Þjóðadeild karla í fótbolta

Fréttamynd

„Ég myndi spila fót­brotinn fyrir lands­liðið“

Cristiano Ronaldo grét gleðitárum þegar Portúgal vann Þjóðadeildina í gærkvöldi og sagði tilfinningarnar sem fylgja því að vinna með landsliðinu mun meiri og betri en með félagsliði. Þá sagðist Ronaldo einnig hafa verið að glíma við meiðsli, en harkað þau af sér fyrir þjóðina.

Fótbolti
Fréttamynd

„Ekki setja of mikla pressu á hann“

Úrslitaleikur Þjóðadeildarinnar fer fram í kvöld, og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Portúgal og Spánn munu eigast við en Cristiano Ronaldo var spurður út í næstu kynslóð fyrir leik, og þá sérstaklega ungstirnið Lamine Yamal.

Sport
Fréttamynd

Boltastrákurinn orðinn þjóð­hetja og fer frítt á undanúrslitin

Þökk sé snöggum þankagangi er fimmtán ára gamli boltastrákurinn Noel Urbaniak orðin þjóðhetja í Þýskalandi, eftir að hafa átt hlut í marki gegn Ítalíu í gærkvöldi. Honum var síðan kippt aftur niður á jörðina í morgun þegar hann hóf störf sem starfsmaður í kebabverksmiðju, en getur látið sér hlakka til undanúrslitaleiksins sem hann fer frítt á.

Fótbolti
Fréttamynd

Fékk fund með Heimi og hló með honum eftir markið

Adam Idah innsiglaði sigur Írlands í einvíginu við Búlgaríu, í umspilinu um sæti í B-deild Þjóðadeildar UEFA í fótbolta. Hann hafði fengið fund með Heimi Hallgrímssyni í von um að spila meira og saman glöddust þeir í gærkvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Frakk­land verður með Ís­landi í riðli

Frakkland verður með Íslandi í riðli í undankeppni heimsmeistaramótsins 2026. Það varð ljóst eftir sigur liðsins í vítaspyrnukeppni gegn Króatíu, í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar.

Fótbolti
Fréttamynd

„Ætla ekki að standa hérna og af­saka neitt“

„Þetta var ekki gott. Við erum undir í flestum atriðum leiksins og Kósovó gerði bara vel. Þeir áttu skilið sigurinn og unnu þetta einvígi nokkuð sanngjarnt,“ segir Aron Einar Gunnarsson eftir að Ísland féll niður í C-deild Þjóðadeildar í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

„Horfi enn þá mjög já­kvæður á fram­haldið“

„Mér fannst þeir vera yfir í flestöllu af þessu einfalda. Keyrðu svolítið yfir okkur á því. Tilfinningarnar eru ömurlegar,“ segir Stefán Teitur Þórðarson sem óvænt lék sem miðvörður í fyrri hálfleik gegn Kósovó í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Um­fjöllun: Ís­land - Kósovó 1-3 | Aldrei verið á verri stað

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er fallið niður í C-deild Þjóðadeildar UEFA eftir 3-1 tap gegn Kósovó í heimaleik Íslands í Murcia á Spáni í kvöld. Ísland tapaði því einvíginu 5-2 og það verða Kósovóar sem spila í B-deild keppninnar í fyrsta sinn, haustið 2026.

Fótbolti