„Tækifæri fyrir okkur að sanna að við getum gert góða hluti saman“ Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta segir lokaleik liðsins í undankeppni EM 2024 í kvöld, gegn toppliði Portúgal á útivelli, vera kjörið tækifæri fyrir leikmenn liðsins til þess að sanna að þeir geti gert góða hluti saman. Ísland mætir til leiks með þungt tap fyrir Slóvakíu á bakinu og enga möguleika á að komast upp úr riðlinum. Sigur Portúgal í kvöld mun sjá til þess að liðið vinnur riðilinn með fullt hús stiga. Fótbolti 19. nóvember 2023 13:16
Martinez ber virðingu fyrir Íslandi: Nefnir tvo leikmenn sem hafa hrifið hann Roberto Martinez, landsliðsþjálfari portúgalska karlalandsliðsins í fótbolta, segir sitt lið bera virðingu fyrir íslenska landsliðinu en liðin mætast í lokaumferð undankeppni EM 2024 í Lisabon í kvöld. Á sínum degi geti íslenska landsliðið veitt hvaða liði sem er leik. Fótbolti 19. nóvember 2023 13:00
Barcelona fór illa með erkifjendurna Barcelona vann öruggan 5-0 sigur á Real Madrid þegar liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 19. nóvember 2023 12:59
Risatilboð dugði ekki til að sannfæra De Gea um að verða liðsfélagi Ronaldo David De Gea hefur hafnað risatilboði frá Al Nassr í Sádi Arabíu. Spánverjinn hefur verið án félags síðan samningur hans hjá Manchester United rann út í sumar. Enski boltinn 19. nóvember 2023 12:30
Aron Einar ekki með gegn Portúgal í kvöld Aron Einar Gunnarsson er ekki í leikmannahópi Íslands sem tilkynntur var fyrir leikinn gegn Portúgal í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fótbolti 19. nóvember 2023 11:08
Tók Ísland skref aftur á bak? | „Þá vonandi tökum við tvö fram á við" Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta segist vona að liðið taki tvö skref fram á við gegn Portúgal eftir svekkjandi frammistöðu og þungt tap gegn Slóvakíu, í undankeppni EM á dögunum, sem túlkað var sem skref aftur á bak fyrir liðið. Það sé undir öllum leikmönnum liðsins komið að sýna að þeir séu betri en það sem þeir sýndu í Slóvakíu. Fótbolti 19. nóvember 2023 10:00
Æfingatíminn hentaði ekki og því fór Kristinn frá KR Gregg Ryder, nýráðinn þjálfari KR í Bestu deild karla í knattspyrnu, segir að Kristinn Jónsson hafi farið frá félaginu þar sem æfingatími félagsins hentaði honum ekki. Íslenski boltinn 19. nóvember 2023 08:00
Ramos veitti Shakiru verðlaun fyrir lagið sem gagnrýnir Pique Sergio Ramos og Gerard Piqué grófu stríðsöxina er þeir spiluðu með spænska landsliðinu en öllu jafna voru þeir óvinir innan vallar sem utan. Ramos spilaði lengi vel með Real Madríd og Piqué með Barcelona. Þó Piqué sé hættur að spila tókst Ramos að eiga síðasta höggið. Fótbolti 19. nóvember 2023 07:02
Vinícius Júnior frá keppni þangað til á næsta ári Brasilíski framherjinn Vinícius Júnior, leikmaður Real Madríd, verður frá keppni þangað til á næsta ári eftir að meiðast á læri í 2-1 tapi Brasilíu gegn Kólumbíu. Fótbolti 18. nóvember 2023 23:00
Vladan semur við nýliða Vestra og tekur að sér markmannsþjálfun Markvörðurinn fyrrverandi Vladan Djogatovic er nýr markmannsþjálfari Vestra. Liðið mun leika sem nýliða í Bestu deild karla í knattspyrnu sumarið 2024. Íslenski boltinn 18. nóvember 2023 22:30
Frakkar skoruðu fjórtán og settu met Frakkland vann einstaklega þægilegan sigur á Gíbraltar í undankeppni EM. Gestirnir misstu menn af velli snemma leiks og þó staðan hafi þá þegar verið 3-0 var ekki hægt að sjá fyrir hvað myndi gerast í París. Fótbolti 18. nóvember 2023 21:47
Emilía á skotskónum og markahæst í Danmörku Emilía Kiær Ásgeirsdóttir skoraði eitt marka Nordsjælland í 3-0 sigri á AaB í dönsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Emilía Kiær er markahæst í deildinni með átta mörk. Fótbolti 18. nóvember 2023 20:30
Króatar nálgast sæti á EM 2024 Króatía vann Lettland 2-0 í D-riðli undankeppni EM karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar. Króötum dugir stig í lokaleik undankeppninnar til að tryggja sér sæti á mótinu. Fótbolti 18. nóvember 2023 19:36
Grátlegt tap hjá íslensku strákunum Íslenska U-19 ára landslið drengja mátti þola naumt 1-0 tap gegn Frakklandi í undankeppni EM. Sigurmark Frakklands kom mínútu fyrir lok venjulegs leiktíma. Fótbolti 18. nóvember 2023 19:05
Reggístrákarnir hans Heimis í brekku Kanada lagði Jamaíka 2-1 í fyrri leik þjóðanna í útsláttarkeppni Þjóðadeildar Norður- og Mið Ameríku. Sigurvegari einvígisins fer á Suður-Ameríkukeppnina (Copa América) næsta sumar. Fótbolti 18. nóvember 2023 17:50
Svona var blaðamannafundur Íslands fyrir leikinn gegn Portúgal Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er mætt til Lisabon í Portúgal þar sem að liðið á leik gegn heimamönnum á José Alvalade leikvanginum á morgun í lokaumferð undankeppni EM. Fótbolti 18. nóvember 2023 17:30
Lærisveinar Guðmundar upp í annað sæti Fredericia, lið Guðmundar Guðmundssonar í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, lyfti sér í dag upp í 2. sæti deildarinnar með góðum útisigri á Bjerringbro/Silkeborg. Handbolti 18. nóvember 2023 16:45
Wales missteig sig í Armeníu Wales náði aðeins jafntefli í Armeníu í undankeppni EM í knattspyrnu. Stigið dugir skammt ef Króatía vinnur Lettland síðar í dag. Fótbolti 18. nóvember 2023 16:00
James allt í öllu þegar Chelsea lagði Liverpool Lauren James var mögnuð þegar Englandsmeistarar Chelsea lögðu Liverpool 5-1 í úrvalsdeild kvenna á Englandi. James kom að fjórum mörkum Chelsea en hún skoraði þrjú og lagði upp eitt. Enski boltinn 18. nóvember 2023 15:31
Helgi aðstoðar Rúnar í Úlfarsárdalnum Helgi Sigurðsson verður aðstoðarþjálfari Rúnars Kristinssonar hjá Fram í Bestu deild karla á næsta tímabili en frá þessu var greint á Facebooksíðu Fram nú í dag. Fótbolti 18. nóvember 2023 15:00
Meistaraliðið tapaði í lokaumferðinni Nýkrýndir Noregsmeistarar Vålerenga töpuðu fyrir Rosenborg í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag. Fótbolti 18. nóvember 2023 14:27
„Er mér óskiljanlegt að ekkert sé búið að gerast“ Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, segir það sér óskiljanlegt hvers vegna ekkert sé búið að gerast í byggingu nýs þjóðarleikvangs og segir það miður að liðið gæti þurft að spila mikilvægan heimaleik utan landssteinanna. Fótbolti 18. nóvember 2023 14:01
Verða Chelsea og Manchester City dæmd niður um deild? Í gær bárust fréttir af því að tíu stig hefðu verið tekin af Everton vegna brota félagsins á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Fréttirnar valda forráðamönnum Chelsea og Manchester City vafalaust áhyggjum. Enski boltinn 18. nóvember 2023 12:30
Láta sér ekki leiðast: Sá reynslumesti klárar stúdentinn | „Mikið í meðhöndlun“ Íslenska landsliðið er nú mætt til Lisabon í Portúgal þar sem framundan er leikur við ansi sterkt lið heimamanna á morgun í lokaumferð undankeppni EM í fótbolta. Fótbolti 18. nóvember 2023 11:00
Haaland dregur sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla Erling Haaland hefur dregið sig úr norska landsliðshópnum vegna meiðslanna sem hann varð fyrir gegn Færeyjum á fimmtudag. Enski boltinn 18. nóvember 2023 10:31
Stórleik Reggístrákanna frestað vegna veðurs Leik Jamaíka og Kanada í útsláttarkeppni Þjóðadeildar Norður- og Mið Ameríku var frestað í nótt vegna veðuraðstæðna. Sigurvegari einvígisins tryggir sér sæti á Copa America næsta sumar. Fótbolti 18. nóvember 2023 09:30
„Fann fyrir svona tómleika en samt létti líka“ Elísabet Gunnarsdóttir kveður nú formlega félagslið sitt Kristianstad eftir 15 ár við stjórnvölin hjá kvennaliði félagsins, hún segist hvað stoltust af ferðalaginu sem hún átti með félaginu í gegnum margvísleg tímabil. Fótbolti 18. nóvember 2023 08:00
Dæmdur fyrir að gera grín að sex ára stuðningsmanni sem lést Dale Houghton, 32 ára gamall stuðningsmaður Sheffield Wednesday, hefur verið dæmdur í tólf vikna skilorðsbundið fangelsi fyrir að gera grín að Bradley Lowery, sex ára gömlum stuðningsmanni Sunderland, sem lést úr krabbameini árið 2017. Fótbolti 18. nóvember 2023 07:00
De Bruyne neitar fyrir að hafa samið lag fyrir Drake Kevin de Bruyne, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, hefur þurft að neita fyrir sögusagnir um það að hann hafi hjálpað kanadíska rapparanum Drake að semja lag á nýrri stuttskífu hans. Fótbolti 17. nóvember 2023 23:02
Everton nýtti mál Gylfa í vörn sinni Enska úrvalsdeildarfélagið Everton listaði upp sex hluti sem hluta af vörn sinni áður en tíu stig voru dæmd af félaginu vegna brota á reglum ensku úrvalsdeildarinnar um hagnað og sjálfbærni í rekstri. Fótbolti 17. nóvember 2023 22:30