

"Þetta eru fínustu lömb, hress og heilbrigð. Burðurinn gekk ágætlega hjá henni, það komu reyndar tvö á afturfótunum, það var eitthvað sem við leystum auðveldlega. Þetta eru sæðingalömb undan sæðingahrúti, þannig að eitthvað af þeim verður líklega í ásetningshópnum í haust, segir Tómas Jensson,“ bóndi á Teigi í Fljótshlíð.
Mjaldurinn sem fannst úti fyrir Finnmörk í Noregi í lok apríl virðist ekki vera njósnari á vegum rússneska sjóhersins, líkt og talið var í fyrstu, heldur hafi hann verið notaður við meðferð á andlega veikum börnum í Rússlandi.
Lögreglu barst tilkynning um hestana seint á sjöunda tímanum en þeir voru gripnir um áttaleytið.
Það þarf að bjarga skordýrum heimsins svo bjarga megi mannkyninu. Þetta segir Anne Sverdrup-Thygeson, einn fremsti skordýrafræðingur heims og prófessor við Norska lífvísindaháskólann.
Lögreglan segir atvikið hafa átt sér stað skammt frá Heiðarskóla í Reykjanesbæ.
Þetta kemur fram í svari samtakanna Sea life trust sem standa að flutningi mjaldrasystranna hingað til lands.
Mávur á flugi með óræðan hlut í gogginum fangaði athygli lögreglumanna við almennt eftirlit á Suðurnesjum í gærkvöldi.
Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna lýsir gríðarlegri hnignun lífríkis jarðarinnar vegna ágangs manna.
Nafnið þykir hinn sniðugasti leikur að orðum sem sameinar norska orðið yfir hval og nafn Rússlandsforseta.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Akureyjar í Kollafirði sem friðland.
Sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun Noregs segir að hinn meinti rússneski njósnamjaldur, sem komst í heimsfréttirnar í vikunni, verði mögulega fluttur í hvalaathvarf á Íslandi. Það myndi auka lífslíkur mjaldursins.
Ærin Bílda sem býr í Húsdýragarðinum í Reykjavík bar í nótt tveimur gimbrum.
Mjaldur, sem fannst í norskri landhelgi í vikunni og er talinn á vegum rússneska sjóhersins, hefur leikið listir sínar fyrir íbúa Tufjord í Noregi undanfarna daga. Rússneskur ofursti gefur lítið fyrir þær fullyrðingar að mjaldurinn sé gerður út til njósna af rússneska hernum.
Mjaldrinum var veitt sérstök eftirtekt þar sem hann hafði utan um sig beisli, sem sérfræðingar telja að sé til þess að festa á myndavél eða vopn.
Kona frá Dublin hefur hafið herferð fyrir því að hundahóteli sem hún kom hundi sínum fyrir á á meðan hún skrapp í stutta ferð til Íslands verði lokað. Þegar hún sneri aftur frá Íslandi hafði hundur hennar drepist í umsjá hundahótelsins og búið var að pakka hræinu inn í límband.
Vísindamenn segja útungunarbrestinn afar óvenjulegan.
Sumardagurinn fyrsti bar nafn með rentu í dag þegar gamalt hitamet féll og hiti mældist næstum fimmtán gráður á höfuðborgarsvæðinu. Margir mættu á hátíðarhöld í tilefni dagsins víða um borgina. Í Grasagarðingum var verkið Fyssa endurvígt og ormar, kettir, hundar og páfagaukar fengu blessun í Grafarholti.
Íbúar á Kamtsjaka urðu varir við björninn í síðustu viku og varð þeim ljóst að hann var uppgefinn eftir að hafa farið mörg hundruð kílómetra leið í leit að fæðu.
Matvælastofnun fylgist nú náið með veikindum í hrossum sem komið hafa upp á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurlandi og á Vesturlandi.
Lögregla í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum handtók í gær konu á sextugsaldri sem grunuð er um að hafa hent sjö nýfæddum hvolpum í ruslagám á fimmtudag.
Selalaugin í Fjölskyldu-og húsdýragarðinum er alltof lítil og barn síns tíma að sögn deildarstjóra garðsins. Ef fjármagn fáist frá borginni væri hægt að stækka hana og dýpka innan árs.
Aðstaða selanna í Húsdýragarðinum er óásættanleg að sögn borgarfulltrúa Pírata. Til skoðunar er að stækka laugina og endurskoða stefnu garðsins varðandi fjölgun dýranna. Óþarft sé að dýrin geti af sér afkvæmi sem leidd eru til slátrunar á haustin.
Tvær górillur stilltu sér upp fyrir sjálfu með þjóðgarðsvörðum í þjóðgarði í Kongó.
Fuglar af þessari tegund tala og syngja mikið, Emma er þar engin undantekning. Emma hefur gaman af tónlist, ekki síst þegar gestir koma með harmonikku á Sólheima til að spila og syngja.
Lögreglan í Coachella í Kaliforníu leitar nú konu sem náðist á myndband við það að kasta sjö nýfæddum hvolpum í ruslið.
Sést hefur til kría á Óslandi á Höfn, en Þórir Snorrason sem búsettur er á svæðinu sá til tveggja kría fljúga yfir svæðinu í gær.
Engin afstaða er tekin til hversu lengi gæludýr þurfa að vera í sóttkví í nýju áhættumati sem Hundaræktarfélag Íslands lét gera að sögn fræðslustjóra Matvælastofnunar.
Landbúnaðarráðherra segir að reglum um innflutning á hundum verði ekki breytt nema að sérfræðingar Matvælastofnunar samþykki það. Formaður Hundaræktunarfélags Íslands hvetur til þess að það verði gert enda sýni nýtt áhættumat að engin vísindaleg rök búi að baki núverandi einangrun hunda.
"Það er alveg ljóst að niðurstaðan gerir það að verkum að það er fyllsta tilefni til að endurskoða reglurnar. Það virðast engin vísindaleg rök liggja að baki fjögurra vikna einangrun.“
Síðasta kvendýr Bláárrisaskjaldbökunnar, sem vitað er af, drapst í dýragarðinum í Suzhou í Kína í gærkvöld