Kylfusveinninn fagnaði of snemma | Casey sló draumahöggið á rangri holu Englendingurinn Paul Casey hefur ekki leikið mikið á PGA mótaröðinni í golfi á undanförnum mánuðum vegna meiðsla. Casey slasaðist illa í skíðaferð þar sem hann var á snjóbretti. Cadillac meistaramótið á heimsmótaröðinni var það fyrsta sem hann tekur þátt í á þessu tímabil. Golf 13. mars 2012 16:15
Justin Rose landaði fjórða PGA titlinum | Tiger hætti vegna meiðsla Englendingurinn Justin Rose vann WGC-Cadillac mótið í golfi í Flórída í gær en mótið er hluti af PGA mótaröðinni vestanhafs. Rose lék hringina fjóra samanlagt á sextán höggum undir pari. Golf 12. mars 2012 08:00
Erfið byrjun hjá Rory McIlroy og Tiger Woods Ástralinn Adam Scott og Bandaríkjamaðurinn Jason Dufner eru jafnir í efsta sæti að loknum fyrsta keppnisdegi á Cadillac – meistaramótinu í golfi sem hófst í gær. Þeir léku báðir á 66 höggum eða 6 höggum undir pari á "bláa skrímslinu“ á Doral golfsvæðinu. Flestir af sterkustu kylfingum heims eru á meðal keppenda og þar má nefna Rory McIlroy frá Norður-Írlandi og Tiger Wods frá Bandaríkjunum. Golf 9. mars 2012 14:15
Styrktaræfingar skiluðu Rory McIlroy í efsta sæti heimslistans Rory McIlroy er í efsta sæti heimslistans í golfi eftir sigurinn á Honda-meistaramótinu á PGA mótaröðinni s.l. sunnudag. McIlroy hefur lagt gríðarlega áherslu á líkamsræktina á undanförnum mánuðum og er hann ekki í vafa um að aukinn vöðvastyrkur hafi hjálpað við að komast í efsta sæti heimslistans. Golf 6. mars 2012 13:45
Tiger komst í gegnum niðurskurðinn Tiger Woods spilaði nógu vel á öðrum degi Honda-meistaramótsins á PGA-mótaröðinni í golfi til að komast í gegnum niðurskurðinn. Hann skilaði sér í hús á 68 höggum, tveimur undir pari vallarins. Golf 3. mars 2012 12:45
Tiger Woods langt frá sínu besta | Love sýndi gamla takta Flestir af bestu kylfingum heims hófu leik í gær á Honda meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi í Flórída. Davis Love frá Bandaríkjunum er efstur eftir fyrsta keppnisdaginn á 6 höggum undir pari vallar, 64 höggum. Norður-Írinn Rory McIlroy er á -4 líkt og sjö aðrir kylfingar sem deila 2.-9. sæti. Love er fyrirliði bandaríska Ryderliðsins og jafnaði hann vallarmetið, auk þess sem hann fór holu í höggi á 5. holu vallarins. Golf 2. mars 2012 10:15
Mahan í fyrsta sinn á meðal 10 efstu á heimslistanum Bandaríski kylfingurinn Hunter Mahan kom sér í níunda sætið á heimslistanum í golfi með sigri sínum á Heimsmótinu í holukeppni sem lauk í gær í Arizona í Bandaríkjunum. Mahan hafði betur gegn Norður-Íranum Rory McIlroy í úrslitum mótsins, 2/1. Mahan hefur aldrei áður náð að vera á meðal 10 efstu á heimslistanum áður. Golf 27. febrúar 2012 14:45
Mahan tryggði sér sigur á Heimsmótinu í holukeppni Bandaríkjamaðurinn Hunter Mahan sigraði Norður-Írann Rory McIlroy í úrslitum Heimsmótsins í holukeppni í golfi. Mahan tryggði sér sigurinn á 17. holu þegar hann hafði tveggja holu forskot á McIlroy. Golf 26. febrúar 2012 22:38
McIlroy mætir Westwood í undanúrslitum á Heimsmótinu Norður-Írinn Rory McIlroy og Englendingurinn Lee Westwood sigruðu andstæðinga sína sannfærandi á Heimsmótinu í golfi í Arizona í Bandaríkjunum. Bretarnir mætast í undanúrslitum í dag. Golf 26. febrúar 2012 11:00
Ólafía Þórunn íþróttamaður vikunnar hjá Wake Forest háskólanum Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, var valinn íþróttamaður vikunnar við Wake Forest háskólann í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Golf 26. febrúar 2012 09:00
Tiger komst naumlega áfram Tiger Woods slapp naumlega við neyðarlegt tap í fyrstu umferð í heimsmótinu í holukeppni sem hófst í dag. Hann hafði betur gegn Spánverjanum Gonzalo Fernandez-Castano. Golf 22. febrúar 2012 22:47
Donald mætir Els í fyrstu umferð | Tiger í óvenjulegri stöðu Flestir af bestu kylfingum heims verða á meðal keppenda á heimsmótinu í holukeppni sem hefst á miðvikudag í Arizona í Bandaríkjunum. Aðeins 64 efstu á heimslistanum eru með keppnisrétt á þessu skemmtilega móti þar sem að Englendingurinn Luke Donald hefur titil að verja. Tiger Woods er í óvenjulegri stöðu á þessu móti en hann mætir Spánverjanum Gonzalo Fernandez-Castano í fyrstu umferð. Golf 20. febrúar 2012 15:45
Tiger á að finna gamla þjálfarann | Trevino gefur Tiger góð ráð Lee Trevino, sem á sínum tíma var einn besti kylfingur heims, gaf Tiger Woods föðurlegar ábendingar í viðtali sem tekið var við hann á ESPN í Dallas. Hinn þaulreyndi Trevino sagði að Tiger ætti að finna sér hús í nágrenni við golfkennararann Butch Harmon, banka síðan upp á hjá Harmon og segja "hæ nágranni,“ sagði Trevino en Harmon var þjálfari Tiger Woods á upphafsárum hans á PGA mótaröðinni. Golf 17. febrúar 2012 13:00
Mickelson valtaði yfir Tiger | Tiger dregur fram það besta í mér Phil Mickelson var sex höggum á eftir Charlie Wi og fimm höggum á eftir Tiger Woods fyrir lokadaginn á Pebble Beach í gær. Mickelson átti stórkostlegan lokadag á meðan spilamennska Tiger hrundi en Mickelson spilaði lokadaginn á 11 færri höggum en Tiger og vann frábæran sigur. Golf 13. febrúar 2012 11:45
Tiger byrjaði vel á Pebble Beach | Spilar með Tony Romo Tiger Woods hóf keppnistímabilið á nýju ári nokkuð vel en hann skilaði sér í hús á 68 höggum á fyrsta PGA-móti ársins sem fer fram í Pebble Beach um helgina. Golf 10. febrúar 2012 10:30
Stefán Már og Þórður Rafn á fjórum yfir pari á fyrsta hring Kylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur léku fyrsta hringinn á Gloria Old Course Classic mótinu í Tyrklandi á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari. Þetta kemur fram á kylfingur.is. Golf 23. janúar 2012 16:15