Leif Magnús flytur til Íslands í sumar "Þetta eru mjög góð tíðindi. Það er þungu fargi af okkur öllum létt,“ segir Óskar P. Friðriksson, afi hins átta ára gamla Leifs Magnúsar Grétarssonar Thisland. Norskur dómstóll hefur samþykkt að veita Grétari, föður Leifs, fullt forræði yfir honum og er von á Leif til Íslands í byrjun júní þegar skólahaldi lýkur í bænum Mandal í Noregi. Innlent 13. maí 2011 07:00
Játar að hafa myrt mömmu Leifs Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður, sem grunaður er um að myrða mömmu hins íslenska Leifs Magnúsar Grétarssonar í bænum Mandal Noregi, hefur játað að bera ábyrgð á andláti hennar. Aftenposten segir að hann hafi játað við yfirheyrslur í morgun. Hann gengst hins vegar ekki við því að hafa framið morðið að yfirlögðu ráði. Innlent 6. apríl 2011 14:20
Gríðarlegt áfall fyrir drenginn "Það voru miklir fagnaðarfundir þegar við loksins hittum hann,“ segir Óskar P. Friðriksson úr Vestmannaeyjum sem hitti átta ára gamalt barnabarn sitt, Leif Magnús Grétarsson, í síðustu viku. Innlent 4. apríl 2011 09:30
Heim til Eyja eftir harmleik í Noregi „Þetta er hræðilegur harmleikur,“ segir Óskar P. Friðriksson, sem er á leið til Noregs á laugardag ásamt fjölskyldu sinni til þess að hitta barnabarn sitt, Leif Magnús Grétarsson, átta ára. Móðir Leifs Magnúsar, hin 28 ára gamla Heidi Thisland Jensen, var myrt aðfaranótt sunnudagsins í bænum Mandal í Noregi. Innlent 25. mars 2011 08:30