Umsóknir 96% umsækjenda um greiðslufrest á lánum fyrirtækja samþykktar Tæplega 1.500 fyrirtæki hafa sótt um og fengið samþykkta greiðslufresti á lánum sínum vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Viðskipti innlent 13. maí 2020 18:35
Færi frekar á bætur en að samþykkja tilboðið frá Icelandair Guðmunda Jónsdóttir, sem starfað hefur óslitið sem flugfreyja óslitið síðan 1984 og segist muna tímana tvenna, segir stöðuna í dag alls ekki góða. Icelandair og Flugfreyjufélag Íslands eiga í samningaviðræðum á erfiðum tíma flugfélagsins sem reynir að safna 29 milljörðum í hlutafé fyrir 22. maí. Innlent 13. maí 2020 17:30
Icelandair sá sér ekki fært að halda viðræðum áfram á grundvelli tilboðs flugfreyja Samningafundur Flugfreyja og Icelandair, sem hófst klukkan ellefu í morgun, stóð yfir í klukkustund áður en honum var frestað. Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir í samtali við fréttastofu að samninganefnd Icelandair hefði ekki séð sér fært að halda viðræðum áfram á grundvelli þess tilboðs sem samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands hefur lagt fram. Innlent 13. maí 2020 12:56
„Ótrúlega stutt“ á milli flugmanna og Icelandair Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir stutt á milli í kröfum flugmanna og Icelandair. Hann segir óheppilegt að Icelandair hafi ákveðið að senda tilboð sitt á alla flugmenn Icelandair eftir að samninganefnd flugmanna hafði hafnað að bera það undir félagsmenn Viðskipti innlent 13. maí 2020 11:56
Vilja tengja kaupaukakerfi flugmanna við rekstarárangur Icelandair Ein af tillögum Icelandair í kjaraviðræðum við Félag íslenskra atvinnuflugmanna er að kaupaukakerfi flugmanna verði breytt þannig að þeir fái hlutdeild í rekstarhagnaði Icelandair, frekar en en vegna stundvísi og lágmörkun eldsneytisnotkunar Viðskipti innlent 13. maí 2020 10:38
Fundi flugfreyja og Icelandair framhaldið klukkan 11 Upp úr klukkan hálftvö í nótt var gert hlé á samningafundi Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands sem hófst klukkan átta í gærkvöldi. Innlent 13. maí 2020 06:19
Sameiginlegt verkefni að ná langtímasamningum Forstjóri Icelandair segir það sameiginlegt verkefni félagsins og starfsmanna að ganga frá langtímasamningum til þess að geta sýnt væntanlegum fjárfestum fram á samkeppnishæfni flugfélagsins. Í viðræðum við flugstéttir sé lögð áhersla á að auka vinnuframlag en verja ráðstöfunartekjur starfsmanna. Innlent 12. maí 2020 23:41
Flugfreyjur funda enn í Karphúsinu Samningafundur Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair sem fram fer í húsakynnum ríkissáttasemjara í Karphúsinu stendur enn yfir en fundahöld hófust í kvöld klukkan 20. Innlent 12. maí 2020 21:54
Festi hefur haft samband við Vinnumálastofnun vegna endurgreiðslu hlutabótaleiðarinnar Eignarhaldsfélagið Festi hefur haft samband við Vinnumálastofnun með það að markmiði að endurgreiða þá upphæð sem fyrirtækið sparaði sér með aðgerðunum. Viðskipti innlent 12. maí 2020 18:55
Ragnar Þór segir stjórnendasögu Icelandair einkennast af spillingu Formaður VR segir Maríu Stefánsdóttur sölustjóra flugfélagsins á villigötum í vörn sinni fyrir félagið. Nú ríki heilagt stríð Innlent 12. maí 2020 13:58
„Algjör einhugur“ á meðal flugfreyja að hafna útspili Icelandair Algjör einhugur er meðal félagsmanna FFÍ um að hafna útspili Icelandair frá 10. maí að því er fram kemur í tilkynningu frá Flugfreyjufélagi Íslands. Afstaða félagsmanna til tilboðs Icelandair var könnuð á fundi þeirra í hádeginu. Viðskipti innlent 12. maí 2020 13:37
Flugstjórar með 2,1 milljón á mánuði að meðaltali Flugstjórar hjá Icelandair eru með 2,1 milljón króna í heildarlaun að meðaltali miðað við árið 2019. Flugmenn hjá flugfélaginu eru með 1,1 milljón krónur í heildarlaun að meðaltali. Viðskipti innlent 12. maí 2020 13:04
Stjórnendaklíkur og alþjóðavæðing Í tilefni af pistli sem María Stefánsdóttir, sölustjóri Icelandair, skrifar og lýsir ömurlegu viðhorfi mínu í garð stjórnenda fyrirtækisins og nefnir meðal annars orðalag mitt um stjórnendaklíku, vil ég koma eftirfarandi á framfæri. Skoðun 12. maí 2020 12:30
„Alveg ljóst að félagsmenn eru mjög ósáttir við þetta og samstaðan er mjög mikil“ Um miðjan apríl lagði Flugfreyjufélag Íslands fram tilboð til Icelandair um langtímasamning sem fól í sér verulegar tilslakanir, aukinn sveigjanleika og lengri vinnutíma. Innlent 12. maí 2020 09:44
Höfnuðu því að bera tilboð Icelandair undir flugmenn Á fundi Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) í gær hafnaði FÍA þeirri beiðni fyrirtækisins að bera nýjan kjarasamning undir félagsmenn sína. Innlent 12. maí 2020 07:14
Launafrost til 2023 Í tillögum sem lagðar voru fram af Icelandair í kjaraviðræðum við Flugfreyjufélag Íslands í gær er farið fram á 18 til 35 prósenta launaskerðingu flugfreyja og flugþjóna hjá félaginu. Innlent 11. maí 2020 22:21
Segir þrýsting Icelandair á „óásættanlegt tilboð“ grafalvarlegan Flugfreyjufélag Íslands hvetur félagsmenn til þess að standa saman sem aldrei fyrr í kjaraviðræðum félagsins við Icelandair. Það tilboð sem Icelandair hafi lagt á borðið sé óásættanlegt og þær þvinganir sem félagið beiti í viðræðunum séu grafalvarlegar. Innlent 11. maí 2020 21:18
Hvetur flugmenn til þess að sýna áfram samstöðu þrátt fyrir þrýsting Icelandair Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna eða FÍA, sendi í kvöld bréf til félagsmanna sinna þar sem hann varaði við tilraunum Icelandair til þess að sundra samstöðu flugmanna, sem nú eiga í kjaraviðræðum við flugfélagið. Innlent 11. maí 2020 21:13
„Ömurlegt“ að lesa um árásir Ragnars Þórs á stjórnendur Icelandair María Stefánsdóttir, sölustjóri Icelandair hér á landi, segir Ragnar Þór hafa snúið út úr orðum Boga Nils Bogasonar, forstjóra félagsins. Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem María birti í dag. Innlent 11. maí 2020 20:29
Tugprósenta munur á tilboði Icelandair og væntingum flugfreyja Forseti ASÍ segir ljóst verkalýðshreyfingin þurfi að standa í lappirnar svo fyrirtæki komist ekki upp með að nýta sér aðstæðurnar til að keyra niður kjör. Innlent 11. maí 2020 18:18
Varar flugstéttirnar við að láta Icelandair kúga sig Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hvetur starfsfólk Icelandair til þess að láta ekki kúga sig út í stórfelldar launalækkanir og afsal réttinda. Viðskipti innlent 11. maí 2020 13:48
Gefur ekkert uppi um samning flugvirkja Flugmenn hafa boðið 25 prósenta kjaraskerðingu í samningaviðræðum við Icelandair. Flugfreyjur hafa sömuleiðis boðið ýmsar tilslakanir á kjörum. Fullyrt er í Morgunblaðinu í dag að þessar stéttir þurfi að taka á sig 50 til 60 prósenta skerðingu til að forða flugfélaginu frá gjaldþroti. Viðskipti innlent 11. maí 2020 11:43
Segir 60 prósenta launalækkun aldrei hafa komið til tals Formaður Félags atvinnuflugmanna segir að ekki hafi komið til tals að flugmenn hjá Icelandair taki á sig fimmtíu til sextíu prósent launalækkun. Innlent 11. maí 2020 11:27
Segir að flugfreyjur og flugmenn þurfi að taka á sig allt að 60% launalækkun Flugfreyjur og flugmenn Icelandair verða að taka á sig 50 til 60% launalækkun til þess að forða flugfélaginu frá gjaldþroti. Viðskipti innlent 11. maí 2020 08:09
Flugmenn og Icelandair funda áfram á morgun Fundi samninganefnda Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Icelandair lauk skömmu fyrir klukkan tíu í kvöld. Formaður FÍA segist vongóður um að viðræðurnar séu á réttu spori. Fundað verður áfram á morgun. Innlent 10. maí 2020 22:47
Telur Icelandair stefna í gjaldþrot að óbreyttu Icelandair stefnir að óbreyttu í gjaldþrot að sögn fjármála- og efnahagsráðherra. Ekkert tilefni sé til þess að ríkið gerist hluthafi í félaginu nema í algjörri neyð. Innlent 10. maí 2020 20:09
Flugmenn bjóðast til að taka á sig fjórðungslækkun Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur gert samninganefnd Icelandair tilboð sem felur í sér kjaraskerðingu upp á 25 prósent. Samninganefndir þeirra sitja nú á fundi sem búist er við að standi fram á kvöld. Innlent 10. maí 2020 19:55
Flugvirkjar taka á sig skerðingu með samningi við Icelandair Icelandair ehf. og Flugvirkjafélag Íslands hafa undirritað nýjan kjarasamning á milli félaganna sem gildir til ársloka 2025. Formaður Flugvirkjafélagsins segir félagsmenn taka á sig kjaraskerðingu til að veita sveigjanleika vegna ástandsins. Innlent 10. maí 2020 18:05
Flugfreyjufélagið sættir sig ekki við launaskerðingu til langs tíma Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, starfandi formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir félagsmönnum sínum brugðið yfir bréfi Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, þar sem hann segir starfsfólk félagsins helstu fyrirstöðu þess að hægt sé að bjarga félaginu frá falli. Innlent 10. maí 2020 17:09
Framtíð Icelandair á bláþræði og aðgerðir stjórnvalda í Víglínunni Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir hundruð milljaðra aðgerðir stjórnvalda þrengja að ríkissjóði í framtíðinni. Hann ræðir framtíð Icelandair og aðgerðapakka stjórnvalda í Víglínunni ásamt Helgu Völu Helgadóttur formanni velferðarnefndar sem einnig gagnrýnir frumvarp um útlendinga harðlega, Innlent 10. maí 2020 16:30