Willum hrifinn af norska módelinu Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. júlí 2026 13:30 Willum Þór Þórsson er forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. vísir / ÍVAR Norðmenn hafa náð mögnuðum árangri á sviði íþrótta að undanförnu og „norska módelið“ hefur vakið mikla athygli. Forseti ÍSÍ, Willum Þór Þórsson, segir Ísland vera með svipaða stefnu en ekki fylgja henni nægilega vel eftir. Willum vill sjá fleiri ungmenni æfa fleiri en eina íþrótt, fækka ferðalögum milli landshluta og auka við afreksstarf.
Noregur fékk flest verðlaun allra þjóða á Vetrarólympíuleikunum í byrjun árs og náði alla leið í átta liða úrslit HM í fótbolta. Mörg fleiri dæmi um framúrskarandi norskt íþróttafólk má finna, á sviði golfs (Viktor Hovland), tennis (Casper Ruud), skákborðsins (Magnus Carlsen) og hlaupa (Ingebrigtsen bræður), svo eitthvað sé nefnt. Hvers vegna hafa Norðmenn, þrátt fyrir fámenni, náð þessum ótrúlega árangri í íþróttum? Hvað felst í þessu norska íþróttamódeli? Willum Þór, forseti ÍSÍ, svaraði því í Bítinu á Bylgjunni. Willum nefndi Erling Haaland, einn besta fótboltamann heims, sem dæmi um árangur norska íþróttamódelsins. Haaland æfði fleiri en eina íþrótt sem barn í Noregi. Hann er einnig með bakgrunn í handbolta, frjálsum íþróttum og vetraríþróttum en hefur náð hæstu hæðum í fótboltanum, þrátt fyrir að hafa ekki einblínt á fótbolta fyrr en hann var fjórtán ára gamall. Erling Haaland er dæmi um fjölíþróttabarn sem náði frábærum árangri á fullorðinsárum í fótbolta. Buda Mendes/Getty Images Sömuleiðis sagði Willum stóran þátt í norska módelinu að veita ekki verðlaun til ungra barna, eins og í Noregi þar sem bikarar eru ekki kynntir til sögunnar fyrr en um þrettán ára aldur. Þar sé einnig lögð áhersla á að fækka ferðalögum milli landshluta og hafa fleiri svæðisbundnar keppnir fyrir börn. „Það er hluti af þessu módeli og við ættum örugglega að horfa inn í það. Ég heyri það, í kjölfari af þessu stefnumótunarsamtali sem við fórum í eftir síðasta íþróttaþing, að um allt land er áhersla á aukinn kostnað sem snýr að dýrum ferðalögum sem fylgja mótahöldum. Og það að krakkarnir fái að prófa, taka pressuna af þeim í keppni. Við erum með þetta í stefnunni en erum ekki að fylgja því eftir,“ segir Willum. Hann leggur sérstaka áherslu á ágæti þess að æfa fleiri en eina íþrótt. „Hér áður fyrr voru heilu kynslóðirnar í árstíðabundnum íþróttum. Þú varst með sumaríþróttir, vetraríþróttir og fólk prófaði flest. Ég get alveg rakið það, okkar besta íþróttafólk í sögunni var í fleiri íþróttagreinum og stóð sig vel. Þetta hefur breyst því framboðið er þannig í hverri grein að það er æft oft í viku, vissulega með faglegum áherslum, en það er bara ekki tími fyrir krakkana að æfa fleiri en eina grein… Sum félög passa upp á þetta, þannig að krakkarnir geti prófað og farið á milli greina, en stundum bara stangast þetta á. Framboðið er orðið það mikið í hverri grein og allt árið um kring. Kostnaðurinn hefur aukist og tómstundastyrkirnir duga varla fyrir fleiri en einni grein. Þannig að við erum ekki að fylgja því sem við segjumst ætla að gera.“
ÍSÍ Íþróttir barna Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Hadjar frá í aðra keppni Formúla 1 Fleiri fréttir Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Lando Norris stofnar sitt eigið lið Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Hadjar frá í aðra keppni Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Sindri fær sænskan landsliðsmann Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Liverpool fékk nýjan markvörð Tiger missir bílprófið í fimm ár Aron er kominn inn í hausinn á Víkingum Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira