

Bíó og sjónvarp
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.

Kynntu dagskrá RIFF 2024
Dagskrá kvikmyndahátíðarinnar RIFF í ár var kynnt á blaðamannafundi í Háskólabíói í morgun. Hrönn Marínósdóttir, stjórnandi RIFF, bauð gesti velkomna og talaði um sérstöðu og mikilvægi RIFF í íslensku samfélagi. Viðburðir og úrval mynda hefur sjaldan verið jafn mikið og á hátíðinni í ár sem hefst eftir viku þann 26. september og stendur yfir til 6. október.

Þakkaði fyrir sig á íslensku
Bandaríska stórleikkonan Jodie Foster þakkaði sérstaklega fyrir sig á íslensku þegar hún tók við Emmy verðlaununum í nótt fyrir hlutverk sitt í spennuþáttunum True Detective: Night Country. Eins og alþjóð veit voru þættirnir að mestu teknir upp á Dalvík.

Shogun á spjöld sögunnar á Emmy verðlaunahátíðinni
Sjónvarpsþáttaseríur líkt og Shogun, The Bear og Baby Reindeer voru meðal þeirra sería sem hlutu flest verðlaun á Emmy verðlaunahátíðinni sem fram fór í nótt. Hver sería um sig fékk fjögur verðlaun.

Snerting framlag Íslands til Óskarsins
Kvikmyndin Snerting verður framlag Íslands til Óskarsveðlaunanna 2025. Í janúar verður ljóst hvort myndin hlýtur tilnefningu til verðlauna eða ekki.

„Myndin byggir á minni eigin lífsreynslu“
Norsk-íslenska kvikmyndagerðarkonan Lilja Ingólfsdóttir á heiðurinn að opnunarmynd Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík í ár, RIFF, en hún hefst í Háskólabíói 26. september næstkomandi og stendur til 6. október. Myndin ber heitið Elskulegur er frumraun Lilju á hvíta tjaldinu og byggir á hennar eigin hjónabandskrísu.

Hafdís segir Emmy tilnefninguna „smá súrrealíska“
Förðunarfræðingurinn Hafdís Pálsdóttir skein skært á Emmy verðlaununum um síðustu helgi þar sem hún og teymið hennar fengu tilnefningu. Blaðamaður ræddi við hana um ferilinn, tilnefninguna og stóra kvöldið.

James Earl Jones er látinn
Bandaríski leikarinn James Earl Jones er látinn, 93. ára að aldri. Jones var hvað þekktastur sem röddin á bakvið illmennið Svarthöfða í Stjörnustríðsmyndunum.

Hlátur og grátur á Ljósvíkingum
Kvikmyndin Ljósvíkingar eftir Snævar Sölvason var frumsýnd í Smárabíó í gær. Þangað lögðu rúmlega átta hundruð manns leið sína til að berja myndina augum í þremur sölum.

Star Wars Outlaws: Ekki eins hræðilegur og internetið segir
Star Wars Outlaws er í fljótu bragði ekki framúrskarandi leikur sem gerist í opnum heimi. Hann fylgir öllum helstu formúlunum og fer sjaldan upp úr þeim förum en hann er þó skemmtilegur og býr yfir góðri sögu úr Star Wars söguheiminum. Hann er ekki gallalaus og hefði haft gott af smá fínpússun fyrir útgáfu.

Hjalti er núllpunkturinn - herra Normalbrauð
Kvikmyndin Ljósvíkingar verður frumsýnd í Smárabíói þriðjudagskvöldið 3. september. Fullyrt er af aðstandendum að myndin sé hlý og notaleg mynd um vináttu og engin ástæða til að efast um það.

Nastassja Kinski heiðursgestur á RIFF í ár
Þýska kvikmyndaleikkonan og fyrirsætan Nastassja Kinski er heiðursgestur á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í ár og hreppir heiðursviðurkenningu RIFF. Hátíðin hefst í Háskólabíói þann 26. september næstkomandi og stendur til 6. október.

Ljósbrot valin besta norræna kvikmyndin
Kvikmyndin Ljósbrot hefur farið sigurför um heiminn og hlaut um helgina aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Osló sem besta norræna kvikmyndin.

Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Svörtu söndum 2
Fyrsta stiklan úr annarri seríu af Svörtu söndum sem sýnd verður á Stöð 2 í haust er komin í loftið á Vísi. Um er að ræða beint framhald af fyrri þáttaröð. Þráðurinn verður tekinn upp fimmtán mánuðum eftir atburðina á Svörtu söndum sem þjóðin fylgdist æsispennt með.

Ældi næstum úr stressi á Cannes
Mikael Kaaber hefur verið að leika frá blautu barnsbeini og er óhræddur við krefjandi hliðar starfsins en Svala kærastan hans hefur spilað veigamikið hlutverk í þróun hans sem listamaður. Hann fer með hlutverk í kvikmyndinni Ljósbrot og segir að það hafi verið óhjákvæmilegt að dýfa tánum í erfiðar tilfinningar í ferlinu. Blaðamaður ræddi við Mikael.

Myndaveisla: Rauður dregill og troðfullt hús á Ljósbroti
Það var líf og fjör í Egilshöllinni í gærkvöldi þegar kvikmyndin Ljósbrot var frumsýnd. Rauður dregill tók á móti gestum, margt var um manninn og fólk úr menningarlífi landsins lét sig ekki vanta.

Snerting hlaut eftirsótt verðlaun
Leikstjórinn Baltasar Kormákur hefur hlotið hin eftirsóttu Roger Ebert Golden Thumb verðlaun fyrir kvikmyndina Snertingu.

Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband
Tónlistarmaðurinn sívinsæli Helgi Björnsson var að senda frá sér lagið Í faðmi fjallanna ásamt tónlistarmyndbandi sem má sjá hér í pistlinum. Lagið er úr nýju íslensku kvikmyndinni Ljósvíkingar en Helgi fer einmitt með hlutverk í henni.

Snerting tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs
Snerting, kvikmynd Baltasars Kormáks, hefur verið tilnefnd til hinna virtu kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Myndin er ein af sex sem tilnefndar eru en tilnefningarnar voru gerðar opinberar á Alþjóðlegu norsku kvikmyndahátíðinni í Haugesund.

Jökull í Kaleo í Glæstar vonir
Jökull Júlíusson söngvari Kaleo mun verða í gestahlutverki í einum frægustu sápuóperuþáttum veraldar, Glæstum vonum. Hann mun flytja eitt af frægustu lögum sveitarinnar í þættinum, Way Down We Go.

Ljósbrot í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna
Á blaðamannafundi í morgun tilkynnti franska leikkonan Juliette Binoche, forseti Evrópsku kvikmyndaakademíunnar, að Ljósbrot undir leikstjórn Rúnars Rúnarssonar hafi verið valin til forvals Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna.

Ólafur Darri og Hera Hilmars saman á skjánum í fyrsta sinn
Leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Hera Hilmarsdóttir munu fara með aðalhlutverkið í íslensku þáttaröðinni Reykjavík Fusion. Þetta er í fyrsta sinn sem þau eru saman á skjánum. Auk þess fara reynsluboltarnir Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson með leikstjórn, í þeirra fyrsta verkefni af slíku tagi, eftir áratugi af auglýsingaleikstjórn.

Lynch ólíklegur til að leikstýra aftur vegna Covidhræðslu
Bandaríski leikstjórinn David Lynch glímir við langvinna lungnaþembu og hefur gefið það í skyn að hann muni ekki koma til með að leikstýra á ný. Hann hættir sér ekki út vegna hræðslu við það að veikjast af sýkingum líkt og Covid.

Stórstjörnur í kvikmynd um fundinn í Höfða
Leikarar á borð við Jeff Daniels, Jared Harris og J.K. Simmons eru væntanlegir hingað til lands í byrjun október til að leika í kvikmynd um fund Ronald Reagans fyrrverandi Bandaríkjaforseta og Mikhail Gorbatsjov fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna í Höfða í Reykjavík.

Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk
Ákvörðun Kvikmyndamiðstöðvar Íslands um að synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk vegna kvikmyndaverkefnis á þeim grundvelli að hún hafi verið illa klippt, fyrirsjáanleg og yfirborðskennd, hefur verið felld úr gildi. Menningar- og viðskiptaráðuneytið kvað upp úrskurð í málinu á dögunum.

Fékk yfir sig olíugusu við tökur á sjónvarpsþáttum
Bandaríska leikkonan Jennifer Aniston var við tökur á sjónvarpsþáttunum The Morning Show í New York-borg um helgina þegar hún fékk yfir sig gusu af olíu.

Robert Downey Jr snýr aftur í Marvel-heima
Stórleikarinn Robert Downey Jr mun fara með hlutverk í tveimur væntanlegum bíómyndum Marvel. Um er að ræða tvíleikinn Avengers: Doomsday og Avengers: Secret Wars, og mun Downey fara með hlutverk skúrksins Victor Von Doom, eða Doctor Doom, í þeim báðum.

Stikla úr ungstjörnumyndinni sem sló í gegn í Cannes
Kvikmyndin Ljósbrot sem skartar ungstjörnunum Elínu Hall, Kötlu Njálsdóttir, Mikael Kaaber, Baldri Einarssyni, Gunnari Kristjánssyni og Ágústi Wigum, fer í almennar sýningar 28 ágúst.

Stikla fyrir nýja íslenska grínþætti: „Þetta er ógeðslega fyndið“
Ný og spennandi grínþáttasería er væntanleg á Stöð 2 á næstunni. Þættirnir fjalla um vini sem ákveða að kaupa subbulegan bar sem er við það að fara á hausinn.

Iceguys snúa aftur í sturluðu tónlistarmyndbandi
Iceguys frumsýna í dag á Vísi sitt nýjasta tónlistarmynd við lagið Gemmér Gemmér. Einn af leikstjórunum segir að strákarnir séu afskaplega hæfileikaríkir og ekkert hafi verið til sparað þegar kom að framleiðslunni á myndbandinu.

Við það að landa Theron og Balta
Óskarsverðlaunaleikkonan Charlize Theron er sögð vera við það að skrifa undir samning um að leika í nýrri kvikmynd sem Baltasar Kormákur er sagður ætla að leikstýra.