Ákærður fyrir að hafa hótað starfsmanni TR: „Ég verð víst að heimsækja fjölskylduna þína aftur“ Karlmaður hefur verið ákærður fyrir ýmis brot gegn valdstjórninni sem beindust fyrst og fremst að starfsmanni Tryggingastofnunnar ríkisins. Er honum gefið að sök að hafa hótað starfsmanninum líkamsmeiðingum, en starfsmaður hafði með mál mannsins að gera hjá stofnuninni. Innlent 25. september 2019 20:45
Hótaði að berja tvo lögreglumenn og sagðist hlakka til að hitta annan þeirra í dimmu húsasundi Karlmaður hefur verið ákærður fyrir umferðarlagabrot og brot gegn valdstjórninni. Maðurinn var handtekinn fyrir ölvunarakstur 11. maí 2001 og hótaði hann lögreglumönnum á lögreglustöðunni á Grensásvegi ofbeldi. Innlent 25. september 2019 18:30
Veitti lögreglumanni „bólgu og eymsli“ Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni, sem hann á að hafa framið fyrir rétt rúmu ári í Ísafjarðarbæ. Innlent 25. september 2019 11:19
Dæmdur barnaníðingur ákærður í keimlíku máli Þorsteinn Halldórsson, karlmaður á sextugsaldri, sætir í annað skiptið á innan við tveimur árum ákæru fyrir kynferðisbrot gegn barni. Innlent 24. september 2019 22:42
33 milljóna úttektir í spilasölum og 4,3 milljóna bíll greiddur með reiðufé Meðal þeirra útgjalda pólskra hjóna sem héraðssaksóknari hefur ákært fyrir peningaþvætti og telur að sé ekki trúverðugar skýringar á eru 33,4 milljóna króna úttektir í spilakössum og kaup eiginmannsins á Hyunday Tucson að andvirði 4,3 milljóna, sem hann greiddi fyrir með reiðufé. Innlent 24. september 2019 20:30
Afkomendum Sævars boðnar 240 milljónir í bætur Þá hafi fimm sakborningum í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum verið samtals boðnar um 760 milljónir í bætur. Innlent 24. september 2019 20:03
Ákærð fyrir peningaþvætti en segjast einfaldlega heppin í spilakössum Pólsk hjón sem sæta ákæru héraðssaksóknara fyrir peningaþvætti gefa þá skýringu að þau hafi lifað hátt vegna þess hve vel manninum gekk að vinna í spilakössum. Innlent 24. september 2019 12:31
Ríkislögmaður segir áhrif sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálum á framvindu máls hafa áhrif á bætur Andri Árnason, settur ríkislögmaður, segir taka þurfi mið af því hvort einstaklingur sem sýknaður hefur verið hafi á einhvern hátt stuðlað að því að rangur dómur hafi verið upp kveðinn þegar bætur eru ákvarðaðar. Innlent 23. september 2019 23:14
Hæstiréttur staðfestir úrskurð Landsréttar Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar sem hafnaði kröfu Isavia um að fá úrskurð Héraðsdóms Reykjaness felldan úr gildi þess efnis Isavia yrði að afhenda bandaríska leigufélaginu ALC Airbus-þotu sem Isavia hafði kyrrsett gegn öllum skuldum flugfélagsins WOW air. Viðskipti innlent 23. september 2019 17:23
Neitar að hafa brotið tvisvar á fjórtán ára stúlku Karlmaður sem sakaður er um að hafa brotið tvívegis kynferðislega gegn fjórtán ára stúlku fyrri hluta árs 2017 neitar sök í málinu. Aðalmeðferð í málinu fer fram í október við Héraðsdóm Reykjavíkur. Innlent 23. september 2019 16:30
Ákærður fyrir líkamsárás á Götubarnum 21 árs karlmaður sætir ákæru fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Götubarnum við Hafnarstræti á Akureyri í febrúar í fyrra. Innlent 23. september 2019 14:09
Dæmdur í fangelsi fyrir að stela kjúklingabringum úr Krónunni Karlmaður var fyrir helgi dæmdur í átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ítrekaðan vörustuld úr matvöruverslunum frá því í mars á þessu ári þar til í júlí. Innlent 23. september 2019 10:22
Segir greinargerð ríkislögmanns grimma Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, segir þá stöðu sem er komin upp í máli sakborninganna í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum vera eins og kjaftshögg fyrir aðila málsins. Innlent 22. september 2019 19:58
Segir ríkið hafna nútímavísindum til þess að „fara sem verst með sakborningana“ Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar sem stefnt hefur ríkinu til greiðslu bóta með dráttarvöxtum upp á 1,3 milljarða króna, segir ríkislögmann ekki vera sjálfstæða stofnun. Innlent 22. september 2019 18:00
Landsréttur staðfesti sýknudóm í nauðgunarmáli Sýknudómur Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni frá því í desember árið 2018 var staðfestur í Landsrétti í dag. Innlent 20. september 2019 21:42
Krefst fimm ára fangelsis yfir Árna Gils Héraðssaksóknari krafðist fimm ára fangelsisdóms yfir Árna Gils Hjaltasyni vegna tilraunar til manndráps við lok aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 20. september 2019 17:15
Tveggja ára dómur fyrir nauðgun á Þjóðhátíð Landsréttur hefur dæmt Helga Fannar Sæþórsson í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa, á Þjóðhátíð 2015, nauðgað konu sem ekki gat spornað við verknaðinum sökum svefndrunga og ölvunar. Innlent 20. september 2019 17:08
Dómur mildaður í nauðgunarmáli manns sem kom GPS-tæki fyrir í bíl konu sinnar Landsréttur hefur mildað dóm yfir karlmanni á fertugsaldri fyrir að nauðga þáverandi eiginkonu sinni og að koma GPS-tæki fyrir í bíl konunnar, án hennar vitundar, í þeim tilgangi að fylgjast með ferðum hennar. Innlent 20. september 2019 16:59
Þinghaldi lokað á meðan fyrrverandi vinkona Árna bar vitni Dómari féllst á beiðni saksóknara sem sagði vitnið óttaslegið og telja viðvist fólks í dómsalnum geta haft áhrif á framburð sinn. Innlent 20. september 2019 13:46
Deilt um dagbókarfærslur lögreglu í stóra amfetamínmálinu Verjendur og saksóknari í umfangsmiklu fíkniefnamáli þar sem þrír menn eru ákærðir fyrir framleiðslu á rúmum átta kílóum af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði tókust á um það fyrir dómi í dag hvort ákæruvaldinu beri að leggja fram dagbókarfærslur lögreglu í málinu. Innlent 20. september 2019 12:30
Guðmundar og Geirfinnsmálið: „Ríkið er nú komið í stríð við Hæstarétt“ Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, segir það hafa komið skjólstæðingi sínum á óvart að ríkisstjórnin skyldi hafa krafist sýknu af skaðabótakröfum Guðjóns vegna fangelsunar hans í Gerfinnsmálinu. Innlent 20. september 2019 09:10
Dómurinn frá 1980 hafi fullt sönnunargildi um málsatvik Ríkið telur að byggja eigi á málsatvikum eins og þeim er lýst í sakfellingardómi Hæstaréttar frá 1980 um bótakröfu Guðjóns Skarphéðinssonar. Ný gögn sem aflað hefur verið gangi ekki framar þeim dómi. Fullyrðingum Guðjóns um ólöglegar rannsóknaraðgerðir hafnað sem ósönnuðum með öllu. Innlent 20. september 2019 06:15
Bensínþjófur slapp með sekt Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í vikunni ungan mann til að greiða Olíuverzlun Íslands 67 þúsund króna skaðabætur auk dráttarvaxta fyrir að hafa ítrekað stolið bensíni frá fyrirtækinu. Innlent 20. september 2019 06:15
Stefna Landspítalanum vegna andláts barns Þau Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeirsson hafa stefnt Landspítalanum til greiðslu miska- og skaðabóta vegna alvarlegra mistaka starfsfólks á fæðingardeild spítalans í ársbyrjun 2015. Innlent 19. september 2019 18:27
Meiðyrðamál Manna í vinnu tekin fyrir Eiríkur Jónsson baðst einn afsökunar vegna ummæla eða fréttar í tengslum við starfsmannaleigu sem var sökuð um misnotkun á starfsmönnum. Hópur verkalýðsforingja fékk kröfubréf. Tvö meiðyrðamál tekin fyrir á morgun. Innlent 19. september 2019 06:15
Lýstu áhyggjum af meðferð skattamála við þingfestingu Jafnt sækjendur, verjendur og dómarar telja meðferð skattlagabrota ekki í lagi nú þegar þrír dómar hafa fallið hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Fjórða málið er komið til efnismeðferðar í Strassborg. Þetta kom fram við þingfestingu máls í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudaginn. Innlent 18. september 2019 07:15
Prófessor sagður tapa trúverðugleika sínum Tónlistarprófessor sem gerði samanburðargreiningu á lögunum Söknuði og You Raise Me Up er sagður hafa fórnað trúverðugleikanum með vinnubrögðunum. Þetta kemur fram í andsvörum lögmanns Jóhanns Helgasonar fyrir dómi. Innlent 18. september 2019 06:30
„Hættur að kippa sér upp við svona atvik í Breiðholtinu“ Íbúar í grennd við Leifasjoppu þar sem Árni Gils Hjaltason er sakaður um tilraun til manndráps árið 2017 báru vitni um rifrildi og mögulegan eftirleik árásar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 17. september 2019 13:59
Sextán kíló af kókaíni, milljónir í reiðufé en allir neita sök Tveir 23 ára karlmenn og einn nýskriðinn yfir tvítugt neita sök í umfangsmiklu kókaínmáli sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 17. september 2019 11:26
Átti í átökum skömmu fyrir áflogin við Leifasjoppu Þetta kom fram í fyrsta skipti þegar réttað var yfir Árna í annað skipti vegna ákæru um tilraun til manndráps í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 17. september 2019 11:00