Óþarft að hafa áhrif á Räikkönen Skoska goðsögnin Jackie Stewart sagði á árlegri ráðstefnu Autosport-tímaritsins að Lotus-liðið væri á réttri braut þegar það leyfir Kimi Raikkönen að vera hann sjálfur. Raikkönen í Lotus-bíl varð þriðji í stigakeppni ökuþóra á síðasta ári. Formúla 1 14. janúar 2013 22:00
Perez mættur til starfa hjá McLaren Mexíkóinn Sergio Perez er mættur til starfa hjá McLaren-liðinu en hann mun aka þar næstu árin eftir að hafa verið tvö ár hjá Sauber. Hann var formlega kynntur til sögunnar sem ökuþór liðsins í vikunni. Formúla 1 10. janúar 2013 20:00
Red Bull kemst á fyrstu æfingarnar Áætlanir Red Bull-liðsins gera ráð fyrir því að liðið geti tekið þátt í fyrstu æfingum ársins á Jerez-brautinni í byrjun febrúar. Adrian Newey, tæknistjóri liðsins, sagði við fjölmiðla fyrr í vikunni að hönnun og smíði nýja bílsins væri á eftir áætlun. Formúla 1 10. janúar 2013 17:57
Alonso of upptekinn af sálfræðstríðinu Helmut Marko, ráðgjafi Red Bull í kappakstursmálum, segir Fernando Alonso hugsa hlutina of mikið og gera of mikið til þess að ná sálfræðilegu taki á keppinautinum. Þeir Sebastian Vettel, ökuþór Red Bull, og Alonso, ökuþór Ferrari, háðu baráttu um heimsmeistaratitilinn í fyrra. Formúla 1 8. janúar 2013 22:00
Perez: Sauber hefur burði til sigurs Mexíkóski ökuþór McLaren-liðsins, Sergio Perez, telur Sauber-liðið hafa burði til að vinna mót á komandi keppnisvertíð í Formúlu 1. Formúla 1 7. janúar 2013 21:00
Tvö keppnissæti enn laus fyrir 2013 Enn á eftir að ráða í tvö keppnissæti fyrir næsta keppnistímabil í Formúlu 1. Force India og Caterham eiga eftir að ráða sér ökumenn þó leitin hafi verið verið þrengd nokkuð. Formúla 1 6. janúar 2013 06:00
Newey: Við erum á eftir áætlun Nú þegar keppnisliðin í Formúlu 1 keppast við að leggja lokahönd á keppnisbíla sína fyrir næsta tímabil eru heimsmeistarar Red Bull í vandræðum, að sögn Adrian Newey, aðalhönnuðar og tæknistjóra liðsins. Formúla 1 6. janúar 2013 06:00
Ecclestone segist saklaus af þýskum ákærum Bernie Ecclestone segist vera saklaus af hvaða glæp sem kann að hafa fylgt sölunni á Formúlu 1 til einkahlutafélagsins CVC árið 2006. Ecclestone er sakaður um að hafa borgað þýskum bankastarfsmanni, Gerhard Gribkowsky að nafni, hátt í 3,5 milljarða í mútur svo að salan gengi í gegn. Formúla 1 4. janúar 2013 19:15
Dennis: Við hefðum getað haldið Hamilton Ron Dennis, formaður stjórnar McLaren-liðsins og fyrrum liðstjóri liðsins, segir að McLaren-liðið hefði getað haldið Lewis Hamilton áfram árið 2013 en ákveðið að gera það ekki. Hamilton mun aka fyrir Mercedes næstu þrjú árin. Formúla 1 4. janúar 2013 17:45
Lotus heldur Grosjean árið 2013 Lotus-liðið hefur tekið ákvörðun um að nýta starfskrafta Romain Grosjean á nýjan leik árið 2013. Grosjean var harðlega gagnrýndur í sumar fyrir einstaklega óheppilega árekstra og annan óskunda í keppnum ársins. Formúla 1 18. desember 2012 21:15
Button: Hamilton mun koma Rosberg á óvart Jenson Button, ökuþór McLaren-liðsins í Formúlu 1, segir að Lewis Hamilton, fyrrum liðsfélagi hans, muni koma nýjum liðsfélaga hjá Mercedes á óvart. Nico Rosberg eigi eftir að átta sig á hversu hæfileikaríkur og fljótur Hamilton er. Formúla 1 17. desember 2012 15:00
Alonso valinn bestur af liðstjórum Þó hann hafi tapað heimsmeistaratitlinum með aðeins þremur stigum var Fernando Alonso, ökuþór Ferrari-liðsins, valinn besti ökuþór ársins af liðstjórum í Formúlu 1. Valið var birt á síðum breska tímaritsins Autosport. Formúla 1 17. desember 2012 12:00
Austurríki gæti verið viðkomustaður Formúlu 1 2013 Það gæti allt eins farið svo að aukamótið á dagatali Formúlu 1 á næsta ári verið í Austurríki en ekki í Tyrklandi. Framtíð kappakstursins í Tyrklandi er nú í höndum ríkisstjórnar Tyrklands sem mun taka ákvörðun um fjárframlög til mótshaldsins fyrir áramót. Formúla 1 9. desember 2012 20:31
Vettel krýndur heimsmeistari - myndir Sebastian Vettel var í gær krýndur heimsmeistari í Formúlu 1 við mikla athöfn í Tyrklandi, þar sem FIA hélt sitt árlega verðlaunapartý. Christian Horner tók við verðlaunum fyrir hönd Red Bull-liðsins sem eru heimsmeistarar bílasmiða. Formúla 1 8. desember 2012 15:52
Útlit fyrir 20 mót á næsta ári Dagatal Formúlu 1 á næsta ári hefur verið breytt örlítið til að hægt sé að koma nýjum kappakstri fyrir í miðjum júlí. Þetta, ásamt nokkrum breytingum á keppnisreglum, var staðfest í dag af alþjóðlega mótorsportráðinu. Formúla 1 6. desember 2012 06:15
Ecclestone: Ég er ekki orðinn of gamall Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, svaraði Luca di Montezemolo, framkvæmdastjóra Ferrari-bílaverksmiðjanna, fullum hálsi eftir að hafa frétt frá Luca að hann væri orðinn of gamall til að stjórna Formúlu 1. Hann segist ekkert ætla að slaka á. Formúla 1 6. desember 2012 06:00
Stærstu liðin borga rúman milljarð króna í keppnisgjöld Keppnisgjaldheimtunni í Formúlu 1 var breytt í haust. Keppnisgjöldin sem öll keppnisliðin verða að greiða til FIA (Alþjóða akstursíþróttasambandsins) er að lágmarki 62,5 milljónir króna en að auki er stigafjöldi liðanna margfaldaður með 6000 dollurum, 750 þúsund íslenskum krónum. Formúla 1 4. desember 2012 07:00
Ferrari: Ecclestone er orðinn of gamall Framkvændastjóri Ferrari-bílaverksmiðjanna, Luca di Montezemolo, segir Bernie Ecclestone vera orðinn of gamall til að stjórna Formúlu 1. Bernie, alráður í Formúlu 1, er 82 ára gamall. Formúla 1 4. desember 2012 00:01
De Villota fær að fara heim af spítalanum - ekki fyrir viðkvæma Spænska ökufreyjan Maria de Villota sem lenti í hryllilegu slysi í júlí í ár fékk að fara heim af spítalanum á dögunum eftir að hafa gengist undir enn eina aðgerðina í lok nóvember. De Villota var tilraunaökumaður Marussia-liðsins. Formúla 1 3. desember 2012 20:45
HRT gjaldþrota og keppir ekki 2013 HRT-liðið mun ekki keppa í Formúlu 1 á næsta ári þar sem liðið er nánast gjaldþrota. Eigandi liðsins hefur verið að leita að kaupanda en enginn gerði tilboð í þetta spænska keppnislið. Formúla 1 2. desember 2012 17:30
Hamilton og Button jafnir eftir þriggja ára einvígi Lewis Hamilton yfirgefur McLaren-liðið í Formúlu 1 í vetur og færir sig um set,yfir til Mercedes. Jenson Button verður eftir hjá McLaren en þeir hafa verið liðsfélagar í þrjú ár. Það er því ekki seinna vænna en að bera þá kappa saman. Formúla 1 29. nóvember 2012 06:00
Bottas og Maldonado aka fyrir Williams 2013 Valtteri Bottas, ungur Finni sem hefur undanfarið reynsluekið fyrir Williams-liðið í Formúlu 1, hefur verið ráðinn sem keppnisökuþór liðsins á næsta ári. Þar mun hann aka við hlið Pastor Maldonado. Formúla 1 28. nóvember 2012 16:15
Force India: Öryggisbíllinn var algert djók Bob Fernley, liðstjóri Force India-liðsins í Formúlu 1, sagði að fyrsti öryggisbíllinn í brasilíska kappakstrinum hafi verið "algert grín". Nico Hulkenberg, ökuþór liðsins, var í fyrsta sæti á undan Jenson Button þegar öryggisbíllinn kom út. Formúla 1 27. nóvember 2012 14:30
Með ólíkindum að Vettel tækist að klára mótið Christian Horner, liðstjóri heimsmeistara Red Bull í Formúlu 1 og yfirmaður heimsmeistarans Sebastian Vettel, segist hafa óttast að Vettel myndi ekki ná að klára kappaksturinn í Brasilíu í gær. Vettel lenti í óhappi á fyrsta hring og um leið komst keppinautur hans í vænlega stöðu. Formúla 1 26. nóvember 2012 21:15
Caterham skaust upp fyrir Marussia í botnbaráttunni Cyril Abiteboul, liðstjóri Caterham, var himinlifandi með tíunda sætið í heimsmeistarakeppni bílasmiða sem Caterham stal af Marussia á lokasprettinum í brasilíska kappakstrinum í dag. "Þetta var verðskuldað," sagði Abiteboul. Formúla 1 26. nóvember 2012 06:00
Við endamarkið: Vettel tryggði sér heimsmeistaratitilinn Rúnar Jónsson og Ólafur Guðmundsson, dómari í formúlu eitt, fóru yfir síðasta kappakstur tímabilsins í Formúlu 1 en Þjóðverjinn Sebastian Vettel tryggði sér heimsmeistaratitilinn þriðja árið í röð eftir mikla dramatík í Brasilíu í dag. Formúla 1 25. nóvember 2012 21:51
Vettel heimsmeistari í Formúlu 1 2012 Sebastian Vettel er yngsti þrefaldi heimsmeistari allra tíma í Formúlu 1. Hann tryggði sér titilinn í brasilíska kappakstrinum sem kláraðist fyrir aftan öryggisbílinn. Fernando Alonso átti einn möguleika á að skáka Vettel en það tókst ekki. Formúla 1 25. nóvember 2012 17:49
Alonso heimsmeistari í augnablikinu Fernando Alonso mun vinna heimsmeistaratitil ökuþóra í Formúlu 1 ef kappaksturinn fer eins og hann stendur núna. Alonso er í þriðja sæti á eftir McLaren-bílunum tveimur en Sebastian Vettel lenti í samstuði við Bruno Senna á fyrsta hring og féll í síðasta sæti. Formúla 1 25. nóvember 2012 16:12
Möguleikar meistaranna í úrslitamótinu Núna síðdegis hefst brasilíski kappaksturinn þar sem Fernando Alonso og Sebastian Vettel há úrslitabaráttu um heimsmeistaratitil ökuþóra í Formúlu 1. Alonso og Vettel munu ekki gefa tommu eftir. Formúla 1 25. nóvember 2012 15:12
Button: Alonso á titilinn meira skilið Jenson Button, ökuþór McLaren-liðsins í Formúlu 1, segir að Fernando Alonso eigi heimsmeistaratitilinn meira skilið en Sebastian Vettel. Þetta segir hann því Ferrari-lið Alonso hefur átt í þónokkrum erfiðleikum í ár. Formúla 1 25. nóvember 2012 11:30