Kidd skrifar undir nýjan samning við Dallas Mavericks Stjörnuleikstjórnandinn Jason Kidd verður áfram í herbúðum Dallas Mavericks í NBA-deildinni en hann skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið. Körfubolti 11. júlí 2009 23:15
Wade: Enginn ágreiningur á milli mín og Riley Stórstjarnan Dwyane Wade hjá Miami Heat vísar á bug sögusögnum um að honum og Pat Riley forseti félagsins komi ekki saman. Wade sendi stjórn félagsins skýr skilaboð í fjölmiðlum þegar hann sagði að styrkja þyrfti leikmannahópinn til muna við fyrsta tækifæri og það vantaði fleiri stór nöfn til félagsins. Körfubolti 10. júlí 2009 16:00
Wallace: Boston besti möguleikinn á NBA-titli Kraftframherjinn Rasheed Wallace var kynntur sem nýr leikmaður Boston Celtics á blaðamannafundi í gær en leikmaðurinn skrifaði undir þriggja ára samning við félagið. Körfubolti 10. júlí 2009 11:30
McDyess farinn frá Pistons til Spurs San Antonio Spurs gekk í gær frá félagsskiptum Antonio McDyess frá Detroit Pistons á frjálsri sölu en hann er annar leikmaðurinn á skömmum tíma til þess að yfirgefa Pistons þar sem Rasheed Wallace fór á dögunum til Boston Celtics. Körfubolti 9. júlí 2009 15:30
Óvíst með endurkomu Yao Ming Forráðamenn Houston Rockets eru enn í myrkrinu yfir meiðslum miðherjans Yao Ming sem gæti í versta falli misst af öllu næsta keppnistímabili í NBA-deildinni eftir að hafa fótbrotnað á vinstri fæti í annarri umferð úrslitakeppninnar gegn LA Lakers í Maí síðastliðnum. Körfubolti 9. júlí 2009 12:00
Iverson líst vel á að fara til Miami Heat Bakvörðurinn Allen Iverson er að leita sér að nýju félagi eftir stutt stopp hjá Detroit Pistons en leikmaðurinn er fáanlegur á frjálsri sölu. Körfubolti 8. júlí 2009 16:15
Viðræðum Detroit Pistons og litla herforingjans slitið Það verður ekkert af því að Avery Johnson taki við þjálfun NBA-liðsins Detroit Pistons eftir að það slitnaði upp úr viðræðunum í dag. Aðstoðarþjálfari Cleveland er nú líklegasti eftirmaður Michael Curry. Körfubolti 7. júlí 2009 19:30
Wade vill fá stærri nöfn til Miami Heat Stórstjarnan Dwyane Wade hjá Miami Heat hvetur forráðamenn félagsins til þess að gera allt til þess að félagið verði aftur samkeppnishæft um NBA-titilinn, eins fljótt og auðið er en Heat varð meistari í NBA-deildinni árið 2006. Körfubolti 7. júlí 2009 10:30
Jason Kidd verður áfram hjá Dallas Mavericks Jason Kidd hefur gert nýjan þriggja ára samning við Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta en líklegt þótti að þessi 37 ára gamli leikstjórnandi myndi finna sér nýtt lið í sumar. Íslenski boltinn 6. júlí 2009 19:30
Rasheed Wallace fer til Boston Celtics Boston Celtics stefna á að endurheimta NBA-titilinn eftir vonbrigði síðasta tímabils og hafa nú styrkt liðið með því að tryggja sér þjónustu kraftframherjans Rasheed Wallace á frjálsri sölu frá Detroit Pistons. Körfubolti 6. júlí 2009 16:30
Shaq ætlar að vinna hring fyrir LeBron Shaquille O´Neal og egóið hans er mætt til Cleveland. Shaq var ekki að spara stóru orðin frekar en fyrri daginn þegar hann var lentur í Cleveland. Körfubolti 3. júlí 2009 13:45
Artest til LA Lakers Önnur stór tíðindi voru í NBA-boltanum í dag þegar Ron Artest tilkynnti að hann væri á förum frá Houston Rockets til LA Lakers. Körfubolti 3. júlí 2009 12:59
Cuban vill halda Jason Kidd Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks, sendir skilaboð sín til heimsins í gegnum Twitter og nú síðast tilkynnti hann heiminum að hann væri á förum til New York að ræða við Jason Kidd. Körfubolti 1. júlí 2009 17:15
Michael Curry rekinn frá Pistons Michael Curry fékk að kynnast því í dag að það er ekkert grín að þjálfa Detroit Pistons. Þar er krafa um árangur og þar sem árangurinn var enginn síðasta vetur hefur Curry verið rekinn eftir aðeins ár í starfi. Körfubolti 1. júlí 2009 15:15
Portland vildi líka fá Shaq Nýjasti liðsmaður Cleveland Cavaliers, Shaquille O´Neal, segir að Portland Trailblazers hafi einnig reynt að fá hann til sín. Körfubolti 28. júní 2009 15:30
Shaq og LeBron James í danskeppni Shaquille O'Neal gekk í raðir Cleveland Cavaliers í vikunni. Risinn er enn í fullu fjöri þrátt fyrir að vera að komast á aldur en samvinnu hans og LeBron James er beðið með eftirvæntingu. Shaq verður í treyju númer 33. Körfubolti 27. júní 2009 14:30
Orlando fær Vince Carter Orlando Magic var ekki lengi að svara því að Cleveland nældi sér í Shaquille O´Neal þar sem félagið er búið að krækja í Vince Carter frá New Jersey Nets. Körfubolti 26. júní 2009 09:22
Sonur Jordans gafst upp Það er ekki auðvelt að vera sonur besta körfuboltamanns allra tíma, Michaels Jordan, og reyna síðan sjálfur að stunda íþróttina. Það reyndi þó Jeff Jordan, tuttugu ára, en hann hefur nú gefist upp á því að reyna að feta í fótspor föður sins. Sport 26. júní 2009 08:30
Shaq á leiðinni til Cleveland Bandarískir fjölmiðlar greina frá því í dag að Shaquille O´Neal sé á leiðinni til Cleveland Cavaliers frá Phoenix Suns. Fréttirnar eru ekki staðfestar en eru sagðar koma frá traustum heimildum. Körfubolti 25. júní 2009 10:00
Jackson íhugar að sleppa útileikjunum Phil Jackson, þjálfari LA Lakers, mun ákveða sig í næsta mánuði hvort hann klárar lokaárið á samningi sínum við NBA-meistarana. Ákvörðun snýst að mörgu leyti um heilsufar hans. Körfubolti 24. júní 2009 12:30
Miklar breytingar hjá San Antonio Spurs Elsta lið NBA-deildarinnar, San Antonio, Spurs lofaði stuðningsmönnum sínum því að yngja liðið upp í sumar og mæta sterkari til leiks næsta vetur. Forráðamenn liðsins hafa ekki setið auðum höndum það sem af er sumri. Körfubolti 24. júní 2009 11:45
Fjársterkir aðilar bjarga sigurhátíð Lakers Borgarstjóri Los Angeles, Antonio Villaraigosa, hefur staðfest að það verði skrúðganga í borginni þar sem borgarbúar geti hyllt nýkrýnda NBA-meistara, LA Lakers. Körfubolti 16. júní 2009 21:57
Shaq óskar Kobe til hamingju Það tók lengri tíma en margir áttu von á en Kobe Bryant hefur loksins stigið út úr hinum stóra skugga Shaquille O´Neal. Körfubolti 15. júní 2009 18:30
15. meistaratitill LA Lakers Los Angeles Lakers vann í nótt sinn 15. NBA-meistaratitil í sögu félagsins eftir sigur á Orlando Magic, 99-86, í úrslitarimmu liðanna í nótt. Þar með vann Lakers rimmuna með fjórum leikjum gegn einum. Körfubolti 15. júní 2009 08:59
Phil Jackson sektaður fyrir ummæli sín Phil Jackson þjálfari Los Angeles Lakers hefur verið sektaður um 25 þúsund dollara, rúmar þrjár milljónir króna vegna niðrandi ummæla í garð dómara í fjórða leik Lakers og Orlando í úrslitaeinvíginu um NBA titilinn í körfubolta. Körfubolti 14. júní 2009 13:15
Howard: Við förum í sjötta leikinn í Los Angeles Miðherjinn kröftugi Dwight Howard hjá Orlando Magic er ekki tilbúinn að afhenda LA Lakers fimmtánda NBA titil sinn á gullfati og hefur fulla trú á því að Magic vinni fimmta leik liðanna á heimavelli sínum í Orlando í nótt. Körfubolti 14. júní 2009 11:30
Rose: Klíkumerkið var lélegur brandari Nýliði ársins í NBA-deildinni, Derrick Rose hjá Chicago Bulls, hefur gefið frá sér yfirlýsingu vegna ljósmyndar af honum sem hefur flogið um netheima síðustu daga. Körfubolti 12. júní 2009 20:30
Pietrus sleppur með skrekkinn NBA-deildin mun ekki aðhafast frekar yfir ruddaskap Mickael Pietrus, leikmanns Orlando Magic, í garð Pau Gasol hjá Lakers í leik liðanna í nótt. Körfubolti 12. júní 2009 19:45
Ráðist á NBA-dómara í fangelsi Fyrrum NBA-dómarinn Tim Donaghy á ekki sjö dagana sæla í fangelsi í Flórída. Þar var ráðist á dómarann og honum hótað lífláti. Körfubolti 12. júní 2009 15:15
Fisher: Besta karfan mín til þessa á ferlinum Derek Fisher reyndist betri en enginn fyrir LA Lakers á ögurstundu gegn Orlando Magic í nótt og sá til þess að liðið náði að tryggja sér framlengingu þegar hann jafnaði leikinn 87-87 með þriggja stiga körfu þegar 4,6 sekúndur voru eftir í fjórða leikhluta í nótt. Körfubolti 12. júní 2009 10:00