Viktor: Elliði sagði mér að vera reiður „Það er alla vega langur tími þar til ég gleymi þessari stund. Þetta var sturlað,“ sagði hinn 21 árs gamli Viktor Gísli Hallgrímsson eftir heimsklassaframmistöðu í ótrúlegum sigri Íslands á Ólympíumeisturum Frakklands á EM. Handbolti 22. janúar 2022 19:36
Einkunnir eftir sigurinn frækna á Frökkum: Frammistaða sem sagði sex og margir léku sinn besta landsleik Margir áttu stórleik þegar íslenska karlalandsliðið í handbolta vann einn sinn merkasta sigur í sögunni í kvöld. Þrátt fyrir að vera án átta lykilmanna vann Ísland Ólympíumeistara Frakklands með átta marka mun, 21-29, í milliriðli I á EM. Handbolti 22. janúar 2022 19:24
Ómar Ingi: Vorum alvöru lið í kvöld Ómar Ingi Magnússon var stórkostlegur í leiknum í kvöld og skoraði tíu mörk. Hann var alger lykilmaður í að smíða forystuna í fyrri hálfleik. Hann mæti í viðtal eftir leikinn en varaði við því að fljúga of hátt. Handbolti 22. janúar 2022 19:12
Guðmundur: Búinn að trúa á þessa uppbyggingu alla tíð Guðmundur Guðmundsson var sigurreifur og leit um öxl í viðtali eftir sigurinn stórkostlega á Ólympíumeisturum Frakklands á EM í handbolta í kvöld. Handbolti 22. janúar 2022 19:05
Tölfræðin á móti Frakklandi: Draumaleikur hægri skyttnanna og Viktors í markinu Hægri vængur íslenska liðsins og Viktor Gísli Hallgrímsson í markinu buðu upp á heimsklassaframmistöðu í kvöld á móti einu besta handboltalandsliði heims. Handbolti 22. janúar 2022 18:53
Viggó: Vörnin var ótrúleg Viggó Kristjánsson, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, var í miklu stuði eftir sigurinn magnaða gegn Frökkum á evrópumótinu rétt í þessu. Handbolti 22. janúar 2022 18:53
Elliði: Hef látið hann heyra það áður í gegnum sjónvarpið „Ég er bara orðlaus. Þetta var magnaður leikur. Við áttum alla höllina, líka frönsku stuðningsmennina held ég,“ sagði Elliði Snær Viðarsson í skýjunum eftir stórkostlega frammistöðu Íslands í sigrinum gegn Frakklandi á EM. Handbolti 22. janúar 2022 18:48
Hollendingar sóttu fyrstu stigin í fjarveru Erlings Hollendingar sóttu sín fyrstu stig í milliriðli I á EM í handbolta er liðið vann fjögurra marka sigur gegn Svartfjallalandi, 34-30. Erlingur Richardsson, þjálfari liðsins, var ekki á hliðarlínunni eftir að hafa greinst með kórónuveiruna fyrr í dag. Handbolti 22. janúar 2022 16:05
Styttir sér stundir í einangrun: Lætur fólki bregða og sendir framkvæmdastjórann í sendiferðir Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gúsatvsson lætur sér ekki leiðast í einangrun á hóteli í Ungverjalandi og leyfir fólki að fylgjast með hvað hann er að bralla á daginn til að stytta sér stundir. Handbolti 22. janúar 2022 15:30
Eitt smit greindist innan franska hópsins í dag Kentin Mahé, leikmaður franska landsliðsins í handbolta, greindist með kórónuveiruna í dag og verður því ekki með gegn Íslandi á EM. Handbolti 22. janúar 2022 15:30
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Haukar 29-27 | Eyjakonur höfðu betur í ótrúlegum leik ÍBV vann tveggja marka sigur, 29-27, er liðið tók á móti Haukum í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Handbolti 22. janúar 2022 15:15
Þrír Íslendingar meðal þrjátíu bestu handboltamanna heims Norski miðillinn TV2 hefur sett saman lista yfir 50 bestu handboltamenn heims. Íslendingar eiga þrjá fulltrúa á listanum og er enginn þeirra neðar en 28. sæti. Handbolti 22. janúar 2022 14:15
Viktor Gísli: Þetta kemur hægt og rólega Viktor Gísli Hallgrímsson og Ágúst Elí Björgvinsson standa vaktina í markinu þar sem Björgvin Páll Gústavsson er í einangrun. Handbolti 22. janúar 2022 14:01
Janus Daði og Arnar Freyr nýjustu fórnarlömb veirunnar Enn syrtir í álinn hjá strákunum okkar en enn eitt smitið kom upp í hópnum í dag. Handbolti 22. janúar 2022 13:57
Erlingur með veiruna Erlingur Richardsson, þjálfari hollenska landsliðsins í handbolta, hefur greinst með kórónuveiruna. Handbolti 22. janúar 2022 12:49
Orri Freyr: Við þjöppum okkur saman Orri Freyr Þorkelsson spilaði sinn fyrsta leik á stórmóti gegn Dönum og verður áfram í horninu gegn Frökkum í kvöld. Handbolti 22. janúar 2022 12:30
Janus: Megum ekki taka því sem sjálfsögðum hlut að vera hérna „Heilsan er bara góð og við höfum farið yfir Danaleikinn og við getum aðeins nagað okkur í handarbökin að hafa ekki gert betur,“ sagði Janus Daði Smárason sem var frábær gegn Dönum og ætlar að halda uppteknum hætti gegn Frökkum í dag. Handbolti 22. janúar 2022 11:30
Guðmundur: Mér finnst vera smit út um allt „Stemningin er góð þrátt fyrir allt og við bara höldum áfram,“ sagði grímuklæddur Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari en í ljósi stöðunnar eru eðlilega ekki teknar neinar áhættur. Handbolti 22. janúar 2022 10:01
Þjóðverjar í erfiðri stöðu eftir tap gegn Norðmönnum Norðmenn unnu mikilvægan fimm marka sigur gegn Alfreð Gíslasyni og lærisveinum hans í þýska landsliðinu í handbolta er liðin mættust á EM í kvöld. Lokatölur urðu 28-23 og vonir Þjóðverja um sæti í undanúrslitum fara minnkandi. Handbolti 21. janúar 2022 21:07
Ferðalöngum létt þegar fregn af áfengisleysi reyndist röng Forseti Íslands var með í för þegar hópur Íslendinga tók leiguflug til Búdapest til þess að hvetja strákana okkar áfram gegn heimsmeisturum Dana á EM í handbolta. Óhætt er að fullyrða að stemningin hafi verið gríðarleg allt frá því að komið var inn í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fullyrðing eins ferðalangs um að um áfengislaust flug væri að ræða féll hins vegar í grýttan jarðveg. Þá vakti kátínu blaðamanns þegar sjálfur forsetinn var spurður hvort hann væri Íslendingur. Lífið 21. janúar 2022 21:01
Svíar kjöldrógu Pólverja í fyrri hálfleik Svíþjóð vann afar sannfærandi tíu marka sigur er liðið mætti Pólverjum í milliriðli tvö á EM í handbolta í kvöld. Lokatölur urðu 28-18, en Svíar leiddu með átta mörkum í hálfleik. Handbolti 21. janúar 2022 18:27
Rosaleg dramatík en Spánverjar fyrstir í undanúrslitin á EM Rússar klúðruðu víti á síðustu sekúndu í eins marks tapi gegn Spáni, 26-25, í milliriðli tvö á Evrópumótinu í handbolta í dag. Handbolti 21. janúar 2022 16:09
Mátti ekki spila, mátti svo spila, mátti svo ekki spila en mátti loks spila Segja má að sóttvarnamál séu í ólestri á Evrópumótinu í handbolta í Ungverjalandi og Slóvakíu, þar sem kórónuveirusmitum fjölgar stöðugt. Það hvernig haldið er utan um sóttvarnamál hefur sennilega bitnað verst á David Mandic, hornamanni Króatíu. Handbolti 21. janúar 2022 15:31
Hetja Dana: Þurftum að grafa upp myndbönd af Íslendingunum Kevin Møller átti frábæran leik þegar Danmörk sigraði Ísland, 28-24, í milliriðli I á EM í handbolta í gær. Hann segir að undirbúningurinn fyrir leikinn hafi riðlast eftir að lykilmenn íslenska liðsins heltust úr lestinni, hver á fætur öðrum. Handbolti 21. janúar 2022 15:01
Þjálfarinn smitaðist fyrir leikinn við Ísland á morgun Frakkar verða án landsliðsþjálfarans Guillaume Gille þegar þeir mæta Íslendingum á morgun á Evrópumótinu í handbolta. Handbolti 21. janúar 2022 14:30
Einar Örn smitaður og lýsir næstu leikjum af hótelherberginu Íþróttafréttamaðurinn Einar Örn Jónsson er líklega kominn í hóp covid-smitaðra í Ungverjalandi en hann greindist jákvæður á hraðprófi í morgun. Hann spyr þó að leikslokum og segir að talsvert sé um að hraðprófin gefi falskar niðurstöður. Handbolti 21. janúar 2022 14:07
Óli Stef kom íslenskri stelpu á Mallorca til bjargar Ólafur Stefánsson, fjórfaldur íþróttamaður ársins og handboltakempa, kom ókunnugri íslenskri menntaskólastelpu til aðstoðar á Mallorca sumarið 2002. Talið var að stelpunni hefði verið byrlað ólyfjan í útskriftarferð. Lífið 21. janúar 2022 14:03
Ætla ekki að blása EM af en halda krísufundi á hverjum degi Framkvæmdastjóri handknattleikssambands Evrópu, EHF, segir ekki standa til að blása Evrópumótið af þrátt fyrir að yfir 60 leikmenn hafi farið í einangrun vegna kórónuveirusmits. Handbolti 21. janúar 2022 14:01
Björgvin Páll ósáttur: „Þetta er EM til skammar“ Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, vandar mótshöldurum á EM ekki kveðjurnar í færslu á Twitter. Handbolti 21. janúar 2022 13:26
„Þetta gerir náttúrulega mótið erfitt og liggur við ómarktækt til lengdar“ Framkvæmdastjóri HSÍ segir ljóst að sóttvarnir hafi ekki verið í hávegum hafðar í Ungverjalandi þar sem Evrópumótið í handbolta fer fram en sex leikmenn íslenska liðsins og sjúkraþjálfari hafa nú greinst smitaðir. Búið er að herða sóttvarnir hjá liðinu og vonir bundnar við að fleiri greinist ekki smitaðir á næstu dögum. Framkvæmdastjóri HSÍ telur engar líkur á því að mótinu verði frestað. Handbolti 21. janúar 2022 13:10