Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2026 06:33 Valgerður Guðsteinsdóttir leggur allt sitt í íþróttina sem hún elskar en það kostar sitt að vera atvinnumaður í íþróttinni og það getur reynt á þegar styrkirnir eru fáir. @valgerdurgud Íslenska hnefaleikakonan Valgerður Guðsteinsdóttir segist elska íþróttina sína en segir jafnframt að það bitni mikið á sér að hún sé ekki á heimavelli þegar kemur að því að draga að sér athygli á samfélagsmiðlum eða í fjölmiðlum. Valgerður talar hreint út í myndbandi á samfélagsmiðlum. „
Ég er að spá í hvort ég eigi ekki bara að fara að byrja að gera það eina sem virðist ganga best í dag. Það er bara að taka upp símann og pósta öllu sem ég er að hugsa þegar ég er að hugsa það, það skiptir ekki máli hvaða afleiðingar það hefur eða hvort það sé yfirhöfuð að fara með rétt mál,“ sagði Valgerður Guðsteinsdóttir í myndbandinu sínu. Ákall hennar er um það að fólk kafi lengra og kynni sér meira en það sem er áberandi á samfélagsmiðlunum. Hún segist ekki vera mikið fyrir athyglina og að vinna hennar fari fram á bak við tjöldin en að hún sé atvinnuboxari af því að hún elskar íþróttina. „Ég þoli ekki þennan skrípaleik,“ sagði Valgerður og er þar að vísa í það að vekja á sér athygli á samfélagsmiðlum. Hún ræðir pólitíkina í kringum íþróttina og er þakklát því fólki sem er að taka upp hanskann fyrir sig og aðra. Virðist bara gleymast „Það minnti mig samt einu sinni enn á það að minn akkilesarhæll er einmitt það að ég vek ekkert sérlega athygli. En einmitt þess vegna þá virðist ég bara gleymast. Ég er ekki nefnd í sumum greinum. Ég er rangnefnd,“ sagði Valgerður. „Ekki eins og þetta sé flókið því við erum þrjú í atvinnuhnefaleikunum. Nú er ég búin að keppa á stærsta sviði sem hnefaleikakappi á Íslandi hefur gert, stærsta vettvanginum. Ég er búin að keppa á móti til dæmis heimsmeisturum, Evrópumeisturum og fleirum. Oft með engum litlum sem engum fyrirvara. Jafnvel án þjálfara,“ sagði Valgerður. „Ég nenni ekki að vera næs lengur. Ég er hætt að vera næs,“ sagði Valgerður sem segist skorta fjármagn og fólk á bak við sig til þess að fjármagna hnefaleikalífið sitt. Ég elska þessa íþrótt „Ég er að þessu af því ég elska þessa íþrótt. Ég er í bullandi mínus það sem af er ferlinum mínum, þurfa að vera að keppa úti, æfa úti og borga fyrir plássið mitt á korti. Borga fyrir þjálfunina, vinna í hlutavinnu og fara í launalaust frí. Ég væri ekki að þessu ef ég elskaði ekki þessa íþrótt og allt sem hún hefur gert fyrir mig. Ég var bara að prófa að ranta og koma hérna inn án þess að hugsa,“ sagði Valgerður. „Mér sárnar að það sé gengið fram hjá mér trekk í trekk í trekk og alls konar fokking kjaftæði sagt við mig og ég þegi bara alltaf af því að ég veit hvað er satt og hvað er ekki. Ég þarf ekki á þessu að halda,“ sagði Valgerður. Taugaáfall og alls konar kjaftæði „Ég elska þessa íþrótt. Ég væri ekki í henni ef ég gerði það ekki og hún er búin að kosta mig blóð, svita, tár, peninga, taugaáfall, alls konar kjaftæði sem hefur gengið yfir mig en hún er búin að gefa mér svo margt. Ég er svo miklu, miklu sterkari og stærri manneskja en ég var. Þökk sé atvinnuhnefaleikunum,“ sagði Valgerður. Hún bætir við að hún hafi keppt síðast í ágúst og vann þann bardaga. „Ég er langt frá því að vera hætt. Ég er bara að bíða eftir því núna að komast aftur út. Aftur peningar, krakkar, lítið af þeim. En þess vegna er ég einmitt að detta hérna inn, blaðra, af því að athygli eykur líkur á því að ég fái styrki til þess að geta haldið áfram,“ sagði Valgerður eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Valgerdur Gudsteinsdottir 🦁 1st&only female 🇮🇸 pro boxer (@valgerdurgud)
Box Samfélagsmiðlar Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Sjá meira