Rússland
27 28 29 30 31 32 33 34 35 … 98 ›
Pútín vill jólavopnahlé Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skipað Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra sínum, að koma á einhliða vopnahléi í hádegi á morgun til miðnættis á laugardagskvöld (7. janúar), eða í 36 klukkustundir. Það er eftir að æðsti klerkur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar lagði slíkt vopnahlé til. Erlent 5.1.2023 15:47
Sinna íslensk stjórnvöld ekki sem skyldi öryggis- og varnarmálum? Ásakanir um andvaraleysi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu standast ekki skoðun né heldur fullyrðingar um gerbreyttar aðstæður í íslenskum öryggis- og varnarmálum hennar vegna. Innrásin og stríðið í Úkraínu hafa ekki haft neinar afleiðingar sem veikja undirstöður varna- og öryggismála Íslands eða krefjast endurmats á þeim, hvað þá þess að fast herlið verði á landinu – eins og meðal annars hefur verið kallað eftir. Innherji 5.1.2023 15:39
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar sagðir stefna á aðra herkvaðningu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er að undirbúa þjóð sína fyrir langvarandi átök í Úkraínu og Rússar eru sagðir vera að undirbúa aðra herkvaðningu. Bakhjarlar Úkraínumanna vinna að því að senda ný vopnakerfi til landsins en forðast enn að senda skriðdreka. Erlent 5.1.2023 14:00
Flett ofan af umfangsmiklu peningaþvætti Rússa á Spáni Spænska lögreglan hefur flett ofan af rússneskri mafíu sem teygir sig víða um Spán, og reyndar víða um Evrópu. Glæpasamtökin stunda peningaþvætti og hafa fjárfest í fasteignum á Spáni fyrir 25 milljónir evra. Bandaríski kaupsýslumaðurinn Bill Browder hefur útvegað spænsku lögreglunni þúsundir skjala sem gerðu henni kleift að grípa til aðgerða. Erlent 4.1.2023 15:30
Kokkur Pútíns segir hvert hús í Bakhmut vera virki Rússneski herinn á í basli með að brjóta varnir Úkraínumanna við Bakhmut á bak aftur þar sem „hvert hús er virki“, samkvæmt Yevgeny Prigozhin, eiganda Wagner Group málaliðahópsins. Hann og Wagner hafa leitt viðleitni Rússa við að ná tökum á bænum um mánaða skeið en víglínunum þar hefur verið lýst sem „hakkavél“. Erlent 3.1.2023 15:13
Farsímanotkun sögð hafa leitt til einnar mannskæðustu árásar stríðsins Rússneskir ráðamenn í Donetsk-héraði í Úkraínu segja að þeir hermenn sem féllu í einni af mannskæðustu árásum stríðsins í Úkraínu á nýársnótt geti kennt sjálfum sér um. Úkraínumenn hafi fundið þá vegna þess hve margir af hermönnunum voru að nota farsíma sína. Erlent 3.1.2023 11:16
Reka sendiherra Frakklands úr landi og líta til Rússlands Herstjórn Búrkína Fasó hefur skipað sendiherra Frakklands að yfirgefa landið. Tvær vikur eru síðan að mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna í Búrkína Fasó var gert að yfirgefa landið. Herstjórnin hefur verið að styrkja samband Búrkína Fasó og Rússlands að undanförnu. Erlent 3.1.2023 10:08
Selenskí segir drónaárásir Rússa verða langvarandi Selenskí Úkraínuforseti sagði í reglulegu ávarpi sínu í nótt að Rússar ætli sér augljóslega að beita írönskum drónum í meira mæli næstu mánuðina til að draga stríðið á langinn og að ætlun þeirra sé að vona að Úkraínumenn missi baráttuþrekið. Erlent 3.1.2023 07:18
Dísilolía flæðir frá Rússlandi í aðdraganda viðskiptabanns Útflutningur á dísilolíu frá Rússlandi mun stóraukast í janúarmánuði frá desember. Þann 5. febrúar næstkomandi tekur gildi bann við innflutningi á rússnesku eldsneyti sjóleiðis. Innherji 2.1.2023 17:00
Sagðir hafa fellt hundruð Rússa í einni árás Úkraínumenn eru sagðir hafa fellt hundruð rússneskra hermanna í einni árás í austurhluta Úkraínu á nýársnótt. Fregnir hafa borist af því að flugskeytum hafi verið skotið að skóla í bænum Makívka því þar hafi fjölmargir hermenn verið komnir saman. Erlent 2.1.2023 11:13
Fyrsta stikla fyrstu myndarinnar sem tekin var upp í geimnum Framleiðendur fyrstu kvikmyndarinnar sem tekin var upp í geimnum birtu í gær fyrstu stiklu myndarinnar sem ber heitið Áskorunin, eða The Challenge. Myndin var tekin upp í Alþjóðlegu geimstöðinni í október í fyrra. Bíó og sjónvarp 2.1.2023 10:11
Rússar héldu árásum sínum áfram í nótt Loftvarnaflautur hljómuðu í Kænugarði í gærkvöldi og nótt en samkvæmt heimildarmönnum innan úkraínska hersins skutu loftvarnakerfi niður um það bil tuttugu skotmörk, meðal annars dróna. Erlent 2.1.2023 07:14
Fyrstu árásirnar þegar hálftími var liðinn af nýja árinu Rússar héldu árásum sínum áfram á Úkraínu í dag og var fyrstu flugskeytunum skotið á höfuðborgina Kænugarð þegar einungis um hálftími var liðinn af nýja árinu. Skotið var á byggingar í tveimur hverfum höfuðborgarinnar og er að minnsta kosti einn látinn. Erlent 1.1.2023 22:40
Fjöldamargar loftárásir á Kænugarð Fjöldamargar loftárásir hafa verið gerðar á Kænugarð og fleiri borgir Úkraínu í dag. Volodómír Selenskí forseti Úkraínu segir Rússa hafa ætlað sér að eyðileggja nýársfögnuð Úkraínumanna með árásunum. Loftvarnarflautur hafa ómað í höfuðborginni í allan dag. Erlent 31.12.2022 13:25
Segir Ólympíunefndinni stýrt úr bandaríska utanríkisráðuneytinu Dmitry Chernyshenko, varaforsætisráðherra Rússlands, segir Alþjóðaólympíunefndina vera undir beinum áhrifum bandarískra stjórnvalda. Rússneskir íþróttamenn sæta banni frá nefndinni vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Sport 30.12.2022 13:01
Yfirrabbíninn í Moskvu hvetur gyðinga til að flýja Rússland Rabbíninn Pinchas Goldschmidt hefur hvatt gyðinga búsetta í Rússlandi til að yfirgefa landið á meðan þeir geta. Hann segist óttast að þeir verði gerðir að blórabögglum fyrir þeim erfiðleikum sem Rússland stendur frammi fyrir vegna innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 30.12.2022 08:36
Eldflaugum rigndi yfir Úkraínu: „Tilgangslaus villimennska“ Úkraínuher skaut niður meirihluta 69 eldflauga sem Rússlandsher skaut yfir landið í dag. Fjöldi heimila og mikilvægir innviðir skemmdust í árásunum. Erlent 29.12.2022 22:50
Segja yfir hundrað flugskeyti á lofti yfir Úkraínu Loftvarnaflautur eru sagðar hljóma víða um Úkraínu eins og stendur og þá hafa heyrst sprengingar í Kænugarði. Oleksiy Arestovyck, ráðgjafi Vólódímírs Selenskís, sagði í morgun að fleiri en 100 flugskeytum hefði verið skotið á loft af Rússum, í nokkrum bylgjum. Erlent 29.12.2022 07:47
Rússar hæfðu fæðingardeild í Kherson í stórskotaliðsárás Almennir borgarar í Kherson í Úkraínu flýja nú heimili sín unnvörpum en árásir Rússa á borgina hafa færst í vöxt síðustu tvo sólarhringana. Erlent 28.12.2022 14:48
Rússneskur pylsumógúll látinn eftir fall út um glugga Rússneski pylsumógúllinn og stjórnmálamaðurinn Pavel Anton fannst látinn eftir að hafa fallið af glugga á þriðju hæð hótels á Indlandi á jóladag. Tveimur dögum fyrr hafði vinur hans látist í sömu ferð. Erlent 28.12.2022 08:22
Stjórnvöld í Rússlandi greiða fyrir varðveislu sæðis hermanna Rússneska ríkisfréttastofan Tass greindi frá því í dag að heilbrigðirsráðuneytið hefði samþykkt að fjármagna áætlun sem mun gera rússneskum hermönnum kleift að láta frysta úr sér sæði, áður en þeir halda á vígsstöðvarnar í Úkraínu. Erlent 28.12.2022 07:38
Úkraínumenn fikri sig nær endurheimt lykilborga í Luhansk Margt bendir til þess að Úkraínumenn séu nú að fikra sig nær því að endurheimta Kreminna, lykilborg í Luhansk héraði, sem gæti opnað möguleika á frekari sókn. Harðir bardagar halda áfram bæði í austur- og suðurhluta Úkraínu. Erlent 27.12.2022 18:11
Musk metur martraðaspá Medvedev marklausa Dmitry Medvedev, náinn bandamaður Vladimír Pútín og fyrrverandi forseti Rússlands, birti í gær sína spá fyrir árið 2023. Margt í spánni mætti flokka sem galið en meðal þeirra sem svöruðu forsetanum fyrrverandi var Elon Musk, forstjóri Twitter. Hann sagði spána vera þá fáránlegustu sem hann hefur á ævi sinni heyrt. Erlent 27.12.2022 13:22
Rússar vilja undanþágu fyrir fatlaða íþróttamenn Ólympíunefnd fatlaðra í Rússlandi hefur sótt um undanþágu frá útilokun þarlendra keppenda til Alþjóðaólympíunefndar fatlaðra. Forseti rússneska sambandsins segir þeir eigi að njóta vafans. Sport 27.12.2022 11:31
Selenskí segir átökin í Donbas „erfið og sársaukafull“ Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir átökin sem nú standa yfir í Donbas „erfið og sársaukafull“. Ástandið á framlínunni; í Bakhmut, Kreminna og víðar, krefðist styrks og einbeitingar, þar sem Rússar beittu öllum kröftum í að sækja fram. Erlent 27.12.2022 07:36
Úkraínskur dróni komst langt inn í Rússland Rússneski herinn skaut niður úkraínskan dróna við Engels herflugvöllinn. Engels er um sex hundruð kílómetra austur af landamærum Rússlands og Úkraínu. Erlent 26.12.2022 10:38
Segir Rússa reiðubúna til að semja Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir Rússa reiðubúna til að semja um endalok innrásar þeirra í Úkraínu. Hann segir Úkraínumenn og vesturlönd ekki vilja ganga að samningaborðinu. Erlent 25.12.2022 13:44
Eldsvoði í ólöglegu neyðarskýli banaði tuttugu og tveimur Tuttugu og tveir eru látnir eftir að kviknaði í ólöglegu neyðarskýli í rússnesku borginni Kemerovo. Erlent 24.12.2022 12:16
Rússneska sendiráðið gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu harðlega Rússneska sendiráðið gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra harðlega fyrir ummæli sem hún lét falla í sjónvarpsþætti í vikunni. Í þættinum gagnrýndi ráðherra rússnesk stjórnvöld en sendiráðið vísar ummælunum á bug. Innlent 23.12.2022 19:20
Evrópa í basli með skotfærabirgðir og framleiðslu Ríki Evrópu eiga í vandræðum með að auka framleiðslu hergagna, þrátt fyrir að mörg af stærstu vopnaframleiðslufyrirtækjum heims megi finna á heimsálfunni. Vandræðin snúa sérstaklega að framleiðslu skotfæra fyrir stórskotaliðsvopn. Erlent 23.12.2022 15:30