Fréttir
225 226 227 228 229 230 231 232 233 … 334 ›
Grunnskólahátíð í Hafnarfirði Í dag er Grunnaskólahátíðin í Hafnarfirði haldin af nemendum á unglingastigi. Sýnt verður örleikrit og atriði úr söngleikjum í íþróttahúsi Víðistaðaskóla kl. 13 og 15. Í kvöld verður síðan dansleikur fyrir unglinga í grunnskóladeildum skólanna í íþróttahúsinu við Víðistaðaskóla. Innlent 15.2.2007 09:34
Skrípaleikur með marggefin loforð Í gær var tekin skóflustunga að 110 rúma hjúkrunarheimili í Reykjavík. Heimilið átti að vera komið í gagnið í byrjun þessa árs en búið er að lofa byggingu þess nokkrum sinnum, m.a. fyrir alþingiskosningarnar 2003. Þetta segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingmaður Samfylkingar. Hún deilir á loforðagleði ríkisstjórnarinnar í aðdraganda kosninga. Innlent 15.2.2007 10:08
Dow Jones í methæðum Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones fór í methæðir í gær eftir að Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagði verðbólgu vera vera að hjaðna. Fjárfestar, sem greina af orðum bankastjórans að litlar líkur séu á hækkun stýrivaxta í bráðu, urðu hæstánægðir enda hækkaði vísitalan um 0,69 prósentustig og endaði í 12.741,86 stigum. Viðskipti erlent 15.2.2007 09:40
Atkvæðagreiðsla hefst vegna stækkunar álvers Kosning um deiliskipulag sem gerir ráð fyrir stækkun álversins í Straumsvík fer fram 31. mars. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hins vegar í dag klukkan 15 að Strandgötu 6 í Hafnarfirði. Hægt verður að kjósa utan kjörfundar milli klukkan 9 og 16 alla virka daga. Innlent 15.2.2007 09:22
Bjórsala dróst saman í Evrópu Áfengisframleiðinn Diageo skilaði 1,3 milljarða punda hagnaði á síðasta ári. Það svarar til rúmlega 172 milljarða íslenskra króna. Þetta er sjö prósenta samdráttur á milli ára og betri niðurstaða en ráð hafði verið gert í neikvæðri afkomuviðvörun sem fyrirtækið sendi frá sér fyrir skömmu. Fyrirtæki framleiðir drykki á borð við Smirnoff-vodka, Johnnie Walker-viskí, Gordon's Gin og Guinnes-bjór. Viðskipti erlent 15.2.2007 09:12
Brotið gegn mannréttindum Jón Gerald Sullenberger, einn sakborninga í þeim þætti Baugsmálsins sem nú er til umfjöllunar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur, segir að brotið sé gegn grundvallarmannréttindum sínum með því að meina sér að sitja í réttarsal á meðan teknar eru skýrslur af öðrum sakborningum í málinu. Innlent 14.2.2007 21:03
Dánarvottorð fyrir fóstur Stjórnvöld í Tennessee ríki í Bandaríkjunum hafa lagt til að dánarvottorð verði gefið út fyrir fóstur sem hefur verið eytt. Það mundi á sama tíma búa til skrá yfir þær konur sem farið hafa í fóstureyðingu. Erlent 14.2.2007 23:27
al-Kaída hvetur til árása á olíustöðvar Hryðjuverkahópur sem tengdur er al-Kaída hefur ákallað hryðjuverkahópa um allan heim og beðið þá að ráðast á þær þjóðir sem selja Bandaríkjunum olíu. Erlent 14.2.2007 23:16
Lögfræðingar Libbys ljúka máli sínu Lögfræðingar Lewis „Scooters“ Libbys hafa lokið máli sínu eftir aðeins þriggja daga vörn. Libby er sakaður um að hafa logið að rannsóknarmönnum sem voru að reyna að komast að því hver lak upplýsingum um Valerie Plame, útsendara CIA. Erlent 14.2.2007 23:00
Málsókn gegn MySpace vísað frá Fyrirtækið News Corp. skýrði frá því í dag að fylkisréttur hefði vísað frá máli gegn MySpace vefsíðunni. Foreldrar tveggja stúlkna sem urðu fórnarlömb kynferðisafbrotamanna höfðuðu málið á þeim forsendum að MySpace hefði getað komið í veg fyrir atvikin. MySpace vefurinn á þó yfir höfði sér fleiri málsóknir af svipuðum toga. Erlent 14.2.2007 22:34
Skemmdarverkin í Hafnarfirði upplýst Þrír piltar, 15 til 17 ára, voru handteknir fyrr í dag en þeir voru grunaðir um fjölda skemmdarverka í og við Hafnarfjörð síðastliðna nótt. Ljóst er að tjónið hleypur á milljónum. Piltarnir viðurkenndu brot sín við yfirheyrslur í kvöld og telst málið nú upplýst að fullu. Þeir eru nú frjálsir ferða sinna. Innlent 14.2.2007 22:15
Arctic Monkeys sigursælir Arctic Monkeys voru sigurvegarar Brit verðlaunanna sem fram fóru í Lundúnum í kvöld. Þeir unnu bæði verðlaun fyrir að vera besta breska hljómsveitin og að hafa gefið út bestu bresku plötuna. Erlent 14.2.2007 22:01
Los Angeles verður þráðlaus 2009 Borgarstjórinn í Los Angeles hefur ákveðið að borgaryfirvöld muni bjóða upp á frítt, eða mjög ódýrt, þráðlaust net fyrir alla borgarbúa. Verkefnið á að vera tilbúið árið 2009 og verður eitt stærsta þráðlausa net Bandaríkjanna. Erlent 14.2.2007 21:51
11 íranskir hermenn láta lífið í sprengjuárás Ellefu íranskir hermenn létu lífið og 31 slösuðust í dag eftir að bíl með sprengiefnum var keyrt á rútu sem þeir voru í. Atvikið átti sér stað í borg í suðurhluta Íran. Erlent 14.2.2007 21:31
Framboðslistar VG í Suðvesturkjördæmi og Reykjavík-norður samþykktir Framboðslistar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir komandi alþingiskosningar voru samþykktir á félagsfundi fyrir stundu. Ögmundur Jónasson skipar efsta sætið á lista Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi en Katrín Jakobsdóttir leiðir í Reykjavíkurkjördæmi-norður. Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi, er þar í öðru sæti. Innlent 14.2.2007 21:07
Lögðu hald á fjögur tonn af kókaíni Spænska lögreglan skýrði frá því í dag að hún hefði lagt hald á að minnsta kosti fjögur tonn af kókaíni í snekkju á Gíbraltarsundi. Lögreglan í Portúgal náði einu og hálfu tonni af sama efni í tengdri aðgerð nálægt eyjunni Madeira stuttu seinna. Spænska lögreglan fór um borð í snekkjuna Challenger í gær og fluttu hana til hafnar í Almeria til þess að leita að eiturlyfjum. Erlent 14.2.2007 20:49
Námuverkamenn í Mexíkó minnast fallinna félaga Mexíkóskir námuverkamenn fara í verkfall 19. febrúar til þess að minnast þeirra 65 námuverkamanna sem létust í námusprengingu í fyrra. Talsmenn stéttarfélagsins skýrði ekki frá því hversu langt verkfallið yrði. Tilgangurinn með verkfallinu er að setja þrýsting á stjórnvöld og hvetja þau til þess að beita eigendur námunnar refsiaðgerðum. Stéttarfélagið er reyndar klofið í tvennt svo ekki er vitað hversu margir eiga eftir að taka þátt í verkfallinu. Erlent 14.2.2007 20:33
Leiftrandi risasmokkur Japanskir vísindamenn birtu í dag myndir af risasmokkfiski í sínum náttúrulegum heimkynnum, þær fyrstu í sögunni, að þeirra sögn. Á myndunum sést skepnan svamla fimlega um öngul vísindamannanna og af og til bregður fyrir daufu leiftri úr örmum hennar. Erlent 14.2.2007 19:01
Fólki fækkar á Austurlandi og Norðurlandi Hagstofa Íslands hefur nú sent frá sér nýtt Hagtíðindahefti í ritröðinni Mannfjöldi um Búferlaflutninga 1986-2006. Þar kemur fram að flutningsjöfnuður var neikvæður á öllum svæðum landsins fyrir utan höfuðborgarsvæðið, Suðurnes og Suðurland. Innlent 14.2.2007 19:57
Veitti saksóknara ítrekaðar ákúrur Dómari í Baugsmálinu veitti í dag Sigurði Tómasi Magnússyni, settum saksóknara, ítrekað ákúrur fyrir að spyrja ekki hnitmiðaðra spurninga í yfirheyrslum yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs. Þriðja daginn í röð sat forstjóri Baugs fyrir svörum, nú varðandi meint bókhaldsbrot tengd Baugi. Innlent 14.2.2007 19:44
Tíunda hvert íslenskt barn einmana Velsæld barna í iðnríkjunum er minnst í Bretlandi og Bandaríkjunum en best líður þeim á Norðurlöndunum. Heilbrigði barna er óvíða betri en hér á landi en fjölskyldu- og vinatengslum íslenskra barna er ábótavant. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Erlent 14.2.2007 18:57
Mokveiði úti fyrir Vestmannaeyjum Mikil loðna er nú rétt úti fyrir Vestamannaeyjum en afar óvenjulegt er að loðna veiðist þar á þessum árstíma en loðnan sækir á þessar slóðir um mánaðamót febrúar og mars. Innlent 14.2.2007 19:03
Berdymukhamedov sór embættiseiðinn Kurbanguly Berdymukhamedov sór í dag embættiseið sem forseti Mið-Asíulýðveldisins Túrkmenistans, við hátíðlega athöfn. Berdymukhamedov fær það erfiða hlutskipti að feta í fótspor Saparmurats Niyazov, sem þekktur var sem Turkmenbashi, eða faðir allra Túrkmena, en hann andaðist í desember síðastliðnum. Erlent 14.2.2007 18:28
Kjaramál kennara ekki mál ríkisstjórnar Stjórnarandstaðan reyndi árangurslaust á Alþingi í dag að knýja fram svör frá ríkisstjórn um hvað hún hygðist gera í kjaramálum grunnskólakennara. Forsætisráðherra svaraði einfaldlega að launamál kennara væru verkefni sveitarfélaganna. Innlent 14.2.2007 18:25
Ferjuhöfn á Bakka og ný Vestmannaeyjaferja á næstu 3 árum Ríkið hyggst verja fimm milljörðum króna á næstu þremur árum til ferjuhafnar í Bakkafjöru og til smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju, samkvæmt stefnumörkun samgönguáætlunar. Hafnargerðin á að hefjast á næsta ári og ljúka árið 2010. Guðjón Hjörleifsson alþingismaður spáir því að þessar framkvæmdir leiði til sameiningar Rangárþings og Eyja. Innlent 14.2.2007 18:09
Evrópuþingið fordæmir fangaflugið Evrópuþingið lagði í dag blessun sína yfir skýrslu þar sem ríkisstjórnir allmargra Evrópulanda eru fordæmdar fyrir að hafa veitt bandarísku leyniþjónustunni, CIA, heimildir til að taka þar grunaða hryðjuverkamenn höndum og flytja þá til staða þar sem þeir sættu illri meðferð. Erlent 14.2.2007 18:25
Vilja banna hjónabönd samkynhneigðra í Nígeríu Stjórnmálamenn í Nígeríu lögðu í dag fram frumvarp um að banna hjónabönd samkynhneigðra. Frumvarpið féll í góðan jarðveg þó svo fámennur hópur hefði talað fyrir réttindum samkynhneigðra. Samkynhneigð er þegar ólögleg í Nígeríu en frumvarpið myndi tryggja að þeir gætu ekki gift sig. Frumvarpið er tilkomið vegna lögleiðinga hjónabanda samkynhneigðra í vestrænum löndum undanfarið. Erlent 14.2.2007 17:57
Bush vongóður um friðsamlega lausn Íransdeilu George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði síðdegis að hann væri þeirrar skoðunnar að Bandaríkin og samherjar þeirra nálguðust friðsama lausn á deilu sinni við Íran. Deilurnar snúast um kjarnorkuáætlun Írana. Bush sagði jafnframt að hann efaði að veinar viðræður ríkjanna tveggja myndu bera árangur. Erlent 14.2.2007 17:39
Forneskjulegar og niðurlægjandi skoðanir Samtökin 78 hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna skoðana sem birst hafa í fjölmiðlum undanfarið um að hægt sé að breyta kynhneigð fólks. Samtökin segja skoðanirnar forneskjulegar og niðurlægjandi og þær lýsi vanþekkingu á lífi samkynhneigðra. Innlent 14.2.2007 16:56
Þrír handteknir í Hafnarfirði Þrír piltar á unglingsaldri voru handteknir í húsi í Hafnarfirði í dag vegna skemmdarverka sem unnin voru á tugum bifreiða í Hafnarfirði í nótt. Piltarnir eru 16-17 ára og hafa allir komið ítrekað við sögu lögreglu. Tilkynningar tóku að berast lögreglu í morgun um skemmdir á bílum. Aðallega er um að ræða bifreiðar og vinnuvélar af hesthúsasvæðinu í Almannadal og af iðnaðarsvæðinu austan við Álverið í Straumsvík. Innlent 14.2.2007 16:27