„Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Áróra L Davíðsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 13. júní 2026 10:58 Theodór Haraldsson skipstóri á Barða, skipi Síldarvinnslunnar. Færeyska varðskipið Brimil kom Barða til aðstoðar eftir að eldur kviknaði um borð í gær. Samsett Skipstjóri á Barða, skipi Síldarvinnslunnar, segir ítrekaðar æfingar um borð lífsnauðsynlegar og þær hafi skilað sér eins og best var á kosið í gær þegar eldur kom upp um borð. Stór og mikill eldur hafi blossað upp í vélarrúmi skipsins og reykur hafi fyllt afturskipið á örskotsstundu.
Theodór Elvar Haraldsson skipstjóri á Barða segir að öllu máli hafi skipt að enginn hafi verið í vélarrúminu þegar eldurinn kviknaði. Hann segir átökin hafa verið upp á líf og dauða. „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta.“ Eldur kom upp í vélarrúmi Barða NK 120, skips út fyrir ströndum Færeyja í gær og skipið rak vélarvana í rúma þrjá klukkutíma þangað til að færeyskt varðskip kom til bjargar. Ekki er enn komið í ljós nákvæmlega hvað skeði en skipstórinn segir allt benda til þess að eldsneytislögn hafi farið í sundur. Það hafi blossað upp stór og mikil eldsprenging og vélarrúmið hafi orðið alelda á svipstundu. Theodór segir áhöfnina hafa verið duglega að sinna eldvarnar- og brunaæfingum um borð og það hafi svo sannarlega skilað sér í gær. Áhöfnin hafi verið fljót að kæfa eldinn en tjónið sé þó töluvert. „Það varð engum meint af en þetta voru náttúrulega mikil átök og stress á meðan á þessu stóð.“ Færeyska björgunarmiðstöðin í Þórshöfn staðfestir í samtali við Vísi að þeim hafi borist neyðarkall frá Barða skömmu fyrir klukkan þrjú í gær. Skipið var þá statt um 15 sjómílum norðan af Færeyjum. Hann sjálfur hafi strax kallað eftir neyðaraðstoð. Skipið hafi verið tekið í tog um kvöldmatarleytið og þeir hafi komið í höfn í Færeyjum í morgun, tólf tímum seinna. Theodór segir alla áhöfnina dauðfegna að komast á hótel og hvíla sig eftir átökin.
Færeyjar Síldarvinnslan Sjávarútvegur Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira