Fjármálafyrirtæki
23 24 25 26 27 28 29 30 31 … 57 ›
Þóknanatekjur Arion aldrei verið hærri og hagnaðurinn um 10 milljarðar Hagnaður Arion banka á öðrum ársfjórðungi, sem var meðal annars drifin áfram af auknum vaxta- og þóknanatekjum, jókst um liðlega 1,9 milljarð króna á milli ára og var rúmlega 9,7 milljarðar króna. Mikil umsvif í fyrirtækjaráðgjöf og eignastýringu skilaði sér í því að þóknanatekjur hækkuðu um 27 prósent og námu um 4,54 milljörðum króna og hafa aldrei verið meiri á einum fjórðungi. Innherji 27.7.2022 17:34
Hagnaður Arion banka jókst í 9,7 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi Arion banki hagnaðist um 9.712 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2022 samanborið við 7.816 milljónir á sama tímabili í fyrra. Heildareignir námu 1.383 milljörðum króna í lok júní, samanborið við 1.314 milljarða í árslok 2021. Sala á greiðslumiðlunarfyrirtækinu Valitor til Rapyd skilaði bankanum 5,6 milljarða króna söluhagnaði. Viðskipti innlent 27.7.2022 17:15
Netþrjótarnir þaulskipulagðir í Landsbanka-svikum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með röð netglæpa til rannsóknar en óprúttnir aðilar hafa á undanförnum vikum sett upp skuggavefsíður, sem líkjast meðal annars heimasíðu Landsbankans, sem eru til þess gerðar að ræna peningum af fólki. Innlent 27.7.2022 13:40
Vara við falskri vefsíðu Landsbankans Landsbankinn varar við svikum sem hafa átt sér stað að undanförnu í nafni bankans. Töluvuþrjótar hafa stofnað vefsíðu, keimlík vefsíðu Landsbankans, þar sem fólk hefur misst háar upphæðir fjár, haldandi að það væri að skrá sig inn á heimabankann sinn. Innlent 27.7.2022 10:05
Hækkandi vaxtatekjur ættu að lita uppgjör stóru bankanna á markaði Útlit er fyrir að uppgjör stóru viðskiptabankanna í vikunni sem eru skráðir á markað, Arion banka og Íslandsbanka, muni verða sterk ef marka má afkomuspár greinenda. Hækkandi vaxtastig þýðir að hreinar vaxtatekjur bankanna, sem eru stærsti tekjuliður þeirra, munu aukast verulega á milli ára sem vegur á móti samdrætti í fjármunatekjum vegna erfiðra aðstæðna á fjármálamörkuðum. Innherji 26.7.2022 11:43
Aldrei minni vanskil í lánasafni Landsbankans Vanskil viðskiptavina Landsbankans hafa farið lækkandi frá því í lok árs 2019 og hafa aldrei verið lægri en þau voru um mitt þetta ár. Þetta kemur fram uppgjörskynningu bankans. Innherji 26.7.2022 09:00
Örn Arnar nýr sparisjóðsstjóri Suður-Þingeyinga Örn Arnar Óskarsson hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga. Örn þekkir vel til á starfssvæðinu en hann ólst upp á Kópaskeri. Viðskipti innlent 25.7.2022 15:03
Spá því að verðbólga aukist áfram og stýrivextir verði hækkaðir Verðbólgan mældist tæplega tíu prósent í júlí og var langt umfram spár viðskiptabankanna. Forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans segir að gera megi ráð fyrir frekari stýrivaxtahækkunum frá Seðlabankanum í ljósi stöðunnar. Hagfræðiprófessor segir að það taki tíma fyrir aðgerðir stjórnvalda til að bíta, með tilheyrandi aðhaldi og óvissu. Viðskipti innlent 22.7.2022 15:39
Hagnaður Landsbankans lækkar um fjóra milljarða milli ára Hagnaður Landsbankans á öðrum ársfjórðungi 2022 nam 2,3 milljörðum króna samanborið við 6,5 milljarða króna á sama ársfjórðungi árið 2021. Arðsemi eigin fjár Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2022 4,1 prósent og er því langt undir 10 prósenta markmiði bankans. Ástæðu fyrir dvínandi arðsemi segir bankinn vera lækkun á gangvirði hlutabréfaeignar bankans. Viðskipti innlent 21.7.2022 13:35
Kaup ríkisins á hluta nýbyggingar Landsbankans enn til skoðunar Viðræður hafa farið fram milli ríkisins og Landsbankans um kaup þess fyrrnefnda á 6500 fermetra hluta nýbyggingar Landsbankans við Austurhöfn. Kaupin eru enn til skoðunar og vonast er til að niðurstaða fáist á næstu vikum. Innlent 20.7.2022 11:56
Hagnaður Kviku banka tæplega tveimur milljörðum króna undir áætlun Hagnaður Kviku banka hf. á öðrum ársfjórðungi er áætlaður 450 til 500 milljónir króna samkvæmt drögum að uppgjöri fyrir fjórðunginn. Áætluð afkoma fyrir fjórðunginn var 2,15 til 2,4 milljarðar króna og vantar því mikið upp á, eða 1,8 milljarð króna. Viðskipti innlent 20.7.2022 06:46
Arion banki varar við fölskum smáskilaboðum Smáskilaboð sem látin eru líta út eins og þau séu frá Arion banka hafa verið send á fjölmarga landsmenn upp á síðkastið. Arion banki segir þau vera fölsk og varar við því að ýta á hlekkinn sem fylgir skilaboðunum. Viðskipti innlent 19.7.2022 16:09
Öruggari greiðslur með sterkri auðkenningu Nýjar reglur um það sem nefnist „sterk auðkenning“ hafa tekið gildi en í þeim eru gerðar stífari kröfur við innskráningu í bankaöpp og netbanka, um hvernig þú staðfestir netbankagreiðslur og við verslun á netinu. Tilgangurinn er að auka öryggi og stuðla að meiri samkeppni. Skoðun 13.7.2022 11:00
Landsbankinn vill keppa við SaltPay og Rapyd í greiðslumiðlun Landsbankinn vinnur markvisst að því, samkvæmt heimildum Innherja, að fara í samkeppni við SaltPay og sameinað fyrirtæki Valitors og Rapyd á sviði greiðslumiðlunar. Gangi áform bankans eftir verður hann þriðji nýi keppinauturinn á markaðinum ásamt Kviku banka og Sýn. Innherji 12.7.2022 11:27
Guðný Arna frá Kviku til Össurar Guðný Arna Sveinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Össurar og mun hefja störf í september. Viðskipti innlent 11.7.2022 11:29
Reynt að brjótast inn í hraðbanka Arion við Vallakór Reynt var að brjótast inn í hraðbanka Arion banka við Vallakór í Kópavogi í nótt. Innlent 8.7.2022 12:42
Allt að þrefalt dýrara í hárri verðbólgu að taka verðtryggt húsnæðislán Höfuðstóll verðtryggðra húsnæðislána hækkar hratt þessa dagana vegna mikillar verðbólgu. Umboðsmaður skuldara segir afar mikilvægt að lántakendur séu meðvitaðir um áhættuna sem felist í slíkum lánum. Stærsti hluti húsnæðislána hjá lífeyrissjóðum er verðtryggður. Innlent 6.7.2022 19:05
Lífeyrissjóðir ryðja sér aftur til rúms á lánamarkaði Heimili landsins tóku óverðtryggð lán fyrir samtals 100 milljarða króna frá byrjun þessa árs til loka maí. Samkvæmt nýjum tölum Seðlabanka Íslands um eignir lífeyrissjóða nam hlutdeild sjóðanna þriðjungi – ný og óverðtryggð útlán sjóðanna námu 32 milljörðum á tímabilinu – en bankarnir voru með tvo þriðju af markaðinum. Innherji 6.7.2022 11:57
Innri endurskoðandi Kviku ráðinn yfir til Arion banka Anna Sif Jónsdóttir, sem hefur verið innri endurskoðandi Kviku banka í nærri áratug, hefur söðlað um og ráðið sig yfir til Arion banka. Þar mun hún gegna starfi forstöðumanns innri endurskoðunar Arion banka, samkvæmt upplýsingum Innherja. Klinkið 4.7.2022 19:49
Sjö ráðin til indó Íslenski sparisjóðurinn indó hefur ráðið sjö nýja starfsmenn, þau Hjördísi Elsu Ásgeirsdóttur, EInar Björgvin Eiðsson, Stefaníu Sch. Thorsteinsson, Lilju Kristínu Birgisdóttur, Söru Mildred Harðardóttur, Hermann Guðmundsson og Valgerði Kristinsdóttur. Viðskipti innlent 30.6.2022 15:54
Gróa nýr forstöðumaður þjónustuvers Landsbankans Gróa Helga Eggertsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustuvers Landsbankans. Fyrir starfaði hún sem forstöðumaður hjá tækniþjónustu Nova. Viðskipti innlent 29.6.2022 17:22
Spá því að verðbólgan nálgist tíu prósent í næsta mánuði Landsbankinn reiknar með að ársverðbólga mælist 9,5 prósent í næsta mánuði, en fari svo hjaðnandi eftir það. Viðskipti innlent 29.6.2022 13:01
Arion banki fyrstur til að hækka vexti Á morgun munu inn- og útlánavextir hjá Arion banka hækka í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands. Breytingarnar ná til óverðtryggða íbúðalána, kjörvaxta, bílalána og innlána. Íslandsbanki hefur einnig boðað hækkanir þann 1. júlí næstkomandi. Viðskipti innlent 28.6.2022 22:24
Kristín Rut ráðin útibússtjóri í Hafnarfirði Kristín Rut Einarsdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Landsbankans í Hafnarfirði. Viðskipti innlent 27.6.2022 14:18
Sólon R. Sigurðsson er látinn Sólon R. Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri, er látinn, áttræður að aldri. Hann lést á Landspítalanum síðastliðinn þriðjudag. Innlent 23.6.2022 07:50
Íslandsbanki herðir reglur um viðskipti starfsmanna Íslandsbanki herti reglur sínar um bankaviðskipti starfsmanna bankans þann 15. júní síðastliðinn. Með breytingunum er starfsmönnum einungis heimilt að eiga viðskipti með hlutabréf og skuldabréf bankans á opnu viðskiptatímabili og miðlurum bankans er alfarið meinað að versla með eigin reikning. Viðskipti innlent 22.6.2022 17:24
Bankasöluskýrslu ekki lokið fyrir mánaðarlok Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka verður ekki kláruð fyrir lok þessa mánaðar líkt og stefnt var að. Viðskipti innlent 21.6.2022 08:05
Stofnendur indó vilja bæta bankakjör heimila um tíu milljarða Haukur Skúlason og Tryggvi Björn Davíðsson, stofnendur indó, fengu að heyra fjölmargar ástæður fyrir því hvers vegna ómögulegt væri að stofna nýjan banka. Fjórum árum síðar er sparisjóðurinn kominn með starfsleyfi, aðgang að greiðslukerfi bankanna og stefnir að því að bjóða alla velkomna í viðskipti á seinni hluta þessa árs. Þeir hafa einsett sér að umbylta verðlagningu á bankamarkaðinum og telja að aukin samkeppni geti skilað heimilum landsins allt að 10 milljarða króna ábata. Innherji 18.6.2022 10:01
Fossar styrkja fjárhagsstöðuna samhliða því að verða fjárfestingabanki Fossar réðust í hlutafjáraukningu upp á liðlega 850 milljónir króna í síðasta mánuði til að styrkja fjárhagsstöðu félagsins samhliða því að fá starfsleyfi sem fjárfestingabanki. Eigið fé Fossa nemur nú rúmlega 1,1 milljarði króna, samkvæmt upplýsingum Innherja, en eitt af skilyrðum þess að fá fjárfestingabankaleyfi er að vera með að lágmarki fimm milljónir evra, jafnvirði um 700 milljónir króna, í eigið fé. Innherji 17.6.2022 10:20
Hlutur Róberts metinn á um 226 milljarða króna Alvotech, líftæknifyrirtæki Róberts Wessman var í dag skráð á markað í Bandaríkjunum aðeins tíu árum eftir stofnun. Þá er fyrsta lyf fyrirtækisins nú komið í dreifingu í Kanada og Evrópu eftir að dómssátt náðist um leyfismál. Viðskipti innlent 16.6.2022 20:01