Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Það er mikið rætt um að auka þurfi raforkuvinnslu á Íslandi og tryggja orkuöryggi. Það er líka ástæða til að horfa vel á þá innviði sem við eigum og spyrja hvað þurfi að gera til að verja þá. Vatnsstaða Blöndulóns gefur fullt tilefni til þess. Skoðun 17.10.2026 08:02
Það er líka dýrt að bíða Sumt er nú þannig að manni verður fyrirmunað að skilja. Við tölum um að það vanti raforku, flutningskerfið hamli atvinnuuppbyggingu og hraða þurfi orkuskiptum. Skoðun 16.10.2026 09:02
Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hópreið yfir Húnavatn þykir eitt mesta ævintýrið í hestaferðum úr Vatnsdal. Fyrirtækið er orðinn einn stærsti vinnuveitandi sveitarinnar með á annan tug starfsmanna en viðskiptavinirnir eru mestmegnis konur. Innlent 20.8.2026 22:00
Agnes var meira en bara morðingi Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja. Innlent 2. júlí 2026 09:12
Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Oddviti Húnabyggðar vonast til að orka Blönduvirkjunar muni í vaxandi mæli nýtast til atvinnuuppbyggingar á Blönduósi með nýrri byggðalínu. Hann hvetur jafnframt til þess að meira verði virkjað á Blöndusvæðinu sem fyrst. Innlent 30. júní 2026 22:55
Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Sunnlenskur ýtustjóri á áttræðisaldri, sem sinnir vegagerð í Húnaþingi í sumar, segist í upphafi hafa ætlað að vera í þrjár vikur á vinnuvélum. Þær vikur séu núna orðnar 54 ár. Innlent 30. júní 2026 07:08
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar Svavar Pálsson hefur verið ráðinn í starf sveitastjóra Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu þann 1. október næstkomandi og gildir ráðningin til 30. júní 2030. Innlent 29. júní 2026 19:30
Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Landsvirkjun og Borealis Data Center hafa samið um aukin raforkukaup vegna uppbyggingar gagnavers Borealis á Blönduósi. Um er að ræða langtímasamning um kaup á 12 MW forgangsorku til viðbótar við núgildandi samning. Viðskipti innlent 23. júní 2026 14:00
Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Húnvetningar efna til rabarbarahátíðar á Blönduósi næstkomandi laugardag, 27. júní. Aðstandendur segjast vilja upphefja rabarbarann og kynna um leið allskonar rétti sem vinna má úr honum, eins og bjór, saft og freyðivín. Innlent 23. júní 2026 09:19
Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Miklar kvartanir vegna verra símasambands heyrast frá Norðurlandi eftir að slökkt var á gömlu farsímakerfunum. Oddviti Húnabyggðar segir brýnt að þétta netið með því að fjölga nýjum sendum. Innlent 18. júní 2026 22:44
Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla. Innlent 17. júní 2026 07:22
Húnvetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa Framkvæmdir eru hafnar við tvöföldun gagnavers Borealis við Blönduós til að mæta þörfum gervigreindarfyrirtækja og kalla þær á allt að tvöhundruð manns í vinnu á verktíma. Oddviti Húnabyggðar segir að milli þrjátíu og fjörutíu ný varanleg störf séu að verða til í héraðinu vegna gagnaversins. Innlent 16. júní 2026 07:07
Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Laxveiðitímabilið er að hefjast þessa dagana í ám landsins, þar á meðal í Vatnsdalsá í Húnaþingi. Hinn heimsfrægi tónlistarmaður Eric Clapton er einn þriggja leigutaka Vatnsdalsár. Innlent 11. júní 2026 06:06
Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Nú styttist væntanlega mjög í að Alþingi samþykki samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030 auk frumvarps til laga um nýtt innviðafélag sem annist gerð vega og annarra samgöngumannvirkja og innheimti gjald fyrir notkun þeirra. Skoðun 9. júní 2026 10:15
„Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason og fjölskylda hans týndu „enn og aftur“ tuskudýrinu Sæta Stebba á ferðalagi um Norðurland. Ævintýralemúrinn hefur einstakt lag á að týnast, tvívegis verið grafinn lifandi og varði nokkrum á golfvellinum í Öndverðarnesi. Lífið 4. júní 2026 15:19
Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta D-listinn í Húnabyggð bætti við sig manni í sveitarstjórnarkosningunum í gær og á nú fimm sveitarstjórnarmenn af níu. Hann ræður þannig meirihluta. Innlent 17. maí 2026 09:40
Að kjósa af yfirvegun Ég man ekki allt úr æsku minni. Minnið virkar sjaldan þannig. Það sem situr eftir eru minningarbrot, í ljóma fortíðar og á stangli. Skoðun 7. maí 2026 20:33
Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Björgunarsveitir hafa nú náð til skíðagönguskíðamanna sem voru á Hofsjökli og óskuðu aðstoðar. Þeir hafa verið flutt í skjól og unnið er að því að ná búnaði þeirra einnig niður af jöklinum. Innlent 13. mars 2026 15:47
Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Kona sem sofnaði undir stýri hópferðabifreiðar sem lenti utan vegar sunnan við Blönduós árið 2023 var dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi. Hún var sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi vegna áverka sem þrír farþegar hlutu í slysinu. Innlent 20. febrúar 2026 14:53
Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Hringvegurinn mun styttast umtalsvert á nokkrum köflum á Suðausturlandi á næstu tíu til fimmtán árum. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir styttingu framhjá Blönduósi, samkvæmt áformum sem kynnt eru í samgönguáætlun. Innlent 22. desember 2025 21:51
„Við erum með stórt sár á sálinni“ Ellefu manna fjölskylda slapp lygilega vel úr alvarlegu bílslysi á Þverárfjallsvegi á leið sinni úr skírnarveislu á Sauðarkróki. Fjölskyldan sem taldi afa og ömmu, þrjú uppkomin börn þeirra og fjögur barnabörn þeirra ferðaðist á tveimur bílum, einn fyrir framan annan, þegar bíll þveraði veginn og skall á bílunum tveimur með þeim afleiðingum að báðir fóru út af og annar valt. Innlent 26. nóvember 2025 19:02
Allir bílarnir ónýtir og mildi að ekki fór verr Varðstjóri hjá lögreglunni á Norðvesturlandi segir mildi að ekki hafi farið verr þegar að tvö umferðarslys urðu með um fimmtán mínútna millibili á svæðinu í gær. Aksturskilyrði versnuðu mjög skyndilega. Vegurinn hafði ekki verið hálkuvarinn. Innlent 24. nóvember 2025 12:02
Þrír fluttir með þyrlu en enginn í lífshættu eftir tvo árekstra á Norðvesturlandi Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur eftir að tvö umferðarslys urðu á svipuðum tíma á Norðurlandi vestra síðdegis í dag, við Blönduós annars vegar og í Miðfirði hins vegar. Allir hinna slösuðu eru komnir undir læknishendur en enginn er talinn í lífshættu, að sögn viðbragðsaðila. Innlent 23. nóvember 2025 22:09
Þriggja fólksbíla árekstur nálægt Blönduósi Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið ræst út eftir að árekstur varð milli þriggja fólksbíla á Þverárfjallsvegi í Austur-Húnavatnssýslu upp úr klukkan 16 í dag. Tólf manns voru í bílunum. Einhverjir hafa verið fluttir undir læknishendur. Miklar umferðartafir eru á Norðurlandi vestra en annað bílslys varð á svæðinu á svipuðum tíma. Innlent 23. nóvember 2025 17:47