Höfum við efni á Hjartagosum? Þegar þessi grein er skrifuð er útvarpsþátturinn Hjartagosar á Rás 2 í umsjón tveggja góðra og reyndra útvarpsmanna. Þeir eru sniðugir, skemmtilegir, fá til sín gesti og spila fína tónlist. Þessir útvarpsmenn eru það færir að ég myndi treysta þeim báðum til að sjá um þáttinn einn síns liðs. Skoðun 11. apríl 2024 11:24
Bjarkey í bobba vegna umdeildra laga Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Breki Karlsson framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda rituðu harðorða grein þar sem þeir fordæma fortakslaust lög sem þeir vilja kalla ólög. Innlent 11. apríl 2024 10:52
Ekki sjálfgefið að framhald yrði á stjórnarsamstarfinu „Ég veit bara það að formaður Sjálfstæðisflokksins var í einum viðræðum, sem var við forystumenn þessara flokka, Framsóknar og Vinstri grænna. Hvað aðrir þingmenn eða aðrir hafa verið að ræða sín á milli um stöðuna bara þekki ég ekki til.“ Innlent 11. apríl 2024 10:52
Trúir þessu einhver? Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar er svolítið eins og hljómsveitin sem enginn klappaði upp en mætir samt sem áður aftur á sviðið og tekur enn eitt lagið. En nú undir formerkjunum að þetta sé ríkisstjórn „hins breiða samhengis“ eins og það var orðað í vikunni. Skoðun 11. apríl 2024 10:30
Bein útsending: Ásgeir svarar fyrir vextina Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, verða gestir efnahags- og viðskiptanefndar á opnum nefndarfundi sem hefst klukkan 8:30. Viðskipti innlent 11. apríl 2024 08:00
Þrjátíu þúsund skrifað undir gegn Bjarna og bætist í hópinn Alls höfðu 27.329 einstaklingar sett nafn sitt í morgunsárið á undirskriftalista á island.is sem ber yfirskriftina „Bjarni Benediktsson hefur ekki minn stuðning sem forsætisráðherra“. Stöðugt fjölgar í söfnuninni sem rauf þrjátíu þúsund manna múrinn um ellefuleytið í morgun. Innlent 11. apríl 2024 06:37
Júlíus Viggó endurkjörinn formaður Heimdallar Júlíus Viggó Ólafsson var í kvöld endurkjörinn formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík á aðalfundi félagsins í Valhöll. Hvorki bárust mótframboð í embætti formanns eða stjórnar og töldust því allir frambjóðendur sjálfkjörnir. Innlent 10. apríl 2024 22:27
Handtekin í gær og les Bjarna pistilinn í dag Listakonan Margrét Rut Eddudóttir var ein þeirra sem var handtekin á mótmælum við Bessastaði í gær. Hún vill meina að það sé ofbeldi að Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, fái að valsa um valdastöður í íslensku samfélagi. Innlent 10. apríl 2024 22:10
Ofbeldismenning í ríkisstjórninni Ég er ekki reið en staðráðin. Í gær var ég handtekin af lögreglunni á Bessastöðum af því í dag, eins og í gær, er ég ekki lengur meðvirk með gerendum þessarar þjóðar. Þegar ég sá fréttir af nýrri stöðu Bjarna Benediktssonar upplifði ég ofbeldi. Það er ofbeldi sem fær að viðgangast gagnvart þjóðinni að þessi maður fái að halda ótrautt áfram að valsa um valdastöður þessarar þjóðar óáreittur. Skoðun 10. apríl 2024 22:00
Segir ríkisstjórn Bjarna „nýtt hræðslubandalag“ Stjórnarandstæðingar eru ekki hrifnir af endurnýjuðu stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist sjá litlar breytingar með endursmíðaðri stjórn sem hann kallar „hræðslubandalag“. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi Vinstri grænn, segir þá sem kusu VG hafa keypt köttinn í sekknum. Innlent 10. apríl 2024 20:01
Afmælishátíð í skugga hamfara Alltof margar fjölskyldur í Grindavík eru enn á hrakhólum. Þetta var meðal þess sem kom fram á afmælishátíð bæjarins sem var haldin í skugga hamfara. Forseti Íslands hvetur fólk til að gefast ekki upp og sýna áfram kjark. Innlent 10. apríl 2024 19:01
Skömmuð af matvælaráðuneytinu degi áður en hún tók við Degi áður en Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir tók við sem matvælaráðherra fékk atvinnuveganefnd Alþingis, nefnd sem hún sat í þar til hún tók við ráðuneytinu, bréf frá matvælaráðuneytinu þar sem breytingar og vinnubrögð nefndarinnar voru gagnrýnd. Innlent 10. apríl 2024 16:44
Vinnuskólabörnin fá loksins launahækkun Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að hækka laun nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur sumarið 2024. Vinnuskólabörnin fá því sína fyrstu launahækkun í tvö ár. Innlent 10. apríl 2024 16:16
Fyrrverandi þingmaður ráðinn yfirlæknir Ólafur Þór Gunnarsson hefur verið ráðinn yfirlæknir endurhæfingarhluta öldrunarlækninga á Landspítala frá 1. maí 2024. Hann sat á þingi fyrir Vinstri græn á árunum 2013 og 2017 til 2021. Innlent 10. apríl 2024 15:51
„Þetta er sama fólkið með sömu stefnu í nýjum stólum“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar var fyrst upp í ræðupúlt eftir að Bjarni Benediktsson nýr forsætisráðherra flutti ávarp sitt á þingi og hún gaf ekki mikið fyrir afrekaskrá ríkisstjórnarinnar. Innlent 10. apríl 2024 15:40
Magga Stína hrópaði að Bjarna af þingpöllunum Margréti Kristínu Blöndal, Möggu Stínu, var vísað af pöllum Alþingis eftir að hún hrópaði að forsætisráðherra Bjarna Benediktssyni á meðan hann flutti yfirlýsingu sína á þingi í dag. Innlent 10. apríl 2024 15:18
Viss um að Svandís yfirgefi Bjarna eins og Katrín Þingkona Viðreisnar er viss um að ríkisstjórnin lifi ekki af kjörtímabilið. Þingkona Pírata segist þreytt á því að hugsa um það og segist hætt að hugsa um það. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur fullvíst að ríkisstjórnin þrauki fram að kosningum næsta haust. Þetta kom fram í Pallborði á Vísi í dag. Innlent 10. apríl 2024 14:50
Lítið opið „bónbréf“ til forseta Alþingis Kæri Birgir. Það er ekki einfalt að halda uppi skipulagi í mannlegu samfélagi, enda flóran fjölbreytt. Meðan sumir eru eigingjarnir hugsa aðrir um almannahag; meðan sumir eru góðviljaðir ræður hatur för hjá öðrum. Skoðun 10. apríl 2024 14:31
Bein útsending: Yfirlýsing forsætisráðherra og umræður Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mun fara með yfirlýsingu fyrir Alþingi klukkan 15. Þetta er fyrsti þingfundur eftir páskafrí og eftir að Katrín Jakobsdóttir sagði af sér sem forsætisráðherra og tilkynnti framboð til embættis forseta. Innlent 10. apríl 2024 14:27
Ætla að vera aðeins „hógværari“ en Ölfus við gerð bæjarskiltis Til stendur að reisa nokkur skilti við bæjarmörk Hveragerðisbæjar á þessu ári. Í minnisblaði menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar bæjarins er lagt til að vera ögn „hógværari“ en nágrannarnir í Ölfusi við gerð skiltanna. Innlent 10. apríl 2024 13:24
Beitir nýr matvælaráðherra sér fyrir afnámi ólaganna? VR, Neytendasamtökin og Félag atvinnurekenda sendu í síðustu viku erindi til matvælaráðherra (sem þá var Katrín Jakobsdóttir) og fóru fram á að ráðherra beitti sér fyrir því að lögin um víðtæka undanþágu kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum yrðu tekin til rækilegrar skoðunar, enda væru þau skaðleg neytendum, launþegum og verslun í landinu. Skoðun 10. apríl 2024 13:00
Tugir bætast við andstæðingahóp Bjarna á hverri mínútu Rúmlega ellefu þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem fólk segir Bjarni Benediktsson ekki hafa þeirra stuðning sem forsætisráðherra. Listinn hefur verið í loftinu í tæpan sólarhring og hrannast tugir undirskrifta inn á hverri mínútu. Innlent 10. apríl 2024 12:09
„Fyrst og fremst bara ljúft“ Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar er tekin til starfa og ráðherrar skipust á lyklum í fimm ráðuneytum í morgun. Katrín Jakobsdóttir gekk frá skrifstofunni í forsætisráðuneytinu í síðasta sinn og sagði það nokkuð ljúfa tilfinningu að kveðja stjórnmálin. Innlent 10. apríl 2024 12:05
„Ég ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar“ Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, nýr matvælaráðherra, segist ætla að halda áfram þeim verkefnum sem Svandís Svavarsdóttir hefur sinnt í ráðuneytinu. Hún segist spennt takast á við ný verkefni sem ráðherra en að hún ætli að nýta daginn í að kynna sér málin í ráðuneytinu. Innlent 10. apríl 2024 11:32
Bjarni bauð Þórdísi velkomna heim „Velkomin heim,“ sagði Bjarna Benediktsson þegar hann afhenti Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur aðgangskortið að utanríkisráðuneytinu í morgun. Hann sagðist vita vel að hún tæki við verkefninu eins og fiskur í vatni. Hann hefði tekist á við stór verkefni á þeim sex mánuðum sem hann sinnti embætti en hefði einnig hugsað til lengri tíma. Innlent 10. apríl 2024 10:53
Yfirgefur innviðaráðuneytið með trega en treystir Svandísi vel Sigurður Ingi hefur nú afhent Svandísi Svavarsdóttur lyklana að innviðaráðuneytinu. Svandís hefur sinnt embætti matvælaráðherra síðustu misseri en Bjarkey Olsen tekur við af henni síðar í dag. Innlent 10. apríl 2024 10:18
Sigurður Ingi tekinn við af Þórdísi Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir afhenti Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins, lyklana að fjármálaráðuneytinu í morgun. Sigurður Ingi kemur úr innviðaráðuneytinu og Þórdís fer nú aftur í utanríkisráðuneytið. Innlent 10. apríl 2024 09:54
Katrín afhenti Bjarna lyklana að forsætisráðuneytinu Bjarni Benediktsson hefur nú tekið við lyklum að forsætisráðuneytinu. Katrín Jakobsdóttir afhendi honum lyklana í morgun. Katrín segist spennt fyrir nýjum verkefnum og Bjarni líka. Innlent 10. apríl 2024 08:59
Pallborðið: Fortíðardraugar og framtíðaráskoranir nýrrar ríkisstjórnar Ráðherrar, gamlir og nýir, taka við lyklavöldum í fjórum ráðuneytum í dag, eftir myndun nýrrar ríkistjórnar í kjölfar samningaviðræðna síðustu daga. Innlent 10. apríl 2024 08:57
„Ef ekki er markaður fyrir kjötið er efnahagslegur ávinningur enginn“ Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, nýr matvælaráðherra, vildi ekki tjá sig um það í gær hvort hún myndi heimila eða banna hvalveiðar. Hún var þó afdráttarlaus um afstöðu sína á þingfundi í febrúar árið 2019. Innlent 10. apríl 2024 08:28