Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Atli Ísleifsson skrifar 23. júní 2026 14:00 Frá vinstri er Landsvirkjunarfólkið Ingvar Christiansen, lögmaður, Halldór Kári Sigurðarson, viðskiptastjóri, Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir, forstöðumaður viðskiptagreiningar, Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptaþróunar og Hörður Arnarson, forstjóri. Þá Borealis-fólkið Björn Brynjúlfsson, forstjóri, Elfa Björg Aradóttir, fjármálastjóri og Soffía Halldórsdóttir, innkaupastjóri. Yst til hægri er Valur Ægisson, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Landsvirkjun. Landsvirkjun Landsvirkjun og Borealis Data Center hafa samið um aukin raforkukaup vegna uppbyggingar gagnavers Borealis á Blönduósi. Um er að ræða langtímasamning um kaup á 12 MW forgangsorku til viðbótar við núgildandi samning.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. Þar segir að Borealis hafi verið viðskiptavinur Landsvirkjunar frá því að starfsemi þess hófst hér á landi árið 2018. „Auk gagnaversins á Blönduósi rekur Borealis einnig gagnaver í Reykjavík, í Reykjanesbæ og í Finnlandi. Þróun gervigreindar eykur eftirspurn Megináhersla gagnavera á Íslandi er á gervigreind og þjónustu við viðskiptavini sem þurfa gagnageymslu og mikla reiknigetu. Þessi þróun á sér stað á heimsvísu og Evrópusambandið hefur til að mynda sett sér það markmið að þrefalda afkastagetu gagnavera í álfunni á næstu fimm til sjö árum. Undanfarin misseri hafa alþjóðleg tæknifyrirtæki í auknum mæli leitað til Norðurlandanna til að reisa gagnaver en aðgengi að endurnýjanlegri orku og kalt loftslag gera þau að álitlegum kosti. Í nýbirtri atvinnustefnu Íslands er horft til þess að vöxtur gagnavera sé tækifæri til þess að auka framleiðni og verðmætasköpun í hagkerfinu. Í atvinnustefnunni er lögð áhersla á háframleiðni-iðnað og fjölbreyttan útflutning með lágt kolefnisspor sem skapi fjölbreytt störf um allt land. Uppbygging gagnavers Borealis á Blönduósi samræmist þessari framtíðarsýn en þar er m.a. verið að þjónusta nýjustu kynslóð af vökvakældum NVIDIA-búnaði til að veita gervigreindarþjónustu. Samhliða fjölgun gagnaversbygginga er Borealis einnig að bæta við aðstöðu fyrir starfsfólk og viðskiptavini sem munu starfrækja þar eigin starfsstöðvar. Þá er mikilvægt að raforkunotkun sé dreifð um landið líkt og framleiðsla hennar og með þetta í huga er Blönduós góður afhendingarstaður til framtíðar. Uppbygging gagnavera um allt land hefur leitt til aukinnar raforkunotkunar en þau nota nú rúmlega 70 MW eða um 3,5% af heildarorkunotkun hér á landi,“ segir í tilkynningunni. Stafræn vegferð Haft er eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar, að umbreytingin í rekstri gagnavera undanfarin misseri sé í takt við stefnu Landsvirkjunar um að styðja við stafræna vegferð samfélagsins. „Öflugur gagnaversiðnaður er mikilvægur fyrir samkeppnishæfni Íslands og það mikilvægi verður æ ljósara eftir því sem gervigreind sækir í sig veðrið. Landsvirkjun fagnar nýjum samningi við Borealis, hann er hluti af uppbyggingu þessa mikilvæga iðnaðar. Þá segir Björn Brynjúlfsson, forstjóri Borealis, að eftirspurn eftir innviðum fyrir gervigreind og afkastamikla reiknigetu vaxi hratt og að við séum farin að sjá hvernig þessi tækni sé að breyta heiminum. „Ísland hefur tækifæri til að verða öflugur þátttakandi í aðfangakeðju gervigreindar með uppbyggingu innviða og þjónustuframboðs sem styður við þessar tækniframfarir. Þessi samningur við Landsvirkjun gerir okkur kleift að halda áfram uppbyggingu á Blönduósi, fjölga störfum og auka fjölbreytni í íslenskum útflutningi.“
Landsvirkjun Gagnaver Húnabyggð Orkumál Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira