Fréttir
150 151 152 153 154 155 156 157 158 … 334 ›
Skýrsla um Grímseyjarferju reiðarslag Kolsvört skýrsla Ríkisendurskoðunar um kaup á Grímseyjarferju er reiðarslag, segir Kristján Möller samgönguráðherra. Hann rekur framúrkeyrsluna meðal annars mega rekja til skipaverkfræðings sem Vegagerðin fékk ráðgjöf hjá. Innlent 14.8.2007 12:02
Lækkun við opnun viðskipta Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,59 prósent við opnun viðskipta í Kauphöllinni í dag og stendur vísitalan í 8.051 stigi. Þetta er í takt við gengi á helstu fjármálamörkuðum í Evrópu í dag og í Bandaríkjunum í gær. Viðskipti innlent 14.8.2007 10:05
Hlutabréf lækka í Evrópu en hækka í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði lítillega við opnun viðskipta á fjármálamörkuðum í Evrópu í dag. Þetta kemur í kjölfar lækkunar á markaði í Bandaríkjunum í gær. Gengi Nikkei-vísitölunnar hækkaði hins vegar lítillega við lokun viðskipta í kauphöllinni í Japan. Flestar vísitölur hækkuðu í gær eftir skell á föstudag að bandaríska hlutabréfamarkaðnum undanskildum. Viðskipti erlent 14.8.2007 09:12
Vísitölur lækkuðu í Bandaríkjunum Vísitölur lækkuðu lítillega á bandarískum hlutabréfamörkuðum í dag þrátt fyrir hækkun við upphaf viðskipta. Vísitölur í Evrópu hækkuðu sömuleiðis, þar á meðal Úrvalsvísitalan í Kauphöll Íslands, sem hækkaði um 1,32 prósent og endaði í 8.099 stigum. Viðskipti erlent 13.8.2007 20:44
Kalashnikov riffillinn 60 ára Kalashnikov árásarriffillinn rússneski er sextugur á þessu ári. Hönnur þessa heimsfræga drápstóls var heiðraður fyrir hönnunina í heimabæ sínum í dag. Þar bölvaði hann eftirlíkingum og sagðist gleðajst þegar sköpunarverk sitt væri notað í göfugum tilgangi. Erlent 13.8.2007 19:19
Kínverjar nota genameðferð við krabbameini Læknar í Kína hafa notað genameðferð við krabbameini og segja árangurinn góðann. Vestræn ríki hafa hikað við að fara þá leið. Erlent 13.8.2007 19:14
2 gíslum sleppt, 18 enn í haldi Uppreisnarmenn Talíbana í Afganistan létu í dag tvær suður-kóreskar konur lausar úr gíslingu. 18 Suður-kóreumenn eru þó enn í haldi þeirra. Erlent 13.8.2007 19:10
Gæti færst að hluta undir borgaralega stjórn Forsætisráðherra segir vel koma til greina að einhver hluti af rekstri íslenska ratsjárstöðvarkerfisins færist undir borgaralega aðila. Íslendingar taka við rekstri þess á miðvikudaginn. Innlent 13.8.2007 19:09
Hagnaður Blackstone þrefaldast Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Blackstone Group skilaði hagnaði upp á 774 milljónir bandaríkjadala, rétt tæplega 51 milljarð íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins. Þetta er þrefalt meiri hagnaður en á sama tíma fyrir ári. Fasteignafjárfestingarnar skiluðu langmestum hagnaði. Viðskipti erlent 13.8.2007 14:17
Methagnaður hjá Sparisjóði Keflavíkura Sparisjóðurinn í Keflavík hagnaðist um rúma 4,6 milljarða krónar á fyrri helmingi ársins samanborið við rétt rúman milljarð króna á sama tíma í fyrra. Aukningin nemur 338,7 prósentum á milli ára en hagnaður sparisjóðsins hefur aldrei verið meiri á einum árshelmingi. Viðskipti innlent 13.8.2007 13:36
Úrvalsvísitalan yfir 8.000 stigum á ný Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,34 prósent og fór í 8.100 stig skömmu eftir opnun viðskipta í Kauphöll Íslands í dag. Vísitalan lækkaði um 3,47 prósent á föstudag og fór undir 8.000 stigin. Hún hafði ekki verið lægri síðan um miðjan maí í fyrra. Viðskipti innlent 13.8.2007 10:02
Kauphallarfulltrúar ræða málin Fulltrúar norrænu kauphallarsamstæðunnar OMX og kauphallarinnar í Dubai ætla að funda í dag og ræða um hugsanlegt tilboð hinna síðastnefndu í meirihluta bréfa í OMX. Fréttastofa Associated Press segir geta stefnt í yfirtökubaráttu á milli kauphallarinnar í Dubai og bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq um OMX. Viðskipti erlent 13.8.2007 09:45
Útlán Íbúðalánasjóðs 6,3 milljarðar í júlí Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 6,3 milljörðum króna í síðasta mánuði. Af þeim voru 600 milljónir króna vegna leiguíbúðalána en almenn útlán voru 5,7 milljarðar króna, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Meðallán var tæplega 9,4 milljónir króna. Viðskipti innlent 13.8.2007 09:29
Víkingainnrásin sögð á enda Breskt blað gerir því skóna í dag að svokallaðri Víkingainnrás á breskan fjármálamarkað sé lokið. Þrjár helstu leiðir íslenskra fyrirtækja til að fjármagna kaup á breskum félögum séu nú lokaðar eða illfærar vegna niðursveiflu á alþjóðamörkuðum síðustu daga. Forstjóri Baugs segir sókn félagsins á markaði í Bretlandi hvergi nærri lokið. Innlent 12.8.2007 18:27
Laun hækka og miðaverð líka Samfara síhækkandi launum leikmanna í ensku knattspyrnunni hefur miðaverð á leikina hækkað verulega. Breskir knattspyrnuáhugamenn kvarta sáran og félögin sjálf eru að skoða málið, því þau vilja ekki að fækkun áhorfenda komi niður á stemningunni á leiknum. Erlent 12.8.2007 18:33
Snemmbúnum kosningum spáð í Bretlandi Sterkar líkur eru taldar á því boðað verði til snemmbúinna þingkosninga í Bretlandi. Verkamannaflokkurinn, undir forystu Gordons Browns, mælist nú með 10% meira fylgi en Íhaldsflokkurinn. Erlent 12.8.2007 12:28
Nýtt eldflaugavarnarkerfi í Rússlandi Rússar ætla að byggja nýtt eldflaugavarnarkerfi sem svar við því bandaríska sem koma á fyrir í ríkjum Austur-Evrópu. Rússlandsforseti segir kerfið tilbúið eftir átta ár. Erlent 12.8.2007 12:16
Helmingur leikmanna á Englandi útlendingar Nær helmingur leikmanna sem spila í bresku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru útlendingar og nú þrýsta ráðherrar í Bretlandi á að heimamenn fái fleiri tækifæri í deildinni. Erlent 11.8.2007 19:22
Segjast hafa sleppt 2 gíslum Uppreisnarmenn Talíbana í Afganistan segjast hafa látið tvo Suður-Kóreumenn lausa úr gíslingu en halda enn átján eftir. Gíslarnir munu vera konur sem mannræningjarnir segja veikar. Erlent 11.8.2007 19:16
Kapphlaup um Norðurpólinn Kapphlaup er hafið um Norðurpólinn. Danir, Kanadamenn og Rússar hafa allir gripið til aðgerða til að styrkja tilkall sitt til heimskautasvæðisins, þar sem eru mikilvægar siglingaleiðir og gnótt af olíu og gasi. Erlent 11.8.2007 19:12
Bergþór er Heimsmeistari í 250m skeiði á Lótus Keppni í 250m skeiði var að ljúka á heimsleikum íslenska hestsins í Hollandi. Bergþór Eggertsson er Heimsmeistari á Lótus van Aldenghoor með tímann 21.55 en það er tíminn sem hann fékk í gær. Í öðru sæti er Sigursteinn Sumarliðason á Kolbein frá Þóroddsstöðum sem er þegar orðin heimsmeistari í gæðingaskeiði. Emelie Romland hafnaði í þriðja sæti á Mjölni frá Dalbæ með tímann 21.77. Sport 11.8.2007 12:46
Big Ben þegir í mánuð Einn þekktasti klukkuturn heims, sjálfur Big Ben í Lundúnum, þagnaði klukkan átta í morgun. Bjöllurnar hringja ekki í heilan mánuð vegna viðhalds. Klukkan sjálf mun þó aðeins stöðvast í nokkrar klukkustundir í dag. Erlent 11.8.2007 12:41
Ekki gin- og klaufaveiki á fjórða býlinu Gin- og klaufaveiki greindist ekki að fjórða nautgripabúinu í Surrey á Suður-Englandi líkt og óttast var í gær. Búið stendur fyrir utan varnarsvæði sem markað var í kringum bú þar sem veikin greindist fyrst fyrir rúmri viku. Síðan þá hefur hún greinst á tveimur býlum til viðbótar innan varnarsvæðisins. Erlent 11.8.2007 12:35
Mikilvægar kosningar í Síerra Leóne Íbúar í Afríkuríkinu Sierra Leóne kjósa sér þing og forseta í dag. 7 ár eru síðan blóðugri borgarastyrjöld lauk í landinu og óttast margir að aftur geti soðið upp úr. Því er talið mikilvægt að kosningarnar í dag fari vel fram og sátt náist um úrslit þeirra. Erlent 11.8.2007 12:21
Vongóðir um að gíslar fái frelsi Uppreisnarmenn Talíbana í Afganistan segjast vongóðir um að hægt verði að semja um lausn 21 Suður-Kóreumanns sem þeir hafa haldið í gíslingu í rúmar 3 vikur. Viðræður milli Talíbana og sendifulltrúa suðurkóreskra stjórnvalda hófust á skrifstofu Rauða hálfmánans í Ghansi í Mið-Afganistan í gær. Erlent 11.8.2007 11:59
Klippir snigla í tvennt Spánarsniglarnir alræmdu hafa gert Dönum lífið leitt í sumar. Þeir éta allt sem að kjafti kemur og hafa gert garyrkjumenn gráhærða. Skaðvaldur segir ein dönsk kona og klippir skriðdýrin í sundur. Sniglar þessir hafa numið land á Íslandi en þurrkarnir hér hafa verið þeim erfiðir í sumar. Erlent 10.8.2007 18:34
Verksviði SÞ í Írak breytt Verksvið Sameinuðu þjóðanna í Írak hefur verið víkkað að tillögu Breta og Bandaríkjamanna. Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna eru andvígir því að þurfa að snúa aftur til Íraks en þaðan voru þeir flestir kallaðir eftir mannskæða sprengjuárás 2003. Erlent 10.8.2007 18:25
Óttast að alheimskreppa skelli á Sérfræðingar á alþjóðlegum fjármálamarkaði óttast alheimskreppu ef niðursveifla á mörkuðum í gær og í dag heldur áfram. Forsætisráðherra segir enn sem komið er enga ástæðu fyrir ríkisstjórnina að grípa til aðgerða. Erlent 10.8.2007 18:07
Hagnaður Marels 7,4 milljónir evra Hagnaður matvælavinnsluvélafyrirtækisins Marel nam 7,4 milljónum evra, jafnvirði 670,8 milljónum íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins samanborið við 797 þúsund evrur, 71,9 milljónir króna, á sama tíma í fyrra. Þetta er nokkuð yfir væntingum. Viðskipti innlent 10.8.2007 16:53
Mikil lækkun Úrvalsvísitölunnar Úrvalsvísitalan lækkaði um 3,47 prósent í Kauphöllinni í dag og endaði hún í 7.993 stigum við lokun viðskipta. Viðlíka lækkun á vísitölunni hefur ekki sést síðan í byrjun apríl í fyrra en þá voru miklar hræringar á íslenskum hlutabréfamarkaði. Gengi bréfa í Evrópu hafa sömuleiðis lækkað mikið í dag. Lækkunin heldur áfram á bandarískum hlutabréfamarkaði. Viðskipti innlent 10.8.2007 16:03