Hætta við flug til Halifax og Cleveland Forsvarsmenn Icelandair hafa ákveðið að hætta við fyrirhugað áætlunarflug til borganna Cleveland og Halifax í sumar. Viðskipti innlent 27. mars 2019 07:33
Icelandair endurskoðar pöntun ef kyrrsetning dregst á langinn Icelandair á von á sex nýjum Boeing 737 MAX 8 vélum á þessu ári. Forráðamenn félagsins segjast vera að skoða til hvaða ráða verði gripið dragist kyrrsetning vélanna á langinn. Raskanir á flugi má rekja til kyrrsetningar þriggja véla félagsins. Viðskipti innlent 27. mars 2019 07:30
Mikill viðsnúningur í söluræðu Skúla Viðskiptaáætlun til 2021 gerir ráð fyrir miklum viðsnúningi í rekstri félagsins. Lausafjárstaðan verði jákvæð um meira en milljarð í júní. Eigandi 51 prósents hlutar með forgang að arðgreiðslum. Indigo aftur fengið að borðinu. Viðskipti innlent 27. mars 2019 06:00
Forstjóri Icelandair Group segir fásinnu að tala um ríkisábyrgð Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir það fásinnu að tala um ríkisábyrgð í samhengi við lán sem Landsbankinn veitti flugfélaginu nýverið. Viðskipti innlent 27. mars 2019 06:00
Höfðu aðeins 40 sekúndur til að afstýra stórslysi Komið hefur í ljós við endursköpun þeirra aðstæðna í flughermi sem flugmenn Lion Air þotunnar sem hrapaði í Indónesíu á síðasta ári stóðu frammi fyrir að þeir höfðu aðeins 40 sekúndur til þess að aftengja flugkerfið sem grunur leikur á að hafi spilað stóran þátt í flugslysinu. Erlent 26. mars 2019 22:15
Yrði eins og hver annar aflabrestur Ekki þarf að búast við stóráföllum í efnahagslífi landsins takist ekki að koma rekstri WOW AIR fyrir vind að mati framkvæmdastjóra fjármálastöðuleika í Seðlabanka Íslands. Ef það takist muni það hins vegar hafa jákvæð áhrif á þróun þess. Innlent 26. mars 2019 20:00
Eftirlit Samgöngustofu með flugrekstrarleyfum ávallt í samræmi við tilefni Samskiptastjóri Samgöngustofu segir stofnunina sinna fjárhagslegu eftirliti með flugrekendum í samræmi við samevrópska reglugerð líkt og aðrar flugmálastjórnir í Evrópu. Innlent 26. mars 2019 18:45
Skúli um Indigo Partners: „Ég ber gríðarlega virðingu fyrir þeim“ Skúli Mogensen, fostjóri WOW air, vill ekki tjá sig um það hvort að bandaríska fjárfestingafélagið Indigo Partners sé komið aftur að borðinu sem mögulegur fjárfestir í flugfélaginu. Viðskipti innlent 26. mars 2019 17:13
Sjö af stærstu lífeyrissjóðum landsins tóku ekki þátt í skuldabréfaútboðinu Skúli segir að rætt verði við alla líklega fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóði. Viðskipti innlent 26. mars 2019 15:42
Eini kosturinn í stöðunni fyrir kröfuhafa Stóra spurningin sem stendur eftir er hversu hratt þeim tekst að safna fimm milljörðum. Viðskipti innlent 26. mars 2019 15:06
Skúli bjartsýnn á framhaldið Það var gott hljóð í Skúla Mogensen, forstjóra og stofnanda WOW air, þegar fréttastofan náði tali af honum í höfuðstöðvum WOW air nú á þriðja tímanum í dag. Viðskipti innlent 26. mars 2019 14:59
Kröfuhafi í WOW hefur mikla trú á félaginu Forstjóri Airport Associates segist styðja Skúla áfram sem forstjóra. Viðskipti innlent 26. mars 2019 13:45
Hefja formlegar viðræður við mögulega fjárfesta WOW air hefur sent frá sér tilkynningu. Viðskipti innlent 26. mars 2019 12:39
Árlegt eftirlit með fjárhag flugfélaga getur orðið viðvarandi Samskiptastjóri Samgöngustofu segir að eftirlit með flugfélögum geti tekið breytingum eftir aðstæðum. Árlegt eftirlit með fjárhag flugfélaga til að tryggja flugöryggi geti orðið viðvarandi ef þörf krefur. Viðskipti innlent 26. mars 2019 12:30
Norwegian staðsetur vél á Íslandi Heimsferðir hafa samið við Norwegian um flug sitt til Kanaríeyja næsta vetur, en Norwegian mun staðsetja vél á Íslandi til að sinna flugi fyrir fyrirtækið. Viðskipti innlent 26. mars 2019 11:23
Gagnrýnir Samgöngustofu og Isavia harðlega: Telur of dökka mynd dregna upp ef WOW fer í þrot Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, segir að Samgöngustofu hafa að sínu mati brugðist eftirlitshlutverki sínu gagnvart WOW air. Þetta sagði Björgólfur í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann sagði að of svört mynd væri dregin upp af áhrifunum sem verða ef WOW air hættir rekstri. Viðskipti innlent 26. mars 2019 10:23
Skýrsla um 737 MAX-slysið væntanleg í vikunni Starfsmenn eþíópíska samgönguráðuneytisins gera ráð fyrir að bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar um flugslys Ethiopian Airlines muni ligga fyrir í þessari viku. Viðskipti erlent 26. mars 2019 09:00
Kínverjar kaupa 300 Airbus-þotur Flugvélaframleiðandinn Airbus undirritaði í gær samning um að selja kínverska ríkinu 300 þotur. Viðskipti erlent 26. mars 2019 07:57
Ögurstundin er runnin upp Ráðgjafar WOW air leita allra leiða til að fá fjármagn að borðinu á mettíma. Kunnugir óttast að kraftaverk þurfi til. Kyrrsetning á vélum WOW rötuðu í erlenda fjölmiðla í gær og það hefur gríðarleg áhrif. Viðskipti innlent 26. mars 2019 06:00
Kjaraviðræðum fram haldið í skugga óvissu um WOW air Óvissa um stöðu WOW er farin að hafa áhrif á kjaraviðræður. Fundi hjá ríkissáttasemjara var frestað í gær vegna stöðunnar en þær halda áfram í dag. Að óbreyttu verða næstu verkfallsaðgerðir Eflingar og VR næstkomandi fimmtudag og föstudag. Formaður VLFA segir launafólk ekki bera ábyrgð á stöðunni. Innlent 26. mars 2019 06:00
Max á réttri leið með uppfærslu Bandaríska loftferðaeftirlitið, FAA, hefur gefið forsamþykki fyrir uppfærslu Boeing á stýrikerfi 737 Max-þotanna sem nú hafa sætt kyrrsetningu í meira en tíu daga. Viðskipti erlent 26. mars 2019 06:00
Sex flugvélar frá WOW Air flugu heim í nótt Aðeins ein breyting er fyrirhuguð í flugáætlun WOW Air á morgun en það er brottför félagsins frá Keflavík til Las Palmas Viðskipti innlent 26. mars 2019 00:37
Forsvarsmenn WOW air þöglir sem gröfin Illmögulegt hefur reynst að fá upplýsingar frá félaginu um gang mála. Viðskipti innlent 25. mars 2019 23:06
Kröfuhafar sagðir fylgjandi umbreytingu skulda WOW air í hlutafé Unnið sé að því að safna staðfestingum svo hægt sé að hefja ferlið. Viðskipti innlent 25. mars 2019 21:32
Farþegar á leið til Dublin og Gatwick illa upplýstir: „Mér fannst ég skilinn eftir einn til að þjást“ Nokkrum flugferðum WOW til og frá Keflavík hefur verið aflýst. Viðskipti innlent 25. mars 2019 19:57
Öðru flugi WOW frá London aflýst Fluginu var aflýst vegna „takmarkana í rekstri.“ Viðskipti innlent 25. mars 2019 18:53
Örlög WOW geti haft áhrif á viðræður en breyti ekki stöðu félagsmanna VR Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir verkalýðshreyfinguna fylgjast með vendingum í máli WOW air og reyni að bregðast við mögulegum niðurstöðum. Innlent 25. mars 2019 18:08
Katrín um WOW air: Gjaldþrot yrði högg þótt staða hagkerfisins sé góð Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að gjaldþrot WOW air hefði auðvitað neikvæð áhrif á þjóðarbúskapinn og þá ekki síst ferðaþjónustuna og sumarið fram undan. Innlent 25. mars 2019 16:45
Vandræði WOW air í heimspressunni Fjallað hefur verið um stöðuna hjá WOW air í erlendum fjölmiðlum í dag en Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri félagsins, reynir nú allt til þess að bjarga því frá gjaldþroti eftir að viðræðum við Icelandair um mögulega aðkomu að rekstri WOW var slitið um miðjan dag í gær. Innlent 25. mars 2019 15:51
Bjarni um stöðu WOW air: „Við erum viðbúin“ Sérstakur starfshópur hefur síðustu mánuði unnið að viðbragðsáætlun stjórnvalda sem tekur mið af ólíkum sviðsmyndum er varðar flugfélagið WOW air. Innlent 25. mars 2019 15:45