Kauphöllin tútnar út í einhverri mestu efnahagskreppu sem sést hefur Hlutabréf í Kauphöllinni hækkað um 50 milljarða króna í dymbliviku. Viðskipti innlent 7. apríl 2021 12:33
Netagerðarmeistari lifir á loðnuvertíð fram eftir ári Nýafstaðin loðnuvertíð færir netaverkstæðum kærkomna búbót sem endist þeim langt fram eftir ári. Dæmi um slíkt fundum við austur í Neskaupstað. Viðskipti innlent 3. apríl 2021 23:14
Sýn hf. selur félag í Færeyjum og fjarskiptainnviði fyrir milljarða Fjarskiptafélagið Sýn hf. hefur undirritað samning um sölu á hlut félagsins í færeyska hlutdeildarfélaginu P/F 20.11.19. fyrir sem nemur rúmum einum milljarði króna. Sýn átti 49,9% hlut í félaginu. Þá hefur Sýn einnig samið um sölu á óvirkum fjarskiptainnviðum félagsins fyrir rúma sex milljarða. Viðskipti innlent 1. apríl 2021 13:31
Samþykktu samruna Kviku, TM og Lykils Hluthafafundir Kviku banka, TM og Lykils fjármögnunar samþykktu í gær að sameina félögin þrjú undir nafni og kennitölu Kviku. TM og Lykli verður þannig slitið án skuldaskila og félögin algerlega sameinuð Kviku. Viðskipti innlent 31. mars 2021 07:47
„Farþegum er bara blandað saman“ Íslendingur sem ferðaðist hingað til lands frá Kaupmannahöfn um helgina segir farir sínar ekki sléttar eftir flug með Icelandair frá til Keflavíkur nú um helgina. Vélin kom til Kaupmannahafnar hálffull af farþegum frá Stokkhólmi. Viðskipti innlent 28. mars 2021 16:24
Hefðu átt að velja annan varaflugvöll áður en lagt var í „martraðarflugið“ Illa var staðið að vali á varaflugvelli miðað við veðurskilyrði þegar flugvél Icelandair var flogið til Manchester 23. febrúar 2017. Þá var óveðursboðum ekki gerð nægilega góð skil í flugáætlun umræddan morgun. Þetta kemur fram í lokaskýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa sem birt var í dag. Innlent 26. mars 2021 20:19
Þynging og sýkna í innherjasvikamáli í Icelandair Landsréttur staðfesti í dag þriggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir Kristjáni Georg Jósteinssyni í Icelandair-innhverjasvikamálinu. Þá var dómur yfir Kjartani Jónssyni þyngdur úr átján mánuðum í tvö ár. Kjartan Bergur Jónsson, sem fékk fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm í héraði, var sýknaður í Landsrétti. Viðskipti innlent 26. mars 2021 16:21
Icelandair hækkar áfram í Kauphöllinni eftir tilkynningu stjórnvalda Hlutabréf Icelandair héldu áfram að hækka í Kauphöllinni í dag og höfðu hækkað um sex prósent við lokun markaða. Heildarvelta viðskipta með bréf Icelandair nam 277 milljónum króna. Viðskipti innlent 17. mars 2021 19:05
Mikill áhugi á Íslandi og markaðsherferðir hafnar Forstjóri Icelandair segir afar jákvætt að farþegar utan Schengen fái að koma til landsins með gild bólusetningar-eða mótefnavottorð. Mikilvægustu markaðir félagsins séu þar. Íslandsstofa hefur þegar hafið markaðssátak í Bretlandi og skynjar mikinn áhuga á Íslandi. Innlent 16. mars 2021 20:00
Eykur líkurnar á að „metnaðarfull“ sumaráætlunin gangi eftir „Þetta eru mjög jákvæðar fréttir. Við höfum verið með mjög metnaðarfulla áætlun í sölu í sumar, bæði til Evrópu, Bretlands og síðan Bandaríkjanna, og þetta eykur líkurnar á því að hún gangi eftir.“ Innlent 16. mars 2021 16:49
Bréf í Icelandair hækka eftir tíðindi af vottorðum Gengi hlutabréfa í flugfélaginu Icelandair tóku vænan kipp upp á við um hádegisbil eftir að tilkynnt var að farþegar með bólusetningarvottorð frá ríkjum utan Schengen yrðu tekin gild. Þar með má meðal annars hleypa Bretum og Bandaríkjamönnum inn í landið sem hafa verið bólusettir gegn kórónuveirunni. Viðskipti innlent 16. mars 2021 14:35
Stjórn Icelandair Group endurkjörin Forstjóri Icelandair Group segir framtíð félagsins bjarta þrátt fyrir mikið tap á síðasta ári. Hann býst við að félagið verði búið að ná fyrri styrk árið 2024. Kjör í stjórn félagsins fór fram á aðalfundi þess í dag og verður stjórnin óbreytt. Viðskipti innlent 12. mars 2021 18:54
Tæpur helmingur telur eins öruggt eða öruggara að fljúga í MAX-vélum Nær helmingur Íslendinga, eða 45 prósent, telja það eins öruggt eða öruggara að ferðast með Boeing 737 MAX flugvélum samanborið við aðrar farþegaþotur. 22 prósent telja það óöruggara, en þriðjungur aðspurðra kvaðst ekki hafa mótað sér afstöðu. Innlent 11. mars 2021 13:38
Einn dregur framboð sitt til stjórnar Icelandair til baka Martin J. St. George hefur dregið framboð sitt til stjórnar Icelandair Group til baka, en eftir standa þá átta frambjóðendur. Viðskipti innlent 11. mars 2021 08:51
Svona gekk fyrsta flug Icelandair með Max vélinni eftir kyrrsetningu Fyrsta áætlunarflug Boeing 737 Max vélar Icelandair var í gærmorgun en vélin fór til Kaupmannahafnar. Lífið 9. mars 2021 10:30
Innanlandsflug einnig undir merkjum Icelandair Innanlands- og millilandaflug Icelandair verður samþætt undir merkjum Icelandair. Frá þessu segir í tilkynningu frá Icelandair, en leiðakerfi og sölu- og markaðsstarf Air Iceland Connect og Icelandair mun sameinast undir vörumerki Icelandair frá þriðjudeginum næsta, 16. mars. Viðskipti innlent 9. mars 2021 07:49
Bein útsending: Hringir opnunarbjöllu í Kauphöllinni fyrir jafnrétti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun hringja opnunarbjöllu markaða fyrir jafnrétti klukkan 9:15 í dag. Viðskipti innlent 8. mars 2021 08:45
Er Steinn Logi það sem Icelandair vantar svo sárlega? Fyrrum framkvæmdastjóri hjá Icelandair, Steinn Logi Björnsson, sækir nú stíft að vera kosinn í stjórn Icelandair Group. Steinn Logi segist þekkja vel til flugrekstrar og þess vegna þurfi eigendur Icelandair Group á þjónustu hans að halda. Skoðun 8. mars 2021 07:00
Sjáðu MAX-inn fljúga í fyrsta sinn eftir tveggja ára kyrrsetningu Boeing 737 Max-flugvél Icelandair var flogið í fyrsta sinn í dag eftir tveggja ára kyrrsetningu. Vélinni var lent í Reykjavík klukkan tíu í morgun. Innlent 6. mars 2021 21:00
Níu í framboði til stjórnar Icelandair Group Tilkynnt hefur verið um þá níu frambjóðendur sem sækjast eftir sæti í stjórn Icelandair Group á aðalfundi félagsins sem fer fram eftir viku. Viðskipti innlent 5. mars 2021 18:33
Góð og slæm reynsla, ýmsu má breyta og gott að ræða hlutina opinberlega „Ég hef bæði haft mjög góða og ekki eins góða reynslu af þessari vinnu,“ segir einn álitsgjafi Atvinnulífsins á Vísi um störf tilnefningarnefnda á meðan annar líkir starfi þeirra við starf þjálfara í landsliði og mælir með því að umræða um störf nefndanna fari fram opinberlega. Þá eru nokkrir álitsgjafar Atvinnulífsins með hugmyndir að atriðum sem mætti endurskoða eða ætti að breyta. Sem dæmi um slík atriði má nefna hverjir sitja í tilnefningarnefndum, framboðum og/eða framboðsfrestum til stjórnarsetu og hversu lengi stjórnarmenn sitja í stjórnum skráðra fyrirtækja. Atvinnulíf 4. mars 2021 07:00
Sókn Icelandair Group Mikið hefur verið rætt og ritað um stöðu Icelandair Group að undanförnu. Slík umræða kemur ekki á óvart enda um að ræða eitt stærsta fyrirtæki landsins sem er í eigu tæplega 15.000 hluthafa, flestir þeirra íslenskir, og framgangur félagsins á næstu misserum mun hafa töluverð áhrif á viðspyrnu íslensks efnahagslífs í kjölfar COVID-19 faraldursins. Skoðun 4. mars 2021 06:01
Hafna því að til standi að selja hlutinn í Alvogen Stjórn CVC Capital Partners hafnar því að fjárfestingarfélagið ætli sér að selja um helmingshlut sinn í Alvogen líkt og fram kom í frétt Markaðarins, fylgiriti Fréttablaðsins í morgun. Viðskipti innlent 3. mars 2021 11:43
Nýr 8,3 milljarða vísisjóður hyggst fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum Brunnur Ventures hefur lokið fjármögnun á 8,3 milljarða króna vísisjóði (e. venture capital fund) sem ber nafnið Brunnur vaxtarsjóður II. Sjóðnum er ætlað að fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum og er fjármagnaður af tíu lífeyrissjóðum auk Landsbankans. Viðskipti innlent 3. mars 2021 10:24
Segja CVC vilja selja ráðandi hlut sinn í Alvogen Alþjóðlega fjárfestingarfélagið CVC Capital Partners, sem er stærsti einstaki hluthafinn í Alvogen, vinnur nú að því selja um helmingshlut sinn í félaginu samkvæmt heimildum Markaðarins. Viðskipti innlent 3. mars 2021 08:40
Fyrsta Boeing 737 MAX flug Icelandair til Kaupmannahafnar Icelandair tekur tvær Boeing 737 MAX vélar í rekstur á ný í þessum mánuði. Gert er ráð fyrir að TF-ICN sem ber nafnið Mývatn verði nýtt í áætlunarflugi til Kaupmannahafnar mánudaginn 8. mars. Viðskipti innlent 2. mars 2021 12:36
Samkeppniseftirlitið heimilar samruna Kviku, TM og Lykils Samkeppniseftirlitið hefur gefið grænt ljós á samruna Kviku banka, tryggingafélagsins TM og Lykils fjármögnunar. Er það mat eftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni, leiði til myndunar á markaðsráðandi stöðu eða raski samkeppni með umtalsverðum hætti. Viðskipti innlent 1. mars 2021 12:49
Flugferð til Suðurskautsins gekk vonum framar Flugvél Icelandair sem flaug til Suðurskautslandsins fyrir helgi til að sækja norskt vísindafólk á vegum Norsku heimskautsstofnunarinnar. Ferðin tók fimm daga og gekk hún vonum framar. Viðskipti innlent 28. febrúar 2021 21:38
Velta Krónunnar aldrei meiri og hagnaður jókst um 22 prósent Festi hagnaðist um tæplega 2,3 milljarða króna á síðasta ári og dróst hagnaður saman frá 2019 þegar hann nam um 2,8 milljörðum króna. Heildartekjurtekjur félagsins af sölu vöru- og þjónustu námu 86,3 milljörðum króna, samanborðið við 85,0 milljarða árið áður. Viðskipti innlent 25. febrúar 2021 12:56
Verulega dró úr tapi Sýnar milli ára Tap fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækisins Sýnar nam 405 milljónum króna árið 2020 samanborið við 1.748 milljóna króna tap árið áður. Tap milli ára dróst því saman um 76 prósent. Tekjur ársins 2020 hækkuðu jafnframt um 975 milljónir milli ára, eða um 4,9 prósent. Viðskipti innlent 24. febrúar 2021 18:21