Þriðja kynslóð Outlander mætt Fær nýjan undirvagn og vélar og er í boði bæði 5 og 7 manna. Er að auki gerbreyttur í útliti. Bílar 14. febrúar 2013 19:15
Rífast um drægni Tesla Blaðamaður segir bílinn ekki komast 330 km en Tesla segir hann komast 480 á einni hleðslu. Bílar 14. febrúar 2013 14:30
Ný og breytt Ford Fiesta Var mest seldi bíllinn í sínum flokki í Evrópu á síðasta ári og státar af vél ársins 2012. Bílar 14. febrúar 2013 11:46
Lexus og Porsche bila minnst Audi, Volvo, Mitsubishi og Cadillac tóku dýfu Bílar 14. febrúar 2013 11:15
Langur biðlisti eftir Range Rover Fyrsti Range Rover jeppinn af nýrri kynslóð kominn á göturnar hérlendis. Bílar 13. febrúar 2013 15:45
Næsti Golf R með 268 hestöfl Verður öflugasti Golf sem framleiddur hefur verið - mun léttast um 100 kíló. Bílar 13. febrúar 2013 13:15
Flottur hugmyndabíll Kia Mikið er lagt í þennan tvinnbíl, alls 400 hestöfl og nóg af lúxusbúnaði. Bílar 13. febrúar 2013 10:15
Loks dísilknúinn Malibu Er óvenju ríkulega búinn bíll og hefur útlitseinkenni Chevrolet Camaro. Bílar 13. febrúar 2013 08:45
Nýr sparneytinn Forester Er nú kominn með CVT skiptingu og breytta fjöðrun. Bílar 12. febrúar 2013 17:17
Minni vélar - sama afl Samkvæmt spám verður meirihluti nýrra bíla með minni vélum en 1,2 lítra árið 2018. Bílar 12. febrúar 2013 14:30
Jepplingur af stærri gerðinni Afar rúmgóður jepplingur með öfluga dísilvél sem hendir bílnum áfram. Bílar 12. febrúar 2013 09:01
Afsakið að við skutum þig í klessu! Lögreglan lét skothríð rigna yfir saklausar mæðgur sem voru að bera út blöð. Bílar 11. febrúar 2013 15:15
Dýrasta viðgerðin á bíl Mr. Bean Kostaði 184 milljónir að gera við McLaren F1 bíl hans. Bílar 11. febrúar 2013 11:15
Ný ljós Audi ólögleg Lög um ljósabúnað bíla í Bandaríkjunum leyfa ekki þessa nýju tækni Audi. Bílar 11. febrúar 2013 10:45
Bretar veðja á vetnisbíla Gera ráð fyrir að vetnisbílar verði 1,6 milljónir talsins árið 2030. Bílar 10. febrúar 2013 14:30
Sparneytinn ofurbíll Kemst í 300, er 3,5 sekúndur í hundraðið en eyðir 4 lítrum. Bílar 9. febrúar 2013 14:30
Hröð viðbrögð gangandi vegfaranda Gengur stráheill í burtu eftir að lögreglubíll í eltingaleik ekur á hann. Bílar 9. febrúar 2013 11:45
Þessir ná mestu úr vélunum Ariel Atom með fjórfalt afl Citroën C3 á hvern lítra sprengirýmis. Bílar 9. febrúar 2013 09:15
Bestir í endursölu Volkswagen og undirmerki þess eiga 6 bíla meðal 10 efstu. Bílar 8. febrúar 2013 11:15
Nýr Toyota Verso Er rúmmikill 7 sæta bíll með 32 útfærslur á sætisuppröðun. Bílar 8. febrúar 2013 08:45
Enn eitt bílamerki Volkswagen Stofnar nýtt ódýrt bílamerki eða kaupir Alfa Romeo. Bílar 7. febrúar 2013 16:45
Fyrsti dísilknúni fólksbíll GM í 27 ár vestanhafs GM framleiddi þó 500.000 dísilfólksbíla fyrir aðra markaði. Bílar 7. febrúar 2013 12:30
Tíu verstu fyrir bílinn Að fara með bílinn í smurningu er leiðinlegt og tímafrekt. Í raun eru öll lítil og stór viðvik varðandi viðhald á bílnum þreytandi og í þau fer tími sem nota mætti til annarra skemmtilegri hluta. En það eru einmitt þessi smáu atriði sem gætu kostað þig ógnarmikið seinna meir ef þú sinnir þeim ekki. Nýleg könnun sem gerð var meðal sérfræðinga á bílaverkstæðum sýnir 10 algengustu atriði sem orðið gætu að miklum fjárútlátum seinna meir. Þau sjást hér í engri sérstakri röð. Ekki sinna tímasettum viðhaldsskoðunum Leiða hjá sér vélarviðvörunarljós í mælaborði Sinna ekki olíuskiptum á ráðlögðum fresti Skoða aldrei þrýsting í dekkjum Skipta ekki um olíu á skiptingu, bremsuvökva og kælivökva Halda áfram akstri við yfirhitnun vélar Skipta ekki um loftsíur og olíusíur Láta ófaglærða sjá um viðhald bílsins Nota ekki “original” varahluti Að reyna að sinna viðhaldi sjálfur ef þekking er ekki til staðar Bílar 7. febrúar 2013 09:59
Blendingur frá Suzuki í Genf Nú styttist í bílasýninguna í Genf og bílaframleiðendurnir keppast við að greina umheimininum frá því hvaða nýja eða breytta bíla þeir muni sýna þar. Suzuki er einn þeirra og mun þar frumsýna glænýjan bíl í C-stærðarflokki, en sýningin er haldin dagana 5. til 17. mars. Nýi bíllinn er svonefndur blendingur þar sem saman fara stíleinkenni og notkunarmöguleikar fólksbíls, jepplings og fjölnotabíls. Bíllinn byggir á S-Cross hugmyndabílnum sem Suzuki frumsýndi á bílasýningunni í París í september í fyrra. Suzuki hefur ekki látið mikið efni fara frá sér um nýja bílinn en sendi þó nýlega frá sér myndir sem sýna viss hönnunaratriði hans. Fyrirtækið segir að nýi bíllinn státi af miklu innanrými og einu mesta farangursrými í flokki blendinga. Þá búi bíllinn yfir yfirburða fjölhæfni í notkun. Suzuki hefur lengi þótt standa framarlega þegar kemur að fjórhjóladrifstækni og verður þessi nýi bíll fjórhjóladrifinn sem ætti fyrir vikið að bæta aksturseiginleika hans. Á Genfarsýningunni mun Suzuki einnig sýna smábílana Alto og Splash sem og Swift og aldrifsbílana SX4, Jimny og Grand Vitara. Bílar 7. febrúar 2013 09:14
Biðin kostar 104.000 kr. árlega Flestar borgir í Bandaríkjunum eru þéttsetnar bílaumferð og almenningur eyðir miklum tíma og fjármunum í bið til að komast leiðar sinnar. En hvað skildi það kosta meðalmanninn? Umferðarstofnunin A&M í Texas hefur reiknað þetta út og komist að því að sá kostnaður nemur að meðaltali 818 dollurum á ári fyrir hvern ökumann, eða 104.000 krónum. Er þá bæði eldsneytiskostnaður og tapaður tími innifalinn. Auk þess hlýst af þessu gríðarmikil mengun. Af öllum borgum Bandaríkjanna er ástandið verst í Washington. Þar tekur það um 3 klukkutíma að komast leið sem tæki 30 mínútur ef engin væri umferðin. Pensacola í Flórída er best borga hvað þetta varðar og þar þurfa ökumenn ekki að eyða nema 39 mínútum í sama ökutúr, eða aðeins 9 mínútum í bið. Að meðaltali tekur Bandaríkjamann 1,5 klukkutíma að komast leið sem tæki 30 mínútur í engri umferð. Við alla þessa bið eyða Bandaríkjamenn 5,5 milljörðum klukkustunda á ári og 121 milljarði dollara. A&M stofnunin hefur safnað umferðargögnum í 30 og vinnur að því að minnka þennan tíma og leysa umferðarhnúta um allt landið. Á eftir höfuðborginni Washington er ástandið verst í borgunum Los Angeles, San Francisco, New York, Boston, Houston, Atlanta, Chicago, Philadelphia og Seattle. Bandaríkjamenn eyða 11 milljörðum lítra af eldsneyti fastir í umferðinni. Það er því til mikils að vinna að greiða fyrir umferð í landi bílanna. Bílar 6. febrúar 2013 11:00
Nýr keppnisbíll MacLaren McLaren kynnti í síðustu viku nýjan Formúlu 1 keppnisbíl sinn sem þeir kalla MP4-28. Athygli vekur að bíllinn er svo til alveg eins í útliti og síðasti bíll og málaður alveg eins. En undir yfirborðinu leynast ýmsar breytingar og þrátt fyrir að síðasti bíll sé núverandi sigurvegari í Formúlu 1 eru breytingarnar miklar og metnaðarfullar. Fjöðrunin að framan er “pull-rod”-gerðar eins og í keppnisbíl Ferrari, en öndvert við síðasta bíl MacLaren. Hliðar bílsins og botn hafa breyst nokkuð. MacLaren vonar að breyting verði á því, frá síðasta keppnistímabili, að fyrirtækið eigi hraðskreiðasta bílinn í upphafi og enda þess, en eigi svo fullt í fangi við að halda í keppinautana þar á milli. Nú sé komið að því að bíll þeirra sé sá besti allt keppnistímabilið. Það gæti þýtt enn meiri breytingar á bílnum á keppnistímabilinu. Ökumenn MacLaren á næsta keppnistímabili verða Jenson Button, sem leiðir liðið eftir brotthvarf Lewis Hamilton sem fór til Mercedes og Sergio Perez sem var áður hjá Sauber liðinu. Bílar 6. febrúar 2013 08:45