„Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Moskítóflugan virðist ekki láta íslenska vetrarfrostið á sig fá en skordýraáhugamaður í Kjósinni fann flugu í garðinum hjá sér í vikunni. Hann hafði í sumar leitað að lirfum en án árangurs og átt ekki von á því að finna fleiri flugur. Nú bíður hann spenntur eftir því að sjá hvort fleiri stingi upp kollinum. Innlent 16.10.2026 21:09
Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins segir að á næstu dögum muni fara fram einkennileg tilraun í nágrenni höfuðborgarinnar: hella eigi átta tonnum af natríumhýdroxíði, öðru nafni vítissóda, í Hvalfjörðinn. Þetta sagði hann í dagskrárliðnum Störfum þingsins í gær. Innlent 15.10.2026 10:23
Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Basalausn verður veitt út í Hvalfjörð í tilraun sem á að auka kolefnisupptöku sjávar á næstu dögum eftir að leyfi fékkst fyrir rannsókninni. Utanríkisráðherra synjaði umsókn um leyfi til tilraunarinnar í fyrra þar sem honum þótti lagaramma skorta um slíkar rannsóknir. Innlent 8.10.2026 15:23
Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Nýsköpunarverkefni Elkem á Grundartanga og Carbfix um að kanna möguleikann á að fanga og farga kolefni frá kísilverinu hlaut tæplega tvö hundruð milljón króna styrk úr Orku- og loftslagssjóði. Alls var á fjórða hundrað milljóna króna veitt í verkefni til að draga úr losun stóriðju. Viðskipti innlent 7. maí 2026 11:05
Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Hafró telur að kanna þurfi áhrif magnesíumverkamiðju á Grundartanga á loftslag þar sem hún gæti dregið úr getu sjávar til þess að taka upp koltvísýring og þannig verið „andstæða loftslagsverkfræðilegra aðgerða“. Fyrirtækið segir starfsemina ekki eiga að hafa áhrif á kolefnisbindingu sjávar. Viðskipti innlent 27. apríl 2026 13:20
„Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Hundur og köttur drápust um helgina eftir að hafa komist í pylsubita í sumarbústaðarhverfi í Kjós. Dýralæknir sem annaðist bæði dýrin telur allt benda til frostlögseitrunar og verður málið tilkynnt til lögreglu. Eigandi hundsins segist í sárum eftir að hafa kvatt sinn besta vin. Innlent 14. apríl 2026 12:25
Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Tvö gæludýr hafa greinst með einkenni frostlagareitrunar á þremur dögum eftir að hafa étið pylsubita sem fundust á jörðinni við Hvamm í Kjós. Dýralæknar vara gæludýraeigendur við hættunni og eru málin til skoðunar hjá MAST. Innlent 13. apríl 2026 22:14
Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Bandarískir vísindamenn segja að tilraun sem þeir gerðu með basalausn í Maine-flóa hafi bundið kolefni úr lofti án þess að skaða sjávarlífverur. Utanríkisráðherra hafnaði því að veita leyfi fyrir sambærilegri tilraun í Hvalfirði síðasta sumar þrátt fyrir jákvæðar umsagnir sérfræðistofnana. Erlent 2. mars 2026 15:24
Hvalfjörður er líka okkar fjörður Enn einu sinni þurfa íbúar Kjósarhrepps að verjast uppbyggingu á mengandi iðnaði í Hvalfirði og að þessu sinni er það gríðarstórt „landeldi“ á laxi sem við nánari athugun er ekki það jákvæða landeldi sem virðist við fyrstu sýn. Skoðun 18. janúar 2026 14:01
Bítur eins og lúsmý en er stærra og stingur dýpra Moskítófluga sem fannst um helgina í Kjós er af tegund sem er sérlega lunkin við að halda sér á lífi á veturna. Sérfræðingur segir tímaspursmál hvenær hún verði búin að dreifa sér um land allt. Koma flugunnar veldur heilbrigðisyfirvöldum ekki hugarangri. Innlent 20. október 2025 23:15
Moskítóflugan mætt til Íslands Moskítóflugan er komin til landsins. Skordýraáhugamaður í Kjósinni fékk moskítóflugur af báðum kynjum í heimsókn um helgina og búið er að greina tegundina. Segja má að síðasta vígið sé fallið. Innlent 20. október 2025 10:01
Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Ástrós Traustadóttir, dansari og raunveruleikastjarna, og kærasti hennar, Adam Helgason, matgæðingur, voru viðstödd brúðkaup nígerísku hjónanna Temi Otedola og Oluwatosin Oluwole Ajibade hér á landi í byrjun ágúst. Lífið 9. september 2025 20:02
Þyrlan kölluð út vegna beinbrotinnar göngukonu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á þriðja tímanum í dag vegna konu sem hafði slasast við Paradísarfoss við Glym. Um beinbrot var að ræða. Innlent 30. ágúst 2025 16:07
Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Nígerísk stjörnuhjón sem halda brúðkaup í Hallgrímskirkju í dag hafa látið reisa stærðarinnar glerhýsi í Kleif í Kjós þar sem brúðkaupsveisla verður haldin að lokinni athöfn. Mikið umstang er í kringum brúðkaupið og búist er við hundruðum gesta erlendis frá og tökuteymi frá Netflix. Þetta er aftur á móti ekki fyrsta brúðkaupsathöfn hjónanna, sem eru þegar gift. Lífið 8. ágúst 2025 15:00
Hnúfubakur í banastuði í Hvalfirði Þeir félagar, frændur og nágrannar, Baldur Ketilsson kerfisstjóri hjá Vegagerðinni og Eyjólfur Matthíasson ljósmyndari náðu einstöku myndefni af hnúfubak sem var að leika listir sínar rétt við land í Hvalfirðinum. Innlent 19. maí 2025 14:47
Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Forsenda þess að utanríkisráðherra hafnaði umsókn Rastar um að gera basavirknitilraun í Hvalfirði var að skýran lagaramma skorti utan um slíkar rannsóknir almennt. Framkvæmdastjóri Rastar segir niðurstöðuna koma á óvart í ljós jákvæðs álits fagaðila sem veittu umsögn um áformin. Innlent 13. maí 2025 12:48
Rannsóknarleyfi Rastar hafnað „Ráðuneytið lauk afgreiðslu umsóknar Rastar um rannsóknarleyfi fyrir helgi og var félaginu tilkynnt með bréfi sl. föstudag að umsókn félagsins um rannsóknarleyfi hefði verið hafnað.“ Innlent 13. maí 2025 10:40
Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Hjónin Hermann Ingólfsson og Birna Einarsdóttir eru búin að selja Kaffi Kjós og verður veitingastaðnum lokað í kjölfarið. Í tilkynningu á Facebook-síðu veitingastaðarins kemur fram að húsinu verði breytt í íbúðarhús. Viðskipti innlent 23. apríl 2025 12:49
Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Skúli Mogensen, stofnandi og eigandi sjóbaðanna í Hvammsvík í Hvalfirði, hefur látið ráðast í smíði átta ný húsa við Hvammsvík sem hugsuð eru sem gistiaðstaða fyrir ferðamenn. Húsin bætast við þau fjögur gistihús sem fyrir eru á svæðinu en nýju húsin verða nokkuð smærri. Viðskipti innlent 31. mars 2025 06:13
Sveitarfélögin við Hvalfjörð á öndverðum meiði um basatilraun Afstaða sveitarfélaganna tveggja við Hvalfjörð til fyrirhugaðrar tilraunar með basalausn í sumar er gerólík. Hvalfjarðarsveit leggst ekki gegn því að leyfi verði veitt fyrir tilrauninni en Kjósarhreppur er alfarið á móti. Bæði Hafró og Umhverfisstofnun hafa mælt með því að leyfið verði veitt. Innlent 10. mars 2025 14:01
Basarannsókn í Hvalfirði fær jákvæða umsögn frá Umhverfisstofnun Umhverfisstofnun mælir með því að leyfi verði veitt fyrir tilraun með basa í botni Hvalfjarðar í sumar. Rannsóknin sé líkleg til að veita mikilvægar upplýsingar um möguleika á kolefnisbindingu án þess að hafa neikvæð áhrif á hafið. Innlent 7. mars 2025 09:59
Telja basarannsókn í Hvalfirði hafa mikið vísindalegt gildi Hafrannsóknastofnun telur fyrirhugaða tilraun með basa í Hvalfirði til þess að hafa áhrif á kolefnisupptöku sjávar geta skapað verðmæta þekkingu og áhrif hennar á umhverfi og vistkerfi verði takmörkuð. Hvalveiðifyrirtæki í firðinum leggst alfarið gegn tilrauninni. Innlent 17. febrúar 2025 12:42
Tilraun með basa í Hvalfirði ekki sögð hættuleg lífríki Magn basa sem félagið Röst vill losa út í Hvalfjörð í sumar til þess að rannsaka kolefnisbindingu sjávar er ekki hættuleg lífríki og er minna en það sem iðn- og hafnarfyrirtæki mega losa út í sjó að staðaldri, að sögn framkvæmdastjóra félagsins. Sérfræðingur Hafró segir erfitt að sjá að tilraunin valdi skaða á firðinum. Innlent 4. febrúar 2025 09:49
Kaffi Kjós til sölu Kaffi Kjós við Meðalfellsveg er til sölu. Kaffihúsið hefur verið rekið frá árinu 1998 og eigendur segja samfélagið á svæðinu vona að veitingarekstur haldi þar áfram. Viðskipti innlent 21. janúar 2025 19:55