Hestar

Hestar

Fréttir af hestamennsku og þættir af Stöð 2 Sport.

Fréttamynd

Hæfileikadómum hryssna lokið á HM

Hæfileikadómum hryssna er lokið á HM í Hollandi og stendur Urður frá Gunnarsholti efst í flokki 7 vetra og eldri með 8.54, en hún er sýnd af Þórði Þorgeirssyni fyrir Ísland. Jolly Schrenk sýndi Broka frá Wiesenhof í flokki 6 vetra og stendur hún efst þar með 8,27, en Jolly keppir fyrir Þýskaland.

Sport
Fréttamynd

Byggingadómum kynbótahrossa lokið á HM 07

Byggingadómum allra kynbótahrossa var að ljúka á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi en dómar hafa staðið yfir í allan dag. Hæfileikadómar kynbótahrossa hefjast á morgun og verður spennandi að fylgjast með hvernig hross og knapar standa sig.

Sport
Fréttamynd

Gæðingurinn Dalvar lækkar í byggingadómi á HM 07

Byggingadómum kynbótahrossa íslensku keppendanna var að ljúka á HM í Hollandi nú rétt í þessu, en dómstörfum er ekki endanlega lokið. Dalvar frá Auðholtshjáleigu lækkaði í byggingadómi úr 8,40 í 8,36 en hann lækkaði fyrir bak og lend úr 8,5 í 8,0.

Sport
Fréttamynd

HM í hestaíþróttum hafið í Hollandi

Heimsmeistaramót íslenska hestsins hófst í morgun í Oirschot í Hollandi. Landsliðseinvaldurinn Sigurður Sæmundsson sagði í samtali við blaðamann hestafrétta nú rétt í þessu að allir íslensku hestarnir hafi farið í læknis- og fótaskoðun í morgun og hafi þeir allir staðist hana.

Sport
Fréttamynd

Heimsmeistaramót íslenska hestsins hefst á morgun

Heimsmeistaramót Íslenska hestsins byrjar á morgun, mánudag í Hollandi klukkan 8.00 en þá eru fánar dregnir að húni. Klukkan 9.00 hefst svo byggingadómar kynbótahrossa og samkvæmt dagskrá mótsins á mánudagurinn að enda með rólegri kvöldsstund í veislutjaldi.

Sport
Fréttamynd

Bikarmót Norðurlands 2007

Bikarmót Norðurlands 2007 í hestaíþróttum verður haldið við Hringsholt í Svarfaðardal föstudaginn 17. og laugardaginn 18. ágúst nk. þar sem etja kappi knapar og hestar af Norður- og Austurlandi. Um er að ræða sveitakeppni, þar sem keppt er í öllum helstu greinum hestaíþrótta.

Sport
Fréttamynd

Haukur fékk Riddarabikar Sleipnis

Páll Bragi Hólmarsson var efsti Sleipnisfélagi á nýafloknu Gæðingamóti Sleipnis og fékk hann Sleipnisskjöldinn að launum. Haukur (Toyota) Baldvinsson fékk Riddarabikar Sleipnis sem er veittur þeim Sleipnisfélaga sem þykir sína yfirburða íþróttamannslega hegðun.

Sport
Fréttamynd

FEIF staðfestir heimsmet Sigga Sig

FEIF hefur staðfest tíma Sigurðar Sigurðarsonar á Drífu frá Hafsteinsstöðum sem heimsmet í 100m skeiði en þau fóru á tímanum 7,18 á Skeiðleikum Skeiðfélagsins og Glitnis sem haldnir voru miðvikudaginn 4. Júlí síðastliðin.

Sport
Fréttamynd

Sigurður setur heimsmet á Drífu í 150m skeiði

Hrossabændurnir Siggi Sig og Sigurbjörn Bárðar eru sigurvegarar á Skeiðleikum Skeiðfélagsins og Glitnis sem fram fóru á Selfossi nú í kvöld. Sigurður gerði sér lítið fyrir og sveif yfir hundrað metrana á 7,18 sekúntum á henni Drífu sinni sem er óstaðfest heimsmet. Sigurbjörn sigraði bæði í 250m og 150m metra skeiðinu.

Sport
Fréttamynd

Hestamennskan er lífsstíll og baktería sem maður losnar aldrei við

Á fallegum sumardegi á Norðfirði er Steinar Gunnarsson lögregluvarðstjóri í Neskaupsstað og yfirhundaþjálfari Ríkislögreglustjóra að undirbúa hestana sína fyrir fjórðungsmótið á Egilsstöðum sem fer fram dagana 27 til 30 júní. Steinar er mikill hestamaður á á nokkra glæsilega gæðinga sem hann lætur Elísabeti Ýr, 13 ára gamalli dóttur sinni eftir að keppa á.

Sport
Fréttamynd

Vel heppnuðu Íslandsmóti yngri flokka í hestaíþróttum lokið

Íslandsmóti barna, unglinga og ungmenna lauk í dag á félagssvæði Gusts í Kópavogi. Í dag var keppt í A úrslitum í öllum flokkum. Það má með sanni segja að þegar mót eru haldin í Gusti þá vantar ekkert uppá! framkvæmd mótsins var með besta móti enda ekki neinir amatörar þar á ferðinni.

Sport
Fréttamynd

Tilþrif dagsins á Íslandsmóti yngri flokka

Tilþrif dagsins í dag átti án efa Linda Rún Pétursdóttir og hestur hennar Gormur frá Brávöllum. Eins og sést á meðfylgjandi myndum prjónaði klárinn nánast yfir sig í verðlaunaafhendingu í B-úrslitum í fjórgangi ungmenna nú í dag.

Sport
Fréttamynd

Ljósmyndir og myndskeið á Vef TV Hestafrétta

Á Vef TV Hestafrétta eru komnar inn upptökur af gæðingaskeiði unglinga og ungmenna sem haldið var í dag á Íslandsmóti yngri flokka í Glaðheimum í Gusti. Ljósmyndir frá tölti ungmenna, unglinga og barna ásamt gæðingaskeiði unglinga og ungmenna.

Sport
Fréttamynd

Ragnar Tómasson og Valdimar Besgstað Íslandsmeistarar

Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði í unglingaflokk eru þeir Ragnar Tómasson með Móses frá Grenstanga og Valdimar Bergstað í ungmennaflokki með Glaum frá Torfufelli. Forkeppni í tölti í öllum flokkum er lokið og er Fanney Dögg Indriðadóttir á Dögg frá Múla efst í ungmennaflokk,

Sport
Fréttamynd

Hákarlar í Töltinu á FM 07

Það eru sannkallaðir hákarlar sem koma til með að berjast um glæsileg peningaverðlaun í opnum flokki í tölti á Fjórðungsmóti Austurlands. Tveir Íslandsmeistarar eru skráðir þar til leiks, Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi og Hans Kjerúlf á hinum 17 vetra höfðingja Laufa frá Kollaleiru.

Sport
Fréttamynd

Darri fær heiðursverðlaun

Stóðhesturinn Darri 1021 frá Kampholti fékk heiðursverðlauná kynbótasýningu í Hedeland í Danmörku nú fyrir stuttu. Í Damörku er dæmt ennþá eftir gömlu íslensku reglunum sem voru í gildi til ársins 1989, þar sem skilyrðin fyrir því að fá heiðursverðlaun eru meðaleinkunn upp á 8,10 fyrir 12 bestu afkvæmin. Darri fékk meðaleinkunn 8,11 fyrir 12 bestu afkvæmi sín.

Sport
Fréttamynd

Folatollar til styrktar landsliðinu

Undirbúningurinn fyrir heimsmeistaramótið er nú í fullum gangi. Nú þegar er búið er að velja fimm knapa til fararinnar auk heimsmeistaranna frá því síðast og enn eiga eftir að bætast í hópinn fjórir íþróttaknapar, eitt ungmenni og sex kynbótahestar.

Sport
Fréttamynd

Úrtöku fyrir HM 2007 lokið

Í dag lauk úrtöku fyrir HM í hestaíþróttum sem haldin var á félagssvæði Fáks. Sigurður Sæmundsson landsliðseinvaldur boðaði til fréttafundar eftir úrtöku til að kynna fyrstu knapa í landsliðið. Upptökur af kynningu Sigurðar, sýningu Þórarinns og skeiðspretts Sigursteins eru komnar á Vef TV Hestafrétta.

Sport
Fréttamynd

Færeyjingar koma með hóp á FM´07

Nú eru gestir á FM´07 farnir að gíra sig upp til ferðalaga. Að venju er vitað af gestum víðsvegar af landinu, og erlendis frá einnig. Jóhan á Plógv frá Færeyjum, meðlimur í Ríðingafélaginu Vága, hefur haft samband við mótshaldara og boðað komu hóps frá Færeyjum.

Sport
Fréttamynd

Yfirlitssýningu lokið á Sörlastöðum

Yfirlitssýningu á Sörlastöðum er lokið. Tveir umtöluðustu hestar sýningarinnar Dalvar frá Auðholtshjáleigu og Álfasteinn frá Selfossi voru sýndir í sama hollinu. Álfasteinn hækkaði úr 8.47 í 8.50 og Dalvar hélt sinni einkunn eða 8.62. Hæst dæmdi stóðhestur sýningarinnar var Atlas frá Hvolsvelli með 8.66 sýndur af Daníel Jónssyni. Meðfylgjandi eru dómar sýningarinnar.

Sport
Fréttamynd

Yngsti Kynbótaknapi frá upphafi

Ragnar Þorri Vignisson sló heldur betur í gegn á yfirlitssýningu kynbótahrossa í Hafnafirði en hann er aðeins 9 ára og sýndi hryssuna Tönja frá Hvammi 5v flokk. Ragnar er sonur Vignis Siggeirssonar Heimsmeistara og Lovísu Ragnarsdóttir.

Sport
Fréttamynd

Þórarinn og Kraftur efstir í tölti meistara

Þórarinn Eymundsson er efstur í tölti meistara á klár sínum Krafti frá Bringu með 8.13. Keppni í tölti er lokið og eru meðfylgjandi öll úrslit töltgreina á úrtöku fyrir Heimsmeistaramótið.

Sport
Fréttamynd

Sigur á Fjórðungsmóti

Hans Friðrik Kjerúlf á Reyðarfirði hefur keypt stóðhestinn Sigur frá Hólabaki. Hann mun því keppa í flokki 4 vetra stóðhesta á FM07. Sigur vakti mikla athygli á héraðssýningu kynbótahrossa í Skagafirði á dögunum fyrir fegurð og útgeislun. Einkum þykir hann fallegur á litinn, dökk sótrauður með ljósara fax og tagl.

Sport
Fréttamynd

Álfasteinn lækkaði undir Þórði Þorgeirs

Ja nú er það spurning hvort hrossabóndinn í Akurgerði þurfi í tíma hjá FT formanninum en Álfasteinn lækkaði í forsýningu á Sörlastöðum nú í kvöld í 8.47 en hann fékk 8.54 á Hellu.

Sport
Fréttamynd

Hérðassýning kynbótahrossa við Hringsholt

Héraðssýning kynbótahrossa hefur staðið undanfarna daga við Hringsholt og mættu um 100 hross til dóms. Dómum lauk í gærkveldi, en í dag, fimmtudaginn 14. júní fer fram yfirlitssýning en hún hófst kl. 10:00. Byrjað var á yngstu hryssunum og endað á elstu stóðhestunum.

Sport
Fréttamynd

Úrtaka fyrir HM í hestaíþróttum

Í dag hófst úrtaka fyrir Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum á félagssvæði Fáks í Víðidal. Það var hart barist í þremur af þeim fjórum greinum sem voru í dag, en aðeins keppandi var í 100m skeiði. Meðfylgjandi eru úrslit dagsins. Dagskrá hefst aftur á morgun klukkan 13.00 slaktaumatölti T2 .

Sport
Fréttamynd

Einn magnaðasti skeiðsprettur ársins 2006

Skeiðspretturinn ógurlegi á milli Sæs frá Bakkakoti og Ás frá Ármóti á Landsmóti 2006 er kominn inn á vef TV Hestafrétta. Það er sjaldgæft að sjá svona höfðinga takast á á vellinum á fljúgandi skeiði.

Sport
Fréttamynd

Rífleg peningaverðlaun í tölti og skeiði

Rífleg peningaverðlaun eru í boði í tölti og 100 m skeiði á FM07. Alls eru veittar 200 þúsund krónur í verðlaun í hvora keppnisgrein: 100 þúsund á fyrsta sæti og 50 þúsund á annað og þriðja sæti.

Sport