Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Samkomulag hefur náðst um myndun nýrrar þriggja flokka landsstjórnar í Færeyjum milli Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Javnaðarflokksins. Beinir Johannesen, formaður Fólkaflokksins, staðfesti í viðtali við Kringvarpið í dag að hann myndi leiða stjórnina og verða næsti lögmaður Færeyja. Erlent 8.4.2026 19:45
Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Óvenjuleg heræfing fór fram á um páskana í samstarfi danska og franska hersins. Frönsk herflutningavél ferjaði þá danskar herþyrlur milli Danmerkur og Íslands. Verkefnið reyndist krefjandi og þurfti útsjónarsemi til að koma þyrlunum í flutningavélina. Miðað við mælistærðir eru þær of stórar til að rúmast um borð, jafnvel þótt spaðarnir séu teknir af. Innlent 8.4.2026 13:39
Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Eldur Ólafsson forstjóri Amaroq Minerals segir að ef Ísland, Færeyjar og Grænland semji um fríverslunarsamning og sameini krafta sína séu þau í afar sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Norður-Atlantshaflöndin skipti nú heiminn máli og það eigi þau að nýta sér fram í rauðan dauðann. Innlent 2.4.2026 12:56
Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Rithöfundarnir Eva Rún Snorradóttir og Jón Kalman Stefánsson eru í hópi þeirra þrettán höfunda sem hafa verið tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Eva Rún er tilnefnd fyrir Eldri konur og Jón Kalman fyrir Himintungl yfir heimsins ystu brún en báðar eru þær gefnar út af Benedikti bókaútgáfu. Menning 26. febrúar 2026 11:28
Boðaði þingkosningar í skyndi Lögmaður Færeyja hefur boðað til þingkosninga í Færeyjum eftir rúman mánuð. Næstu kosningar áttu að vera í desember. Erlent 25. febrúar 2026 16:44
Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Lögþing Færeyja samþykkti í kvöld frumvarp landstjórnarinnar um 24 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar með 23 atkvæðum gegn 7 eftir aðra umræðu. Einn sat hjá. Þar með þykir ljóst að þessi langlengstu jarðgöng í sögu Færeyja verða boðin út en þriðja og síðasta umræða er sögð formsatriði. Undirskrift verksamnings er þó háð samþykki þingsins. Erlent 23. febrúar 2026 22:42
Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Færeysk þjóðsaga segir frá tveimur tröllum sem komu frá Íslandi til að reyna að draga Færeyjar til Íslands. En verkið reyndist þeim ofviða og þegar sólin kom upp urðu tröllin að steini og enduðu sem tveir drangar norðan Færeyja. Innlent 22. febrúar 2026 07:57
„Það er ekki nokkur leið að reka Færeyinginn úr Mosfellsbæ“ Hjónin Jógvan Hansen og Hrafnhildur Jóhannesdóttir hafa sett íbúð sína að Súluhöfða 25 í Mosfellsbæ á sölu. Íbúðin er 139 fermetrar, skartar einu frægasta karlagreni landsins og er ásett verð 99,9 milljónir króna. Ekki sé nokkur leið til að reka Færeyinginn úr Mosfellsbæ og ætla þau hjónin sér að byggja nýtt hús í bænum. Lífið 16. febrúar 2026 16:26
Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Fyrr í dag varð minniháttar umferðarslys við munna Leirvíkurganganna í Nyrðri-Götu í Færeyjum. Ökumaðurinn hljóp af vettvangi og upp í fjallið við munna gangnanna. Lögregla kom á vettvang og þyrla sömuleiðis og á endanum tókst að koma honum niður heilum á húfi. Erlent 1. febrúar 2026 19:19
Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Orð á borð við „töfrandi“ og „einstakt“ eru mikið notuð núna í tengslum við sögulegan sigur færeyska karlalandsliðsins í handbolta á EM í kvöld. Handbolti 18. janúar 2026 19:58
Sögulegur færeyskur stórsigur á EM Færeyjar unnu sinn fyrsta sigur á stórmóti í handbolta í kvöld þegar að liðið valtaði yfir Svartfjallaland í D-riðli EM. Lokatölur 24-37 og von Færeyja um sæti í milliriðlum lifir. Handbolti 18. janúar 2026 18:36
Gamli Framarinn skíthræddur að jöfnunarmarkið yrði dæmt af Vilhelm Poulsen, fyrrverandi leikmaður Fram, var hetja Færeyja gegn Sviss á Evrópumótinu í handbolta í gær. Hann skoraði jöfnunarmark Færeyinga undir blálokin en var smeykur um að það yrði dæmt af. Handbolti 17. janúar 2026 11:02
Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Ísland skrifaði í morgun undir samkomulag við þrjú önnur ríki um skiptingu og stjórn makrílsstofnsins. Lengi vel hafa önnur ríki ekki viðurkennd stöðu Íslands sem strandríki í makríl. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir samkomulagið halla á íslensk fyrirtæki. Innlent 16. desember 2025 13:27
Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Fulltrúar Íslands, Noregs, Bretlands og Færeyja skrifuðu undir samkomulag um skiptingu og stjórn makrílsstofnsins í morgun. Þetta er í fyrsta skipti sem íslensk stjórnvöld gangast undir samkomulag um makríl frá því að veiðar á honum hófust í lögsögunni árið 2007. Viðskipti innlent 16. desember 2025 09:26
Selfoss dreginn til hafnar á Hjaltlandseyjum Flutningaskipið Selfoss var dregið til hafnar á Hjaltlandseyjum á dögunum eftir að bilun kom upp í aðalvél þess. Bilunin varð á sunnudaginn þegar skipið var á leið frá Danmörku til Færeyja og var skipið í kjölfarið dregið til hafnar í Leirvík. Innlent 10. desember 2025 15:50
Færeyingar rýmka verulega lög um þungunarrof Þingmenn í Færeyjum hafa samþykkt að rýmka lög um þungunarrof, þannig að það verði nú heimilt fram að þrettándu viku meðgöngu. Það hefur hingað til verið bannað, nema þegar um er að ræða þungun í kjölfar nauðgunar eða sifjaspells, eða þegar líf móðurinnar eða heilbrigði fóstursins hefur verið talið í hættu. Erlent 5. desember 2025 06:41
Færeyingar í skýjunum: „Sennilega besti leikur sem ég hef spilað“ Kvennalandslið Færeyja í handbolta gerði sér lítið fyrir og vann Spán, 27-25, á HM í gær. Mikil gleði var í herbúðum Færeyinga eftir sigurinn sem var þeirra fyrsti á stórmóti. Handbolti 29. nóvember 2025 10:48
Færeysku stelpurnar unnu Spán: Söguleg stund fyrir Færeyjar Færeyska kvennalandsliðið í handbolta vann óvæntan sigur á Spánverjum á heimsmeistaramóti kvenna í Þýskalandi í kvöld. Handbolti 28. nóvember 2025 21:11
Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Það eru ekki bara íslensku landsliðsstrákarnir sem dreymir um sæti í umspili heimsmeistaramótsins í fótbolta því nágrannar okkar í Færeyjum eiga enn smá möguleika á að ná öðru sætinu. Fótbolti 14. nóvember 2025 14:16
Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Bæjarráð Runavíkur í Færeyjum hefur samþykkt að ný sundhöll sveitarfélagsins fái heitið Bylgjan. Það er sama nafn og er þegar fyrir á íþróttahúsi sem sundhöllin er byggð við. Bæjarráðið segir að með viðbyggingunni bætist tvær nýjar bylgjur við og muni því öll íþróttamiðstöðin heita Bylgjan. Erlent 9. nóvember 2025 07:37
Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Samstaðan, sem náðist milli stjórnmálaflokkanna í Færeyjum í síðustu viku um veglínu Suðureyjarganga, virðist ekki eins víðtæk og ætla mátti. Náttúru- og umhverfissamtök hafa risið upp og mótmælt og íbúar Sandeyjar virðast afar ósáttir. Deildir flokkanna á Sandey leggjast hart gegn niðurstöðunni. Þá lýsa lykilmenn í efnahagsmálum eyjanna þeirri skoðun að jarðgöngin séu fjárhagslegt glapræði. Færeyingar muni ekki hafa ráð á göngunum. Erlent 2. nóvember 2025 08:08
Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Norðurlandaráð hefur ákveðið að Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fái nú föst sæti í forsætisnefnd ráðsins, sem er æðsta stjórnvald þess á milli hinna árvissu þinga. Erlent 31. október 2025 12:17
Færeyingar marka leið fyrir risastór neðansjávargöng Allir stjórnmálaflokkar á færeyska Lögþinginu náðu í gær samstöðu um veglínu fyrirhugaðra jarðganga til Suðureyjar og að bjóða verkið út. Þessi neðansjávargöng yrðu langstærsta mannvirkjagerð í sögu Færeyja. Erlent 28. október 2025 21:21
Víkingur Heiðar hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Færeyingar fara heim með verðlaun í bæði kvikmynda- og bókmenntaflokki. Menning 21. október 2025 10:32