Valur

Valur

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Val frá Reykjavík.

Fréttamynd

Sætur sigur Sel­foss og Gunnar með full­kominn leik

Eftir að hafa lent neðst í Olís-deild kvenna í handbolta á síðasta tímabili en óvænt fengið tækifæri til að halda áfram í deildinni hafa Selfyssingar nú unnið tvo af fyrstu sex leikjum sínum. Valsmenn unnu öruggan sigur á Víkingum í Olís-deild karla í kvöld þar sem Gunnar Róbertsson hélt áfram að fara á kostum.

Handbolti
Fréttamynd

Arnór Snær: „Því­líka veislan“

„Þvílíka veislan. Alltaf gaman að spila Evrópuleiki hérna á Hlíðarenda þegar dúkurinn kemur, bongó og stúkan tryllist,“ sagði Arnór Snær Óskarsson, skytta Vals, kampakátur eftir kröftugan sigur á Tatabánya í þriðju umferð Evrópudeildarinnar. Valsmenn á toppi síns riðils með fjögur stig.

Handbolti
Fréttamynd

Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frá­bær Evrópusigur

Valsmenn eru á toppi síns riðils í Evrópudeildinni eftir sterkan heimasigur gegn ungverska liðinu Tátabanya. Lokatölur 38-34 á Hlíðarenda. Um var að ræða leik í þriðju umferð Evrópudeildarinnar, en Valsmenn hafa unnið báða heimaleiki sína.

Handbolti
Fréttamynd

Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skraut­legan sigur

FH tryggði áframhaldandi veru sína í Bestu deild karla með 5–3 sigri á Val á N1-vellinum á Hlíðarenda í dag. Gils Gíslason fór á kostum hjá gestunum, skoraði þrennu og lagði upp eitt mark. FH var þremur mörkum yfir í hálfleik og þótt Valsmenn sýndu meiri kraft eftir hlé náðu þeir aldrei að brúa bilið.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“

Þrátt fyrir að Jeremy Pargo hafi ákveðið að taka slaginn með Grindvíkingum áfram, eftir eina „ótrúlegustu frammistöðu sem sést hefur á íþróttavelli á Íslandi“, er Íslandsmeisturunum aðeins spáð 5. sæti í upphitunarþætti Bónus Körfuboltakvölds. Keflavík, Valur og Njarðvík verða einnig í neðri hluta úrslitakeppnissætanna samkvæmt sérfræðingunum.

Körfubolti
Fréttamynd

Slakur fyrri hálf­leikur varð Val að falli

Valur tapaði gegn RD LL Grosist Slovan í Evrópudeildinni í handbolta í dag. Slóvenska liðið reyndist of þungur biti fyrir Val og náði heimaliðið að byggja stórt forskot sem Valur náði ekki að minnka og endaði leikurinn með 34-29 tapi Vals.

Handbolti
Fréttamynd

Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val

Tveir leikir voru á dagskrá í lokaumferð neðri hluta Bestu deildar kvenna í gær þar sem þrjú lið börðust um að forðast tvö fallsæti. Þór/KA hélt sér uppi með sigri í Víkinni og felldi þar með Víking og Val.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Maður upp­sker eins og maður sáir“

Þrátt fyrir 2-1 sigur gegn Fram í lokaumferð Bestu deildar kvenna dugði niðurstaðan ekki til og Valur er fallið niður um deild. Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, segir fallið afar sárt.

Sport
Fréttamynd

Upp­gjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn

Valskonur eru fallnar úr efstu deild kvenna í fótbolta í fyrsta sinn í sögunni. Sigur liðsins gegn Fram í lokaumferð Bestu deildarinnar í kvöld dugði ekki til að bjarga sæti liðsins þar sem að Þór/KA vann á sama tíma Víking Reykjavík í Fossvoginum og sendi þar með bæði Val og Víking Reykjavík niður í Lengjudeildina.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals

Gunnar Róbertsson hélt áfram að fara á kostum í Olís deildinni í kvöld þegar lið hans Valur vann Þór Ak. á Hlíðarenda í miklum markaleik. Lokatölur 40-35 sigur Vals

Handbolti
Fréttamynd

Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla

Þrjú lið berjast um síðasta örugga sætið í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Valskonur gætu fallið í fyrsta sinn og þurfa að treysta á jafntefli í Víkinni á milli Víkings og Þórs/KA sem bæði eiga á hættu að falla.

Íslenski boltinn