Viðskipti innlent

Hildur Björk stýrir markaðs­málum hjá Isavia

Atli Ísleifsson skrifar
Hildur Björk Hafsteinsdóttir.
Hildur Björk Hafsteinsdóttir. Isavia

Hildur Björk Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála og upplifunar hjá Isavia.

Í tilkynningu frá Isavia segir að hún hafi tekið til starfa í dag. 

„Hildur Björk var áður forstöðumaður markaðsmála hjá Símanum þar sem hún bar ábyrgð á því að móta og framfylgja markaðsstefnu félagsins. Hún leiddi m.a. vinnu við endurmörkun á SkjáEinum yfir í Sjónvarp Símans og að skapa samþætta og sterka ásýnd vörumerkisins. Þar á undan starfaði hún við markaðsmál hjá Icelandair. 

Hildur Björk hefur síðan 2017 setið í stjórn ÍMARK, samtaka íslensks markaðsfólks, og í vetur hefur hún kennt markaðsfræði í meistaranámi við Háskóla Íslands.

Hildur Björk er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×