
„Þá streymdu tárin strax niður kinnar mínar“ Tárin streyma fram við að sjá þetta, segir danskur arkítekt um nýja sýningu sem opnuð hefur verið í Þjóðminjasafninu. Þar er yfirskriftin „Á elleftu stundu“ — en það var einmitt á elleftu stundu sem arkítektinn og kollegar hans drifu sig að mynda og mæla upp íslenska torfbæi á áttunda áratug síðustu aldar, áður en þeir urðu flestir tímanum að bráð. Innlent 3.10.2022 07:10
Vonast til að öryggis- og varnarsamstarf borgi rekstur Kangerlussuaq-flugvallar Stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands, Siumut, vonast til að samningar um öryggis- og varnarsamstarf við danska herinn, og hugsanlega einnig Bandaríkin, greiði hluta af þeim kostnaði sem fylgir því að reka flugvöllinn í Kangerlussuaq áfram eftir að hann missir hlutverk sitt sem aðalflugvöllur Grænlands eftir tvö ár. Þetta sagði talsmaður flokksins, Doris J. Jensen, í umræðum í grænlenska þinginu í liðinni viku. Erlent 2.10.2022 11:08
Svíar fundu fjórða lekann og Rússar benda á Bandaríkjamenn Sænska landhelgisgæslan hefur fundið fjórða gaslekann á Nord Stream gasleiðslunum, samkvæmt Svenska Dagbladet. Blaðið hefur eftir talsmanni landhelgisgæslunnar að tveir af lekunum fjórum séu í sænskri lögsögu en hinir tveir eru í danskri lögsögu. Erlent 29.9.2022 07:30