Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Valur Páll Eiríksson skrifar 14. október 2026 13:15 Rooney gagnrýnir hegðun fyrrverandi félaga síns Ronaldo harðlega. Wayne Rooney setur stórt spurningamerki við hegðun fyrrverandi félaga síns Cristiano Ronaldo í nýliðnu landsleikjahléi. Hún nái út fyrir öll mörk og hann hafi vart séð annað eins.
Það vakti töluverða athygli þegar Ronaldo yfirgaf félaga sína í portúgalska landsliðinu í miðju landsleikjahlé eftir að hafa setið allan leikinn á bekknum í 2-1 sigri Portúgals á Noregi. Ronaldo flaug með einkaþotu frá Kaupmannahöfn þar sem Portúgalir áttu fram undan leik við Danmörku og áttu einnig eftir annan leik við Norðmenn á heimavelli. Ronaldo hafði byrjað fyrsta leikinn við Wales en setið á bekknum í öðrum leiknum við Noreg. Portúgal vann alla fjóra leikina í landsliðsglugganum sem var fyrsta verkefni nýs þjálfara, Jorge Jesus, sem tók við eftir HM í sumar. Ronaldo sakaði Jesus um að hafa svikið sig og lofað sér leiktíma sem hann fékk ekki í leiknum við Noreg. Honum þótti vandræðalegt að hafa verið sendur að hita upp en ekki komið inn á. Í hlaðvarpinu United Stand gagnrýndi Rooney sinn gamla liðsfélaga fyrir hegðun sína. „Mín skoðun á Ronaldo er hreinlega bara: Hvers vegna? Þetta var sama dag og Messi var að hætta með Argentínu og fyrir hann að segja sig frá portúgalska liðinu með þessum hætti, og síðan birta þessa yfirlýsingu. Það er bara allt rangt við þetta,“ segir Rooney. „Frá fótboltalegu hliðinni, frá því að vera liðsfélagi og þjálfari, þá er þetta ekki gott að sjá.“ Hvað heillanga yfirlýsingu Ronaldo varðar, þar sem hann sakaði þjálfarann Jesus um svik og líkti sjálfum sér við menn á við Diego Maradona og Pelé. Þar listaði Ronaldo einnig upp hluti sem honum fannst Jesus hafa átt að segja á blaðamannafundi eftir að allt sprakk í loft upp þeirra á milli. „Þú getur ekki sagt þjálfaranum hvað hann á að segja. Það fer út fyrir öll mörk. Ég hef ekki séð annað eins,“ segir Rooney. Rooney og Ronaldo spiluðu saman hjá Manchester United milli 2004 og 2009 í dýrðartíð liðsins undir stjórn Sir Alex Ferguson. Þeir unnu þrjá enska meistaratitla saman og Meistaradeild Evrópu.
Enski boltinn Manchester United Þjóðadeild karla í fótbolta Portúgalski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Sjá meira