Deane Williams: Við höldum áfram að spila þangað til við þurfum ekki að spila meira Keflavík og Tindastóll mætast í kvöld í átta liða úrslitum Domino's deildar karla. Keflvíkingar lönduðu deildarmeistaratitlinum á dögunum, en Tindastóll hafnaði í áttunda sæti deildarinnar. Deane Williams, sem leikur með Keflvík og hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar, á von á erfiðum leik. Körfubolti 15. maí 2021 11:31
Körfuboltakvöld kvenna: Keflavík fann engin svör við vörn Hauka Í Körfuboltakvöldi kvenna í gærkvöldi var farið yfir fyrsta leik Hauka og Keflavíkur í úrslitakeppni Domino's deildarinnar. Sérfræðingar kvöldsins voru sammála um það að Keflvíkingar hafi átt í erfiðleikum með að finna svör við þéttri vörn Hauka. Körfubolti 15. maí 2021 10:00
Dominykas Milka: Ég held að það hjálpi deildinni að það eru alltaf fleiri útlendingar að bætast við Keflavík og Tindastóll mætast í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum Domino's deildar karla í kvöld. Dominykas Milka hefur verið einn besti leikmaður Keflvíkinga í vetur og hann fékk heimsókn í vinnuna þar sem hann sér um kostnaðarstýringu á Marriott hótelinu í Keflavík. Körfubolti 15. maí 2021 09:02
Heimaslátrun á Hlíðarenda Valskonur tóku á móti Fjölni í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Domino's deildar kvenna í kvöld. Yfirburðir Vals voru algjörir, og þær lönduðu að lokum 41 stigs sigri, 90-49. Körfubolti 14. maí 2021 21:49
Öruggt hjá Haukakonum í fyrsta leik Haukar tóku á móti Keflavík í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Domino's deildar kvenna í kvöld. Keflvíkingar skoruðu fyrstu stig kvöldsins, en það var í eina skiptið sem þær voru yfir í leiknum. Haukakonur lönduðu að lokum 14 stiga sigri, 77-63. Körfubolti 14. maí 2021 19:58
Gæti misst af öllu einvíginu við Þór eftir að hafa veitt þriðja höggið Litháinn Adomas Drungilas hefur í þriðja sinn á tveimur mánuðum verið úrskurðaður í bann og missir af næstu þremur leikjum Þórs frá Þorlákshöfn nú þegar úrslitakeppnin í Dominos-deildinni í körfubolta er að hefjast. Körfubolti 14. maí 2021 16:22
„Að hafa hana í liðinu þínu þá ertu strax kominn með svindlkarl“ Pálína Gunnlaugsdóttir og sérfræðingar hennar fóru yfir einvígi Vals og Fjölnis í undanúrslitum Domino´s deildar kvenna en fyrsti leikurinn í einvíginu er í kvöld. Fjölniskonur gætu haft áhyggjur af því að Helena Sverrisdóttir hafi verið að spara sig fyrir úrslitakeppnina. Körfubolti 14. maí 2021 16:01
NBA dagsins: Rekinn af velli eftir þrjár mínútur í fyrsta leik sínum á tímabilinu Miami Heat ber nafn með rentu þessa dagana og virðist vera að hitna á hárréttum tíma fyrir úrslitakeppnina. Miami sigraði topplið Austurdeildar NBA, Philadelphia 76ers, 106-94, í nótt. Körfubolti 14. maí 2021 15:01
„Þetta eru svakalegar fréttir“ Pálína Gunnlaugsdóttir og sérfræðingar hennar fóru yfir einvígi Hauka og Keflavíkur í undanúrslitum Domino´s deildar kvenna en fyrsti leikurinn í einvíginu er í kvöld. Keflavík bætti við sig landsliðskonu fyrir úrslitakeppnina. Körfubolti 14. maí 2021 14:01
Booker með ís í æðum á ögurstundu á vítalínunni Devin Booker sýndi stáltaugar á vítalínunni þegar hann tryggði Phoenix Suns sigur á Portland Trail Blazers, 118-117, í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 14. maí 2021 08:30
NBA dagsins: Young hafði betur gegn Westbrook, Dame sökkti Utah og Lakers marði slakt lið Rockets Það var nóg um að vera í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Körfubolti 13. maí 2021 15:31
Arnar Guðjónsson og Dedrick Basile dæmdir í eins leiks bann Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands hefur dæmt Arnar Guðjónsson, þjálfara Stjörnunnar í Domino´s deild karla, og Dedrick Deon Basile, leikmann Þórs Akureyrar í sömu deild, í eins leiks bann. Körfubolti 13. maí 2021 13:30
Elvar Már valinn mikilvægastur í Litháen Elvar Már Friðriksson var í daginn valinn mikilvægasti leikmaður, MVP, litháensku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Þar leikur hann með Šiauliai. Körfubolti 13. maí 2021 11:50
Mavericks og Trail Blazers með mikilvæga sigra á meðan Lakers marði Rockets Sex leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Í Vesturdeildinni unnu Dallas Mavericks og Portland Trail Blazers mikilvæga sigra sem þýðir að það er nær öruggt að ríkjandi meistarar Los Angeles Lakers þurfa að fara í umspil um sæti í úrslitakeppninni. Körfubolti 13. maí 2021 11:31
„Ég held að hann sé aldrei að fara að spila í 1. deildinni“ Sérfræðingarnir í Domino´s Körfuboltakvöldi veltu fyrir sér í hvaða leikmenn Hattar og Hauka hin liðin munu hringja nú þegar Höttur og Haukar spila ekki í Domino´s deildinni næsta vetur. Körfubolti 12. maí 2021 16:00
NBA dagsins: Golden State vann næstbesta lið deildarinnar þrátt fyrir kaldan Curry Golden State Warriors þurfti ekki stórleik frá Stephen Curry til að vinna liðið með næstbesta árangurinn í NBA-deildinni, Phoenix Suns, í nótt, 122-116. Körfubolti 12. maí 2021 15:00
Óvænt hetja kláraði dæmið fyrir Lakers gegn Knicks Þrátt fyrir að vera án LeBrons James og leikstjórnandalausir vann Los Angeles Lakers New York Knicks, 101-99, í framlengnum leik á heimavelli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Körfubolti 12. maí 2021 08:00
Jordan deilir síðustu skilaboðunum frá Kobe Michael Jordan hefur deilt síðustu smáskilaboðunum sem hann fékk frá Kobe Bryant heitnum. Körfubolti 12. maí 2021 07:31
NBA dagsins: WES182OOK Russell Westbrook skráði sig í sögubækur NBA-deildarinnar þegar hann náði sinni 182. þreföldu tvennu á ferlinum í 125-124 tapi Washington Wizards fyrir Atlanta Hawks í nótt. Körfubolti 11. maí 2021 15:02
„Skurðlæknirinn“ Logi mun áfram skera upp andstæðingana „Þetta verður 25. tímabilið mitt í röð í meistaraflokki og það er mikið afrek fyrir íþróttamann. Ég hef lagt mikið á mig til þess,“ segir körfuboltagoðsögnin Logi Gunnarsson sem mun spila 40 ára að aldri í Dominos-deildinni á næstu leiktíð. Körfubolti 11. maí 2021 12:00
Westbrook bætti nær hálfrar aldar gamalt þrennumet Oscars Robertson Russell Westbrook bætti í nótt met Oscars Robertson yfir flestar þrefaldar tvennur í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta. Körfubolti 11. maí 2021 08:00
Viðar Örn: Eins og íslenskt rallý á móti Formúlu 1 Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, segir það mikil vonbrigði að liðinu hafi ekki tekist að halda sæti sínu í úrvalsdeild karla í körfuknattleik. Liðið féll í kvöld eftir 62-74 tap í lokaumferðinni gegn Keflavík. Körfubolti 10. maí 2021 22:35
„Á ekki von á því að vera áfram í Njarðvík“ Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur býst ekki við því að vera áfram þjálfari Njarðvíkur á næsta tímabili. Körfubolti 10. maí 2021 22:25
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Grindavík 91-76 | Grannaslagur í næstu umferð Valur afgreiddi Grindavík á heimavelli í síðustu umferð Domino's deildarinnar í kvöld. Valur komst snemma í forystu sem gerði það verkum að Grindavík þurfti að elta allan leikinn sem var of erfitt og niðurstaðna 91 - 76 sigur Vals. Körfubolti 10. maí 2021 22:22
Hjalti: Eins og leikur í úrslitakeppni Hjalti Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, sagði sitt lið hafa þurft að hafa fyrir hlutunum í 62-74 sigri á Hetti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. Keflavík vann deildakeppnina með yfirburðum en Höttur féll. Körfubolti 10. maí 2021 22:11
Baldur: Hrikalega leiðinlegt að tapa svona og sárt Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Tindastóls, var ósáttur að hafa ekki náð að vinna Stjörnuna í lokaumferð Domino‘s deildar karla í kvöld. Stjörnumenn sigruðu, 96-102, eftir framlengingu. Körfubolti 10. maí 2021 22:04
Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 88-73 | Njarðvíkingar sleppa við fall Njarðvíkingar sluppu við fall en voru á sama tíma hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina þegar uppi var staðið. Körfubolti 10. maí 2021 22:01
Umfjöllun og viðtöl: KR - ÍR 112-101 | KR-ingar með góðan sigur sem var samt ekki nóg til að halda 4. sætinu Góður seinni hálfleikur KR-inga gerði þeim kleyft að vinna ÍR nokkuð þægilega 112-99. Þeir misstu samt af heimavallarréttinum í 8-liða úrslitum þar sem þeir mæta Valsmönnum. Körfubolti 10. maí 2021 22:00
Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Stjarnan 96-102 | Stólarnir sluppu inn í úrslitakeppnina Stjarnan gerði góða ferð á Sauðárkrók og vann Tindastól, 96-102, eftir framlengingu í lokaumferð Domino's deildar karla í kvöld. Körfubolti 10. maí 2021 21:52
Brynjar Þór: Maður var farinn að telja niður þessa síðustu leiki Brynjar Þór Björnsson átti góðan leik, þá sérstaklega þriðja leikhluta, þegar KR lagði ÍR í DHL-höllinni fyrr í kvöld 112-102. Kappinn er spenntur að mæta gömlum félögum í 8-liða úrslitum en hefði viljað heimavallarréttinn. Körfubolti 10. maí 2021 21:32