Í viðtali við sjónvarpsmanninn Tucker Carlson, sem birt var í gær, sagði Pútín að fangaskipti myndu líklega leiða til frelsunar blaðamannsins Evan Gershkovich.
Pútín sagði ekki berum orðum hvern hann vildi fá í staðinn en gerði ljóst að hann væri að tala um Vadim Krasikov, ofursta úr Leyniþjónustu Rússlands (FSB), sem er í fangelsi í Þýskalandi. Hann var dæmdur árið 2021 fyrir að myrða fyrrverandi leiðtoga téténskra uppreisnarmanna í almenningsgarði um hábjartan dag í Berlín í ágúst 2019.
Þýskir dómarar sögðu Krasikov hafa myrt Zelimkhan Khangoshvili að skipan yfirvalda í Rússland og með aðstoð þeirra. Hann hafi meðal annars fengið falsað vegabréf til að fremja morðið.
Carlson spurði Pútín hvort hann væri tilbúinn til að sleppa Gershkovich til að sýna góðvild en forsetinn sagðist ekki vera það. Hann sagði blaðamanninn hafa verið gómaðan við að þiggja leynilegar upplýsingar en það væri hægt að fá hann lausan í gegnum viðræður.
„Ég vil sjá hann snúa aftur til heimalands síns,“ sagði Pútín. Hann sagði viðræður yfirstandandi.
Í viðtalinu kallaði Pútín Krasikov „föðurlandsvin“ sem væri í fangelsi fyrir að hafa „útrýmt þorpara“ sem hefði banað rússneskum hermönnum í átökum í Kákasusfjöllum. Þetta sagði Pútín að hefði gerst í evrópskri höfuðborg og þó hann hafi ekki nefnt Krasikov á nafn er augljóst hvern hann var að tala um.
Fjölmiðlar vestanhafs hafa áður sagt frá því að ráðamenn í Rússlandi séu ólmir í að fá Krasikov frá Þýskalandi.
Sjá einnig: Neituðu að sleppa Whelan og Gershkovich fyrir njósnara
Í júlí 2022 slepptu Bandaríkjamenn alræmdum rússneskum vopnasala úr fangelsi í skiptum fyrir íþróttakonuna Brittney Griner, sem hafði verið handtekinn á flugvellinum í Moskvu fyrr á árinu með smávægilegt magn af kannabis-olíu í farangri sínum. Hún var svo dæmd í níu ára fangelsi.
Vopnasalinn sem sleppt var heitir Viktor Bout en hann gekk á árunum áður undir nafninu „Sölumaður dauðans“.
Sjá einnig: „Sölumaður dauðans“ á erfitt með að lýsa tilfinningum sínum
Í yfirlýsingu frá Wall Street Journal, þar sem Gershkovich vinnur, segir að þar voni fólk að hann verði frelsaður sem fyrst. Hann sé blaðamaður og blaðamennska sé ekki glæpur.
Þá segir í yfirlýsingunni að hann hafi verið ranglega handtekinn og hafi verið í fangelsi í tæpt ár fyrir að vinna vinnuna sína.
Erfiðar aðstæður fyrir fjölmiðla
Auk Gershkovich er Bandaríkjamaðurinn Paul Whelan einnig í fangelsi í Rússlandi en hann hefur setið í fangelsi um árabil fyrir meintar njósnir. Þá var Alsa Kurmasheva frá Radio Free Europe, sem er með bæði rússneskan og bandarískan ríkisborgararétt fangelsuð í fyrra.
Á undanförnum árum hefur ríkisstjórn Pútíns fangelsað fjölda rússneskra blaðamanna og lokað fjölmörgum frjálsum fjölmiðlum í Rússlandi. Aðgerðir gegn frjálsum fjölmiðlum í Rússlandi hafa aukist til muna í kjölfar innrásarinnar. Nánast allir frjálsir fjölmiðlar í landinu hafa verið gerðir útlægir og eru árásir á blaðamenn tíðar.
Þá hefur verið lokað á aðgengi almennings í Rússlandi að fjölmörgum fjölmiðlum heimsins.
Sjá einnig: Einn af morðingjum Politkovskayu náðaður eftir herþjónustu í Úkraínu
Ríkið situr í 164 sæti af 180 á lista Reporters Without Borders um fjölmiðlafrelsi í heiminum.