

Subway-deild karla
Leikirnir

Enn einum KR-leiknum frestað en núna ekki út af þeim: Biðin verður 39 dagar
Körfuknattleikssamband Íslands hefur gert mikið af því að fresta leikjum vegna kórónuveirusmita og fleiri bættust í hópinn í dag.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Stjarnan 88-77 | Heimamenn fara upp úr fallsæti
ÍR vann góðan 11 sigur á Stjörnunni í Subway-deild karla í kvöld, lokatölur 88-77. Sigurinn lyftir heimamönnum upp úr fallsæti.

„Það er alltaf markmiðið að komast inn í úrslitakeppnina“
Jordan Semple, leikmaður ÍR, var besti leikmaður vallarins í 88-77 sigri ÍR á Stjörnunni í kvöld. Jordan var sérstaklega öflugur þegar mest á reyndi á lokamínútum leiksins.

Kristófer Acox: Valur er besta varnarlið landsins
Valur fór illa með Tindastól og vann tuttugu og tveggja stiga sigur 93-71. Kristófer Acox, leikmaður Vals, var ánægður með úrslit kvöldsins.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 93-71 | Þægilegt hjá heimamönnum
Valur vann góðan sigur á Tindastól í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Það var ekki að sjá að liðin væru hlið við hlið í töflunni fyrir leik en Valur vann leikinn með 22 stiga mun.

Ég skal svara þessari spurningu eftir helgi
Vestramenn fengu sannkallaða líflínu í fallbaráttunni í Subway deildinni í kvöld, þegar þeir lögðu ÍR í TM Hellinum, 78-79. Við spurðum Pétur Má Sigurðsson, þjálfara Vestra, hvernig tilfinningin væri svona rétt eftir leik.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍR - Vestri 77-78 | Háspenna lífshætta í Breiðholti
Vestri vann ÍR í sannkölluðum spennitrylli í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 78-77 gestunum í vil sem unnu einkar dýrmætan sigur í botnbaráttunni.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Ak. - Tindastóll 91-103 | Stólarnir kipptu Þórsurum niður á jörðina eftir fyrsta sigurinn
Þórsarar unnu loksins sinn fyrsta sigur á tímabilinu í seinustu umferð en þurftu að sætta sig við 12 stiga tap gegn Tindastól í norðurlandsslag í kvöld, 91-103.

Baldur: Allt Sauðárkrókssamfélagið þarf bara að halda haus
Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Tindastóls, var fyrst og fremst ánægður með að lið hans væri aftur farið að spila körfubolta eftir 25 daga frí vegna covid-smita innan liðsins eftir að lið hans hafði sigur á Þór Akureyri, 91-103, í Höllinni á Akureyri í kvöld. Leikurinn var jafn framan af en Stólarnir settu í fluggírinn í fjórða leikhluta og kláruðu leikinn fagmannlega.

„Þau mega segja það sem þau vilja“
Haukur Helgi Pálsson var ánægður með sigurinn á Íslandsmeisturunum í kvöld þrátt fyrir að hann væri með verki í ökklanum.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Njarðvík 92-109 | Bikarmeistararnir höfðu betur gegn Íslandsmeisturunum
Íslandsmeistarar Þórs lutu í lægra haldi gegn bikarmeisturum Njarðvíkur er liðin mættust í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 92-109, en liðin eru nú jöfn í öðru sæti deildarinnar.

Þórsarar tolleruðu þjálfarann eftir fyrsta sigurinn
Þórsarar frá Akureyri unnu sinn fyrsta sigur í Subway-deild karla í körfubolta í gær og fögnuðu honum vel og innilega.

Næstu tveimur leikjum KR frestað
Leik Breiðabliks og KR í Subway-deild karla í körfubolta hefur verið frestað vegna sóttkvíar og einangrunar leikmanna. Þá hefur fjórum öðrum leikjum verið frestað af sömu ástæðu.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Vestri 80-71 | Keflvíkingar aftur á sigurbraut
Topplið Keflavíkur vann góðan níu stiga sigur er liðið tók á móti Vestra í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 80-71.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Ak. - Grindavík 82-80 | Fyrsti sigur Þórsara kom í fyrsta leik ársins
Þór Akureyri vann sinn fyrsta sigur í Subway-deild karla í körfubolta þegar þeir fengu Grindavík í heimsókn í Höllina á Akureyri í kvöld. Þórsarar fyrir leikinn í neðsta sæti án stiga en Grindvíkingar í þriðja sæti með 14 stig, fjórum stigum frá toppliði Keflavíkur.

Bjarki: Mínir leikmenn að eflast með hverjum leiknum
Bjarki Ármann Oddsson, þjálfari Þórs Akureyri, var virkilega ánægður með fyrsta sigur síns liðs í Subway deildinni á þessu tímabili en liðið hafði tapað öllum 10 leikjum sínum hingað til.

Þriðji Þórsarinn sem þarf að fara heim vegna meiðsla
Meiðslaófarir karlaliðs Þórs Ak. í körfubolta virðast engan enda ætla að taka. Svisslendingurinn Jérémy Landenbergue er farinn frá liðinu eftir að hafa slitið krossband í hné í leik gegn KR 16. desember.

Bikarmeistarar ekki krýndir í næstu viku vegna smitbylgjunnar
Stjórn KKÍ hefur ákveðið að fresta undanúrslitum og úrslitaleikjum VÍS-bikarsins í körfubolta um rúma tvo mánuði vegna kórónuveirusmitbylgjunnar sem gengur yfir landið.

Njarðvíkingar hafa ekki unnið utan Reykjanesbæjar í tæpa þrjá mánuði
Fjögurra leikja sigurganga Njarðvíkinga í Subway-deildinni endaði með skelli í Garðabænum í gærkvöldi.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Njarðvík 97-77 | Stjörnumenn slökktu í Njarðvíkingum
Njarðvíkingar höfðu verið á góðu skriði í Subway-deild karla fyrir áramót, en fyrsti leikur liðsins á nýja árinu endaði með tuttugu stiga tapi gegn Stjörnunni, 97-77.

„Mér finnst alltaf jafn gaman að fá rokk stigin“
Hilmar Smári Henningsson, leikmaður Stjörnunnar, var kampakátur með 20 stiga sigur á Njarðvík í kvöld, 97-77.

Hafa unnið fyrsta leik ársins sex ár í röð
Eini leikur kvöldsins í Subway-deild karla í körfubolta er viðureign Stjörnunnar og Njarðvíkur í Garðabænum en þetta er frestaður leikur úr níundu umferðinni.

Smit í leikmannahópum Tindastóls, ÍR og Njarðvíkur
Tveimur leikjum í Subway deild karla í körfubolta og einum leik í Subway deild kvenna hefur nú verið frestað í viðbót við þá leiki sem var frestað milli jóla og nýárs.

Frank Booker í Breiðablik
Fran Aron Booker, fyrrum leikmaður Vals, er genginn til liðs við Breiðablik í Subwaydeild karla.

Lithái til liðs við Keflavík
Keflvíkingar eru að þétta raðirnar fyrir seinni hluta tímabilsins í Subway deildinni í körfubolta.

„Lang lélegasti leikurinn okkar í vetur“
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, var ekki par sáttur við frammistöðu sinna manna er Keflvíkingar töpuðu gegn nágrönnum sínum í Njarðvík, 74-78.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 74-78 | Njarðvík hafði betur gegn erkifjendunum
Keflavík og Njarðvík mættust í stórleik umferðarinnar í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld þar sem að gestirnir höfðu betur 74-78.

Tindastóll fær liðsstyrk frá Króatíu | Massamba heldur heim á leið
Tindastóll hefur samið við króatíska leikmanninn Zoran Vrkic um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili í Subway-deild karla í körfubolta.

„Áhorfendur geta búist við hörku leik eins og alltaf“
Þröstur Leó Jóhannsson, leikmaður Keflavíkur, var til tals í nýjustu útgáfu af hlaðvarpsþættinum Undir Körfunni. Þröstur útskýrir þar, meðal annars, ríginn á milli Keflavíkur og Njarðvíkur í körfuboltanum en liðin tvö munu leiða saman hesta sína í stórleik kvöldsins í Subway-deildinni.

Umfjöllun: Stjarnan - Breiðablik 117-113 | Ótrúlegur endurkomusigur Stjörnunnar
Það fór fram stórskemmtilegur leikur í Garðabænum í kvöld. Stjarnan og Breiðablik voru fyrir leikinn jöfn að stigum og því ljóst að sigurvegari leiksins myndi klára árið ofar í töflunni.