Svíar fundu fjórða lekann og Rússar benda á Bandaríkjamenn Sænska landhelgisgæslan hefur fundið fjórða gaslekann á Nord Stream gasleiðslunum, samkvæmt Svenska Dagbladet. Blaðið hefur eftir talsmanni landhelgisgæslunnar að tveir af lekunum fjórum séu í sænskri lögsögu en hinir tveir eru í danskri lögsögu. Erlent 29. september 2022 07:30
Eigendur Jets segja „skyldu sína“ að hjálpa fólki frá Úkraínu Annar af eigendum NFL-liðsins New York Jets hafa gefið eina milljón Bandaríkjadala [145 milljónir íslenskra króna] til góðgerðarmála tengdum Úkraínu og stríðinu þar í landi. Sport 29. september 2022 07:01
Leppstjórar biðja Pútín um innlimun Leppstjórar Rússlands í Luhansk- og Donetsk-héruðum hafa beðið Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um að lýsa yfir innlimun héraðanna og annarra í rússneska sambandsríkið. Búist er við því að Pútín muni lýsa yfir innlimuninni á komandi dögum. Erlent 28. september 2022 14:46
Telja gasleiðslurnar geta skemmst varanlega Óttast er að rússnesku gasleiðslurnar tvær í Eystrasalti kunni að skemmast varanlega eftir skemmdarverk sem virðast hafa verið unnin á þeim. Þýski sjóherinn ætlar að taka þátt í rannsókn á lekanum. Erlent 28. september 2022 14:36
Rússneskur keppinautur Facebook fjarlægður úr AppStore Apple hefur fjarlægt rússneska samfélagsmiðilinn VK úr AppStore í kjölfar nýjustu uppfærslu breskra refsiaðgerða gagnvart Rússum. Viðskipti erlent 28. september 2022 12:26
Óttast loftslagsstórslys vegna gaslekans Losun gróðurhúsalofttegunda frá lekanum í Nord Stream-gasleiðslunum tveimur í Eystrasalti gæti jafnast á við árslosun heillrar borgar. Vísindamenn óttast loftslagshamfarir en losun vegna lekans gæti í versta falli orðið umtalsvert meiri en árslosun Íslands. Erlent 28. september 2022 10:54
Segja 99,23 prósent hafa stutt tillögu um að heyra undir Rússland Talsmenn leppstjórna Rússa í fjórum úkranskum hérðuðum hafa lýst því yfir að yfirgnæfandi meirihluti hafi greitt atkvæði með því að heyra undir Rússland, í svokölluðum „þjóðaratkvæðagreiðslum“ sem boðað var til og haldnar í gær. Erlent 28. september 2022 06:27
Rússar sniðganga Óskarinn Rússar ætla ekki að senda inn tilnefningu til bestu erlendu kvikmyndarinnar á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fer fram í mars á næsta ári. Formaður rússnesku Óskarstilnefninganefndarinnar hefur sagt af sér vegna málsins. Bíó og sjónvarp 27. september 2022 23:45
Danir telja sprengingarnar hafa verið skemmdarverk Forsætisráðherra Danmerkur sagði á blaðamannafundi fyrr í kvöld að dönsk yfirvöld telji að sprengingarnar tvær, sem ollu leka á Nord stream gasleiðslunum í gær, hafi verið skemmdarverk. Hún sagðist þó ekkert geta gefið upp um hverjir eru taldir standa að baki skemmdarverkum. Erlent 27. september 2022 19:52
„Þetta land er Úkraína“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), segir væntanlega innlimun Rússa á fjórum héruðum Úkraínu vera marklausa og alvarlegt brot á alþjóðalögum. Hann segir að ríki NATO muni ekki láta af stuðningi við rétt Úkraínumanna til fullveldis og sjálfsvarnar og að sviðsettar atkvæðagreiðslur Rússa hafi ekki lögmæti. Erlent 27. september 2022 16:56
Glasgow og Liverpool keppast um að halda Eurovision Borgirnar Glasgow og Liverpool í Bretlandi standa nú tvær eftir í keppninni um að halda Eurovision. Samkvæmt The BBC voru þær borgir með bestu tilboðin fyrir viðburðarhaldið. Bretland var valið til þess að halda keppnina í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu, sem sigraði Eurovision. Lífið 27. september 2022 16:01
Greindu sprengingar við Nord Stream leiðslurnar Tvær sprengingar greindust greinilega á mælitækjum í Svíþjóð og Noregi þegar göt mynduðust á Nord Stream 1 og Nord Stream 2 leiðslunum í Eystrasalti. Þá birtu Danir í dag myndefni sem sýnir lekana á yfirborði hafsins. Erlent 27. september 2022 13:46
Boða innlimun, heita syndaaflausn og hóta kjarnorkustríði Atkvæðagreiðslum í Donetsk, Luhansk, Kherson og Zaporizhizhia um innlimun svæðanna í Rússland lýkur í dag. Rússneskir miðlar segja kosningaþátttöku vera komna yfir 50 prósent, sem sérfræðingar segja lygi. Erlent 27. september 2022 12:25
Lekar í Nord Stream 1 og 2 mögulega skipulagðar árásir Lekar sem uppgötvuðust í báðum Nord Stream-gasleiðslunum Eystrasalti í gær - Nord Stream 1 og 2 - kunna skýrast af því að skipulögð árás hafi verið gerð á leiðslunar. Erlent 27. september 2022 08:03
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Ná enn árangri í austri og reyna að umkringja rússneska hermenn Úkraínumenn virðast enn ná góðum árangri í áframhaldandi gagnsókn þeirra gegn Rússum í austurhluta Úkraínu. Rússar eru sagðir í töluverðum vandræðum með hverkvaðningu og hafa verið að senda lítið sem ekkert þjálfaða menn á víglínurnar í Úkraínu. Erlent 26. september 2022 15:52
Kokkur Pútíns játar að eiga Wagner Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin hefur viðurkennt að hafa stofnað og eiga málaliðahópinn Wagner Group. Hann segist hafa stofnað hópinn eftir innrás Rússa í Úkraínu 2014 og með því markmiði að senda málaliða til austurhluta Úkraínu. Erlent 26. september 2022 10:24
Rúmlega tvö þúsund handtekin í mótmælum í Rússlandi Mikil ólga er í Rússlandi í kjölfar herkvaðningar Vladímír Pútíns Rússlandsforseta. Rúmlega tvö þúsund manns hafa verið handtekin víðs vegar í Rússlandi síðan mótmæli hófust gegn ákvörðun forsetans um umfangsmikla herkvaðningu. Erlent 25. september 2022 15:12
„Mannkynsins vegna, þarf Úkraína að sigra“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra gagnrýndi innrás Rússa í Úkraínu harðlega í ræðu hennar á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir. Hún minnti á hið fornkveðna; að með lögum skal land byggja, en eigi með ólögum eyða. Innlent 24. september 2022 23:38
Geti átt yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir að flýja herkvaðningu Pútín tilkynnti rússnesku þjóðinni á miðvikudag að grípa skildi til herkvaðningar til þess að vernda Rússa á „frelsuðum svæðum.“ Lítið virðist vitað um hversu margir verði skikkaðir í herinn og hafa karlmenn haldið á flótta frá landinu vegna þessa. Pútín er sagður hafa gripið til lagabreytinga sem refsi þeim sem flýi herkvaðninguna. Erlent 24. september 2022 15:31
Mikið þurfi að koma til svo farþegum sé vísað úr vélinni Ríka ástæðu þarf til að farþega sé vísað úr vélum Icelandair. Þetta segir talsmaður félagsins um atvik þar sem farþega var vísað úr vél í gær eftir að hafa lent í ágreiningi við áhöfn um grímuskyldu og handfarangur. Innlent 24. september 2022 13:35
Vetur nálgast og Pútín er að mistakast Þar sem Pútín hefur misst alla raunverulega möguleika á að vinna hernaðarsigur, hefur hann nú gripið til þess að stöðva orkusölu til Evrópu í þeirri von að harður vetur á meginlandi Evrópu muni draga úr stuðningi við Úkraínu. Sú aðgerð felur í sér annan dómgreindarbrest ráðamanna í Kreml. Umræðan 24. september 2022 10:31
Segir atvikið aðför að blaðamönnum Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra miðilsins Fréttin.is var vísað úr flugvél Icelandair í dag sem átti að fara til Munchen en Margrét ætlaði sér til Rússlands í vinnuferð. Hún segist niðurlægð eftir atvik dagsins, Icelandair hafi brotið á hennar réttindum og hún sé tilbúin til þess að fara með málið fyrir dómstóla. Innlent 23. september 2022 21:06
Rússar flýi herkvaðningu Pútíns Mikil örtröð er sögð hafa myndast á landamærum Rússlands í kjölfar herkvaðningar Pútíns. Mikill fjöldi karlmanna bíði í bílaröð á landamærunum og freisti þess að komast hjá því að vera skikkaðir í herinn. Erlent 23. september 2022 19:59
Segja íbúa hersetinna svæða þvingaða til að greiða atkvæði Stjórnvöld í Kænugarði fullyrða að íbúar á hersetnum svæðum hafi verið hótað refsingum taki þeir ekki þátt í atkvæðagreiðslu sem leppstjórnir Rússa halda nú um helgina um hvort svæðin skuli innlimuð í Rússland. Erlent 23. september 2022 16:20
Margréti Friðriks vísað úr flugvél Icelandair Margrét Friðriksdóttir, sem er ritstjóri vefsins Frettin.is, var á leið til Rússlands í morgun en var vísað úr flugvélinni, er strandaglópur á Íslandi og getur því ekki fjallað af eigin raun um ástandið á herteknu svæðunum í Úkraínu. Innlent 23. september 2022 15:33
SÞ: Stríðsglæpir framdir á hersetnu svæðunum í Úkraínu Nauðganir, pyntingar og einangrunarvistun barna á sér stað á hersetnum svæðum Rússa í Úkraínu, að sögn yfirmanns rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Vísbendingar hafa fundist um fjölda aftaka þar sem fólk hefur verið skorið á háls eða skotið í höfuðið. Erlent 23. september 2022 12:36
Rússneskir miðlar segja atkvæðagreiðslu um innlimun hafna Samkvæmt ríkismiðlum í Rússlandi er atkvæðagreiðsla hafin á sumum þeirra hernumdu svæða í Úkraínu þar sem til stendur að halda íbúakosningu um innlimun nú um helgina. Erlent 23. september 2022 07:09
Herkvaðningin mun umfangsmeiri en Rússar segja Umfang herkvaðningar í Rússlandi gæti orðið þrisvar sinnum meira en ráðamenn hafa sagt. Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, sagði í gær að til stæði að kveðja þrjú hundruð þúsund manns í herinn og Dimítrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta, staðfesti það. Erlent 22. september 2022 22:30
Þekkja ekki deili á boðsferð fréttamanna til Lúhansk Rússneska sendiráðið hefur ekki upplýsingar um hvert stendur að baki boði til íslenskra fjölmiðla um að ferðast til Lúhansk í Úkraínu til að fylgjast með umdeildri íbúakosningu. Íslenskur karlmaður sendi fjölmiðlum boðið en vill ekki segja nákvæmlega á hvers vegum það er. Innlent 22. september 2022 18:01
Stýrivextir ekki hærri í Bretlandi frá 2008 Seðlabanki Bretlands hefur hækkað stýrivexti um 0,5 prósent og standa vextirnir nú í 2,5 prósentum og hafa ekki verið hærri síðan árið 2008. Um er að ræða sjöundu stýrivaxtahækkun bankans í röð en sérfræðingar höfðu spáð allt að 0,75 prósenta hækkun. Viðskipti erlent 22. september 2022 11:45