Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Bandaríska tímaritið New York hefur sent aðalfréttaritara sinn í Washington-borg í leyfi eftir að í ljós kom að hún átti í sambandi við Robert F. Kennedy yngri, fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Blaðakonan skrifaði meðal annars um Kennedy. Erlent 20. september 2024 23:23
Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykktu í dag frumvarp um að Lífvarðaþjónusta Bandaríkjanna (e. Secret Service) eigi að auka gæslu með forsetaframbjóðendum til jafns við þá gæslu sem sitjandi forseti fær. Erlent 20. september 2024 16:07
Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Kamala Harris og Donald Trump mældust með jafn mikinn stuðning á landsvísu í nýrri skoðanakönnun New York Times, Philadelphia Inquirer og Siena College. Erlent 20. september 2024 12:44
Ef Trump tapar kosningunum… Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum eru að verða spennuþrungnari dag frá degi. Ég sé að allir helstu fjölmiðlar á Íslandi eru með sérstaka umfjöllun um kosningarnar þar sem fleiri fylgjast með fréttum og það eru aðeins nokkrar vikur til þriðjudagsins 5. nóvember, þá er kjördagur. Skoðun 20. september 2024 09:31
Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Íbúar Springfield í Ohio í Bandaríkjunum eru ekki á einu máli hvað varðar yfirvofandi heimsókn Donald Trump en forsetinn fyrrverandi sagði á dögunum að hann hygðist heimsækja borgina á næstu tveimur vikum. Erlent 20. september 2024 07:19
Harris eykur forskotið á landsvísu Útlit er fyrir að staða Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna, hafi batnað eilítið á landsvísu í Bandaríkjunum eftir kappræðurnar milli hennar og Donalds Trump. Samkvæmt meðaltali kannana hefur fylgi hennar aukist um 0,4 prósentustig og eru líkur hennar á sigri taldar meiri en nokkru sinni áður. Erlent 18. september 2024 14:16
„Það spurði þig enginn“ Tónlistarmanninum Pharrell Williams þykir ekki mikið til þess koma þegar aðrar stjörnur tjá sig um pólitík. Hann segist sjálfur halda sínum skoðunum út af fyrir sig. Lífið 18. september 2024 11:03
Microsoft segir rússneskt tröllabú á bak við falsáróður um Harris Rannsóknir Microsoft hafa leitt í ljós að „tröllabúið“ Storm-1516, rússneskur hópur tölvuþrjóta hliðhollur stjórnvöldum í Moskvu, sé að baki myndskeiði þar sem Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, er sökuð um að hafa ekið á stúlku og svo á brott. Erlent 18. september 2024 07:49
Lífvarðaþjónustan segist meðvituð um tíst Musk um Biden og Harris Talsmenn Lífvarðaþjónustu Bandaríkjanna (e. Secret Service) segjast meðvitaðir um færslu sem frumkvöðullinn og athafnamaðurinn Elon Musk birti á X, þar sem hann vakti athygli á því að enginn væri að reyna að ráða Joe Biden og Kamölu Harris af dögum. Erlent 17. september 2024 07:36
Litlar breytingar á fylgi eftir kappræðurnar Kappræðurnar milli Donalds Trump og Kamölu Harris í síðustu viku virðast hafa haft lítil áhrif á fylgi frambjóðendanna, þó flestir kjósendur séu sammála um að Harris hafi staðið sig betur. Hún hefur enn naumt forskot á Trump á landsvísu. Erlent 16. september 2024 10:39
Níu af hverjum tíu Íslendingum myndu kjósa Harris Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga, eða 91 prósent, myndu kjósa demókratann og varaforseta Bandaríkjanna, Kamölu Harris, ef þeir væru með kosningarétt í bandarísku forsetakosningunum sem fram fara í nóvember. Níu prósent myndu kjósa repúblikanann og forsetann fyrrverandi, Donald Trump. Innlent 16. september 2024 07:56
Grunaður tilræðismaður vildi berjast og deyja í Úkraínu Ryan Wesley Routh, 58 ára, sem handtekinn var í gær grunaður um að hafa haft í hyggju að ráða Donald Trump af dögum, lýsti því yfir á samfélagsmiðlum árið 2022 að hann væri reiðubúinn til að ferðast til Úkraínu og gefa líf sitt til að berjast við Rússa. Erlent 16. september 2024 07:31
Vaktin: Rannsakað sem banatilræði gegn Trump Karlmaður hefur verið handtekinn grunaður um banatilræði gegn Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta á golfvelli hans í Flórída. Ýmislegt er á reiki um árásina en fyrir liggur að leyniþjónustumenn skutu í átt að meintum byssumanni. Alríkislögeglan rannsakar árásina sem banatilræði. Erlent 15. september 2024 19:28
Hét því að vísa haítískum innflytjendum til Venesúela Donald Trump, forsetaframbjóðandi repúblikana, hét því að vísa þúsundum löglegra haítískra innflytjenda frá einni tiltekinni borg í Ohio úr landi í dag. Hann virtist ruglaður í ríminu þegar hann sagðist ætla að senda fólki „aftur til Venesúela“. Erlent 13. september 2024 22:37
Hafa áhyggjur af samsæringi sem fylgir Trump Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, hefur á undanförnum dögum ítrekað sést í fylgd með konu sem heitir Laura Loomer. Sú er fjar-hægri aðgerðasinni, yfirlýstur múslimahatari og samsæringur, svo eitthvað sé nefnt, og hefur vera hennar með Trump vakið áhyggjur hjá einhverjum bandamönnum hans. Erlent 13. september 2024 16:14
Hafnar frekari kappræðum við Harris Donald Trump ætlar ekki að mæta Kamölu Harris í fleiri sjónvarpskappræðum. Meirihluti í skoðanakönnunum taldi Harris hafa komið betur út úr fyrstu, og væntanlega einu, kappræðum þeirra Trump á aðfararnótt miðvikudags. Erlent 12. september 2024 20:49
Trump vígreifur en veit betur Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, heldur því enn fram að hann hafi staðið sig frábærlega í kappræðunum gegn Kamölu Harris á aðfaranótt miðvikudags. Bandamenn hans segja þó, í einrúmi, að það sé ekki rétt og ítrekaðar yfirlýsingar Trumps um að hann hafi sigrað benda til þess að hann viti að hann hafi ekki staðið sig vel. Erlent 12. september 2024 16:12
Gerði sér mat úr kattaráti andlega veikrar konu Eitt umtalaðasta atvikið frá kappræðum forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum í gærnótt er samsæriskenning Donald Trump um gæludýraát innflytjenda. Frekari upplýsingar hafa nú komið fram um meint dýraát, sem forsetinn fyrrverandi byggði kenningu sína á. Erlent 11. september 2024 23:44
Býður Taylor barn Auðkýfingurinn Elon Musk er ólíkindatól. Í dag skrifaði hann einkennilega færslu á samfélagsmiðli sínum X þar sem hann býðst til þess að gefa söngkonunni Taylor Swift barn eftir að hún gaf út stuðningsyfirlýsingu við Kamölu Harris forsetaefni Demókrata. Lífið 11. september 2024 20:19
Baráttan um Bandaríkin: Sögulegar kappræður gerðar upp Kamala Harris og Donald Trump mættust í gærkvöldi í sínum fyrstu, og mögulega einu, kappræðum fyrir forsetakosningarnar 5. nóvember næstkomandi. Kappræðurnar verða krufnar til mergjar í Baráttan um Bandaríkin í beinni útsendingu á Vísi klukkan 13. Erlent 11. september 2024 11:34
„Barnlausa kattakonan“ lýsir yfir stuðningi við Harris Bandaríska stórstjarnan Taylor Swift hefur lýst yfir stuðningi við Kamölu Harris, varaforseta og frambjóðanda Demókrata, í bandarísku forsetakosningunum sem fram fara 5. nóvember næstkomandi. Lífið 11. september 2024 07:11
Trump í mikilli vörn en lýsir yfir sigri Donald Trump varði nánast öllum kappræðunum í nótt í að verjast Kamölu Harris. Eitt hennar helsta markmið í aðdraganda kappræðanna var, samkvæmt ráðgjöfum hennar, að koma Trump úr jafnvægi og er óhætt að segja að það hafi tekist. Erlent 11. september 2024 04:13
Bein útsending: Harris og Trump takast á í fyrsta sinn Þau Donald Trump og Kamala Harris takast á í kappræðum í fyrsta sinn í kvöld. Mikið er undir í kappræðunum þar sem kannanir gefa til kynna að frambjóðendurnir séu hnífjafnir, bæði á landsvísu og í sjö mikilvægustu ríkjunum. Erlent 10. september 2024 23:00
Trump verði áfram Trump en meira í húfi fyrir Harris Mikil eftirvænting ríkir fyrir fyrstu, og mögulega einu, kappræðunum á milli forsetaframbjóðendanna Donalds Trump og Kamölu Harris sem verður sjónvarpað frá Pennsylvaníu í nótt. Það er meira í húfi fyrir Harris en Trump að mati sérfræðings, þótt Trump sé minna spenntur fyrir að mæta Harris en hann var fyrir að mæta Biden. Erlent 10. september 2024 20:02
Reglur kvöldsins: Engir áhorfendur og slökkt á meðan hinn talar Menn bíða þess nú með mikilli eftivæntingu að Kamala Harris og Donald Trump mætist í fyrstu, og mögulega einu, kappræðum sínum fyrir forsetakosningarnar 5. nóvember. Erlent 10. september 2024 10:57
Rýnt í kannanirnar: Hnífjafnt hjá Harris og Trump Frá því Kamala Harris tók við tilnefningu Demókrataflokksins til forsetakosninganna í nóvember hafa orðið töluverðar breytingar á fylgi frambjóðanda. Joe Biden, núverandi forseti og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, var ekki í góðri stöðu gegn Trump en myndin hefur breyst. Erlent 9. september 2024 15:17
„Gætu orðið áhrifamestu kappræður allra tíma“ Aðeins tveir dagar eru nú í fyrstu kappræður Kamölu Harris og Donalds Trump, sem lýst hefur verið sem mikilvægustu stund kosningabaráttunnar. Frambjóðendurnir mælast hnífjafnir og gríðarleg eftirvænting er fyrir kappræðunum vestanhafs, sem haldnar verða í Fíladelfíu á þriðjudag. Erlent 8. september 2024 22:08
Varaforseti Bush yngri ætlar að kjósa Harris Dick Cheney, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og repúblikani, ætlar að greiða Kamölu Harris, frambjóðanda demókrata, atkvæði sitt í forsetakosningunum í nóvember. Hann segir að aldrei megi fela Donald Trump völd aftur. Erlent 6. september 2024 23:12
Refsing Trump í þagnargreiðslumáli ákveðin eftir kosningar Dómari í New York féllst á kröfu verjenda Donalds Trump um að fresta ákvörðun refsingar hans í þagnargreiðslumáli hans þar til fram yfir forsetakosningarnar í nóvember. Sagði hann dómstólinn ekki vilja hafa áhrif á kosningarnar. Erlent 6. september 2024 17:54
Project 2025 og Bandaríkin eftir Trump: „Ég held að það sé alveg ástæða til að hafa áhyggjur“ „Ég held að það sé alveg ástæða til að hafa áhyggjur en það er ekkert sjálfsagt að þetta gangi allt í gegn,“ sagði Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, um Project 2025 í þættinum Baráttan um Bandaríkin á miðvikudag. Erlent 6. september 2024 07:50