Snæfell fyrsta liðið til að vinna Grindavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2010 20:29 Sean Burton lék vel með Snæfelli í kvöld.
Íslandsmeistarar Snæfellinga urðu í kvöld fyrsta liðið til að vinna Grindavík í Iceland Express deild karla í vetur þegar Snæfell vann átta stiga sigur í leik liðanna í Hólminum, 79-71. Grindavík var búið að vinna fyrstu fimm leiki sína en Snæfell tók af þeim toppsætið með þessum sigri. Sean Burton lék mjög vel fyrir Snæfellsliðið í kvöld sérstaklega í seinni hálfleiknum þar sem hann skoraði 17 af 23 stigum sínum. Pálmi Freyr Sigurgeirsson skorðai 18 stig og Jón Ólafur Jónsson var með 16 stig og 10 fráköst fyrir Snæfell í kvöld. Páll Axel Vilbergsson var stigahæstur há Grindavík með 20 stig. Grindavíkingar héngu í heimamönnum framan af leik, staðan var 18-18 eftir fyrsta leikhluta og Snæfell var með sjö stiga forskot í hálfleik, 39-32. Snæfell stakk hinsvegar af í þriðja leihlutanum sem liðið vann 26-19 og var því komið fjórtán stigum yfir fyrir fjórða leikhlutann, 65-51. Grindvíkingar gáfust ekki upp og náðu að koma muninum niður í sex stig á lokasekúndunum en það var ekki nóg og heimamenn unnu þriðja leikinn sinn í röð. Helgi Jónas Guðfinnsson, þjálfari Grindvíkinga, tók fram skónna og spilaði leikinn en Grindavíkurliðið lék án bandarísk leikmanns þar sem að Andre Smith var farinn frá liðinu. Helgi Jónas spilaði í 8 mínútur og skoraði á þeim 9 stig. Snæfell-Grindavík 79-71 (18-18, 21-14, 26-19, 14-20) Snæfell: Sean Burton 23/5 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 18/4 fráköst/6 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 16/10 fráköst/5 stoðsendingar, Ryan Amaroso 11/13 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 6/4 fráköst, Emil Þór Jóhannsson 3/3 varin skot, Kristján Andrésson 2.Grindavík: Páll Axel Vilbergsson 20/7 fráköst, Ryan Pettinella 14/11 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 13/9 fráköst, Ólafur Ólafsson 9/6 fráköst/7 stoðsendingar, Helgi Jónas Guðfinnsson 9, Þorleifur Ólafsson 6.
Dominos-deild karla Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira