Fótbolti

Heimir þre­falt lík­legri en Ís­land til að fara á EM

Valur Páll Eiríksson skrifar
Bæði Arnar og Heimir sækjast eftir sæti á EM eftir tæp tvö ár.
Bæði Arnar og Heimir sækjast eftir sæti á EM eftir tæp tvö ár. Samsett/Getty

Samkvæmt greiningum tölfræðiveitna eru 93 prósent líkur á að Írar Heimis Hallgrímssonar komist á EM 2028 sem haldið verður á Bretlandi og Írlandi. Líkur Íslands eru 29 prósent til samanburðar.

Líkt og fram kom á Vísi í gær urðu líkur Íslands á að komast á EM minni við það að gera annað jafnteflið í röð við Eistland í nýliðnum landsleikjaglugga. Þær líkur hafa þó lítið með komandi undankeppni að gera en meira með mögulegt umspil að undankeppninni lokinni.

Ísland er aðeins með átta stig eftir fjóra leiki, og þó að liðið sé efst í sínum riðli er það með fæst stig allra toppliða riðla í C-deild Þjóðadeildarinnar. Svartfjallaland og Slóvakía eru með tíu stig og Albanía níu stig.

Öll þessi þrjú lið eru því fyrir ofan Ísland í goggunarröðinni um umspil Þjóðadeildar fari svo að ekkert þeirra komist á EM í gegnum hefðbundna undankeppni.

Ísland hefur 29 prósent möguleika á því að komast á EM sumarið 2028 eins og sakir standa samkvæmt greiningum tölfræðiveitna.

Líkur Írlands, sem leikur undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, hefur hins vegar 93 prósent líkur á að komast á mótið. Það er þó ekki vegna stórkostlegrar frammistöðu liðsins í Þjóðadeildinni hingað til.

Írland átti erfiðan glugga sem hafði meira að gera með alþjóðapólitík, stríðsbrölt og almenn leiðindi Ísraela heldur en fótbolta og er með fimm stig í þriðja sæti riðils síns í B-deild Þjóðadeildarinnar.

Írland er eitt fjögurra landa á Bretlandseyjum sem heldur EM 2028, ásamt Englandi, Wales og Skotlandi. Tvö liðanna fá gefins sæti á mótinu en ef hin tvö komast á mótið gegnum undankeppnina eru þau öll fjögur komin með sæti þar áður en nokkuð umspil fer fram.

Líkur bresku þjóðanna auk Írlands eru því töluvert hærri en eðlilegt væri, færi mótið fram í einu ríki.

Nánar er fjallað um flókið fyrirkomulag undankeppni EM og Þjóðadeildarinnar í grein gærdagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×