Samstaða eða frjálshyggja? Árið 2021 hefur verið viðburðaríkt í þjóðlífinu. Faraldurinn hefur markað djúp spor í líf okkar allra og hversdagslegur veruleiki hefur tekið stakkaskiptum með stöðugum hraðprófum, sóttkví, einangrun og röskun á daglegu lífi. Sterk samstaða þjóðarinnar um nauðsyn sóttvarnaraðgerða hefur verið aðalsmerki okkar í gegnum faraldurinn. Við þurfum að hafa úthald til að klára þá vakt þó vissulega hafi borið á auknu viðnámi tiltekinna einstaklinga og hópa á undanförnum mánuðum, sem er að sumu leyti skiljanlegt þegar við höfum staðið í þessari orrahríð í næstum tvö ár. En það segir líka sína sögu að smittölur hafa margfaldast og náð svimandi hæðum einmitt þegar brestir hafa komið í samstöðuna. Skoðun 31. desember 2021 08:01
2021: Slæmt ár fyrir frjálslyndi og frelsi Árið 2021 markaðist af auknu valdi kerfisins, skertum áhrifum lýðræðis og framsókn hinnar nýju rétttrúnaðarreglu. Á árinu 2021 birtust ótvíræð merki um að mistekist hefði að læra af sögunni og því væri verið að endurtaka fyrri mistök og fórna um leið árangri liðinna ára. Umræðan 30. desember 2021 09:31
Hugleiðingar í lok árs 2021 Í stjórnarsáttmála Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs má heyra hjartslátt samfélagsins. Í honum ríkir bjartsýni. Umræðan 27. desember 2021 10:02
Litaspjald lífsins Þegar litbrigðin með allri sinni fegurð færast hægt og rólega yfir Ölfusið á notalegri morgunstund og norðurljósin stíga villtan dans að kvöldi, er eins og náttúran minni á fegurðina og alla liti lífsins. Sá margbreytileiki er ekki sjálfgefinn. Umræðan 26. desember 2021 13:29
Covid-kynslóðin Vegna Covid hefur um einn og hálfur milljarður barna í nærri 200 löndum verið sendur heim úr skóla í skemmri eða lengri tíma. Nýjar alþjóðlegar rannsóknir sýna að fjarvera barna frá skóla hefur haft skelfilegar afleiðingar. Umræðan 23. desember 2021 13:34
Heilbrigðisvandamálið fíknisjúkdómar Um þessar mundir er fjárlagafrumvarp ársins 2022 til umræðu á Alþingi. Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, SÁÁ, sendu inn umsögn um frumvarpið þar sem þau lýstu yfir miklum áhyggjum af framlögum til sín. Skoðun 22. desember 2021 07:31
Íslandsbanki: Eftir hverju er að bíða? Það var reglulega ánægjulegt að fylgjast með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra taka við verðlaunum fyrir viðskipti ársins að mati dómnefndar Innherja, nýs viðskiptamiðils Vísis. Skoðun 21. desember 2021 13:00
Stuðningur við námsmenn er stuðningur við framtíðina Árum saman hefur komið fram af hálfu Stúdentaráðs að grunnframfærsla námslána sé of lág til að námsmenn geti framfleytt sér í námi. Þess vegna vinna stúdentar á Íslandi margir hverjir töluvert mikið með námi. Skoðun 21. desember 2021 07:30
105 ár Framsóknar fyrir íslenskt samfélag Kæri lesandi.Saga Framsóknar í 105 ár er samofin framfarasögu íslensku þjóðarinnar og hvernig íslenskt samfélag hefur komist í efstu sæti í flestu því sem þykir gott og mikilvægt í samfélögum heimsins. Stóran hluta þessara 105 ára hefur Framsókn setið við ríkisstjórnarborðið en þess á milli veitt ríkisstjórnum landsins mikilvægt aðhald í stjórnarandstöðu. Skoðun 16. desember 2021 19:01
Hvað erum við að gera í skólamálum? Þegar kemur að því að búa til betri framtíð er ekkert mikilvægara en öflugt og gott skólakerfi, sem býr börn undir það að vera upplýstir og öflugir þátttakendur í samfélaginu. Þar höfum við tækifæri til að lágmarka skaða sem annars gæti undið upp á sig, og til að kenna þá færni sem fólk þarf að hafa til að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Skoðun 16. desember 2021 11:31
Bíódagar á köldum klaka Astraltertan stóð líklega í mörgum þegar fréttir bárust að því að í fjárlögum væri gert ráð fyrir hálfum milljarði í þróun á íslenskri streymisveitu á vegum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og þar með íslenska ríkisins. Umræðan 15. desember 2021 10:00
Breytt hugsun stjórnenda Hlutverk stjórnandans er margslungið og fjölbreytt og einstaklingar í því starfi sjá það eðlilega ekki allir eins. Hver mótar sinn stjórnunarstíl út frá karakter, námi, reynslu, vinnustaðamenningu og fleiri þáttum sem geta verið meðfæddir eða lærðir. Skoðun 15. desember 2021 09:31
Legslímuflakk: bráðnauðsynlegar umbætur Legslímuflakk (endometriosis) er sjúkdómur sem getur valdið sárum verkjum og ófrjósemi, en talið er að sjúkdómurinn hrjái allt að 10% kvenna. Einkenni sjúkdómsins eru mismunandi og geta verið óljós og breytileg milli tímabila hjá sama sjúklingi og því getur reynst erfitt að greina hann. Greiningartími er því oftar en ekki fleiri ár. Skoðun 15. desember 2021 09:00
Átta óþægilegar staðreyndir um fjárlögin Fyrstu fjárlög endurnýjaðrar ríkisstjórnar bera þess merki að lögð er ofuráhersla á að draga hratt úr umfangi ríkisins í hagkerfinu á komandi árum. Í lok kjörtímabilsins á hlutfall ríkisútgjalda af vergri landsframleiðslu að vera orðið lægra heldur en sést hefur á þessari öld og hið sama gildir um umfang hins opinbera í heild. Skoðun 13. desember 2021 14:32
Samvinna formanns og varaformanns - sameiginlegar áskoranir Af hverju ég - Mun eitthvað breytast með tilkomu minni? Já, ég treysti mér til þess að svara þessari spurningu játandi. Skoðun 12. desember 2021 09:01
Mikilvægt að við kennarar stýrum umræðunni um menntamál á Íslandi Eitt af því sem mér finnst mikilvægt að beita mér fyrir sem leiðtogi kennara á Íslandi, hljóti ég brautargengi sem varaformaður Kennarasambands Íslands, er að efla valdeflingu kennarastéttarinnar hér á landi. Skoðun 10. desember 2021 14:00
Verðbólga ríkisstjórnarinnar Skuldsetning ríkissjóðs er 200 milljörðum króna minni en við var búist, en skuldir heimilanna hafa aukist um 400 milljarða frá því að faraldurinn hófst. Þetta er ekki tilviljun. Skoðun 10. desember 2021 07:01
Nagladekkjafrumvarpið ógurlega – um hvað snýst það eiginlega? Ég og fleiri þingmenn höfum lagt fram lagafrumvarp þar sem stigin eru varfærnisleg skref til að sporna gegn óþarfri notkun á nagladekkjum í þéttbýli. Hér eru nokkur atriði sem rétt er að hafa í huga þegar fjallað er um málið. Skoðun 7. desember 2021 08:02
Nú þarf að greikka sporið Það er gífurlega ánægjulegt að við stöndum eftir allt saman á sterkum grunni. Ríkissjóður hefur þurft að taka minna að láni en áður var talið þurfa til að eiga við náttúruhamfarir. Umræðan 3. desember 2021 11:30
Það vinna allir á „Allir vinna“ – áskorun til stjórnvalda að halda verkefninu áfram Nú þegar fjárlagafrumvarp stjórnvalda er komið fram þá vekur það sérstaka athygli að ekkert virðist vera í frumvarpinu um að halda áfram verkefninu „Allir vinna“. Skoðun 1. desember 2021 14:31
Nú verða stjórnvöld að bregðast við! Það liggur fyrir að verðlagshækkanir frá heildsölum og framleiðendum hafa verið 3–10% í nóvember og 5–12% í desember. Nú berast tilkynningar um hækkanir í janúar sem nema frá 5 – 25%. Þetta eru svakalegar tölur. En af hverju er þetta ekkert rætt? Hvað er eiginlega í gangi hjá stjórnvöldum og Seðlabankanum? Skoðun 1. desember 2021 10:00
Velkomin í hverfið mitt Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum tekið á móti fleira fólki af erlendum uppruna en nokkurntíma áður. Innflytjendur eru fjölbreytur hópur sem leggur sitt að mörkum í þessu samfélagi og það skiptir miklu máli að vel sé staðið að móttöku nýrra íbúa, hvort sem þeir flytjast hingað til skemmri eða lengri tíma. Skoðun 1. desember 2021 07:30
Það er dýrt að vera fátækur Þú þarft að kaupa notuð heimilistæki eins og þvottavél því þú getur ekki lagt út fyrir nýrri vél sem virkar. Skoðun 26. nóvember 2021 16:00
Heildstæð nálgun í kjaraviðræðum óskast Það líður að kjarasamningagerð og samtalið um forsendur komandi samninga er hafið með aðsendum greinum og yfirlýsingum hagsmunaðila. Umræðan 24. nóvember 2021 15:00
Leiðtogar 21. aldarinnar Styrkleiki þessarar ríkisstjórnar er einnig hennar mesti veikleiki; skortur á pólitískri stefnu og sýn. Þar af leiðandi hefur gagnrýnin ekki rist djúpt, því efnislega hefur lítið verið að gagnrýna. Skoðun 24. nóvember 2021 07:01
Eru launahækkanir að sliga íslenskt atvinnulíf? Ef við byrjum að fara yfir nokkrar staðreyndir. Staðreyndir sem virðast flækjast mikið fyrir nýkjörnum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins og stjórnendum fyrirtækja sem og Seðlabankastjóra, Viðskiptaráði og SA. Skoðun 22. nóvember 2021 13:01
Snýst pólitík um uppbyggingu eða niðurrif? Ég er hugsi eftir umræðuna á borgarvettvangi þetta kjörtímabil og sérstaklega síðustu viku. Þetta hefur verið mitt fyrsta kjörtímabil sem fulltrúi Viðreisnar. Hingað kom ég úr viðskiptum og hagsmunapólitík fyrir Félag kvenna í Atvinnulífinu og því mjög vön því að takast á um hugmyndir og stefnu, leiða verkefni til lykta og og finna til þess bestu leiðina í gegnum krókaleiðir mismunandi hagsmuna og skoðana. Skoðun 20. nóvember 2021 08:01
Hvað er barnaheill í Covid-faraldri? Á Íslandi gilda um þessar mundir mun meira íþyngjandi reglur um sóttkví og smitgát barna heldur en í nágrannalöndum okkar og þeim löndum sem við viljum gjarnan bera okkur saman við. Skoðun 19. nóvember 2021 07:30
Grænni Reykjavíkurborg – rafræn og blaðlaus! Flokkur fólksins hefur lagt fram þá tillögu í borgarráði að frá og með árinu 2023 hætti Reykjavíkurborg og stofnanir hennar að kaupa dagblöð í blaðaformi fyrir aðra en þá eru ófærir um að nýta rafrænar áskriftir, svo sem vegna fötlunar eða öldrunar. Að öðru leyti kaupi borgin eingöngu rafrænar blaðaáskriftir. Skoðun 18. nóvember 2021 12:00
Íbúðamarkaðurinn okkar Fjármagn stýrir miklu. „Cash is king“ er stundum sagt á enskunni. Ein stærsta yfirsjónin í aðdraganda kreppunnar 2008 á heimsvísu var hve lítið hagfræðilíkön tóku mið af áhrifum fjármálakerfisins á hagkerfið. Nú er talað um fjármálasveiflu, ekki bara hagsveiflu. Umræðan 16. nóvember 2021 14:31