Hestar

Hestar

Fréttir af hestamennsku og þættir af Stöð 2 Sport.

Fréttamynd

Heimsmet á Hvammsvelli í kvöld

Nói frá Stóra-Hofi Illingssonur fékk 8,48 í aðaleinkunn í flokki fjögurra vetra stóðhesta. Þetta er hæsti dómur sem fallið hefur. Nói getur enn bætt einkunn sína í yfirlitssýningu.

Sport
Fréttamynd

Fura frá Hellu langefst í fimm vetra flokki hryssna

Dómum í 5 vetra flokki hryssna var að ljúka í blíðunni í Víðidal á Landsmóti hestamanna en þetta er langstærsti flokkurinn í kynbótadómum mótsins. Klárhryssan Fura frá Hellu fékk langhæstu einkunnina.

Sport
Fréttamynd

Hestur féll á lyfjaprófi í Noregi - kókaín í blóðsýninu

Veðhlaup þar sem hestar draga kerru á eftir sér njóta vinsælda á Norðurlöndunum og víðar en í Noregi er komið upp mál sem er engu líkt. Lyfjaeftirlit er mjög öflugt í þessari íþróttagrein og niðurstöður úr blóðsýni sem tekið var úr hestinum Zalgado Transs R gáfu til kynna að kókaín væri í blóðrásarkerfi hestsins.

Sport
Fréttamynd

Hestar falla á lyfjaprófi

Tilkynnt hefur verið um að fjórir hestar hafi fallið á lyfjaprófi á Ólympíuleikunum í Peking. Lyfið casaicin fannst í hrossunum en það er stranglega bannað í hestaíþróttum.

Sport
Fréttamynd

Slóvenar skelltu Norðmönnum

Slóvenar unnu í kvöld óvæntan sigur á heimamönnum Norðmönnum í milliriðli 1 á EM 33-29. Þetta þýðir að Norðmenn eru enn í þriðja sæti riðilsins með 5 stig en Slóvenar eru komnir með 4 stig.

Sport
Fréttamynd

Hrímnir frá Hrafnagili er fallinn 32 vetra

Einn mesti gæðingur allra tíma er fallinn. Hrímnir frá Hrafnagili var heigður við húsvegg heima á Varmalæk í dag. Hrímnir hefur verið við góða heilsu fram til þessa og verið undir nánu eftirliti Björns eiganda síns dag hvern. Hrímnir var ásamt öðrum hesti í garðinum heima á Varmalæk og veiktist skyndilega í morgun.

Sport
Fréttamynd

Óttuðust að Blæ frá Torfunesi væri ekki hugað líf

"Ljóst er að hesturinn hefur mátt sæta illri meðferð og hefur nú verið settur í umsjá dýralækna þar sem reynt verður að byggja upp fyrra þrek og þol“. Mál Blæs frá Torfunesi hefur verið tilkynnt til dýraverndunaryfirvalda með vísan til Dýraverndunarlaga nr. 15/1994 og Búfjárlaga nr. 103/2002 og verður rekið í þeim farvegi". Segir í tikynningu frá Blær ehf.

Sport
Fréttamynd

Símaviðtal við Jens Einarsson nýráðin ritstjóra LH Hestar

Eins og fram hefur komið þá hefur Landssamband hestamannafélaga gert samning við 365 miðla um útgáfu á átta síðna blaði um hesta og hestamennsku, sem mun koma sem innblað í Fréttablaðinu einu sinni í mánuði. Ritstjóri þessa nýja blaðs er Jens Einarsson, einn mesti hestapenni landsins, Hestafréttir sló á þráðinn til Jens og ræddi við hann um nýja verkefnið.

Sport
Fréttamynd

Siggi Sig með yfirburða sigur í skeiðinu

Sigurður Sigurðarson átti stórleik á Glitnismóti Dreyra sem lauk í gær. Sigurður sigraði gæðingaskeið meistara á henni Drífu sinn á tímanum 8.50. Næstur Sigurði var nafni hans V. Matthíasson á tímanum 7.92 á Birting frá Selá. Þarna sést vel hversu yfirburðar skeiðhestur hún Drifa er.

Sport
Fréttamynd

Viðar Ingólfs sigrar tölt meistara á Tuma

Stórsnillingurinn Viðar Ingólfsson sigraði tölt meistara sem var síðasta greinin á vel heppnuðu Glitnismóti Dreyra sem haldið var nú um helgina. Viðar keppti á stórgæðingnum Tuma frá Stórahofi með einkunnina 8.50. Það var svo hrossabóndinn og spekúlantinn Sigurður Sigurðarson á Þjóðólfshaga sem sigraði tölt 1. flokkinn á Kjarnorku frá Kjarnholtum með 7.83 í einkunn.

Sport
Fréttamynd

Stian Pedersen tvöfaldur heimsmeistari

Gríðarlega harðri keppni var að ljúka í töltinu á HM í Hollandi og var það Stian Pedersen sem sigraði eftir dramatíska keppni með 8.56 í aðaleinkunn á Jarl frá Miðkrika og er hann því tvöfaldur heimsmeistari en hann sigraði fjórganginn fyrr í dag.

Sport
Fréttamynd

Jolly Schrenk er heimsmeistari í slaktaumatölti

Jolly Schrenk er heimsmeistari í slaktaumatölti á Laxness vom Stördal með 8.50, en keppni var að ljúka núna á HM í Hollandi. Jolly átti frábæra sýningu og ekki vantaði fagnið hjá þjóðverjunum í áhorfendastúkunni þegar úrslitin voru kunn. Í öðru sæti varð Eyjólfur Þorsteinsson á Hárek frá Vindási með 8.29.

Sport
Fréttamynd

Mannlífið á HM íslenska hestsins

Mannlífið á HM í Hollandi er engu líkt og er talið að um 13.000 manns séu á svæðinu þennan loka dag mótsins. Fjölnir Þorgeirsson ljósmyndari Hestafrétta tók púlsinn á fólkinu og er ekki annað að sjá en að allir séu í topp formi og allir glaðir.

Sport
Fréttamynd

Bergþór tvöfaldur heimsmeistari í skeiði

Bergþór Eggertsson var í þessu að vinna 100m skeiðið á Lótus van Aldenghoor með 7.63. Þetta er annar heimsmeistaratitill Begga en hann vann einnig 250m skeiðið. Í öðru sæti varð Emelie Romland á Mjölnir frá Dalbæ með tímann 7.71 og í þriðja sæta höfnuðu Nicole Mertz og Óðinn von Moorflur með tímann7.73. Siggi Sig endaði í fimmta sæti á Flugari frá Holtsmúla.

Sport
Fréttamynd

Þórarinn Eymundsson er heimsmeistari í fimmgangi

Þórarinn Eymundsson var að vinna fimmganginn á heimsmeistaramótinu í Hollandi á undrahestinum Kraft frá Bringu með 8.10. Sýning Þórarinns var nokkuð góð og fékk hann m.a 9,17 fyrir tölt en fetið var frekar slakt en hann fékk aðeins 5.15. Í öðru sæti var Frauke Schenzel á Næpu vom Kronshof með 7.52 og í þriðja sæti hafnaði Piet Hoyos og Kvist frá Ólafsvöllum með 7.38.

Sport
Fréttamynd

Stian Pedersen heimsmeistari í fjórgangi

Stian Pedersen átti frábæara sýningu í fjórgangi á heimsleikum í Hollandi í dag og vann örugglega á hesti sínum Jarl frá Miðkrika með einkunina 8.60. Jarl og Stian fengu 9.50 fyrir yfirferðatöltið og voru fagnaðarlætin gríðarleg eftir sýninguna.

Sport
Fréttamynd

Bergþór er Heimsmeistari í 250m skeiði á Lótus

Keppni í 250m skeiði var að ljúka á heimsleikum íslenska hestsins í Hollandi. Bergþór Eggertsson er Heimsmeistari á Lótus van Aldenghoor með tímann 21.55 en það er tíminn sem hann fékk í gær. Í öðru sæti er Sigursteinn Sumarliðason á Kolbein frá Þóroddsstöðum sem er þegar orðin heimsmeistari í gæðingaskeiði. Emelie Romland hafnaði í þriðja sæti á Mjölni frá Dalbæ með tímann 21.77.

Sport
Fréttamynd

B úrslitum í T1 og T2 lokið á HM

B úrtslit í Tölti T1 og T2 var að ljúka hér í Hollandi en keppni hófst í morgun. Helena Aðalsteinsdóttir var efst í töltinu með 7.61 og mætir með hest sinn Seth fra Nøddegården í A- úrslit á morgun. Sömu sögu er að segja frá slaktaumatöltinu en þar var efst Eva-Karin Bengtsson á Kyndil frá Hellulandi með 7.50 og mætir hún þá í A – úrslit á morgun.

Sport
Fréttamynd

Yfirlitssýningu stóðhesta lokið á HM 07

Það voru ekki miklar breytingar á röðun stóðhesta eftir yfirlitssýningu á HM í Hollandi í morgun. Helst er að segja frá því að Þórður Þorgeirsson koma ríðandi inn á Garra frá Reykjavík í flokki 7 vetra hesta en Jóhann Skúlason hefur verið knapi á honum.

Sport
Fréttamynd

Þórarinn toppar enn og aftur - 7,50

Þórarinn Eymundsson og Kraftur eru efstir með 7.50 eftir forkeppni í fimmgangi sem var að ljúka á HM í Hollandi. Að sögn eins áhorfanda sem blaðamaður Hestafrétta talaði við rétt í þessu var sýning Þórarinns hreint út sagt æðisleg. Í öðru sæti er Frauke Schenzel og Næpa vom Kronshof með 7.13 og í þriðja sæti er Anna Valdimarsdóttir og Fönix vom Klosterbach með 7.03 í aðaleinkunn.

Sport
Fréttamynd

Jói Skúla á toppnum eftir forkeppni í tölti

Þá er hörku forkeppni í tölti á heimsleikum íslenska hestsins lokið í Hollandi, en hún hefur staðið yfir frá því klukkan 10.00 í morgun. Jóhann Skúlason er lang efstur með einkunnina 8.87 á Hvin frá Holtsmúla og á hæla honum kemur tvöfaldi íslandsmeistarinn Þórarinn Eymundsson

Sport
Fréttamynd

Heimsmeistarar frá árinu 1999

Hver varð heimsmeistari í tölti 2001?, eða í fimmgangi 1999?, eða í fjórgangi 2003?. Það er alltaf gaman að skoða og spá og spekúlera og rifja upp hverjir voru heimsmeistarar hverju sinni. Á meðfylgjandi lista eru allir heimsmeistarar frá árinu 1999 í hestaíþróttum og eru nokkrir á honum sem eru með áskrift á heimsmeistaratitlum.

Sport