Besta deild karla
Leikirnir
Umjöllun og viðtöl: Valur – Stjarnan 1-2 | Valsarar misstigu sig í toppbaráttunni
Íslandsmeistarar Vals töðuðu 2-1 á móti Stjörnunni í Pepsi Max deild karla í fótbolta í kvöld. Gestirnir frá Garðabæ eru nú ansi nálægt því að tryggja sæti sitt í efstu deild, en tapið gæti orðið dýrkeypt fyrir Valsara í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.
Guðmann tók í lurginn á samherja sínum
Guðmann Þórisson hafði lítinn húmor fyrir því þegar Hörður Ingi Gunnarsson, samherji hans, var að dútla með knöttinn í eigin vítateig gegn Keflavík er liðin mættust í Kaplakrika. Guðmann lét Hörð Inga heyra það og bakvörðurinn svaraði fullum hálsi.
Lof og last: Viktor Örlygur, Sölvi Geir, Kristinn Steindórs, andleysi og misheppnað boð Kópacabana
Síðustu fjóra daga hefur heil umferð farið fram í Pepsi Max deild karla. Raunar voru tveir leikir sem hafði verið frestað fyrr í sumar en það er aukaatriði. Hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last úr síðustu sex leikjum deildarinnar.
Sjáum hvernig hann gengur frá þessum leik
Kristinn Steindórsson var allt í öllu er Breiðablik vann 2-0 útisigur á KA og tyllti sér á topp Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu.
Mörkin sem skutu Blikum á toppinn og halda Evrópubaráttu KR á lífi
Þrír leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gær. Breiðablik tyllti sér á topp deildarinnar með 2-0 útisigri á KA, KR heldur í vonina um Evrópusæti eftir 2-0 útisigur á Akranesi og þá gerðu FH og Keflavík markalaust jafntefli.
Umfjöllun og viðtöl: KA - Breiðablik 0-2 | Blikar á toppinn eftir sigur fyrir norðan
Breiðablik lyfti sér í efsta sæti Pepsi Max deildarinnar með sterkum 2-0 útisigri gegn KA þegar fjórar umferðir eru eftir. Norðanmenn eru hinsvegar nánast búnir að stimpla sig út úr toppbaráttunni.
Umfjöllun og viðtöl: ÍA - KR 0-2 | Skagamenn að renna út á tíma í fallbaráttunni
Skagamenn fengu KR í heimsókn á Akranes í Pepsi-Max deild karla. Skagamenn að róa lífróður á botni deildarinnar en KR-ingar að gæla við baráttu um sæti í Evrópukeppni á næsta ári eftir góðan 2-0 útisigur.
Sigurður Ragnar: Þessir strákar leystu hlutverkin sín með miklum sóma
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, annar þjálfara Keflavíkur, var ánægður eftir markalausa jafnteflið við FH í Kaplakrika í kvöld.
Umfjöllun og viðtöl: FH - Keflavík 0-0 | Bútasaumsvörn Keflvíkinga hélt í Krikanum
FH og Keflavík gerðu markalaust jafntefli í Kaplakrika í frestuðum leik í Pepsi Max-deild karla í kvöld. Þetta var annar leikur liðanna á fimm dögum en FH-ingar rúlluðu yfir Keflvíkinga suður með sjó á laugardaginn, 0-5.
Kjartan Henry: Það kemur mér ekkert á óvart að Skagamönnum finnist eitthvað vera á móti sér
KR fór og sótti þrjú stig á Akranes í kvöld þegar þeir mættu ÍA í Pepsi-Max deild karla. Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, var glaður í leikslok.
Óskar Hrafn: Mikilvægt að menn faðmi hana, umvefji hana og kunni að elska hana
Óskar Hrafn þjálfari Breiðabliks var ánægður þegar honum var tjáð að toppsætið væri Breiðabliks eftir góðan 2-0 útisigur á KA í kvöld.
Steven Lennon ekki meira með á tímabilinu
Framherjinn Steven Lennon verður ekki með FH-ingum í lokaleikjum tímabilsins eftir að hann meiddist á ökkla gegn Keflvíkingum um síðustu helgi.
Þórsarar tóku illa í beiðni stuðningssveitar Blika
Stuðningsfólk Þórs Akureyrar hefur lítinn áhuga á að styðja lið Breiðabliks í leiknum gegn KA í Pepsi Max deild karla í kvöld. Svo virðist sem bæjarstoltið toppi ríginn sem ríkir á milli félaganna.
Vængbrotið lið KA getur blandað sér í toppbaráttuna
Í kvöld mætast KA og Breiðablik á Greifavellinum á Akureyri í leik sem gæti skipt sköpum í toppbaráttu Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu.
Stuðningssveit Blika biður Þórsara um hjálp
Kópacabana, stuðningsmannasveit Breiðabliks, hefur beðið um aðstoð fyrir leikinn mikilvæga gegn KA í kvöld. Sveitin hefur beðið gallharða Þórsara um að mæta með sér í stúkuna og styðja við bakið á Blikum er liðið mætir á Greifavöll í dag.
Kristinn framlengir til ársins 2023
Kristinn Steindórsson hefur framlengt samning sinn við Breiðablik til ársins 2023. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum félagsins í dag.
Eldskírn í bakverði í sex stiga fallslag: „Var bara frábær í þessum leik“
Hinn ungi og efnilegi Óli Valur Ómarsson lék í stöðu hægri bakvarðar í fallslag Stjörnunnar og Fylkis í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Óli Valur, sem leikur vanalega mun framar á vellinum, stóð sig með sóma en farið var yfir frammistöðu hans í Stúkunni að leik loknum.
„Átti erfitt með að einbeita mér og muna hvað hafði gerst í leiknum“
Brynjar Gauti Guðjónsson, varnarmaður Stjörnunnar, þurfti að fara af velli í 2-0 sigri Garðabæjarliðsins á Fylki í Pepsi Max-deild karla í gær vegna heilahristings.
Sjáðu mörk Stjörnunnar og umræðuna um markið sem var dæmt af Leikni: „Fyrir mér hefur hann ekki áhrif á leikinn“
Tveir leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í gærkvöld. Stjarnan vann gríðarlega mikilvægan 2-0 sigur á Fylki en fyrir leik voru bæði lið aðeins þremur stigum frá fallsæti. Leiknir Reykjavík og HK gerðu þá markalaust jafntefli þar sem mark var dæmt af Leikni.
Slysið haft mikil áhrif á feril Sölva: „Bíllinn flaug 40 metra“
Sölvi Geir Ottesen, varnarmaður Víkings Reykjavíkur, tilkynnti í viðtali við Stöð 2 í gær að yfirstandandi leiktíð væri hans síðasta á ferlinum. Sá ferill hefur að miklu leyti einkennst af meiðslum sem rekja má aftur til bílslyss sem hann lenti í ungur að árum.
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fylkir 2-0 | Garðbæingar unnu fallslaginn
Stjarnan steig stórt skref frá fallsvæðinu í Pepsi Max-deild karla í fótbolta með 2-0 heimasigri á Fylki í kvöld. Fylkismenn eru í bráðri hættu eftir að hafa leikið sex leiki í röð án sigurs.
„Þetta var góður vinnusigur hjá okkur og við spiluðum vel“
Stjörnumenn unnu 2-0 sigur á Fylki í Pepsi-Max deild karla á heimavelli í Garðabænum í kvöld. Þorvarldur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var léttur í leikslok.
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R. - HK 0-0 | Markalaust í Breiðholti
Það var mikið í húfi fyrir gestina úr Kópavogi þegar þeir mættu nýliðum Leiknis á Domusnovavellinum.Markmenn beggja liða voru á tánum í leiknum og átti þeir báðir góðan leik. Í fyrri hálfleik átti Arnar Freyr Ólafsson frábæra markvörslu þegar hann varði skalla frá Sóloni Breka.Í seinni hálfleik varði Guy Smit þrumu skot frá Ívari Erni Jónssyni. Liðin fóru síðan bæði að skjóta boltanum langt fram sem lukkaðist ekki og 0-0 jafntefli niðurstaðan.
Leiknir voru með flest alla sína leikmenn fyrir aftan miðju í seinni hálfleik
HK sótti stig á Domusnovavellinum gegn Leikni. Fyriliði HK Leifur Andri Leifsson var ánægður með að liðið hélt hreinu en var svekktur að ná ekki inn einu marki.
„Þetta er svolítið glórulaust hjá mér“
„Þetta gerðist svo fljótt að það eina sem mér datt í hug var að henda hausnum fyrir þetta. sagði Sölvi Geir Ottesen, varnarmaður Víkings, um björgun sína á marklínu með höfðinu er lið hans vann Val 2-1 í toppslag í Pepsi Max-deild karla í fótbolta í gær. Sölvi Geir segist ætla að hætta eftir tímabilið og vill kveðja með Íslandsmeistaratitli.
Ekki háskaleikur hjá Sölva: „Held að maður hefði alltaf leyst þetta eins“
Þóroddur Hjaltalín, formaður dómaranefndar KSÍ, telur að ekki hafi verið um háskaleik að ræða þegar Sölvi Geir Ottesen bjargaði á línu í leik Víkings og Vals í Pepsi Max-deild karla í gær.
ÍTF vill fleiri en tvö hundruð í hverju hólfi og grímurnar burt
Íslenskur toppfótbolti, hagsmunasamtök félaganna í efstu tveimur deildum karla og kvenna, telur rétt að endurskoða reglur um sóttvarnir á kappleikjum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum.
Erlingur fann fyrir óþægindum og var tekinn af velli
Erlingur Agnarsson, leikmaður Víkings, var tekinn af velli í fyrri hálfleik á 2-1 sigri á Íslandsmeisturum Vals í gær. Erlingur og Haukur Páll Sigurðsson skullu saman með þeim afleiðingum að Erlingur þurfti að yfirgefa völlinn snemma leiks.
Um ótrúlega björgun Sölva Geirs: Talandi um að vera stríðsmaður og fórna sér fyrir málstaðinn
Sölvi Geir Ottesen, fyrirliði Víkinga, var óvænt í stöðu hægri bakvarðar í stórleik Víkings og Vals í Pepsi Max deild karla. Þessi 37 ára gamli leysti það verkefni óaðfinnanlega að mati Reynis Leóssonar, sérfræðings Pepsi Max Stúkunnar.
Sjáðu mörkin er Víkingur jafnaði Val að stigum á toppi deildarinnar
Víkingur lagði Íslandsmeistara Val 2-1 í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Valsarar voru heppnir að tapa með aðeins einu marki og halda í toppsætið sem stendur þökk sé markatölu. Hér að neðan má sjá mörkin þrjú sem skoruð voru.