Fréttir af flugi
36 37 38 39 40 41 42 43 44 … 147 ›
Aflýstu flugi tuttugu mínútum fyrir áætlaða brottför Flugi flugfélagsins Play frá Keflavík til Gautaborgar var aflýst í morgun, tuttugu mínútum fyrir brottför. Innlent 13.6.2022 08:30
Rautt neyðarstig á Keflavíkurflugvelli í nótt Lýst var yfir rauðu neyðarstigi á Keflavíkurflugvelli í nótt þegar farþegaþota á leið frá Malaga til Keflavíkur lenti í vandræðum. Vélin lenti í Keflavík klukkan rúmlega hálf tvö í nótt og neyðarstigi aflétt í kjölfarið. Innlent 13.6.2022 06:16
„Þetta er fúlt“ Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair segir að það sé óneitanlega fúlt að hafa þurft að fella niður ferðir félagsins til London út mánuðinn. Hann vonast til þess að lausnir sem félagið hefur borið á borð breskra yfirvalda dugi til að leysa málið. Viðskipti innlent 12.6.2022 12:24
Icelandair horfir til Boeing 787 við undirbúning næstu flugvélakaupa Forstjóri Icelandair segir að undirbúningur næstu flugvélakaupa sé að hefjast. Kaup á Boeing Dreamliner-breiðþotum til að reka með Max-þotunum eða að skipta alfarið yfir í Airbus-þotur eru þeir tveir kostir sem helst er horft til. Innlent 11.6.2022 23:15
Óvænt símtal skömmu eftir brottför setti allt úr skorðum Tíu mínútum eftir að flugvél Niceair hélt í jómfrúarflug flugfélagsins til Bretlands barst símtal á skrifstofur félagsins þar sem þeim var tjáð að þau fengju ekki að taka farþega með til Íslands í því flugi. Hann segir ekki sameiginlegan skilning á skýringum varðandi hvert vandamálið sé. Innlent 10.6.2022 20:22
Niceair aflýsir öllu Bretlandsflugi í júní Norðlenska flugfélagið Niceair mun aflýsa fyrirhuguðum ferðum félagsins frá Akureyri til Bretlands í júní. Viðskipti innlent 10.6.2022 12:27
Ráðherra segir tryggt að borgin byggi ekki í Skerjafirði án samþykkis Isavia Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir sáttmála nýs borgarstjórnarmeirihluta tryggja að ekki verði byggt í Skerjafirði án samþykkis flugmálayfirvalda. Innlent 9.6.2022 22:55
Danir og Færeyingar semja um sjö milljarða ratsjárstöð NATO Jenis av Rana, utanríkisráðherra Færeyja, og Morten Bødskov, varnarmálaráðherra Danmerkur, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um uppsetningu nýrrar ratsjárstöðvar á Sornfelli í Færeyjum. Yfirlýsingin var undirrituð í Þórshöfn í tengslum við ríkisfund Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, með þeim Bárði á Steig Nielsen, lögmanni Færeyja, og Muté B. Egede, forsætisráðherra Grænlands, sem undirrituðu samstarfsyfirlýsingu þjóðanna um öryggis- og varnarmál. Erlent 9.6.2022 18:59
Icelandair flýgur á slóðir upphafsmanna flugsins Ef einhver staður getur gert þá kröfu að teljast sá merkilegasti í flugsögunni, þá er það strandbærinn Kitty Hawk í Norður-Karólínu. Það var þar sem Wright-bræður, þeir Orville og Wilbur, gerðu flugtilraunir sínar í byrjun síðustu aldar og þann 17. desember árið 1903 tókst þeim fyrstum manna að fljúga þar vélknúinni flugvél. Ferðalög 8.6.2022 11:25
Farþegafjöldi Icelandair áttfaldast milli ára Farþegum Icelandair fjölgaði mikið milli apríl og maí og fjöldi þeirra áttfaldast miðað við sama mánuð í fyrra. Innlent 7.6.2022 17:37
Úthlutun lóðar í Skerjafirði frestað á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar Úthlutun lóðar og sala byggingarréttar við Einarsnes í Skerjafirði var sett á dagskrá fyrsta fundar nýrrar borgarstjórnar í dag. Þetta gerðist aðeins sólarhring eftir að málefnasamningur nýs meirihluta var kynntur þar sem segir að rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar verði tryggt á meðan unnið sé að undirbúningi nýs flugvallar í nágrenni borgarinnar. Innlent 7.6.2022 17:12
Tengiflugskerfið til Bandaríkjanna umbreytir rekstri Play Flugfélagið Play flutti rúmlega 56.600 farþega í maí sem er 58% aukning frá aprílmánuði. Farþegafjöldinn í maí var jafnmikill og á öllum fyrsta ársfjórðungi. Forstjóri Play segir tengiflugskerfi til Bandaríkjanna umbreyta rekstrinum og að það gangi vel að koma sér fyrir á flugmarkaðnum. Viðskipti innlent 7.6.2022 13:09
Ferðaðist þúsundir kílómetra til að ná fyrsta flugi Niceair Þjóðverjinn Tino Oelker gerði sér ferð alla leið frá München í Þýskalandi til Akureyrar í vikunni í þeim eina tilgangi að fljúga með jómfrúarferð Niceair til Kaupmannahafnar. Skapti Hallgrímsson hjá Akureyri.net tók viðtal við Oelker fyrir flugið á fimmtudaginn þar sem hann greindi frá óhefðbundnum áhugamálum sínum, ferðalaginu til Íslands og öðrum skemmtilegum ferðasögum. Ferðalög 5.6.2022 14:36
Air Canada hefur sig til flugs frá Keflavíkurflugvelli á ný Air Canada hefur hafið sumarflug sitt milli Keflavíkurflugvallar og Toronto og Montreal á ný en flugfélagið flaug seinast til Íslands árið 2019. Flogið verður fjórum sinnum í viku til og frá Toronto og þrisvar sinnum í viku til og frá Montreal fram í október. Viðskipti innlent 3.6.2022 13:12
Bandarískur sjóður losar um stóran hluta bréfa sinna í Icelandair Bandarískur vogunarsjóður, sem hefur verið á meðal stærstu hluthafa Icelandair frá því um mitt árið í fyrra, seldi í flugfélaginu fyrir nærri 200 milljónir króna á seinni helmingi síðasta mánaðar. Frá áramótum hefur sjóðurinn, sem er stýringu hjá Stone Forest Capital, losað um þriðjung bréfa sinna í Icelandair. Innherji 3.6.2022 11:28
Frumkvöðlar frá fyrsta degi Í dag fagnar Icelandair 85 ára afmæli. Við þessi tímamót er gaman að staldra við og í senn líta yfir farinn veg og til framtíðar. Að mínu mati er rauði þráðurinn í gegnum alla söguna einstakur kraftur og ástríða starfsfólks og sá mikli frumkvöðlaandi sem einkennt hefur félagið alla tíð og gerir enn. Skoðun 3.6.2022 08:00
Tökum flugið með Nice Air! Nú í morgunsárið tók á loft flugvél flugfélagsins Nice Air frá Akureyrarflugvelli í sína jómfrúarferð og setti stefnuna á Kaupmannahöfn. Þar með er hafið áætlunarflug á milli Norðurlands og áfangastaða í Evrópu. Skoðun 2.6.2022 17:01
Langar biðraðir á flugvöllum um alla Evrópu Ferðasumarið er hafið og langar biðraðir hafa myndast á flugvöllum um alla Evrópu. Kerfisbilanir og skortur á starfsfólki spila inn í það, ásamt mikilli aukningu á ferðamönnum eftir tvö sumur í röð með heimsfaraldri. Erlent 1.6.2022 14:10
Hildur Björk stýrir markaðsmálum hjá Isavia Hildur Björk Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála og upplifunar hjá Isavia. Viðskipti innlent 1.6.2022 10:33
Flugfreyjufélagið og Niceair gera með sér kjarasamning Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og hið akureyrska flugfélag Niceair hafa gert með sér kjarasamning fyrir flugfreyjur og -þjóna félagsins. Innlent 31.5.2022 14:30
Miklar tilfinningar þegar Súlur kom í heimahöfn Þota norðlenska flugfélagsins Niceair, Súlur, flaug í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri í dag. Forsetafrúin fékk þann heiður að nefna flugvélina. Viðskipti innlent 30.5.2022 22:00
Rjómablíða tók á móti þotu Niceair Eyjafjörðurinn skartaði sínu fegursta í dag þegar Súlur, flugvél Niceair, kom til heimahafnar á Akureyri, nú fyrir stundu. Viðskipti innlent 30.5.2022 13:31
Hafa fundið fjórtán lík í flaki farþegavélarinnar Björgunarlið í Nepal hefur nú fundið fjórtán lík í flaki farþegaflugvélar sem fórst þar í landi í gærmorgun. Tuttugu og tveir voru um borð í vélinni, og er talið að allir hafi farist. Erlent 30.5.2022 07:56
Þota Niceair kemur til Akureyrar Airbus farþegaþota akureyrska flugfélagsins Niceair kemur til Akureyrar í dag en jómfrúarflug vélarinnar verður farið næsta fimmtudag. Viðskipti innlent 30.5.2022 07:12
Nepalskrar flugvélar saknað með 22 innanborðs Lítillar farþegaflugvélar á vegum nepalska flugfélagsins Tara Airlines er saknað en 22 eru um borð í vélinni, þar af þrír áhafnarmeðlimir. Flugvélin hvarf klukkan 9:55 að staðartíma í morgun. Erlent 29.5.2022 10:32
Vill dusta rykið af áformum um nýja flugstöð í Reykjavík Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir tímabært að dusta rykið af áformum um nýja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli. Nærri tvö ár eru síðan áform um að byggja nýja flugstöð voru kynnt en gert er ráð fyrir að hún verði um sextán hundruð fermetrar að stærð. Innlent 26.5.2022 23:09
Engin áform uppi um hlutafjáraukningu, segir forstjóri Play Þrátt fyrir miklar hækkanir á olíuverði eftir innrás Rússa í Úkraínu þá segir forstjóri Play að engar breytingar séu á fyrri rekstraráætlunum flugfélagsins fyrir þetta ár. Enn sé búist við því að einingakostnaður Play, að frátöldum eldsneytiskostnaði, muni minnka jafnt og þétt undir fjögur sent í sumar og að félagið verði farið að skila rekstrarhagnaði á seinni hluta ársins. Innherji 25.5.2022 14:01
Hlutabréfaverð Play komið undir útboðsgengi félagsins í fyrra Hlutabréfaverð Play, sem hefur lækkað um nærri 16 prósent frá áramótum, er í fyrsta sinn komið undir það gengi sem stærri fjárfestar keyptu á í almennu hlutafjárútboði og í kjölfarið skráningu flugfélagsins á markað fyrir nærri einu ári síðan. Innherji 25.5.2022 09:02
Bein útsending: Play skýrir 1,4 milljarða tap Tap flugfélagsins Play nam 11,2 milljónum bandaríkjadala, eða rúmlega 1,4 milljörðum íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022. Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins sem kynnt var í gær en Play mun gera nánar grein fyrir því á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 08:30. Viðskipti innlent 25.5.2022 08:00
Óðinn snýr aftur í blaðamennskuna Óðinn Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, hefur verið ráðinn blaðamaður hjá ferðamiðlinum Túrista. Óðinn kemur frá samskiptastofunni Aton.JL þar sem hann hefur starfað undanfarin ár sem ráðgjafi. Viðskipti innlent 25.5.2022 07:24