Skíðasvæði
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Hlúum að vöggu skíðaíþróttarinnar! Það vekur oft furðu útlendinga hversu stutt saga skíðanotkunar er á Íslandi. Á meðan nágrannar okkar í Skandinavíu hafa um aldir rennt sér allra sinna ferða á skíðum voru slík farartæki sjaldséð á Íslandi og notkun þeirra lengst af nær einvörðungu á Norðurlandi. Sunnan heiða þekkti fólk skíði vart nema af afspurn og úr fornsögum. Skoðun 27.3.2022 15:00
Stríddi lyftuvörðum á ögurstundu áður en hún ferjaði farþega í fyrsta skipti Nýja skíðalyftan í Hlíðarfjalli við Akureyri var loksins opnuð í dag, nokkrum árum á eftir áætlun. Hún stríddi lyftuvörðum örlítið með því að fara ekki í gang á auglýstum opnunartíma í dag. Því var þó reddað fljótt og örugglega. Það voru ungir Reykvíkingar í skólafríi sem fóru í fyrstu ferðina með lyftunni. Innlent 19.2.2022 20:00
Langar raðir en rosalega góð stemmning í Hlíðarfjalli Fjöldi fjölskyldna af höfuðborgarsvæðinu er mættur í vetrarparadís norður yfir heiðar til að renna sér í snjónum í Hlíðarfjalli. Þriggja barna móðir í Fossvoginum er ein þeirra sem er mætt með börnin norður og er spennt fyrir opnun nýju stólalyftunnar á morgun. Innlent 18.2.2022 15:27
Biðin loks á enda: Nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli ræst á morgun Mikill fjöldi skíða- og brettafólks rennir sér í brekkunum í Hlíðarfjalli um helgina í nýföllnum snjó og veðurblíðu. Stór stund verður á morgun klukkan 13 þegar ný stólalyfta í fjallinu verður ræst. Biðin hefur verið löng en nú virðist allt klappað og klárt. Innlent 18.2.2022 14:30
Nýja stólalyftan opnuð í febrúar ef veður leyfir Stefnt er að því ný stólalyfta í Hlíðarfjalli verði tekin í notkun um miðjan næsta mánuð, svo framarlega sem veður leyfir. Innlent 24.1.2022 14:19
Deilt um fyrirhugaða áfengissölu í Hlíðarfjalli „Satt að segja finnst mér þessi hugmynd alveg út í hött og andstaða mín er alveg skýr,“ segir Sóley Björk Stefánsdóttir, áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna í bæjarráði um hugmyndir um að heimila áfengissölu í Hlíðarfjalli. Innlent 17.1.2022 07:22
Allt að verða klárt í Hlíðarfjalli Stefnt er að því að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri á föstudaginn. Vonir standa til að jafnvel verði hægt að vígja nýja stólalyftu í fjallinu í þessum mánuði. Innlent 15.12.2021 12:39
Karlarnir kvörtuðu en vilja helst vera með konunum en ekki einir „Ísfirðingar hafa haldið skíðagöngunámskeið í yfir tuttugu ár en fyrir tæpum tíu árum fórum við að bjóða upp á kvennahelgar sem slógu svo rækilega í gegn,“ segir Hólmfríður Vala Svavarsdóttir eigandi hótels Ísafjarðar. Atvinnulíf 13.12.2021 07:01
Veður spillir skíðahelginni í Bláfjöllum Unnt var að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum í fyrradag, fyrir jól í fyrsta skipti í nokkur ár. Svo virðist sem vongóðir skíðagarpar þurfi að bíða fram yfir helgi til að renna sér. Innlent 11.12.2021 09:20
„Eins og beljurnar þegar þær fara út á vorin“ Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opnað í gær fremur skyndilega eftir mikla snjókomu aðfaranótt miðvikudags og fjölmennti skíðafólk í brekkurnar í dag. Nokkur ár eru síðan það tókst síðast að opna svæðið fyrir jól. Innlent 10.12.2021 23:52
Fyrsti skíðadagurinn á Siglufirði í fallegu veðri Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði opnar í dag í fyrsta sinn í vetur. Forstöðumaður svæðisins segist hafa fundið fyrir mikilli tilhlökkun meðal bæjarbúa og dagurinn sé fullkominn til skíðamennsku. Innlent 4.12.2021 14:36
Skíðaskálinn í Hveradölum: Þar sem ástin mættist á miðri leið „Við ætluðum að gifta okkur á bökkum Rangár en ekki hér,“ segir Ólöf Ása Guðmundsdóttir og eiginmaðurinn Grettir Rúnarsson, kinkar kolli og hlær. Atvinnulíf 21.11.2021 08:00
Skíðafólk tekur gleði sína á ný Aðstandendur ítalskra skíðahótela halda bjartsýnir inn í veturinn en hafa varann á. Síðustu tvö árin hafa eðli málsins samkvæmt verið hóteleigendum erfið vegna kórónuveirunnar. Bókanir streyma nú inn. Erlent 13.11.2021 15:49
Fimm nýjar lyftur á höfuðborgarsvæðið og hefja snjóframleiðslu Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa náð samkomulagi um 5,2 milljarða króna fjárfestingu í uppbyggingu skíðasvæða til ársins 2026. Viðskipti innlent 4.11.2021 14:56
Aurskriða í Tindastóli: „Helvíti mikill aur hérna niður hlíðina“ Viggó Jónsson, fyrrverandi umsjónarmaður skíðasvæðisins í Tindastóli í Skagafirði, segir að talsverðar skemmdir hafi orðið á skíðasvæðinu eftir að aurskriða féll í fjallinu. Tilkynnt var um skriðuna fyrr í dag þó að ekki sé að fullu ljóst hvenær hún féll. Innlent 30.6.2021 11:40
Aurskriða olli skemmdum á skíðasvæðinu í Tindastóli Í morgun barst lögreglunni á Norðurlandi vestra tilkynning um að aurskriða hafi fallið á skíðasvæðið í Tindastóli. Ljóst er að skemmdir hafa orðið á svæðinu. Innlent 30.6.2021 11:18
Flóni og Villi Vill hamast í Siglfirsku Ölpunum Rapparinn Flóni, Friðrik Róbertsson, og stjörnulögfræðingurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hafa notið lífsins í Siglfirsku Ölpunum um helgina, þar sem þeim er skutlað upp á fjall með þyrlu til þess eins að skíða aftur niður. Lífið 24.4.2021 20:57
Djúp sorg fyrir norðan eftir að sóttvarnayfirvöldum snerist skyndilega hugur Framkvæmdanefnd Andrésar andar leikanna hefur ákveðið að aflýsa skíðamótinu í ár en til stóð að halda leikanna um miðjan maí. Er þetta annað árið í röð sem leikunum er aflýst vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Sport 21.4.2021 13:19
Draumaaðstæður í Hlíðarfjalli í dag Aðstæður í Hlíðarfjalli í dag voru eins og draumi líkast og var fjölmennt í fjallinu þrátt fyrir að skíðasvæðið sé lokað. Fjöldi fólks hafði með sér sleða og skíði til að njóta sólarinnar sem sleikti hlíðarnar í dag. Lífið 10.4.2021 20:17
„Svolítið sérstakt“ að horfa upp á auðar brekkur meðan fólk fjölmennir að gosinu Forstöðumaður Hlíðarfjalls segir sárt að horfa upp á auðar skíðabrekkur á meðan fólk fjölmennir að gosstöðvunum í Geldingadölum. Sóttvarnalæknir kallar eftir því að fólk bíði með að leggja leið sína að eldgosinu. Innlent 29.3.2021 19:18
„Þetta er bara rothögg“ Egill Rögnvaldsson sem rekur skíðasvæði Siglfirðinga í Skarðsdal segir að hertar sóttvarnaaðgerðir séu rothögg fyrir reksturinn. Skíðasvæðinu hefur verið lokað en framundan voru páskarnir þar sem von var á fjölda gesta norður á skíði. Innlent 26.3.2021 10:22
Ráðast í annað útboð þannig að Gosa og Drottningu verði skipt út Til stendur að hefja innkaupaferli á tveimur nýjum síðalyftum fyrir Bláfjöllum. Síðar verður svo hafinn undirbúningur að kaupum á fleiri lyftum fyrir Bláfjöll og Skálafell, auk þess að snjóframleiðslu verði komið upp. Innlent 18.3.2021 07:37
Áfengissalan gekk áfallalaust fyrir sig í Hlíðarfjalli Áfengissala hófst í Hlíðarfjalli um helgina og gátu gestir því fengið sér áfengan drykk í veitingasölunni. Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður segir daginn hafa gengið þokkalega heilt yfir þrátt fyrir örlitla byrjunarörðugleika. Innlent 6.3.2021 20:08
Besti dagur ársins í Bláfjöllum en bannað að skíða Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðisins í Bláfjöllum var súr með að þurfa að loka skíðasvæðinu eftir hádegið í dag að kröfu almannavarna. Hann segir veðrið ekki hafa verið jafngott í ár og færið frábært. Vegna jarðskjálftanna á Reykjanesi í dag hafa almannavarnir lýst yfir hættustigi og gert þá kröfu að skíðasvæðinu verði lokað. Innlent 24.2.2021 16:10
Forstöðumaðurinn nýbúinn að frétta af tilslökunum Nýjar sóttvarnareglur fyrir skíðasvæði tóku óvænt gildi í morgun. Fréttirnar komu forstöðumanni Hlíðarfjalls í opna skjöldu enda bárust þær honum klukkan hálf tíu í morgun. Innlent 19.2.2021 12:11
Fleiri mega fara á skíði og veitingasala heimiluð Embætti landlæknis og sóttvarnalæknir hafa gefið út nýjar reglur á skíðasvæðum landsins sem taka gildi í dag. Nú mega skíðasvæðin taka við 50 prósent af móttökugetu svæðisins en leyfilegt hlutfall var áður 25 prósent. Innlent 19.2.2021 10:23
Leigja íbúð saman, út að borða saman en tveggja metra regla í pottinum Forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar segir fólk sem komi í hópum til Akureyrar, leigi saman íbúð og fari saman út að borða finnist að það megi vera saman í heitum potti í sundlaug. Lágar smittölur í landinu verði líka til þess að fólk passi sig minna. Þá verði að hafa í huga að heitir pottar undir berum himni séu ekki illa loftræst rými. Innlent 1.2.2021 10:27
800 manns í Hlíðarfjalli í dag Mikið er um að vera í Hlíðarfjalli á Akureyri en fjöldi fólks nýtur sín þar nú um helgina á skíðum. Veðurskilyrði eru einstaklega góð, hægur vindur er á svæðinu og níu stiga frost. Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, segir að slík umferð hafi ekki verið á svæðinu frá því í mars í fyrra. Innlent 30.1.2021 11:33
Líklega altjón á skíðasvæðinu á Siglufirði Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, fundaði með forsvarsmönnum skíðasvæðisins á Siglufirði í morgun. Snjóflóð skall á skíðaskálann í gærmorgun og hreif skálann af grunni sínum. Elías segir í samtali við fréttastofu að líklega sé um altjón á skíðasvæðinu að ræða. Skíðalyftan hafi þó sloppið fyrir horn. Innlent 21.1.2021 14:14
Skíðaskáli Siglfirðinga færðist úr stað í snjóflóði Snjóflóð féll á skíðasvæðinu á Siglufirði, sennilega í morgun. Egill Rögnvaldsson svæðisstjóri skíðasvæðisins segir í samtali við fréttastofu að erfitt sé að átta sig á umfangi flóðsins en mikill skafrenningur er á svæðinu og þurftu menn frá að hverfa. Innlent 20.1.2021 11:54