Búið að tilkynna þáttakendur í skotkeppninni Körfuknattleikssambandið er nú búið að tilkynna þáttakendur í skotkeppninni í stjörnuleikjum KKÍ um helgina. Kvennaleikurinn hefst klukkan 14 á laugardag og karlaleikurinn klukkan 16 og leikið verður í DHL höllinni í Frostaskjóli. Körfubolti 11. janúar 2007 22:30
Bikarmeistararnir fá ÍR í heimsókn Í kvöld var dregið í undanúrslit bikarkeppninnar í körfubolta. Bikarmeistarar Grindavíkur í karlaflokki mæta þá ÍR og Hamar/Selfoss fær heimaleik gegn Keflavík. Í kvennaflokki mætast annarsvegar Keflavík og Hamar og hinsvegar Grindavík og Haukar. Leikirnir fara fram í lok mánaðarins. Körfubolti 10. janúar 2007 23:34
Búið að velja í stjörnuliðin Nú er búið að velja í stjörnulið karla og kvenna í körfubolta, en árlegir stjörnuleikir fara fram í DHL-höllinni í vesturbænum á laugardaginn. Kvennaleikurinn er klukkan 14 og karlaleikurinn klukkan 16. Blandað er í liðum í kvennaflokki en hjá körlunum er það úrvalslið Íslendinga gegn úrvalsliði Íslands. Þá verða skotkeppnin og troðkeppnin á sínum stað ef næg þáttaka verður. Körfubolti 10. janúar 2007 16:28
Keflavík og ÍR í undanúrslit Keflavík og ÍR tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar í körfubolta. Keflvíkingar burstuðu lið FSU 117-77 og ÍR-ingar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Skallagrím 82-88 í Seljaskóla. Það eru því Keflavík, Grindavík, Hamar/Selfoss og ÍR sem eru komin í undanúrslitin í bikarnum. Körfubolti 9. janúar 2007 21:09
Grindavík áfram í bikarnum Karlalið Grindavíkur lagði KRb í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í körfubolta í kvöld 100-76 og er því komið í undanúrslit keppninnar líkt og Hamar/Selfoss. Átta liða úrslitunum líkur annað kvöld með leikjum ÍR-Skallagríms og FSU-Keflavík. Keflavík lagði svo Breiðablik í kvennaflokki í kvöld 91-36 og tryggði sér sæti í undanúrslitum. Körfubolti 8. janúar 2007 21:40
Skallagrímur lagði Keflavík Skallagrímur lagði Keflavík 100-98 í hörkuleik í úrvalsdeild karla sem fram fór í Borgarnesi í dag. Heimamenn náðu mest 17 stiga forskoti í leiknum en Keflvíkingar náðu að jafna í lokin. Það var svo Axel Kárason sem gerði út um leikinn þegar 5 sekúndur voru eftir með tveimur vítaskotum. Körfubolti 6. janúar 2007 17:46
Loksins sigur hjá Bárði Bárður Eyþórsson krækti í sinn fyrsta sigur sem þjálfari síðan 22. október í kvöld þegar hans menn í Fjölni unnu óvæntan útisigur á Grindvíkingum í úrvalsdeild karla í körfubolta 85-78. Fjölnir er því kominn af fallsvæðinu og er í 10. sæti deildarinnar en Grindavík er í 6. sæti. Körfubolti 5. janúar 2007 21:04
Bumban fær góðan liðsstyrk Lið KR b, eða Bumban eins og það er gjarnan kallað, hefur nú fengið til sín góðan liðsstyrk fyrir bikarleikinn gegn Grindavík á mánudaginn. Hér er um að ræða Bandaríkjamanninn Ben Jacobson frá Northern Iowa háskólanum. Körfubolti 5. janúar 2007 17:05
KR og Njarðvík á toppnum KR og Njarðvík sitja á toppi úrvalsdeildar karla í körfubolta eftir leiki kvöldsins. KR-ingar unnu góðan sigur á Snæfelli í Stykkishólmi 74-71, Njarðvík lagði ÍR syðra 100-85, Tindastóll lagði Hauka 79-75 og Hamar/Selfoss lagði granna sína í Þór 80-68 í Hveragerði. Körfubolti 4. janúar 2007 21:27
Snæfell yfir í hálfleik Snæfell hefur yfir 46-42 gegn KR í stórleik kvöldsins í úrvalsdeild karla í körfuknattleik. Heimamenn hafa verið skrefinu á undan í fyrri hálfleik en munirinn hefur þó aldrei verið mikill. Bein lýsing á leiknum er á heimasíðu KR-inga. Körfubolti 4. janúar 2007 19:56
Risaslagur í Hólminum í kvöld Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld þegar Snæfell tekur á móti KR í Stykkishólmi. Þá mætast grannarnir Hamar/Selfoss og Þór í Hveragerði, Njarðvík tekur á móti ÍR og Tindastóll mætir Haukum á Sauðárkróki. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15 Körfubolti 4. janúar 2007 16:19
Soltau farinn frá Keflavík Danski miðherjinn Thomas Soltau hefur verið látinn fara frá úrvalsdeildarliði Keflavíkur í körfubolta og heldur til síns heima á morgun. Á vef Keflavíkur kemur fram að Soltau hafi ekki hentað nógu vel í leikskipulagi liðsins en hann skoraði 15 stig að meðaltali fyrir liðið í vetur. Körfubolti 2. janúar 2007 17:45
Snæfell vann Keflavík Snæfell og Njarðvík komust í dag upp að hlið KR á topp Iceland Express-deildar karla í körfubolta með því að sigra í sínum leikjum í dag. Snæfell hafði betur í stórslagnum gegn Keflavík, 80-67, en Njarðvík marði sigur gegn Þór Þ. á heimavelli sínum, 105-100. Körfubolti 30. desember 2006 18:05
KR vann en Skallagrímur tapaði KR vann mjög mikilvægan útisigur á Grindavík í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld. KR skoraði 89 stig gegn 78 stigum heimamanna og náði með sigrinum tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar. Skallagrímur tapaði óvænt fyrir ÍR í Breiðholtinu. Körfubolti 29. desember 2006 21:09
Njarðvíkingar á toppinn Njarðvíkingar skelltu sér á toppinn í úrvalsdeild karla í körfubolta ásamt Snæfelli, KR og Skallagrími í kvöld þegar þeir lögðu granna sína í Keflavík 86-72 í hörkuleik í Njarðvík. Heimamenn höfðu yfir 50-42 í hálfleik. Þá vann kvennalið Hauka nauman sigur á Grindvíkingum 82-81 í efstu deild kvenna. Körfubolti 21. desember 2006 21:27
Þetta eru alltaf skemmtilegustu leikirnir Njarðvík og Keflavík mætast í kvöld í síðasta leik Iceland-Express deildar karla fyrir jól. Leikurinn fer fram í Njarðvík og hefst klukkan 19.15. Liðin eru í fjórða og fimmta sæti fyrir leikinn, bæði með fjórtán stig eftir níu leiki, en Skallagrímur, KR og Snæfell verma fyrstu þrjú sætin, öll með sextán stig eftir tíu leiki. Körfubolti 21. desember 2006 00:01
Hamar/Selfoss mætir KR Í dag var dregið í 8-liða úrslit bikarkeppni Lýsingar í körfubolta í karla- og kvennaflokki, en bikardrátturinn fór fram í húsakynnum Lýsingar. Í karlaflokki verða tvær viðureignir úrvalsdeildarliða þar sem ÍR mætir Skallagrími og Hamar/Selfoss tekur á móti KR. Körfubolti 18. desember 2006 15:20
Njarðvík og Keflavík halda sínu striki Það er að verða ansi þröngt á þingi á toppnum í Iceland Express deild karla í körfubolta, en í dag komst Njarðvík upp að hlið Skallagríms, Snæfells og KR á toppi deildarinnar með sigri á botnliði Hauka 104-99. Keflvíkingar geta komist upp að hlið toppliðanna með sigri í leiknum sem liðið á til góða en liðið lagði granna sína í Grindavík í dag 90-86. Körfubolti 17. desember 2006 20:56
Skallagrímur á toppinn Skallagrímsmenn komust í kvöld upp að hlið Snæfells og KR á toppi úrvalsdeildar karla í körfubolta með sigri á grönnum sínum í Snæfelli í uppgjöri vesturlandsliðanna í Borgarnesi 83-77. KR vann auðveldan sigur á Tindastól 109-89, Hamar lagði Fjölni á útivelli 88-83 og Þór Þorlákshöfn lagði ÍR 82-78. Körfubolti 15. desember 2006 21:25
Naumt tap hjá Keflavík Keflvíkingar luku keppni í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld og eru úr leik líkt og grannar þeirra úr Njarðvík eftir 113-109 tap gegn sænska liðinu Norrköping í kvöld. Thomas Soltau skoraði 29 stig og hirti 13 fráköst fyrir Keflvíkinga og Jermaine Williams skoraði 20 stig. Keflvíkingar unnu einn leik í riðli sínum sem hljóta að teljast mikil vonbrigði fyrir liðið, sem ætlaði sér alla leið í keppninni. Körfubolti 14. desember 2006 20:21
Njarðvík úr leik án sigurs Njarðvíkingar töpuðu sjötta og síðasta leik sínum í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld þegar liðið lá fyrir Tartu Rock frá Eistlandi 100-88 á útivelli. Jeb Ivey skoraði 22 stig fyrir Njarðvík og Brenton Birmingham 20 en Njarðvíkingar töpuðu öllum sex leikjum sínum í keppninni. Körfubolti 14. desember 2006 20:17
16-liða úrslitin klárast í kvöld Í kvöld fara fram tveir síðustu leikirnir í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í körfubolta. Fjölnir tekur þá á móti Keflavík í Grafarvogi og ÍR fær Stjörnuna í heimsókn. Einn leikur verður svo á dagskrá í IE deild kvenna, þar sem ÍS mætir Breiðablik í Kennaraháskólanum. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15. Körfubolti 11. desember 2006 15:58
KR lagði Tindastól Nokkrir leikir fóru fram í bikarkeppninni í körfubolta í dag og í kvöld og þá var einn leikur á dagskrá í IE deild kvenna. KR-ingar notuðu góðan endasprett til að leggja Tindastól að velli fyrir norðan 94-86 þar sem Jeremiah Sola skoraði 33 stig og þá vann Hamar/Selfoss góðan sigur á grönnum sínum í Þór frá Þorlákshöfn 78-64. Körfubolti 10. desember 2006 22:08
Mikið fjör í bikarnum á morgun Á morgun hefjast 16-liða úrslitin í Lýsingarbikar karla í körfubolta með fjórum leikjum. Grannliðin Hamar/Selfoss og Þór Þorlákshöfn eigast þá við í Hveragerði klukkan 16 og klukkan 19:15 mætast Keflavík B og Grindavík í Keflavík, Valur og Skallagrímur í Kennaraháskólanum og Tindastóll tekur á móti KR á Króknum. Körfubolti 9. desember 2006 21:25
Tap hjá Njarðvík og Keflavík Körfuboltalið Njarðvíkur og Keflavíkur töpuðu bæði stórt í leikjum sínum í Evrópukeppninni í kvöld, en bæði lið mættu sterkum andstæðingum í Úkraínu. Njarðvík tapaði fyrir Cherkaski Mavpy 114-73 og Keflavík tapaði 93-78 fyrir Dnipro. Körfubolti 7. desember 2006 18:54
Snæfell á toppinn Snæfell vann gríðarlega mikilvægan sigur á Grindavík á útivelli í Iceland Express-deild karla í kvöld, 68-75. Með sigrinum komst Snæfell á topp deildarinnar. Körfubolti 4. desember 2006 20:30
KR tapaði óvænt í Hveragerði Skallagrímur komst upp að hlið KR og Snæfells á topp Iceland Express-deild karla í körfubolta eftir tiltölulega auðveldan sigur á Þór á Þorlákshöfn í kvöld, 98-80. Á sama tíma tapaði topplið KR fyrir Hamar/Selfoss í Hveragerði, 83-69. Fjórir leikir voru á dagskrá í kvöld. Körfubolti 3. desember 2006 20:48
Frítt á leik Njarðvíkur og Samara Njarðvíkingar spila í kvöld sinn síðasta heimaleik í Evrópukeppninni í haust þegar þeir taka á móti rússneska liðinu Samara, en leikið er í Keflavík. Sparisjóður Keflavíkur hefur ákveðið að bjóða frítt á leikinn sem hefst klukkan 19:15 og því upplagt fyrir alla að mæta á leikinn og styðja við bakið á Njarðvíkingum. Körfubolti 1. desember 2006 15:49
Keflvíkingar steinlágu á heimavelli Karlalið Keflvíkinga í körfubolta steinlá á heimavelli sínum fyrir tékkneska liðinu Mlekarna Kunin 108-78 í Áskorendakeppni Evrópu. Keflvíkingar hafa unnið einn leik í riðlinum en tapað þremur. Körfubolti 30. nóvember 2006 21:10
Keflavík og Haukar í eldlínunni í kvöld Tvö íslensk lið verða í eldlínunni í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld. Karlalið Keflavíkur tekur þá á móti tékkneska liðinu Mlekarna Kunin á heimavelli sínum í Keflavík klukkan 19:15 og Haukastúlkur sækja lið Canarias heim á Las Palmas. Körfubolti 30. nóvember 2006 15:00