Schumacher stefnir á titil 2011 Michael Schumacher hjá Mercedes hefur gengist við því að eiga ekki möguleika á titilinum í ár, eftir brösótt gengi í mótum ársins. Besti árangur hans er fjórða sæti. Hann hefur sett stefnuna á 2011 hvað titil varðar. Formúla 1 8. júlí 2010 17:45
Barrichello setur markið hærra Rubens Barrichello vonast eftir góðum árangri á Williams á heimavelli liðsins á Silverstone um helgina. Williams hefur ekki landað sigri í mörg herrans ár, en hefur unnið marga meistaratitila gegnum tíðina. Formúla 1 8. júlí 2010 14:24
Fyrrum meistari í dómaraherberginu Bretinn Nigel Mansell sem varð heimsmeistari í Formúlu 1 árið 1992 verður dómurum til aðstoðar á breska kappakstrinum á Silverstone um helgina. Formúla 1 8. júlí 2010 10:32
Bandarískir aðilar vilja í Formúlu 1 Bandarískir aðilar hafa sótt formlega um að komast í Formúlu 1 á næsta ári og flagga m.a. Bandaríkjamanninum Jonathan Summerton sem ökumanni. Hann var einnig nefndur til sögunnar hjá USF1 liðinu sem sótti um fyrir þetta tímabil en allt fór handaskolum hjá þeim Formúla 1 8. júlí 2010 10:00
Mikilvægt fyrir Ferrari að sigra fljótlega Stefano Domenicali, framkvæmdarstjóri Ferrari segir á vefsíðu liðsins að mikilvægt verði fyrir liðið að knýja fram sigur í næstu þremur mótum. Ferrari er á eftir Red Bull og McLaren í stigakeppni bílasmiða og Fernando Alonso er fimmti í stigamóti ökumanna. Formúla 1 7. júlí 2010 13:07
Kubica hjá Renault til loka 2012 Pólverjinn Robert Kubica hefur framlengt samning sinn við Renault til loka ársins 2012, en hann gat verið laus allra mála í lok þessa árs. Formúla 1 7. júlí 2010 12:10
Ecclestone vill mót í New York Bernie Ecclestone er enn að leita eftir að halda mót við New York, þó búið sé að semja um mótshald í Austin í Texas frá árinu 2010. Autosport.com greinir frá þessu í dag. Formúla 1 6. júlí 2010 16:18
Button: Nýjungar nauðsynlegar í titilslagnum Meistarinn Jenson Button hjá McLaren verður í faðmi aðdáenda sinna á Silverstone brautinni um næstu helgi, en hann er breskur í húð og hár. Hann er í öðru sæti á eftir Lewis Hamilton í stigamótinu og báðir eru þeir Bretar og verður vel fagnað Formúla 1 6. júlí 2010 11:38
Átta lið á heimavelli á Silverstone Óhætt er að segja að Silverstone sé vagga Formúlu 1, en fyrsta mótið fór fram á brautinni árið 1950 og átta keppnislið af tólf eru staðsett í Bretlandi. Ekkert lið er þó eins nærri brautinni og Force India, sem er raunverulega staðsett rétt utan brautarmarkanna. Formúla 1 6. júlí 2010 11:11
Robert Kubica: Silverstone er spennandi braut Silverstone kappaksturinn er framundan um næstu helgi á breyttri braut og Robert Kubica hjá Renault bíður spenntur eftir því að takast á við hana. Formúla 1 6. júlí 2010 10:15
Webber myndi bjarga Vettel frá drukknun Mark Webber sem hefur verið meðal þeirra efstu í stigamótinu á þessu ári segir að Ferrari sé ekkert búiði að vera, þó liðið hafi ekki unnið sigur frá því í fyrsta mótinu. Formúla 1 5. júlí 2010 16:15
Hamilton og Alonso sáttir Lewis Hamilton og Fernando Alonso eru búnir að ræða málin eftir nokkuð hvöss orðaskipti beggja eftir síðustu keppni. Alonso taldi Hamilton hafa sloppið létt frá dómurum eftir brot í brautinni, en Hamilton sagði hann súran vegna slaks árangurs. Formúla 1 5. júlí 2010 15:34
Ástríðan holl í allri umræðu Martin Whitmarsh hjá McLaren telur að allt í lagi sé að blása dálítið frá sér í kringum Formúlu 1 mót, þó vanda megi orðaval þegar ástríðan er sem mest. Hann var á opnum fundi keppnisliða og áhorfenda sem haldin var í London í dag. Formúla 1 2. júlí 2010 16:33
Formúlu 1 bíll rúntaði við Big Ben Ástralinn Mark Webber og liðsmenn Red Bull tóku daginn snemma í morgun og voru með uppákomu við ráðhús Breta og Big Ben í miðborg London um sex leytið. Formúla 1 2. júlí 2010 11:28
Breskir ökumenn í forystuhlutverkinu Trúlega er það einhver sárabót fyrir breska íþróttaáhugamenn að tveir Bretar tróna á toppnum á stigalistanum í Formúlu 1. Lið Breta komst ekki áfram á HM í fótbolta, en Lewis Hamilton og Jenson Button halda merki Bretlands á lofti næstu tvær vikurnar. Formúla 1 1. júlí 2010 13:47
Formúla 1 á Mæjorka í athugun Bernie Ecclestone sem stýrir málum varðndi mótshald í Formúlu 1 er að skoða hvort til greina komi að skipuleggja mót á eyjunni Mæjorka, sem er Íslendingum að góðu kunn. Formúla 1 1. júlí 2010 12:43
Massa: Skoða þarf reglur um öryggisbíl Brasillíumaðurinn Felipe Massa hjá Ferrari var einn af þeim sem tapaði á útkomu öryggisbílsins í síðustu keppni, sem Fernando Alonso var sérlega ósáttur við, liðsfélagi hans. Hann telur að FIA verði að skoða reglur varðandi notkun hans. Formúla 1 1. júlí 2010 11:05
Alonso rólegri útaf dómaramálum Spánverjinn Fernando Alonso hefur dregið úr tilfinningahitanum eftiir að að hafa haldið því fram að FIA hafi hagrætt úrslitum í mótinu á Valencia á sunnudaginn. Hann var svekktur eftir að hafa aðeins náð áttunda sæti í mótiuu, rétt eins og Ferrari liðið í heild sinni. Formúla 1 30. júní 2010 10:11
Nákvæmari dómgæsla í Formúlu 1 en fótbolta vegna myndavéla Dómaramál sem kom upp í Formúlu 1 mótinu um helgina varpaði ljósi á þá staðreynd að notkun myndavéla hefur verið viðtekinn venja í þeirri íþrótt, mitt í allri umræðunni um notkum myndvéla í fótbolta. Formúla 1 29. júní 2010 14:43
Hamilton segir Alonso súran útaf árangri Bretinn Lewis Hamilton hjá McLaren telur að Fernando Alonso og um leið Ferrari menn séu svekktir útaf slökum árangri í Valencia á sunnudaginn og það sé ástæðan fyrir því að þeir séu að kvarta yfir dómgæslu á mótinu. Formúla 1 29. júní 2010 10:42
Webber gagnrýndur vegna óhapps Mark Webber telur að óhappið sem varð í brautinni í gær þar sem hann flaug hátt á loft eftir árekstur við Heikki Kovalainen hefði aldrei þurft að gerast. Formúla 1 28. júní 2010 16:41
Ákvörðun dómara skuggi á Formúlu 1 Luca Montezemolo, forseti Ferrari segir að dómarar hafi dæmt of seint í máli Lewis Hamilton í Valencia kappakstrinum í gær. Honum var refsað fyrir að fara framúr öryggisbílnum, en vegna tímasetningarinnar tapaði hann ekki sæti á atvikinu, en átti ekki lengur möguleika á sigri. Formúla 1 28. júní 2010 13:42
Engin brögð í tafli eftir óhapp Spánverjinn Fernando Alonso var eldheitur eftir kappaksturinn í gær og taldi að dómarar mótsins hefðu óbeint hyglað að Lewis Hamilton með vægri refsingu, eftir að hann braut af sér og ók framúr öryggisbíl eftir óhapp í brautinni. Formúla 1 28. júní 2010 10:43
Vettel: Mikilvægast að Webber var ómeiddur Sebastian Vettel var að vonum ánægður að hafa sigrað í Formúlu 1 mótinu í Valencia í gær, en sagði á blaðamannafundi eftir keppnina að mest um vert hefði verið að liðsfélagi hans Mark Webber slapp ómeiddur frá keppninni. Formúla 1 28. júní 2010 10:17
Alonso reiður útaf dómgæslunni Spánverjinn Fernando Alonso er ekki sáttur við dómara mótsins á Valencia brautinni á Spáni. Hann telur að þeir hafi ekki gert rétt í refsingu á Lewis Hamilton sem var dæmd. Formúla 1 27. júní 2010 16:00
Vettel vann þýskan sigur í Valencia Þjóðverjinn Sebastian Vettel á Red Bull vann kappaksturinn í Valencia í dag eftir að hafa ræst fremstur á stað á ráslínu. Lewis Hamilton varð annar á McLaren og Jenson Button þriðji á McLaren. Formúla 1 27. júní 2010 15:26
Fremstu menn verð að sýna skynsemi Christian Horner hjá Red Bull segist treysta ökumönnum sínum að sýna aðgát í fyrstu beygju á brautinni í Valencia í dag, en þeir Sebastian Vettel og Mark Webber lentu í árekstri á dögunum og köstuðu frá sér fyrsta og öðru sætinu í Tyrklandi Formúla 1 27. júní 2010 08:54
Vettel ánægður eftir erfiða tímatöku Sebastian Vettel tryggði Red Bull og sjálfum sér besta stað á ráslínu í kappakstrinum í Valencia sem verður á morgun. Mark Webber , félagi hans er annar á ráslínu og þetta er í fjórðs skipti á árinu sem þeir eru á fremstu rásröðinni. Formúla 1 26. júní 2010 19:20
Vettel fremstur á ráslínu eftir tímatökur Þjóðverjinn Sebastian Vettel á Red Bull verður fremstur á ráslínu, eftir bestu frammistöðuna í tímatökum á Formúlu 1 brautinni í Valencia í dag. Hann verður skrefinu á undan Mark Webber á samskonar bíl, en Lewis Hamilton á McLaren Mercedes er þriðji og heimamaðurinn Fernando Alonso á Ferrari fjórði. Formúla 1 26. júní 2010 14:01
Mjótt á munum fyrir tímatökuna Þjóðverjinn Sebastian Vettel var fljótastur á lokaæfingu keppnisliða í Valencia á Spáni í dag á Red Bull. Mjög mjótt var á munum á milli keppenda og innan við sekúnda á milli fyrstu 12 keppendanna. Formúla 1 26. júní 2010 10:14