Haminn rekinn vegna samskiptaörðugleika og virðingarleysis Haminn Quaintance, einn besti leikmaður Dominos-deildar karla, er á heimleið en Úrvalsdeildarlið Skallagríms í körfuknattleik hefur tekið þá ákvörðun að segja upp samningi við leikmanninn og var hann ekki með liðinu í síðasta leik liðsins í Dominos-deildinni. Körfubolti 4. febrúar 2013 21:59
McCallum með 44 stig gegn Njarðvík Shannon McCallum heldur áfram að gera það gott með KR en hún hefur nú skorað alls 109 stig í sínum fyrstu þremur leikjum með liðinu. Körfubolti 3. febrúar 2013 21:29
Jón Arnar hættur með ÍR Jón Arnar Ingvarsson er hættur sem þjálfari liðs ÍR í Domino's-deild karla. Liðið situr á botni deildarinnar eftir fjórtán umferðir. Körfubolti 2. febrúar 2013 11:43
Frábær fjórði leikhluti hjá Keflvíkingum Keflvíkingar eru komnir upp í fimmta sætið í Dominosdeild karla í körfubolta eftir 15 stiga sigur á KR, 100-85, í DHL-höllinni í kvöld en liðin höfðu þar með sætaskipti í deildinni. Keflvíkingar unnu síðustu fjórar mínútur leiksins með fimmtán stigum. Körfubolti 1. febrúar 2013 21:17
Þrír sigrar í röð hjá Ísfirðingum KFÍ vann sinn þriðja leik í röð í Dominos-deild karla í körfubolta þegar Ísfiðringar fögnuðu sjö stiga heimasigri á Tindastól, 92-85 í fallbaráttuslag í kvöld. KFÍ komst alla leið upp í 9. sæti með þessum sigri. Körfubolti 1. febrúar 2013 21:09
Arnar Freyr og Ingibjörg í Keflavík Leikstjórnendurnir og parið Arnar Freyr Jónsson og Ingibjörg Jakobsdóttir hafa gengið til liðs við Keflavík eftir hálfs árs dvöl í Danmörku. Körfubolti 31. janúar 2013 23:33
Amoroso aftur í Snæfell Asim McQueen lék í kvöld sinn síðasta leik fyrir karlalið Snæfells í körfubolta er liðið lagði Stjörnuna í Garðabæ. Ryan Amoroso mun fylla skarð McQueen undir körfunni. Körfubolti 31. janúar 2013 23:31
Dramatískar sigurkörfur og sjötta tap ÍR í röð | Úrslit kvöldsins í körfunni ÍR-ingar eru áfram á botni Dominos-deildar karla í körfubolta eftir 17 stiga tap á heimavelli á móti Njarðvík í kvöld, 81-98. ÍR-ingar hafa nú tapað sex leikjum í röð og falldraugurinn er farinn að sjást í Hertz-hellinum í Seljaskóla. Körfubolti 31. janúar 2013 21:46
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Snæfell 88-89 Snæfell vann magnaðan sigur á Stjörnunni í Dominos-deild karla í körfubolta en leiknum lauk með sigir gestanna 89-88. Sigurkarfan Snæfell kom sex sekúndum fyrir leikslok og var það Jay Threatt sem gerði hana. Körfubolti 31. janúar 2013 18:45
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Þór Þorlákshöfn 89 - 87 Grindvíkingar unnu Þórsara 89-87 í háspennuleik í Röstinni í kvöld í Domnios-deild karla. Liðin skiptust á forystunni allt fram á síðustu sekúndur leiksins. Körfubolti 31. janúar 2013 14:53
Stórt kvöld í körfunni Það verða tveir stórleikir í Dominosdeild karla í körfubolta í kvöld þegar fjögur efstu lið deildarinnar mætast innbyrðis í 14. umferðinni. Það hefur lítið skilið á milli efstu liðanna í vetur og á dögunum voru meðal annars öll fjögur efstu liðin með jafnmörg stig. Það er því von á jöfnum leikjum í kvöld. Körfubolti 31. janúar 2013 06:30
Stjörnumenn í Höllina eftir stórsigur í Hólminum Það verða Grindavík og Stjarnan sem mætast í bikarúrslitaleiknum í körfunni í ár en þetta kom í ljós þegar Stjörnumenn burstuðu Snæfell 92-71, í undanúrslitaleik liðanna í Poweradebikar karla í Stykkishólmi í kvöld. Grindavík hafði unnið Keflavík 84-83 í hinum undanúrslitaleiknum sem fram fór í Toyota-höllinni í Keflavík fyrr í dag. Körfubolti 27. janúar 2013 21:07
Broussard kom Grindvíkingum í Höllina Aaron Broussard tryggði Grindavík sæti í bikarúrslitaleiknum í Höllinni þegar hann nýtti annað af tveimur vítum sínum 5,46 sekúndum fyrir leikslok í undanúrslitaleik á móti Keflavík í Toyota-höllinni í Keflavík í dag en Grindavík vann leikinn 84-83. Keflvíkingurinn Billy Baptist átti lokaskot leiksins en það geigaði. Körfubolti 27. janúar 2013 16:50
Við Pálína tókum til í hausnum á mér Magnús Þór Gunnarsson hefur sýnt á sér tvær hliðar í vetur. Hann var "ömurlegur“ eins og hann segir sjálfur í október og nóvember en tímabilið hans byrjaði að eigin sögn í fyrsta leik desembermánaðar. Körfubolti 24. janúar 2013 06:00
Tilþrifin úr Stjörnuleiknum um helgina Hinn árlegi Stjörnuleikur íslenska körfuboltans fór fram um helgina og höfðu margir gaman af enda einbeittu leikmenn sér að því að skemmta sér og áhorfendum. SportTV.is sýndi beint frá leiknum og strákarnir þar hafa nú tekið saman samantekt frá deginum. Körfubolti 21. janúar 2013 17:15
Enginn tvíhöfði í Hólminum Körfuknattleikssambandið hefur gefið út tímasetningar á undanúrslitaleikjum í Powerade-bikarnum sem fara fram um næstu helgi. Snæfellingar fengu heimaleiki hjá bæði körlum og konum en leikirnir fara samt fram sitthvorn daginn. Körfubolti 21. janúar 2013 15:45
Magnús Þór vann þriggja stiga keppnina eftir bráðabana Keflvíkingurinn Magnús Þór Gunnarsson vann sigur í þriggja stiga keppninni á Stjörnuleik KKÍ sem fram fór í Ásgarði í dag. Körfubolti 19. janúar 2013 16:20
Þór áfram efst, KR tapaði á Króknum - úrslit kvöldsins Fimm leikir fóru fram í þrettándu umferð Dominos-deildar karla í körfubolta í kvöld. Fjögur lið voru efst og jöfn fyrir leiki kvöldsins en aðeins Þór og Grindavík unnu sína leiki. Körfubolti 17. janúar 2013 21:21
Grindvíkingar sóttu tvö stig í Hólminn Frábær fyrsti og fjórði leikhluti skilaði Grindvíkingum sex stiga sigri á Snæfelli, 90-84, í Stykkishólmi í 13. umferð Dominos-deild karla í kvöld en liðin voru jöfn á toppnum fyrir leikinn. Grindavík hefur unnið báða leikina á móti Snæfelli í vetur sem gæti reynst liðinu afar dýrmætt í æsispennandi toppbaráttu deildarinnar. Körfubolti 17. janúar 2013 21:04
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 107 - 103 Keflvíkingar unnu í kvöld sigur í háspennuleik gegn Stjörnunni í Dominos deild karla. Leikurinn var jafn og spennandi allt fram að lokasekúndum leiksins þegar lokatilraun gestanna geigaði og tryggði Keflvíkingum sigurinn. Körfubolti 17. janúar 2013 18:45
Sjóðandi heitur fyrir utan 3ja stiga línuna Jón Ólafur Jónsson, leikmaður Snæfells, var í gær valinn besti leikmaðurinn í fyrri umferð Dominos-deildar karla en Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, var við sama tilefni kosinn besti þjálfarinn. Körfubolti 17. janúar 2013 06:00
Jón Ólafur valinn bestur í fyrri umferðinni Jón Ólafur Jónsson, leikmaður Snæfells, var í dag valinn besti leikmaðurinn í fyrri umferð Dominosdeildar karla en Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, var við sama tilefni kosinn besti þjálfarinn. Körfubolti 16. janúar 2013 14:59
Búið að draga í undanúrslitum Powerade-bikarsins Nú í hádeginu var dregið í undanúrslit í bikarkeppni KKÍ, Powerade-bikarnum. Snæfell fékk heimaleik bæði í karla- og kvennaflokki. Körfubolti 15. janúar 2013 12:37
Fjögur félög efst og jöfn í körfunni - úrslit kvöldsins Þór og Snæfell unnu bæði leiki sína í tólftu umferð Dominosdeildar karla í körfubolta í kvöld sem þýðir að fjögur félög eru nú efst og jöfn í deildinni með 18 stig hvert félag. Þórsarar komust í toppsætið á innbyrðisviðureignum eftir eins stigs sigur á Njarðvík, 84-83, í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Körfubolti 14. janúar 2013 21:09
Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍR - Snæfell 93 -102 | Eftir framlengingu Snæfell sigraði ÍR 102-93 í framlengdum leik í Herz hellinum í Breiðholti í kvöld. ÍR vann upp níu stiga forskot í fjórða leikhluta og tryggði sér framlengingu en Snæfell var mun sterkari í framlengingunni og hafði sigur. Körfubolti 14. janúar 2013 18:45
KR vann með nýjum Kana | Úrslit kvöldsins Þrír leikir fóru fram í Domino's-deild karla í kvöld. KR hafði betur gegn Fjölni, 98-87, þar sem Darshawn McClellan lék sinn fyrsta leik með KR-ingum. Körfubolti 13. janúar 2013 21:16
Fínn sigur hjá KFÍ í Grafarvogi KFÍ komst upp að hlið ÍR í tíunda sæti Dominos-deildar karla í kvöld er liðið lagði Fjölni í Grafarvogi. Körfubolti 11. janúar 2013 21:04
Keflavík skellti Grindavík | Skallarnir unnu fyrir norðan Grindavík tapaði sínum fyrsta leik á heimavelli í vetur er nágrannar þeirra frá Keflavík komu í heimsókn í Röstina. Körfubolti 10. janúar 2013 21:12
Hnéð fór afar illa hjá Jóni Jón Sverrisson, körfuboltamaður hjá Fjölni, verður ekkert meira með liðinu á þessu tímabili og missir örugglega af stórum hluta af því næsta eftir að í ljós kom að hnémeiðsli hans eru mjög alvarleg. Jón meiddist mjög illa á hné í leik á móti Stjörnunni í Dominosdeildinni á dögunum. Körfubolti 9. janúar 2013 15:54
Nonni Mæju fékk flest atkvæði í stjörnuliðið Jón Ólafur Jónsson, Snæfelli, fékk flest atkvæði íslenskra leikmanna fyrir stjörnuleikinn í Domino's-deild karla. Byrjunarliðin voru tilkynnt í dag. Körfubolti 8. janúar 2013 14:14