Lúkasarmálið
Að verja sig á samfélagsmiðlum „eins og að kasta sprengju inn í hænsnabú“ Framkvæmdastjóri hefur áhyggjur af umræðum um fyrirtæki á samfélagsmiðlum, sem hann segir afar skautaðar. Erfitt geti reynst fyrir þá sem að baki fyrirtækjunum standa að bera hönd yfir höfuð sér þegar umræðan er komin á skrið. Innlent 1.3.2023 19:18
Hvað hefði gerst ef hundurinn Lúkas hefði ekki fundist? Í sumar verða sextán ár liðin síðan kínverskur smáhundur hvarf frá heimili sínu á Akureyri. Lygasaga um misþyrmingu á hundinum varð til þess að kertavökur voru haldnar, lögregla kafaði eftir honum og ungum karlmanni var hótað og dæmdur af dómstól götunnar. Ómögulegt er að segja hver staða karlmannsins væri í dag ef ekki hefði verið fyrir þá staðreynd að hundurinn fannst sprelllifandi. Innlent 22.2.2023 06:01
Opinber smánun þótti ómanneskjulegt refsiúrræði en viðgengst daglega á samfélagsmiðlum Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagaðideild Háskóla Íslands, segir mikilvægt að fólk sem vilji búa í réttarríki taki ekki þátt í að smána fólk opinberlega á samfélagsmiðlum fyrir mistök sín. Innlent 16.2.2017 16:19
Hundurinn Lúkas snýr aftur Leikfélagið Norðurbandalagið mun á föstudaginn frumsýna leikrit sem byggt er á stóra Lúkasarmálinu. Verkið verður frumsýnt í Rýminu á Akureyri á föstudaginn. Innlent 19.6.2013 12:51
Saga af barnaníðingi á Akureyri virðist uppspuni frá rótum Nokkrir vefmiðlar greindu frá því í gær að á Akureyri hefðist nú við þekktur barnaníðingur. Viðvaranir þessa efnis hófust á vefnum og vöktu athygli enda var fullyrt að viðkomandi hefði meðal annars sést við skóla í bænum. Að sögn lögreglunnar á Akureyri virðist sagan hinsvegar vera uppspuni frá rótum. Innlent 18.11.2011 13:28
Drapst eftir veikindi: Lúkas er allur Hundurinn Lúkas, frægasta gæludýr Íslandssögunnar, drapst á sunnudaginn eftir stutt veikindi. Innlent 21.2.2011 22:49
Lúkas lifir í dómsölum - þurfti að endurflytja málið Fyrsta dómsuppsaga í meiðyrðamáli, sem Helgi Rafn Brynjarsson hefur höfðað, verður á næsta fimmtudag. Lúkasarmálið er eitt undarlegasta fréttamál sem upp hefur komið á síðari árum. Það snérist um hundinn Lúkas sem hvarf sumarið 2007 en af einhverjum ástæðum bitu nokkrir bloggarar það í sig að Helgi Rafn ætti einhvern hlut að máli. Innlent 7.2.2011 10:32
Lúkasarmálið lifir enn - vill skaðabætur Lúkasarmálinu svokallaða er langt frá því að vera lokið. Maður sem grunaður var um að hafa orðið hundinum Lúkasi að bana og mátti þola ofsóknir í kjölfarið ætlar að freista þess að sækja skaðabætur frá þeim sem gengu hvað lengst. Innlent 16.11.2010 20:40
Undirbúa stefnu í Lúkasarmáli Ekki eru öll kurl komin til grafar í Lúkasar-málinu svonefnda, sem kom upp á Akureyri fyrir tveimur árum þegar Helgi Rafn Brynjarsson var ranglega sakaður um að drepa hundinn Lúkas. Innlent 4.9.2009 23:03
Lúkasarmálið látið mæta afgangi Lúkasarmálið svokallaða er enn til rannsóknar á hjá Sýslumanninum á Akureyri. Lögmaður Helga Rafns Brynjarssonar, sem varð fyrir aðkasti á Netinu í kjölfarið á því að hann var grunaður um að hafa drepið hundinn Lúkas á Akureyri, lagði fram kæru gegn hundrað manns. Fulltrúi sýslumanns á Akureyri segir að málið sé ekki í forgangi . Að stórum hluta er um að ræða ærumeiðingar sem ekkert erindi eiga inn á borð til sýslumanns að hans sögn. Lögmaður Helga sagðist í samtali við Vísi vera undrandi á því hve langan tíma málið hafi tekið. Innlent 18.3.2008 14:51
Lúkasarmálið þvælist á milli sýslumanna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi málshöfðun Helga Rafns Brynjarssonar á hendur hundrað manns til sýslumannsins á Akureyri í ágúst. Sýslumaður efast um að málið eigi heima fyrir norðan. Vettvangur brotanna var internetið. Innlent 14.9.2007 21:58
Stóra Lúkasarmálið týnt í kerfinu Öll gögn í Lúkasarmálinu eru týnd að því er virðist. Hvorki lögreglan á Akureyri né lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kannast við að málið sé á þeirra borðum. Erlendur Þór Gunnarsson, lögfræðingur Helga Rafns Brynjarssonar, sagði í samtali við Vísi í dag að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefði rannsakað málið í sumar. Síðan hefði verið tekin sú ákvörðun að fela það lögreglunni á Akureyri. Innlent 13.9.2007 21:23
70 kærðir fyrir ærumeiðingar í tengslum við Lúkasarmálið Lögmaður Helga Rafns Brynjarssonar, sem dómstóll götunnar sakaði um að hafa drepið hundinn Lúkas á Akureyri, hefur kært sjötíu manns, sem höfðu í hótunum og særðu æru hans, á netinu. Innlent 26.7.2007 07:02
Hundrað hafa verið kærðir „Það voru alls hundrað manns kærðir fyrir vel á annað hundrað færslur á internetinu,“ segir Erlendur Þór Gunnarsson, lögmaður Helga Rafns Brynjarssonar, sem áður var sakaður um grimmilegt hundsdráp. Innlent 25.7.2007 20:55
Lúkas kominn í leitirnar Lúkas gekk í gildru í Fálkafelli í gærmorgun og virðist við góða heilsu. Hann var aldrei í Hlíðarfjalli, eins og haldið var. "Yndislegur endir á ljótu máli,“ segir Klara Sólrún Hjartardóttir, sem fór hátt í þrjátíu ferðir að leita hans. Sýslumaður skoðar málið. Innlent 23.7.2007 21:43
Lúkas lifir ekki veturinn af „Svona hundur lifir ekki veturinn af nema hann sé innandyra,“ segir Björn Styrmir Árnason hundaatferlisráðgjafi. Innlent 20.7.2007 22:19
Ekki sannfærður um að Lúkas sé á lífi Ekki eru allir sannfærðir um að hundurinn Lúkas sé enn á lífi þrátt fyrir sögusagnir þess efnis. Hilmar Trausti Harðarson, einn þeirra sem leitað hefur að Lúkasi undanfarna daga, segist efast um að það hafi verið Lúkas sem sást til ofan við Akureyri á mánudaginn. Hann segist ekki hafa hótað meintum banamanni Lúkasar barsmíðum. Innlent 18.7.2007 19:27
Búnir að hafa alla að fífli „Dóttir mín er búin að gráta sig í svefn kvöld eftir kvöld og hvers vegna?“ spyr Kristjana Margrét Svansdóttir, eigandi hundsins Lúkasar. Innlent 17.7.2007 22:09
Eigandi Lúkasar ánægður og ringlaður yfir óvæntri upprisu hundsins Hundurinn Lúkas er á lífi. Hann hefur nú verið týndur í tvo mánuði og var sú saga komin á kreik að tveir drengir hefðu sett hann í íþróttatösku og sparkað honum á milli sín þangað til hann drapst á Akureyri. Lögreglurannsókn var í fullum gangi þegar tíðindin bárust. Eigandi Lúkasar segist ánægður en einnig ringlaður. Innlent 16.7.2007 18:43
Hræ Lúkasar ófundið: Rannsókn í fullum gangi Rannsókn á drápinu á hundinum Lúkasi er enn í gangi samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Akureyri. Allir fletir málsins eru til athugunar og meðal annars sá möguleiki að atburðarásin, að hópur unglingspilta hafi rænt Lúkasi og murkað úr honum lífið, sé uppspuni frá rótum. Innlent 13.7.2007 22:08
Á annan tug tilkynninga vegna vanrækslu og slæmrar meðferðar á dýrum Á annan tug tilkynninga berast Bændasamtökunum á ári hverju vegna verulegrar vanrækslu á húsdýrum hér á landi. Dæmi eru um að dýrin séu vannærð svo dögum skipti og séu hýst í lélegum og illa þrifnum húsum. Flestar tilkynningar berast vegna vanrækslu á hrossum og sauðfé. Innlent 29.6.2007 19:22
Minningarathafnir um hundinn Lúkas Minningarathafnir um hundinn Lúkas voru haldnar bæði í Reykjavík og á Akureyri í gærkvöldi. Grunur leikur á að hópur unglingspilta hafi rænt hundinum og murkað úr honum lífið. Innlent 29.6.2007 12:05
Fjölmennar kertavökur til minningar um Lúkas Milli hundrað og fimmtíu og tvö hundruð manns komu saman á Geirsnefi í Reykjavík klukkan átta í gærkvöldi þar sem haldin var kertavaka til að minnast hundsins Lúkasar sem drepinn var á hrottalegan hátt á Akureyri á dögunum. Um hundrað manns hittust hjá Blómavali og Húsasmiðjunni á Akureyri og var eigandi Lúkasar, Kristjana Margrét Svansdóttir, þar á meðal. Innlent 29.6.2007 10:59
Hrottaleg misþyrming á hundi kærð Eigandi hunds hefur kært hrottalega meðferð á honum, sem leiddi hann til bana, til lögreglunnar á Akureyri. Grunur leikur á að honum hafi verið sparkað fram og tilbaka í íþróttatösku. Hótanabréf send á einn af meintum gerendum. Innlent 29.6.2007 05:30
Fjöldi manns á minningarvöku um Lúkas Yfir hundrað manns komu saman á Geirsnefi í Reykjavík þar sem haldin var kertavaka til að minnast hundsins Lúkasar sem drepinn var á hrottalegan hátt á Akureyri á dögunum. Ungir piltar settu hundinn sem hafði villst frá eiganda sínum ofan í íþróttatösku og spörkuðu henni á milli sín þar til hann var allur. Innlent 28.6.2007 22:03
Lúkasar minnst með kertavökum í kvöld Kertavaka til minningar um hund sem var drepinn með hrottalegum hætti á Akureyri á dögunum verður haldin í Reykjavík, Akureyri og á Vopnafirði í kvöld. Miklar umræður hafa spunnist á Netinu vegna málsins en þar er því haldið fram að ungir drengir hafi sett hundinn ofan í íþróttatösku og sparkað töskunni á milli sín þar til hann var allur. Innlent 28.6.2007 12:58